Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 24

Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 24 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STARFSLEYFI verðbréfafyrir- tækisins Burnham International á Íslandi hf. var afturkallað fyrr í vik- unni og var skrifstofum fyrirtækis- ins lokað í framhaldinu. Forsvars- menn Burnham hafa greint frá því að fyrirtækinu hafi gengið ágætlega í byrjun síðasta árs en markaðsþró- unin hafi síðan verið á móti því. Tap af rekstrinum hafi verið langvarandi þótt reynt hafi verið að bæta ástand- ið allt þetta ár. Eins og markaðurinn hafi verið, sérstaklega eftir 11. sept- ember, hafi það verið mjög erfitt. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að meginástæðan fyrir erfið- leikum Burnham International á Ís- landi séu kaup fyrirtækisins á hlutabréfum í bresku netfyrirtæki fyrir um eina milljón sterlingspunda, jafngildi rúmlega 150 milljóna ís- lenskra króna. Þetta mun að mestu vera tapað fé, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Kaupin á hluta- bréfum þessa netfyrirtækis voru á genginu u.þ.b. 50 en fljótlega féll gengi bréfanna niður í um 5. Burnham keypti umrædd hluta- bréf fyrir lánsfjármagn. Beint tap fyrirtækisins er a.m.k. 130–140 millj- ónir króna, ef einungis er litið til lækkunar á gengi bréfanna. Það er hærri fjárhæð en þær u.þ.b. 90 millj- ónir sem fyrirtækið þurfti að eiga að lágmarki í eigin fé, þ.e. 8% af áhættugrunni, samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Ástæða þess að viðskiptaráðuneytið afturkallaði starfsleyfi Burnham fyrr í vikunni var einmitt sú að eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var undir lágmarks- kröfum laga um verðbréfaviðskipti varðandi eigið fé. Þegar Burnham International á Íslandi var stofnað sagði Jon Burn- ham, forstjóri og stjórnarformaður Burnham Securities í New York og stjórnarmaður í Burnham Internat- ional á Íslandi, að fyrirtækið myndi innleiða nýjungar á íslenskum fjár- málamarkaði. Þær nýjungar náðu hins vegar ekki að setja mark sitt á markaðinn á þeim rúmu tveimur ár- um sem fyrirtækið hefur verið starf- rækt hér á landi. Burnham tekur yfir Handsal Verðbréfafyrirtækið Burnham International á Íslandi hf. tók yfir verðbréfafyrirtækið Handsal hf. um mitt ár 1999. Burnham Securities í New York eiga 36% hlut í fyrirtæk- inu. Guðmundur Franklín Jónsson, sem starfar sem einn af fram- kvæmdastjórum Burnham Securit- ies í New York, á 40% í fyrirtækinu og er jafnframt stjórnarformaður þess. Afgangurinn af hlutafé félags- ins, 24%, er í eigu 61 hluthafa. Þar á meðal eru fyrrverandi eigendur Handsals. Stjórnarmenn í Burnham Inter- national á Íslandi auk Guðmundar Franklín eru Davíð Scheving Thor- steinsson, Jon Burnham, Sigrún Ey- steinsdóttir, framkvæmdastjóri Burnham International á Íslandi, og Ingvar J. Karlsson framkvæmda- stjóri. Tap af rekstri Handsals Tilkynnt var til Verðbréfaþings Íslands í júní 1999 að nafni Handsals hefði verið breytt í Burnham Int- ernational á Íslandi, en Handsal var þingaðili á VÞÍ. Um þremur mán- uðum áður hafði VÞÍ sent Handsali tilkynningu þar sem fyrirtækinu var gefinn skammur frestur til að ráða bót á kröfum um lágmarks eigið fé. Verðbréfafyrirtækið Handsal var stofnað í janúar 1991. Fyrirtækið var rekið með tapi fjögur ár í röð, frá 1995 til 1998, áður en Burnham tók það yfir. Í byrjun árs 1998 hafði hlutafé Handsals verið fært niður og aukið að nýju, vegna ónógrar eigin- fjárstöðu. Góð afkoma á fyrsta ári Fyrstu fréttir af afkomu Burnham International á Íslandi voru á þá lund að tapi hefði verið snúið í hagn- að. Sex mánaða uppgjör Burnham á árinu 2000 skilaði rúmlega 85 millj- óna króna hagnaði. Tapið á sama tíma árið áður hafði verið rúmar 30 milljónir, sem sagt var að mætti að nær öllu leyti rekja til þess tíma áður en Burnham keypti Handsal. Um- skipti á rúmlega einu ári frá því því Burnham tók til starfa voru því hátt í 120 milljónir króna. Á þessum tíma, þ.e. um mitt ár 2000, var eigið fé Burnham Inter- national á Íslandi 177 milljónir og eiginfjárhlutfallið 16,7%. Ávöxtun eigin fjár fyrstu 6 mánuði ársins 2000 var tæp 50%. Afkoma Burnham á árinu 2000 var ekki birt opinberlega en ljóst er að frá því greint var frá hagnaðinum um mitt árið fór að halla undan fæti. Veltu- eða fjárfestingarbók Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru kaup Burnham Int- ernational á Íslandi á hlutabréfunum í breska netfyrirtækinu, sem að framan greinir og mikið tap varð á, færð á svonefnda veltubók fyrirtæk- isins. Lækkun á gengi hlutabréfa breska fyrirtækisins kom því strax fram í bókhaldi Burnham. Hugsan- lega hefði verið hægt að framlengja líf Burnham eitthvað ef hlutabréfin hefðu verið færð í svonefnda fjár- festingarbók, í þeirri von að gengi þeirra myndi einhvern tíma hækka, og ef það hefði verið ætlun fyrirtæk- isins að eiga bréfin. Áberandi í fjármálaheiminum Burnham-fjölskyldan hefur lengi tengst fjármálum. I.W. Burnham, faðir Jons Burnham, stofnaði Burn- ham & Company árið 1935. Fyrir- tækið dafnaði ágætlega. Árið 1972 keypti það annað verðbréfafyrir- tæki, Drexel Firestone, og voru fyr- irtækin tvö sameinuð. Fimm árum síðar gekk fyrirtækið til samstarfs við belgískan banka, Banque Brux- elles Lambert, og úr varð verðbréfa- fyrirtækið Drexel Burnham Lam- bert. Það átti eftir að vekja mikla athygli og vaxa gífurlega á áratugn- um þar á eftir en nálægt 12.000 manns störfuðu hjá fyrirtækinu þeg- ar mest var. Mesta athyglin sem fyr- irtækið vakti kom þó ekki til af góðu. Einn frægasti starfsmaður Drexel Burnham Lambert var ungur verð- bréfamiðlari, Michael R. Milken að nafni. Hans er minnst fyrir að hafa þróað leið til að skapa markað fyrir svokölluð skuldabréf með mikilli óvissu, sem á ensku nefnast „junk bonds“. Á níunda áratug síðustu ald- ar var Michael R. Milken ókrýndur konungur slíkra viðskipta og velti hundruðum milljarða dollara á fáum árum. En Milken rataði af vegi dyggð- arinnar. Hann var kærður fyrir óheiðarlega viðskiptahætti og inn- herjaviðskipti árið 1988, og dæmdur til fangelsisvistar og greiðslu á sekt og málskostnaði upp á rúman einn milljarð dollara. Engu að síður var Milken auðugur maður á eftir. Í framhaldi af þessum hremming- um lenti Drexel Burnham Lambert- fyrirtækið í vandræðum og var tekið til gjaldþrotaskipta árið 1990, en jafnframt lentu fleiri aðilar í Banda- ríkjunum í vandræðum vegna þessa máls. I.W. Burnham var hættur af- skiptum af stjórn fyrirtækisins er til þessa kom, en hann var forstjóri Drexel Burnham Lambert til ársins 1976 og stjórnarformaður til 1984, er hann seldi meginhlutann af hluta- bréfum sínum í fyrirtækinu. Burnham Securities var stofnað árið 1989. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns og eins og áður segir er Jon Burnham, forstjóri og stjórnar- formaður. Nýjungar á fjármálamarkaði Jon Burnham sagði í samtali við Morgunblaðið 15. apríl 1999, þegar greint hafði verið frá fyrirhuguðum kaupum Burnham Securities á Handsali hf. ásamt Guðmundi Franklín Jónssyni, að Burnham fjöl- skyldan hefði alltaf haft áhuga á að gera eitthvað nýtt. Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem banda- rískt verðbréfafyrirtæki, sem starf- aði í New York, opnaði útibú á Ís- landi, sem honum fyndist áhugavert. Gamla Burnham-fyrirtækið hefði einmitt verið fyrst bandarískra verð- bréfafyrirtækja til að setja upp útibú erlendis. Jon Burnham sagði einnig að með kaupunum á Handsali væri í raun að- eins verið að kaupa húsnæði, hús- gögn, tölvur og slíkt. Því fylgdu eng- ar skuldbindingar sem tilheyrðu Handsali og því yrði alveg um nýtt fyrirtæki að ræða. Með kaupunum hefði hins vegar ekki þurft að byrja frá grunni. Spurður um framtíðarsýn hins nýja fyrirtækis, Burnham Internat- ional á Íslandi, sagðist Jon Burnham viss um að fyrirtækið myndi innleiða einhverjar nýjungar á íslenskum fjármálamarkaði. Fyrirtækið muni geta haft „opinn glugga“ inn á fjár- málamarkaðinn í Wall Street vegna tengsla við móðurfyrirtækið í New York. „Hér munu verða til reiðu upp- lýsingar um t.d. fjárfestingarkosti í Bandaríkjunum með greiðari hætti en áður. Eins getum við innleitt ýms- ar nýjar leiðir við að ganga frá fjár- mögnun fyrirtækja. Ég held að það muni koma ýmsar nýjungar fram með tímanum,“ sagði Jon Burnham. Hann bætti og við að með tengsl- unum við Bandaríkin myndi ef til vill koma hingað til lands einhver amer- ísk hugvitssemi. Viðskiptavinir skaðast ekki Sigurmar Albertsson hrl. hefur verið skipaður skiptastjóri Burnham International á Íslandi, til að taka við rekstri félagsins og standa vörð um hagsmuni þeirra sem réttindi eiga á hendur félaginu. Guðmundur Franklín Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið að viðskiptavinir Burnham Internation- al á Íslandi mundu ekki skaðast af slitum félagsins. Hluthafar mundu hins vegar tapa öllu sem þeir hefðu lagt í fyrirtækið. Burnham International á Íslandi hf. náði ekki að innleiða nýjungar eins og að var stefnt Kaup í netfyrirtæki gerðu útslagið Morgunblaðið/Golli Halla fór undan fæti hjá Burnham á Íslandi eftir um eins árs starfsemi. Óhagstæð markaðs- þróun er meginástæða þess að starfsleyfi Burnham International á Íslandi hf. hefur verið afturkallað. Stóran þátt eiga þó kaup fyrir- tækisins á hlutabréfum í bresku netfyrirtæki fyrir um ári. Tap Burnham vegna þeirra kaupa er að lágmarki 130–140 milljónir króna. SLÁTURFÉLAG Suðurlands, SS, var rekið með 103 milljóna króna tapi fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 8 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Tap af reglulegri starfsemi nam 114 milljónum króna en 15 milljóna króna hagnaður var á sama tímabili í fyrra. Helstu skýringar á verri afkomu félagsins er að finna í auknum fjár- munagjöldum, úr 33 milljónum í 122 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá SS stafar aukningin af lækkun krónunnar og niðurfærslu hluta- bréfaeignar. Rekstrartekjur SS námu 2.353 milljónum króna samanborið við 2.243 milljónir á sama tímabili í fyrra. Rekstrargjöldin námu 2.238 milljón- um en voru 2.094 milljónir á sama tímabili í fyrra. Veltufé frá rekstri lækkar úr 134 milljónum í 79 milljónir en eiginfjár- hlutfallið er 43%. Í tilkynningu til Verðbréfaþings Íslands kemur fram að afkoma fé- lagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2001 sé óviðunandi og einkennist af mikilli verðsamkeppni sem hafði nei- kvæð áhrif á afkomu félagsins, auk gengistaps og kostnaðarhækkana. „Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er þó sterk, jafnframt því sem markaðs- hlutdeild félagsins er að vaxa á kjöt- markaðnum. Afkoma Sláturfélagsins hefur undanfarin ár verið best á síð- asta ársfjórðungi. Þetta stafar m.a. af afkomu afurðadeildar en umsvif hennar aukast við haustslátrun sauð- fjár en mikil aukning var í sauðfjár- slátrun hjá Sláturfélaginu í haust sem leiðir til betri nýtingar á slát- urhúsum félagsins. Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða til að draga úr útgjöldum auk þess sem fjárfest- ingar í varanlegum rekstrarfjármun- um verða enn dregnar saman á næstu misserum. Gert er ráð fyrir að framangreindar aðgerðir og aðstæð- ur á markaði muni leiða til bættrar afkomu Sláturfélagsins á síðasta árs- fjórðungi, en þó ekki nægjanlega til þess að hagnaður verði á árinu 2001,“ segir ennfremur í tilkynningu til VÞÍ. Umskipti til hins verra hjá Sláturfélagi Suðurlands Tilboð: Ef keyptar eru þrjár vörur frá Chicco fylgir vegleg taska með baðvörum að verðmæti 1.995 kr.* *meðan birgðir endast ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA OG NÆRA MEÐ BARNAVÖRUNUM FRÁ CHICCO Hvar sem barn er að finna leikföng umönnunarvörur baðvörur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.