Morgunblaðið - 30.11.2001, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 30.11.2001, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 43 það verk nsson, töl- að í fyrir- að væri að ngum við kom í máli lendingar knum ÍE, veita aðr- rirtækinu breytileik- m byði upp st hvergi rstu fjöl- datímarita ttamanna- nni í gær. g Roche æki Hoff- kisins, og ki heims, Auk Kára fluttu dr. Heino von Prondzysnki, yf- irmaður Roche Diagnostics, dr. Bruce Korf, lækningaforstöðumaður við Partners Health Care, og dr. Heiner Dreisman, forseti Roche Molecular Diagnostics, erindi og ávörp á fundinum, þar sem fjallað var um erfðavísindi, lyfja- og sjúk- dómsgreiningar og heilbrigðisþjón- ustu framtíðarinnar. Tekist hefur að kortleggja gen sem tengist liðagigt Skömmu fyrir fundinn í gær birtu ÍE og Roche tilkynningu um að vís- indamenn ÍE hefðu kortlagt erfða- vísi sem tengdist liðagigt. „Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur erfðavísir er kortlagður utan vefjaflokkasvæðis- ins á litningi sex,“ segir í sameigin- legri tilkynningu fyrirtækjanna. Á fundinum fjölluðu Kári og von Prondzynski um þessa niðurstöðu og sögðu að með þessari uppgötvun væri lagður grunnur að frekari rann- sóknum sem miðuðust að því að finna ný greiningar- og meðferðar- úrræði. ÍE og Roche Diagnostics gengu til samstarfs sl. sumar og fær ÍE áfangagreiðslu frá Roche fyrir þessa uppgötvun skv. samningnum sem ÍE gerði við móðurfyrirtækið Hoffman LaRoche 1998. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hve háa fjár- hæð um er að ræða. Kortlagningin er talin vera stórt skref í átt að þróun nýrra og betri prófa til að greina liðagigt og þá sem eru í hættu á að fá sjúkdóminn. Von Prondzynski sagði í fyrirspurnar- tíma á fréttamannafundinum að hann yrði fyrir vonbrigðum ef því yrði ekki lokið fyrir árin 2005–07. „Það er ekki ólíklegt að við verðum komnir með eitthvað á markað innan tveggja ára. Það er markmið sem stýrihópurinn hefur sett sér,“ segir Kári Stefánsson spurður um þetta. Slík próf eru talin skapa forsendur fyrir þróun fyrirbyggjandi meðferð- arúrræða en með því að greina sjúk- dóminn á byrjunarstigi megi beita meðferð tímanlega og halda alvar- legum skemmdum á liðamótum af völdum sjúkdómsins í lágmarki. Að mati forsvarmanna ÍE og Roche verða slík greiningarpróf mikilvæg fyrir þróun lyfjameðferða sem sniðn- ar eru að þörfum hvers einstaklings, en vísindamennirnir sem töluðu á fréttamannafundinum í gær lýstu þeirri framtíðarsýn að þróun lyfja og lyfjameðferð myndi beinast í síaukn- um mæli að einstaklingunum sjálf- um og verða mun árangursríkari í baráttunni við sjúkdóma. „Ég held að þessar niðurstöður séu mjög mikilvægar fyrir þróun nýrra aðferða til að greina, með- höndla og jafnvel koma í veg fyrir liðagigt,“ sagði Kári í gær. „Áfram- haldandi rannsóknir miðast að því að finna fleiri erfðamörk sem tengjast sjúkdómnum og einangra lyfjamörk. Við þessa vinnu erum við svo heppin að vera í samstarfi við aðila sem er staðráðinn í að breyta uppgötvunum okkar í afurðir til að bæta líf þeirra sem þjást af liðagigt,“ var haft eftir Kára í fréttatilkynningu sem send var á fréttastofur um allan heim í gær. Von Prondzynski segir fyrirtæki hans leiðandi í heiminum á sviði greiningarprófa og hafi lengi haft sérstakan áhuga og þekkingu á liða- gigt. „Í rannsóknum okkar höfum við komist að því að ákveðin gerð af vefj- aflokkasvæðinu tengist aukinni hættu á að fá liðagigt, auk þess sem ákveðnar gerðir tengjast því hversu alvarleg sjúkdómseinkennin eru. Með því að tengja niðurstöður okkar við uppgötvun vísindamanna Ís- lenskrar erfðagreiningar vonumst við til að geta hannað ný próf til að greina áhættu hópa og aðstoða við val á meðferðarúrræðum.“ Þessar niðurstöður vöktu athygli á frétta- mannafundinum í gær og var spurn- ingum um þýðingu þeirra beint til vísindamannanna. Kári gerði grein fyrir forsendum rannsóknarinnar en hún skiptist í tvo hluta. Í samstarfi við lækna á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi var arfgerð 2.500 manns, sjúklinga og ættingja þeirra, könnuð með tilliti til breytileika í vefja- flokkasvæðinu sem nú er vitað að tengist aukinni hættu á að fá liða- gigt. Kári lagði áherslu á að mikil- vægi þessarar niðurstöðu lægi ekki eingöngu í því að tekist hefði að stað- setja erfðavísi sem talinn er tengjast liðagigt heldur hefði vísindamönnun- um tekist að leiða í ljós samspil á milli erfðavísa. Með því að skima allt erfðamengi þessara einstaklinga fannst ákveðið svæði á litningi, utan vefjaflokkasvæðisins, sem tengist ennfrekari líkum á að fá sjúkdóminn. Er vonast til að finna megi fleiri erfðamörk við einangrun meingens- ins. Verðmætamat hátæknifyr- irtækja mun aukast á ný Kári tók einnig þátt í stórum fundi með fjárfestum í líftækniiðnaðinum í New York í vikunni. Í samtali við Morgunblaðið var hann spurður hvaða mat hann legði á stöðu há- tæknifyrirtækja á verðbréfamarkað- inum. „Síðastliðið eitt og hálft ár hef- ur verið erfitt fyrir þennan iðnað. Maður er aðeins farinn að sjá merki þess að hlutirnir séu að lagast lítið eitt. Ég held að þetta sé á leiðinni í betri átt. Það er engin spurning að ef litið er á hátækniiðnaðinn, upplýs- ingatækninga og líftæknina, sem hafa beðið hvað mest afhroð á mörk- uðunum á síðasta einu og hálfu ári, þá eru þessar greinar að breyta því lífi sem við lifum. Upplýsingatæknin hefur gjörbreytt lífi manna og það þarf enginn að segja mér að í því liggi ekki mikil verðmæti og ég er ekki í nokkrum vafa um að samfélag- ið kemur til með að veita upplýsinga- tækni það verðmætamat, sem hún hafði fyrir einu og hálfu ári. Ég held að upplýsingatæknin hafi ekki verið ofmetin heldur vanmetin fyrir einu og hálfu ári, þegar verðmætamatið var sem mest. Hið sama má segja um líftæknina. Hún er á annan hátt en engu að síður og án nokkurs vafa að breyta mjög mikið því lífi sem við lifum. Í því liggja geysileg verðmæti og ég er ekki í nokkrum vafa um að líftæknin kemur til með að sækja sér það verðmætamat sem hún á skilið,“ svaraði Kári. di frá nýjum vísindalegum uppgötvunum á fréttamannafundi í New York ir til að ljúka gerð korts til rannsókna Reuters ndaakademíu New York. Reuters ka eð ta omfr@mbl.is skrefið við rannsóknir á erfðamenginu frá því að raðgreiningu erfðamengis mannsins lauk á síðasta ári, en sá atburður vakti heimsathygli. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, greindi frá þessari niðurstöðu á frétta- mannafundi í Vísindaakademíunni í New York í gær. Þar var einnig sagt frá þeirri uppgötvun að ÍE og Roche hefði tekist að kortleggja gen sem tengist liðagigt. Ómar Friðriksson var viðstaddur fundinn. Tölvumynd af DNA-keðju en DNA er erfðaefni allra lífvera og kemur fyrir í litningum dýra og plantna og er í frumukjarna. y Blair ds héldu nafund rt. rs vegar gis- enome starfs- nana og m, einkum etlandi. að kort- ðferðum amanns- a Genom- ics í Maryland í Bandaríkjunum. Kortlagning genamengisins hef- ur verið talin marka upphafið að nýjum veruleika í heimi líffræð- innar og læknavísindanna, og af- rekinu líkt við fyrstu tunglgöng- una og upphaf iðnbyltingarinnar. Þegar yfirlýsingin var gefin kom fram að búið væri að greina um 97% erfðaefnisins í manninum. Talið hefur verið að stökkbreyt- ingar í erfðaefninu eigi þátt í a.m.k. 1.500 sjúkdómum en mikið skortir á þekkingu á því hvernig þetta gerist. Kortlagning gena- mengisins auðveldar mjög að greina þessi tengsl en flestir vís- indamenn hafa þó haldið því fram að enn geti liðið mörg ár, jafnvel áratugir, þar til búið verður að rannsaka genamengið nægilega vel til að nýta það markvisst við lækningu sjúkdóma í stórum stíl og byltingin í heilbrigðisþjónust- unni því enn langt undan. Flókið verkefni Haft var eftir Craig Venter, for- stjóra Celera, að eftir að kortlagn- ingunni væri lokið myndu vís- indamenn standa andspænis geysilega flóknu verkefni sem væri að finna og greina hin ýmsu prótín sem genin mynda og átta sig á því hvernig þau störfuðu. Það gæti tekið heila öld. Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, sagði um þessi tíðindi þegar yfirlýsing vísindamannanna var gefin að um mjög þýðingarmikinn áfanga væri að ræða. Þó væri þetta aðeins byrj- unin, ,,Það sem þarf að gera núna er að kanna hvernig ákveðnir sjúkdómar, hvernig mótstaða gegn ákveðnum sjúkdómum og hvernig ákveðnir eiginleikar mannsins fylgja breytileika í erfðamenginu. Það er sú þekking sem kemur til með að gagnast okk- ur við að byggja upp nýja tegund heilbrigðisþjónustu. Það kemur til með að gagnast okkur við að nýta erfðafræði til þess að búa til skiln- ing á sjúkdómum og á því hvernig við getum komið í veg fyrir þá og læknað þá. Í mínum huga er þetta því fyrst og fremst mjög spenn- andi byrjun,“ sagði Kári í samtali við Morgunblaðið í júní 2000. namengisins upphafið að nýjum heimi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.