Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 35

Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 35 Heimsferðir eru stoltar af að kynna nýjan gististað sinn á Kanaríeyjum í vetur. Við getum nú boðið Los Tilos gististaðinn á frábærum kjörum, en við höfum einnig tryggt okkur viðbótargistingu á San Valentin Park, Green Field og Hótel Neptuno. Beint vikulegt flug alla fimmtudaga í allan vetur. Þú getur valið um þá ferðalengd sem þér hentar best, 1, 2, 3, 4 vikur eða lengur. Þú nýtur þjónustu okkar reyndu fararstjóra á meðan á dvölinni stendur. Beint flug með glæsilegum Boeing 737-800 vélum FUTURA flugfélagsins án millilendingar. Við tryggjum þér lægsta verðið Kr. 63.205.- Vikuferð, 10. janúar, hjón með 2 börn, Los Tilos. Kr. 78.950.- 1 vika, Los Tilos, 10. janúar, 2 í íbúð. Kr. 96.450.- 2 í íbúð, Los Tilos, 10. janúar, 2 vikur. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is  Vikuleg flug alla fimmtudaga. Brottfarir: 13.des viðbótarsæti 20.des 11 sæti 27.des 37 sæti 03.jan 11 sæti 10.jan 27 sæti 17.jan viðbótarsæti 24.jan viðbótarsæti 07.feb uppselt 14.feb 14 sæti 21.feb uppselt aðrar dags. viðbótarsæti Beint flug alla fimmtudaga í vetur Los Tilos á Kanarí í vetur frá kr. 63.205 SÖGUSVIÐIÐ er Frakkland nítjándu aldar. Úti á landi gengur laus ógurleg skepna sem rífur í sig fólk og tætir. Sama hversu mikið og hversu margir reyna að fanga hana, sleppur hún úr greipum allra. Þá birtist Grégoire de Fronsac, dýralífs- fræðingur einhvers konar, heimspek- ingur, og ég veit ekki hvað, til að redda málunum. Ýmsilegt á eftir að ganga á, ástin og kynhvötin fá sinn skammt, yfirnáttúrulegir hlutir og meiriháttar mannillska. Aðalleikarar tveir í þessari mynd eru topparnir í franskri kvikmynda- gerð. Nokkrar myndir hafa verið sýndar hér á landi með Simon Le Bihan, sem er eitt mesta kyntáknið um þessar mundir. Vincent Cassel hefur lengi verið vinsæll leikari og margir íslenskir kvikmyndaáhuga- menn þekkja hann. Simon leikur góða manninn sem bjargar öllum og öllu, en Vincent leikur vonda mann- inn, systur greifynjunnar, sem er reiður ungur maður. Gamli jaxlinn Jacques Perrin kíkir við í keimlíku hlutverki og í ítölsku myndinni Cinema Paradiso, Jérémie Rénier er eftirsóttur ungur leikari, einnig Emélie Dequenne. Monica Bellucci, sem lék Malenu, er hér áhrifamikil og virt gleðikona, og Mark Dacascos, sem leikur indíán- ann, er þekktur bardagalistamaður. En frambærilegir leikarar geta ekki bjargað kvikmynd sem er ein mesta hörmung sem ég hef lengi séð. Hér er algerlega verið að reyna að búa til kvikmynd eftir amerísku formúlunni, en handritið er langt fyr- ir neðan allar hellur. En þessu hefur Frakkinn haft trú á og peningunum er hér sóað þannig að manni verður illt í augum á því að horfa á myndina. Ég verð að viðurkenna að ég þekki lítið til þessa leikstjóra og handrits- höfundar, en þeir eru nú með aðra mynd á leiðinni og verður Vincent Cassel aftur með þeim í för, sem þýð- ir að eitthvað hefur þessi mynd geng- ið í Frakklandi og kannski víðar. Le Pacte des Loups er að mínu mati ótrúlegt samansull stíla og stefja annarra kvikmynda héðan og þaðan. Hér vottar hvorki fyrir frum- leika né persónulegu handbragði eða hugsun á neinn hátt. Þessir náungar hafa stolið bestu atriðunum úr sínum uppáhaldsmyndum og sullað þeim saman í eina kvikmynd sem er órök- rétt, ósannfærandi og full af lausum þráðum. Höfundar virðast ætlast til þess að fólk hafi þegar séð þessar kvikmyndir og átti sig á því hvað er að gerast án þess að skýra það neitt nánar. Dæmi um það er þegar gleði- konan lætur hann tyggja eitthvert drasl og þannig halda allir að hann sé dáinn en svo lifnar hann við eftir ein- hvern tíma. Ekki ósvipað því sem Rómeó gekk í gegnum í kvikmynd- inni/leikritinu Rómeó og Júlía. Hér má finna áhrif frá bardagamyndun- um sem eru svo vinsælar nú um mundir, og sem kemur fáránlega inn í þetta samhengi. John Woo kíkir í heimsókn, enda víst fleiri en Banda- ríkjamenn undir áhrifum frá honum. Dansar við úlfa er ekki fjarri, og andi Hróa hattar svífur yfir vötnum. Skrímslið er eitthvert ótrúlega furðu- legt sambland af hinum vinsælu risa- eðlum og einhverju öðru furðudýri, en það virkar einsog tímaskekkja alla myndina. Þegar maður fær útskýr- ingar á því, á maður ósköp bágt með að trúa að þetta sé mögulegt. Drak- úla og aðrir kunnuglegir djöflar beita einnig sínum áhrifum, og svo mætti lengi telja. Svona myndir þar sem allt er stælt eru gjarna kallaðar „pastiche“ mynd- ir. Mig langar frekar að segja að þetta sé „paródía“ eða skopstæling, því svona sundurlaust og samansull- að eru þessi áhrif, sem meistaralega hafa verið fundin upp og notuð, orðin að hálfgerðum brandara. En 142 mín- útur er langur brandari. Ótrúlegt samansull KVIKMYNDIR Háskólabíó Leikstjóri: Christophe Gans. Handrit: Stéphane Cabel og C. Gans. Kvikmynda- taka: Dan Lautsen. Aðalhlutverk: Sam- uel Le Bihan, Vincent Cassel, Emélie Duquenne, Jérémie Rénier, Monica Bell- ucci og Mark Dacascos. 142 mín. Frakkland 2001. Universal Pictures. SÁTTMÁLI ÚLFANNA / LE PACTE DES LOUPS  Hildur Loftsdóttir TUTTUGASTA öldin mun mjög lík- lega verða skilgreind sem tími mikilla sviptinga í listsköp- un og þá mun verða miðað við stórmenni eins og Schönberg, Webern og Berg, sem reyndu að koma nýrri skikkan á tón- hugmyndir manna, er varðar tónferli, blæbrigði og hryn- skipan en notuðu hefðbundin hljóð- færi. Edgar Varése reyndi nýjar tón- myndunaraðferðir og hljóðið, án sér- stakrar tónstöðu, varð viðfangsefni hans. Í verkum hans voru tekin í notkun mörg ný hljóðfæri, jafnvel sírenur og rafhljóð, það er ljóst að verk eins og Ionisation (jónun), sem Varése samdi á árunum 1929–31, hafði af- gerandi áhrif á tónskáld og umbylti hugmyndum manna um tónlist. Verkið er samið fyrir 41 slaghljóð- færi (ekki 37 eins og stendur í efnis- skrá) og tvær sírenur og er trúlega eitthvert fægasta verk meistarans. Hér var það afburðavel flutt af Kroumata-slagverkshópnum, þótt frekar hafi hlutur sírenanna verið í tæpara lagi, hvað snertir hljóm og verkað hljómlitlar sem eftirlíkingar. Annað verkið á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í gærkveldi var hljómsveitar- og rafverkið Punktar eftir Magnús Blöndal Jó- hannsson sem hann samdi 1961 og markaði það tímamót í íslenskri tón- list, bæði er varðaði ritháttinn fyrir hljómsveitina, sem er í samræmi við nafn verksins, byggt á tónpunktum, sem líta má á sem framhald þeirrar tækni er Webern vann eftir, og einn- ig fyrir samskipan rafhljóða sem þá var algjör nýjung hér á landi. Þetta tímamótaverk hefur elst vel og var mjög vel flutt undir stjórn Diegos Massons. Trúlega þyrfti að endur- vinna rahljóðaþáttinn til samræmis við nýrri og full- komnari upptöku- tækni en völ var á þegar verkið var samið. Lokaverk tón- leikanna var verkið Geschlagene Zeit, eftir Slesíumanninn Georg Katzer (1935). Þetta verk er samið 1997 og sver sig í ætt við tilraunatónlistina frá því um miðbik ný- liðinnar aldar og er að því leyti til ekki sérlega frumlegt en vel unnið að mörgu leyti og sérlega vel flutt af Kroumata- slagverkshópnum og Sinfóníuhljómsveit Íslands undir frá- bærri stjórn Diegos Massons. Kroumata-hópurinn er skipaður afburðagóðum slagverks- mönnum og svona til að létta mönn- um skapið léku þeir sem aukalag tangó, unninn yfir þekkt stef eftir Kurt Weill, á tvær harmonikkur, tvo víbrafóna, bassa og trommur. Þarna gat að heyra sérlega vel útfærðan leik á víbrafónana og einnig skemmtilega mótaðan hrynleik með harmoikkunum og fékk Kurt Weill þarna alveg nýja mynd, í sérlega skemmtilegri útsetningu eins úr Kroumata-hópnum. Tónleikarnir voru í raun „nost- algia“ í bestu merkingu orðsins, þar sem nýliðinn nútími var viðfangsefn- ið því flutt voru tvö verk sem ýfðu upp viðkvæm vandamál og deilur varðandi listsköpun á nýliðinni öld en eru nú orðin klassísk fortíð og eitt nýtt, sem þó er ekki nýtt í gerð sinni, heldur bergmál þess sem var. Nýliðinn nútími TÓNLIST Háskólabíó Flutt vor tónverk eftir Edgar Varése, Magnús Blöndal Jóhannsson og Georg Katzer. Einleikarar Kroumata slagverks- hópurinn. Stjórnandi Diego Masson. Fimmtudagurinn 29. nóvember 2001. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson Diego Masson FJÓRAR íslenskar listastofnanir, Íslenska óperan, Þjóðleikhúsið, Sin- fóníuhljómsveit Íslands og Listahá- tíð í Reykjavík, undirrituðu í gær- dag viðamikinn samstarfssamning um flutning óperunnar Hollend- ingsins fljúgandi eftir Richard Wagner. Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík sagði að undirbúningur að þessu samstarfi hefði staðið í um það bil ár og að þetta væri jafnframt í fyrsta sinn sem Wagnerópera er flutt á Íslandi í fullri lengd. Óperan verður frumsýnd á stóra sviði Þjóð- leikhússins á opnunarkvöldi Listahátíðar í Reykjavík þann 11. maí 2002. Undir samninginn rituðu fyrir hönd samstarfsaðila Bjarni Dan- íelsson, óperustjóri, Stefán Bald- ursson þjóðleikhússtjóri, Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Halldór Guðmundsson, stjórn- arformaður Listahátíðar í Reykja- vík. Bjarni sagði að Íslenska óperan myndi leggja verkefninu til 40 manna kór undir stjórn Garðars Cortes og jafnframt alla einsöngv- ara en þeir verða Matthew Best, El- ín Ósk Óskarsdottir, Magnea Tóm- asdóttir, Viðar Gunnarsson, Kol- beinn Ketilsson, Alina Dubik og Snorri Wium. Þjóðleikhúsið leggur til alla að- stöðu til sviðsetningarinnar og list- ræna stjórnendur sem eru Saskia Kuhlmann leikstjóri, Heinz Hauser leikmyndahönnuður, Þórunn Sig- ríður Þorgrímsdóttir og Filippía Elíasdóttir búningahönnuðir, Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósa- hönnuður og Randver Þorláksson aðstoðarleikstjóri. Sinfóníu- hljómsveitin leggur til hljómsveit- ina og stjórnandann Gregor Bühl. Í máli Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra kom fram að samstarf sem þetta væri alls ekki jafn einfalt og ætla mætti, til þess að af því mætti verða hefði þurft að stilla saman fjölmarga strengi enda hver stofnun með alls kyns skuld- bindingar um starfsemi sína sem taka hefði þurft tillit til. Við sama tækifæri undirrituðu Þórunn Sigurðardóttir og Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Lands- banka Íslands samstarfssamning, en Landsbankinn er sérstakur kost- unaraðili verkefnisins. Morgunblaðið/Golli Björn Bjarnason, Halldór Guðmundsson, Þröstur Ólafsson, Stefán Baldursson, Bjarni Daníelsson og Halldór J. Kristjánsson að lokinni undirritun viðamikils samstarfssamnings um óperuflutning á Listahátíð í gær. Undirrita samning um flutning Hollendingsins fljúgandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.