Morgunblaðið - 30.11.2001, Qupperneq 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 33
Laugavegi 32,
sími 551 6477
AFMÆLISVEISLA
Daman 30 ára
Fallegur náttfatnaður.
Satín með bómull að innan.
Silki og bómull.
Mikið úrval af sloppum
og innigöllum úr velúr
og flís.
20% afmælisafsláttur
helgina 30. nóv. og 1. des.
Ath.
þetta!
Gleraugnaumgjörð og gler
fyrir vinnu, lestur og tölvu
frá kr. 11.600
Ennfremur frábært verð á
progressiv/margskiptugleri
Laugavegi 36
Jólagjaf irnar
hjá okkur eru í
glæsi legum
gjafaumbúðum
Bankastræti 8, sími 511 1135
Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra
www.jaktin.is
Laugavegi 54, sími 552 5201
Peysur 2 fyrir 1
Opið til kl. 18 laugardag
Tilvaldar í jólagjöf
Ullarkápur
Kr. 12.990
Stærðir 36-46
JÓLABYRJUN Í FLASH
Rúllukragapeysur
Vinnufatabúðin
Laugavegi 76, sími 551 5425.
Spa
raðu
30%
Turtleneck peysur í 5 litum
DIANE Pretty, sem er dauð-
vona vegna vaxandi lömunar,
ákvað í gær að halda áfram bar-
áttu sinni fyrir því að fá að stytta
sér aldur en breska lávarða-
deildin, æðsta dómstig í Bret-
landi, hafði þá hafnað þeirri ósk
hennar.
Lávarðadeildin úrskurðaði,
að eiginmaður Pretty gerðist
sekur um glæp ef hann hjálpaði
henni við að svipta sig lífi.
„Ég vil fá að fara en svo er að
sjá sem ég sé alveg réttlaus,“
sagði Pretty eftir að dómurinn
hafði verið kveðinn upp en hún
er lömuð frá hálsi og niður og
verður að nærast í gegnum
slöngu. Á hún líklega aðeins
nokkra mánuði ólifaða. Ætlar
hún nú að skjóta málinu til
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Dómararnir eða lávarðarnir
fimm, sem dæmdu í málinu,
kváðust hafa mikla samúð með
Pretty og ósk hennar um að „fá
að deyja með reisn“ en lögin
væru skýr og eftir þeim yrði að
fara þar til þingið breytti þeim.
Þeir bentu líka á, að evrópska
mannréttindalöggjöfin heimil-
aði ekki líknarmorð og sam-
kvæmt enskum lögum eru við-
urlög við því allt að 14 ára
fangelsi.
Vegna lömunarinnar getur
Pretty ekki kvatt þrautir sínar
ein og óstudd en Brian, eigin-
maður hennar, vill fá að hjálpa
henni með löglegum hætti.
Fær ekki
hjálp við
að deyja
London. AFP.
HERSVEITIR Bandaríkjanna
reyna nú að þrengja hringinn um
forsprakka talibana og al-Qaeda í
Afganistan, og einbeita sér að tveim
stöðum þar sem mótspyrnan er hvað
hörðust, og á hvorum stað um sig er
við ramman reip að draga.
Annar staðurinn er borgin Kand-
ahar í suðurhluta landsins, andleg
miðstöð talibanahreyfingarinnar og
sá staður sem bandaríska varnar-
málaráðuneytið (Pentagon) reiknar
með að verði síðasta vígi Mohamm-
ads Omars, leiðtoga hreyfingarinn-
ar, sem talinn er vera í borginni
núna, og talsverðs hóps staðfastra
stuðningsmanna hans.
Hellar og fjallafylgsni
Hinn staðurinn er stórt, ógreið-
fært landsvæði í austurhlutanum á
milli höfuðborgarinnar Kabúl og
Khyber-skarðs, sem er á landamær-
um Afganistans og Pakistans. Á því
svæði er fjöldi afskekktra hella og
fjallafylgsna – þ. á m. virkið Tora
Bora, sem er grafið rúma 300 metra
inn í fjallshlíð í um 3.900 m hæð yfir
sjávarmáli í Nangahar-héraði.
Vitað var að Osama bin Laden,
leiðtogi al-Qaeda, kom oft á þennan
stað áður en loftárásir Bandaríkj-
anna á Afganistan hófust 7. október,
og bandarísk yfirvöld hafa nokkra
ástæðu til að ætla að bin Laden sé nú
í felum á þessu svæði ásamt allt að
tvö þúsund al-Qaeda-liðum.
Með stöðugum loftárásum Banda-
ríkjamanna, sérsveitum á jörðu niðri
og samstarfi við afganska andstæð-
inga talibana hefur tekist að hrekja
talibana og hermenn al-Qaeda burt
úr flestum héruðum landsins. En
árás á Omar í Kandahar og leit að
bin Laden í fjöllunum setja banda-
ríska hermenn í erfiðustu aðstöðu
sem þeir hafa lent í í Afganistan. Ef
til vill kallar þetta því á nýjar aðferð-
ir, öðruvísi vopn og aukinn mannafla.
Tommy Franks, yfirmaður her-
afla Bandaríkjamanna í Afganistan,
útskýrði hvers vegna herförin, sem
staðið hefur í tæpa tvo mánuði,
beindist nú að þessum tveimur stöð-
um. Þar sem svo að segja allir aðrir
staðir í landinu eru nú í höndum and-
stæðinga talibana er eðlilegt að
stríðið beinist nú að þeim fáu stöðum
sem eftir eru.
Aðdráttarleiðum lokað
Franks sagði að við Kandahar
hygðist hann beita sömu aðferðum
og notaðar voru til að hrekja talibana
á brott frá borgum í norðurhlutanum
– loka aðdráttarleiðum og bíða við
borgarmörkin, ásamt afgönskum
stjórnarandstæðingum, á meðan
samið er um uppgjöf, fremur en að
reyna að rústa öllu á svæðinu.
Það hefur valdið Bandaríkja-
mönnum nokkrum erfiðleikum í suð-
urhluta Afganistans, að þar var ekki
fyrir hendi neitt bandalag andstæð-
ing talibana, eins og í norðurhlutan-
um, þar sem Úsbekar, Hasarar og
Tadsíkar höfðu tekið höndum sam-
an. En á undanförnum dögum hafa
nokkrir leiðtogar ættbálka Pastúna í
suðurhlutanum reynt að ná völdum á
öðrum svæðum sem talibanar réðu.
Fyrr í vikunni settu bandarískir
landgönguliðar upp bækistöð í eyði-
mörkinni suðvestur af Kandahar,
sem benti til að Bandaríkjamenn
kynnu að hafa í hyggju að ráðast á
borgina. En Franks sagði að tilgang-
urinn með bækistöð landgöngulið-
anna – sem hann sagði að yrði fjölg-
að í um eitt þúsund – væri fyrst og
fremst að auka sálrænan og hern-
aðarlegan þrýsting á borgina, með
því að loka vegum og koma í veg fyr-
ir að talibanar og erlendir liðsmenn
þeirra geti flúið.
Leitað eftir aðstoð
Við leitina að bin Laden hafa
Bandaríkjamenn falast eftir aðstoð
ættbálkahöfðingja sem hafa mann-
skap er þekkir fjallahéruðin vel.
Einn þessara höfðingja, Haji Mo-
hammed Zaman, sagði í síðustu viku
að hann væri reiðubúinn til að um-
kringja fjallavirkið Tora Bora og
loka aðdráttarleiðum – en ekki nema
hann fengi peninga og vopn frá Vest-
urlöndum.
Síðastliðinn miðvikudag kvaðst
Zaman hafa átt fund með fulltrúa
Bandaríkjastjórnar. Þá hefði hann
einnig sent afganska sendinefnd frá
borginni Jalalabad til fjarlægs fjalla-
þorps til þess að fara fram á stuðning
Shinwari-ættbálksins, en yfirráða-
svæði hans liggur að Tora Bora.
Virkið var byggt af mujahedeen-
skæruliðum með hjálp frá banda-
rísku leyniþjónustunni á níunda ára-
tugnum, er skæruliðarnir börðust
gegn sovéska hernum. Þá var virkið,
sem er flókið net af hellum og göng-
um, grafið í fjallshlíð, notað sem felu-
staður skæruliða og höfuðstöðvar.
Síðustu vígi talibana
erfiðustu hjallarnir
The Washington Post.