Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 38

Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 38
MESTI fjársjóður kristinnar kirkju í tónum talinn er án efa kant- ötur J. S. Bachs. Það er því undr- unarefni hversu lítt þeim er flíkað í hérlendum guðshúsum. Hvað fálæt- inu veldur er torskilið (nema þverr- andi þýzkukunnátta og nýtilkomin einokun „upprunaréttra“ flytjenda hafi eitthvað að segja), því varla myndi hvarfla að heilvita manni að jafna hjálpræðispoppi nútímans við þessar barokkperlur. E.t.v. er á ferð svipuð sögufirring og lýsir sér í minnkandi gengi forntónlistar og vaxandi stundarhyggju almennt. Líkt og þjóðin hafi sett upp andlegar dráttarklársblöðkur og sjái nú að- eins 30 gráður fram. Það var því þakkarvert framtak í bágri stöðu að bjóða hlustendum upp á aðventukantötuna „Nun kommt der Heiden Heiland“ á tónleikunum í Háteigskirkju s.l. sunnudag. Ekki var um samnefnda tónsetningu Bachs frá 1724 á þýðingu Lúthers á „Veni redemptor gentium“ að ræða (BWV 62), heldur um eldri og nokkru viðaminni gerð frá Weimar- árinu 1714 við texta Neumeisters út frá téðum fornkirkjuhymna. Slíkar og fleiri tónsögulegar upplýsingar hefðu gjarna mátt prýða tónleika- skrá auk söngtextanna, því allt hefur áhugavekjandi gildi. Hvort heldur litlar ábendingar eins og um forn- eskjulega strengjaraddskrá fyrir tvær víóluraddir, „bank-affektar“ bassatónlessins „Ich stehe vor der Tür und klopfe an“ (IV.; Opinberun Jóh. 3,20) eða meiri eins og um fornu hefðina fyrir að tigna komu Frels- arans í byrjun aðventu sem höfð- ingjaheimsókn. Jafnvel þótt dýrleg tónlistin standi vitanlega alltaf fyrir sínu skýringarlaust. Punktuð hrynjandi franska for- leiksins er í táknrænni samsvörun við konunglega inngöngu himnanna hátignar. Hún hefði mátt vera leikin af meiri þunga og festu í litlu 8 manna strengjasveitinni, og hefðu óbóin tvö á staðnum, er aðeins heyrðust í Magnificati Vivaldis, þar komið í góðar þarfir við að skerpa línur 1. & 2. fiðlu, enda fráleitt óal- gengt (þó ekki sé alltaf tekið fram í partítúr). En trúlega hefði þá jafn- vægis vegna orðið að sleppa „a quattro“ einsöngvarakvartettinum í kórhlutverki. Fjórmenningarnir sungu ágætlega, en náðu vitaskuld varla að miðla sama glæsileika og fullskipaður kór. Einsöngstenórinn í tónlesi og aríu var ekki án tilþrifa en heldur ójafn í styrkdreifingu eftir raddsviði. Þá vantaði greinilegri danspúls í 9/8 aríunni hjá stjórnanda og hljómsveit, sem flaut liðamóta- laust áfram. Hljómmikill einsöngs- bassinn í ofangetnu sérkennilegu tónmálverki resítatífsins (IV.) missti nokkuð áhrifamátt vegna slapps þýzkuframburðar, og rútínuleysi mótaði einnig nokkuð sópranaríuna „Öffne dich, mein ganzes Herze“ í formi misstyrkrar raddbeitingar og stundum óöryggis í tónstöðu efra. Svolítið endasleppur lokakór verks- ins byggir aðeins á síðustu hending- um kóralsins „Wie schön leuchtet der Morgenstern“ úr samnefndri glæsikantötu Bachs, sem sannarlega væri gaman að fá að heyra hérlendis í lifandi flutningi. Einsöngvarakvart- ettinn gat hér, þrátt fyrir prýðisgóð- an söng, enn síður en í inngangs- kórnum komið í stað kröftugs kórmassa. Hið glæsilega a cappella verk Gunnars Reynis Sveinssonar, Gloria frá 1984, virtist í erfiðara lagi fyrir kór Háteigskirkju að svo stöddu og vantaði bæði kraft, hrynskerpu og stundum betri inntónun, ekki sízt í tenór. Hins vegar nutu margar fal- legar söngraddir kórsins sín vel í dúnmjúkum flutningi á smáperlu Mozarts, Ave verum corpus. Fyrr- greint kraftleysi (og karlaleysi) háði kórnum að hluta í lokaverkinu, Magnificati Vivaldis, en annars tókst það víða furðuvel, sérstaklega þó „Esurientes“, einsöngvaradúett sóprans og alts, sem geislaði af dill- andi sætleika. Verk Vivaldis var mun smærri tónsetning á lofsöng Maríu en samnefnt glæsiverk Bachs, sem legið hefur allt of lengi óbætt hjá garði í hérlendum kirkjum, en engu að síður gætt stæltum þokka. Vel heppnað val fyrir lítinn kirkjukór á uppleið. Nú kemur heims- ins hjálparráð TÓNLIST Háteigskirkja Bach: Kantata BWV 61. Gunnar Reynir Sveinsson: Gloria. Mozart: Ave verum corpus K618. Vivaldi: Magnificat RV610. Einsöngvarar: Gyða Björgvins- dóttir, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Eyjólf- ur Eyjólfsson og Hjálmar P. Pétursson. Kór Háteigskirkju og kammersveit u. stj. Douglasar A. Brotchies. Sunnudaginn 26. nóvember kl. 20. KÓRTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson LISTIR 38 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KVINTETTINN Meski, sem leika átti á Múlanum þetta kvöld, breyttist á síðustu stundu í kvartett þarsem básúnuleikari kvintettsins, Leifur Jónsson, veiktist. Ætli klassískur kvintett hefði ekki aflýst tónleikun- um, en djassinn er annars eðlis. Spun- inn er aðal hans, en að sjálfsögðu breyttist tónlistin við það að Eiríkur Orri varð að blása einraddað það sem þeir Leifur hefðu blásið tvíraddað. Verkin á efnisskránni voru að hálfu eftir Eirík Orra og Davíð Þór – hin eftir bandaríska djassmeistara. Ég hef minnst á það áður og geri enn að það væri gaman ef þessir ungu strák- ar, sem eru að stíga fyrstu skrefin, leyfðu Könunum að hvílast um stund og í staðinn fyrir ópusa eftir Joe Lov- ano, Dave Douglas, Uri Caine og Eric Dolphy hefðu verk eftir Jóel Pálsson, Tómas R. Einarsson, Óskar Guðjóns- son og Sigurð Flosason verið á dag- skrá. Kannski heilla útlendingarnir meira – kannski eru íslenskir ópusar ekki á dagskrá í djassdeild Tónlistar- skóla FÍH. Fyrsta verk kvöldsins nefndist Greip, þambað eftir Eirík Orra. Þarna var bæði stílblanda og takt- blanda á ferðinni. Fyrir brá blæ af fönki og gamaldags frjálsdjassi og fönkbragð var líka af seinna verki Ei- ríks Orra, Headpakning, þarsem blúsaður píanósóló Davís Þórs gladdi eyrað. Sóló Davíðs í eigin verki, 2 staðir og bauja á milli, var líka grúví og þar sem annarsstaðar bjargaði markviss trommuleikur Matthíasar tónlistinni frá litleysi. Ballaða Davíðs Þórs, Lag no. 2 á disknum, býr yfir töfrum sem Valdimar Kolbeinn kom vel til skila í stórgóðum bassasóló. Annars var Valdimar ekki öfunds- verður þetta kvöld, því bassahljóm- urinn í salnum er ömurlegur og hlýt- ur óhjákvæmilega að koma niður á bassaleiknum. Davíð lék fallega, en maður hefur oft heyrt hann betri en þetta kvöld. Hann býr yfir góðri tækni og frjórri tónhugsun, en mætti á stundum vera agaðri þótt ekki vildi ég missa villimennskuna úr spuna hans. Hinn ótamdi kraftur er hann býr yfir er fágætur aflgjafi í íslensk- um djassleik. Eiríkur Orri er kornungur tromp- etleikari og þótt hann búi enn ekki yf- ir þeirri tækni sem þarf til að skapa fyrsta klassa trompetsólóa er djass- tilfinning hans ekta. Hann notar fyrst og fremst mið- og neðra tónsvið trompetsins og tókst það sérdeilis vel í sóló sínum í baujuópus Davíðs þar- sem risið var sterkt í dúettkafla hans og Matthíasar. Eiríkur Örn, Davíð Þór og Valdi- mar Kolbeinn eru í fremstu röð ís- lenskra æskudjassara og þegar Matthías M.D. Hemstock styður við bakið á þeim fær tónlist þeirra nýja vídd. Verst að Leifur skyldi veikjast því að gaman hefði verið að heyra út- setningar þeirra verka sem flutt voru eins og þær voru hugsaðar. DJASS Múlinn í Húsi Málarans Eiríkur Orri Ólafsson trompet, Davíð Þór Jónsson píanó, Valdimar Kolbeinn Sig- urjónsson bassa og Matthías Már Dav- íðsson Hemstock trommur. Fimmtudags- kvöldið 22.11. 2001. MESKI Æsku- lýðsdjass Vernharður Linnet HÖFUNDARSTYRKIR Félags leik- mynda- og búningahöfunda voru af- hentir á dögunum. Styrkir voru að þessu sinni hækkaðir í 65.000 kr. Magnús Pálsson og Steinþór Sig- urðsson voru heiðraðir fyrir braut- ryðjendastörf við leikmyndagerð hjá LR og víðar og hlutu báðir stórridd- arakross félagsins. Höfundarstyrki hlutu Sigurjón Jóhannsson og Elín Edda Árnadóttir. Björn G. Björns- son hlaut rannsóknarstyrk félagsins. Alls hafa nú 16 hlotið höfund- arstyrki frá félaginu. Elín Edda Árnadóttir, Sigurjón Jóhannsson, Steinþór Sigurðsson, Eyvindur Erlendsson, f.h. Magnúsar Pálssonar, og Björn G. Björnsson. Tveir „stór- riddarar“ bætast í hópinn BÓKASAMBAND Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem birtust í Bókatíðindum Fé- lags íslenskra bókaútgefenda 2001. Heildarfjöldi bókartitla er 496 eða 11,9% færri en var árið 2000 sem voru 563. Könnunin sýnir að hlutfall prent- unar erlendis hefur aukist milli ára eða 38,3% í ár en var 33,4% í fyrra. Hlutfall prentunar erlendis eykst um 4,9% milli ára og er það mesta aukning í fjölda ára. Hlutfall prentunar erlendis eykst BEGGJA skauta byr nefnist sýning á teikningum eftir Guðmund R. Lúð- víksson sem opnuð verður í Lista- safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi kl. 20 í kvöld. Verkin á sýningunni eru unnin á einum mánuði, dag hvern, í Hrísey fyrir norðan og í Elliðakotslandi fyr- ir sunnan. Myndirnar eru því 60 tals- ins, tvær fyrir hvern dag mánaðar- ins. Listamaðurinn mun sýna verk sem hann hefur látið náttúruöflin um að móta þennan nóvembermánuð, bæði norðanlands og sunnan. Guðmundur hefur um langt skeið unnið við gerð svonefndra veður- teikninga, þar sem vindurinn hefur ráðið sköpunarferlinu við listaverk- in, og listamaðurinn alfarið lotið vilja hans um endanlega útkomu verk- anna. Þannig fær náttúran að tjá sig með beinum hætti í listaverkinu, og listamaðurinn verður þjónn hennar fremur en túlkandi. Listamaðurinn sjálfur hefur bent á, að atferli manns er háð náttúrunni / veðurfarinu. Allt frá landnámi hef- ur veður verið meginþátturinn sem ræður för og gjörningi hverju sinni. Ingólfur og félagar sigldu til fyrir- heitna landsins eftir vindi. „Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr, bruna þú nú bátur minn“, orti skáld- ið Eggert Ólafsson. „Umræðan um veðrið hefur ekk- ert minnkað við tækniframfarir eða grúsk glámskyggnra pælara, hvort sem þeir eru fyrir vestan, norðan, austan eða sunnan. Samræður manna á meðal um veðrið, gott, miðl- ungs eða aftaka veður er óþrjótandi. Listasafn Reykjavíkur í Hafnar- húsinu er kjörinn staður til sýningar á veðurteikningum, þar sem húsið vísar í sjálfu sér til hafnarinnar, sjó- mennsku og mikilvægi veðursins á undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar, sjávarútveginn,“ segir Guðmundur. Sýningin stendur til 20. janúar. Safnið er opið alla daga, frá kl. 11– 18, fimmtudaga til kl. 19. Veðurfar nóvember- mánaðar fest á blað Veðurfar einn nóvemberdag komið á pappír. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi Sýningu Hrannar Eggertsdóttir, Friðþjófs Helgasonar og Helga Daníelssonar á málverkum og ljós- myndum lýkur á sunnudag. Lista- setrið er opið daglega frá kl. 15-18. Sýningu lýkur ♦ ♦ ♦ Andvari, rit Hins íslenska þjóðvina- félags, er kominn út, 126. árgangur, hinn 43. í nýjum flokki. Aðalgreinin að þessu sinni er æviþáttur um Snorra Hallgrímsson lækni eftir Árna Björns- son lækni. – Snorri var forgöngumaður í bæklunarlækningum hérlendis, síðar prófessor og yfirlæknir við Landspít- alann og einn allra virtasti skurðlæknir landsins á sinni tíð. – Aðrar greinar í Andvara eru þessar: Sverrir Jakobsson skrifar um útlendinga á Íslandi á mið- öldum, Páll Björnsson um Íslands- heimsókn þýska bókaútgefandans Heinrichs Brockhaus árið 1867 og Að- algeir Kristjánsson um háskóla- kennslu Gísla skálds Brynjúlfssonar. Silja Björk Huldudóttir og Þorkell Ágúst Óttarsson rita um kristileg minni í Að- ventu Gunnars Gunnarssonar, Þor- steinn Þorsteinsson fjallar um fyrstu ljóðabók Sigfúsar Daðasonar, Ástráð- ur Eysteinsson um sögur Svövu Jak- obsdóttur og Soffía Auður Birgisdóttir um uppruna og þróun sjálfsævisagna. Ritstjórinn, Gunnar Stefánsson, skrifar um lýðræði og hnattvæðingu. Andvari er 168 bls. Oddi prentaði, en um dreif- ingu sér Sögufélag, Fischerssundi 3. Tímarit Skaftfellingur, 14. árgangur tímarits- ins er kominn út. Í ritinu er að þessu sinni m.a. grein Baldurs Jónssonar prófessors, Hornfirska vegin og met- in, grein Guðrúnar Kvaran, Nokkrar at- huganir á austur-skaftfellskum orða- forða og grein Huldu S. Þráinsdóttur þjóðfræðings, Eigi er ein báran stök, en hún fjallar um trú og hjátrú sjó- manna. Þá skrifar Sigurður Björnsson á Kvískerjum um Hofskirkju og síð- ustu smalareið í Öræfum. Unnur Kristjánsdóttir frá Lambleiksstöðum segir frá Páskaveðrinu 1917 og göng- um og réttum á Mýrum. Sveinbjörn Pálsson nemi rekur sögu fyrstu bif- reiða og bifreiðastjóra í sýslunni, Kristín Gísladóttir kennari segir frá skólaferðalagi í Öræfi 1952, Jóhanna og Torfhildur Ólafsdætur frá Hestgerði minnast einbúans í Kambtúni og Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður fjallar um áhrifavaldinn Vatnajökul. Formála skrifar Inga Jónsdóttir, formaður menningarmálanefndar. Auk þessa efnis má nefna ýmis sögubrot úr fór- um Héraðsskjalasafnsins. Útgefandi er Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Ritnefnd skipa Sigurður Björnsson, Guðbjartur Össurarson og Zophonías Torfason sem jafnframt er ritstjóri. Verð: 2.500 kr. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.