Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 47

Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 47 ykkur og alltaf nóg að bauka. Ég man sérstaklega eftir því þegar þú komst inn til að bjóða góða nótt og sagðir alltaf: Guð geymi þig. Mér fannst það svo fallegt og hlýnaði um hjartað. Svo man ég líka svo vel eftir vara- litnum þínum. Þú varst alltaf með bleikan varalit, meira að segja vara- litaðir þú þig áður en við fórum í laugarnar, sem við gerðum svo oft. Lyktin af þér var svona góð ömmu- varalitalykt. Málaraherbergið var það her- bergi í húsinu sem var vinsælast hjá okkur barnabörnunum. Ég man eft- ir því að ég gerði nokkrum sinnum tilraun til þess og mála mynd. Fór í slopp og fékk liti á undirskál hjá þér, en ég gafst alltaf fljótt upp á því. Það sem mér fannst aftur á móti skemmtilegast var að vera hjá þér þegar þú varst að kenna. Þá gat ég hlustað á allt sem konurnar í tíma voru að tala um og svo var ég auðvit- að rosalega stolt af þér því þú varst að aðstoða alla og hjálpa ef einhver lenti í vandræðum. Svo var hápunkt- inum náð þegar ég fékk að taka á móti greiðslunni í enda tímans. Mér fannst þú ekkert smárík þegar allir voru búnir að borga. En ég veit að það var ekki það sem þú hugsaðir mest um. Það að kenna var þér mik- ilvægast, það var það sem hélt í þér lífi, þú elskaðir að kenna og mála. Að fara í Skorrann í Skessuhorn var þér svo mikils virði, þú varst alltaf svo frjáls þar og leið svo vel og ekki kipptir þú þér upp við það að taka okkur öll, krakkaskarann, með. Svo er hápunktur minninganna að við hittumst alltaf öll fjölskyldan á Bugðulæknum á aðfangadagskvöld. Við fengum okkur heitt súkkulaði og með því og nutum þess að vera sam- an. Ætli ég eigi ekki eftir að sakna þess mest, núna þegar það er svo stutt í jólin. Það var alltaf svo notalegt að heimsækja þig á Bugðulækinn, þar var maður alltaf eins og heima. Þá settist ég í eldhúsið og við fengum okkur eitthvað að borða og þú bauðst mér alltaf kaffisopa. En ég hef aldrei drukkið kaffi, það er Jón- heiður sem dekkur kaffi. En hvernig í ósköpunum áttir þú líka að muna það. Svo varstu alveg sérstök með það hvernig þú tókst á móti öllu nýja fólkinu sem var farið að streyma inn í fjölskylduna, öllum mökum barna- barnanna. Þú áttir strax svo mikið í þeim og þá tala ég sérstaklega um hann Helga minn sem fannst svo vænt um þig og leit á þig sem ömmu sína og ég ber hér kveðju til þín frá honum. Elsku amma mín, guð geymi þig. Minningin um þig mun varðveitast í huga mínum þar til við hittumst á ný. Áhyggjulaus á bleiku skýi, svífur þú um í faðmi afa, umleikin hamingju og frelsi, með Laxness og Kjarval þér á hægri hönd og alla hina í kring. Ég bið guð að vaka yfir okkur öll- um og gefa okkur styrk til að takast á við sorgina. Bergrún. Arna amma er dáin. Þetta eru þung orð að segja og erfitt að sætta sig við. Við þekkjum ekki lífið án hennar Örnu ömmu sem var okkur svo góð, en hún mun lifa í hjörtum okkar um eilífð. Nú líður að jólum og við hugsum með okkur, jólin án heimsóknar til ömmu og afa á Bugðulækinn sem hefur verið fastur liður í jólahaldinu hjá okkur, það verður bæði skrítið og erfitt. En lítum á björtu hliðarn- ar, minningarnar, amma hefði viljað það. Lífið í Skessuhorninu var æv- intýri útaf fyrir sig, bátsferðir, varð- eldur, sundlaugaferðir og ýmsar íþróttir og leikir. Okkur er minn- isstæð ferð okkar hringinn í kring- um landið sumarið 1997. Höfðum við verið óheppin með veður á Austur- og Norðurlandi og fórum því fljótt yfir en þegar komið var á Akureyri um kvöldmatarleytið til að gista síð- ustu nóttina fyrir heimferð varð okkur hugsað til ömmu og afa í Skorranum. Þau voru þar eins og flesta sumardaga. Hringdum við í þau og boðuðum komu okkar. Þegar í Skorrann var komið laust eftir mið- nætti biðu þau eftir okkur með heit- ar samlokur og vöfflur með rjóma eins og við værum að koma í eft- irmiðdagskaffi á sunnudegi, slík var gestrisnin og umhyggjan. Við höfð- um fréttir að færa þeim þessa nótt, við settum upp trúlofunarhringana daginn áður og voru þau fyrst til að frétta það. Þau voru yfir sig ánægð og kysstu okkur í bak og fyrir og óskuðu okkur til hamingju með „op- inberunina“ eins og amma kallaði það. Þetta er bara ein af mörgum minningum sem við eigum af ömmu og afa og lífinu í Skorradalnum. Við kveðjum þig, amma. Megi guð vera með þér og allri fjölskyldunni. Við vitum að það verður tekið vel á móti þér þangað sem þú ert að fara. Arnþór og Inga. Elsku langamma, ég veit að engl- arnir passa þig og langafa núna. Ég fer alltaf með „litla Faðir vorið“ áð- ur en ég fer að sofa. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti, signaður Jesús mæti. (Ók. höf.) Unnar Freyr Arnþórsson. Um þessar mundir er landið hulið snjó og fuglar þyrpast til byggða í leit að æti. Á bílskúrsþakinu á Bugðulæk 17 í Reykjavík hafa þeir í tugi ára mátt ganga að því vísu að vera gefið. En nú er matmóðir þeirra horfin á brott úr þessum heimi og missirinn mikill, bæði fyrir dýr og menn. Til hennar föðursystur okkar, Arnheiðar Einarsdóttur, fannst öll- um gott að koma, enda bar hún í brjósti einstaka gæsku til alls sem lifði. Hún hafði til að bera mikið um- burðarlyndi og hlýju og hún tók hverjum manni eins og hann var. Börn og unglingar gátu tjáð sig við hana um hvaðeina án þess að fá nei- kvæð viðbrögð en þess í stað ástúð- lega leiðsögn og hvatningu. Dýr skynjuðu einnig væntumþykju hennar og löðuðust því að henni jafnt og börnin. Frænka var bókelsk og las ásamt fagurbókmenntum rit um andleg málefni og heimspeki. Hún hafði skoðanir á samfélagsmálum, sem einkenndust af ósk um réttlæti og jöfnuð fólks. Frænka var einnig mjög listhneigð og lærði teiknun og málun sem ung kona. Í verkum hennar kemur fram hversu gott auga hún hafði fyrir fegurð og lit- brigðum náttúrunnar, sem hún og bar mikla umhyggju fyrir. Ævistarf frænku var inni á heim- ilinu þar sem hún hafði ærinn starfa við að ala upp sex börn og síðar að sinna barnabörnum og barnabarna- börnum, sem hún hafði mikla ánægju af. Samhliða þessu og allt þar til í vor tók hún á móti fólki í for- stofuherberginu á Bugðulæknum og miðlaði því af þekkingu sinni í olíu- málun. Hún naut þessa félagsskapar og hafði einnig alltaf gaman af að stofna til nýrra kynna. Það veittist henni líka auðvelt þar sem hún var kona sem öllum leið vel í návist við. Mannkærleikur, réttsýni, um- burðarlyndi og fordómaleysi var það sem einkenndi frænku umfram allt. Þessara eiginleika fengu allir henn- ar afkomendur og aðstandendur að njóta. Það er von okkar að við meg- um öll bera gæfu til að miðla því sem við lærðum af hennar lífssýn áfram til okkar afkomenda og samferða- fólks. Erna Jóna og Auður Lilja. Fyrir tæpum tveimur árum var ég búsett í Noregi þegar Hörður fyrrverandi eiginmaður minn hringdi í mig og tilkynnti mér að Einar bróðir hans hefði látist í bíl- slysi. Mig setti hjóða. Einar var að- eins 49 ára í blóma lífsins og er mik- ill missir að honum, sérstaklega fyrir börn hans og barnabörn og ekki síður var það erfitt fyrir systk- ini Einars og foreldra hans, þau Örnu og Hadda, sem voru enn á lífi. Haddi var mikið veikur þegar þetta gerðist og lést tveimur og hálfum mánuði síðar og nú er hún Arna líka dáin. Það er skammt stórra högga á milli. Örnu og Hadda kynntist ég haust- ið 1978 og varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að verða tengdadóttir þeirra. Ég skynjaði strax í upphafi að þau voru hvort á sinn máta vel innrétt- aðar manneskjur, hjón sem hlúðu vel að börnum sínum, tengdabörn- um og barnabörnum. Eldri syni mínum, sem þá var fjögurra ára, tóku þau opnum örmum sem einu af sínum barnabörnum. Það sem ein- kenndi samskipti þeirra í milli og við annað fólk var kærleikur og virðing. Arna og Haddi bjuggu sér fallegt og hlýlegt heimili á Bugðulæk 17 í Reykjavík og var alltaf notalegt að koma þangað, sem margir munu sakna. Þau voru bæði tvö skemmti- legar og skarpgreindar manneskjur og var oft gaman að spjalla í eldhús- króknum á Bugðulæknum. Haddi hafði góðan húmor og sagði vel frá. Arna hafði einstaklega gott innsæi og skilning á þörfum fólks, hún var víðlesin bæði í bókmenntum og sál- félagsvísindum. Hún var listamaður, málaði og teiknaði, hennar ævistarf var að kenna að mála. Kennsluna stundaði hún frá því að hún var ung kona og sameinaði vinnu sína og heimilisstörfin alla tíð. Það var góð samvinna með þeim hjónum, bæði varðandi heimilisstörfin og vinnu Örnu. Haddi stóð oft í eldhúsinu og eldaði og sá um innkaupin, svo hafði hann á færi sínu tækniteiknun, sem kom að góðu gagni í undirbúningi Örnu fyrir málarakennsluna. Hann var vélstjóri að mennt og starfaði tæp fjörutíu ár í Áburðarverksmiðju ríkisins. Þau voru traustar og hóg- værar manneskjur, en hvetjandi, það var gott að koma og spjalla við þau bæði um það sem miður fór og þegar ástæða var til að fagna. Þrátt fyrir skilnað okkar hjóna árið 1993 slitnaði ekki samband mitt við þau, það var ennþá á sömu nótum og fyrr, þó að formið hefði breyst. Ég kveð nú í hinsta sinn þessi mætu hjón með söknuð í hjarta. Ég votta eftirlifandi börnum þeirra, þeim Eyrúnu, Heiði, Hrönn, Herði og Björk, barnabörnum, barna- barnabörnum og tengdabörnum innilega samúð. Erla Björg Sigurðardóttir. Það var kalt, við vorum litlir bóg- ar. Við Eyrún gengum þegjandi. Við ætluðum heim til hennar. Ég var svolítið spennt, ef til vill kvíðin. Hún fór á undan upp tröppurnar, opnaði. Ég fann grípandi ilminn af olíulitum. Arna kom á móti okkur, heilsaði mér eins og ég væri alvöru manneskja, ekki bara telpukorn, krakki. Hún var svo falleg, hafði svo undurfalleg tindrandi augu og fullt af bros- hrukkum kring um þau. Hún var að mála fjall, Lómagnúp. Í huga mér er hann og verður fjallið hennar Örnu, minnisvarði. Ég hef lengi vitað hversu dýrmæt áhrif það hefur haft á uppeldi mitt í bernsku, að njóta samvista við perl- ur í mannhafinu, hreinar perlur, sem voru vitrar, hlýjar, skynsamar en þó umfram allt mannlegar. Perl- ur, sem létu mann hlýða sér, töluðu í mann kjarkinn og sannfærðu mann um að hægt væri að yfirvinna það ómögulega? Þannig var Arna. Ómet- anleg! Þau munaði ekki um það Örnu og Hadda að taka eina telpu með í barnahópinn sinn stóra. Það fór vel um mig í öllum samskiptum og samvistum á því heimili. Eftir að Haddi dó, ætlaði Arna að fara með mér upp í gilið fyrir ofan húsið mitt. Þar höfðu þau hjónin ung átt rómantískar stundir. Hún ætlaði að sýna mér myndmótívin mörgu, sem hún vissi um þar. En einhvern veginn treysti hún sér aldrei, gat ekkert gengið, sagði hún. Það var henni augljóslega sárt. Hún var náttúrubarn, náttúruunnandi, sem hafði þá náðargáfu, að geta endur- skapað náttúruna með litum á léreft. Hún lét aðra njóta þessa og kenndi öðrum. Hún tók okkur með á sýn- ingar. Sem barni þótti mér meira til þess koma að sjá myndirnar hennar verða til, en að sjá annarra verk á vegg. Til eru myndir af henni eftir meistara Kjarval. Mér fannst ekkert merkilegt, að Kjarval skyldi mála hana, en mér fannst sem barni, að hann hefði getað haft myndirnar af henni fallegri! Kannski þarf meiri meistara en Kjarval til að mála mannkosti konu. Ég þurfti að keyra fram hjá Lómagnúp daginn eftir að Arna dó. Þar kvaddi ég hana. Mikil mann- eskja á skilið mikinn minnisvarða, óhefðbundinn minisvarða. Í mínum huga er minnisvarðinn um Örnu val- inn. Það er ekki opinber minnis- varði, en minnisvarði um hana milli mín og Guðs, sem Arna sagði mér nú nýverið að hún vissi að væri til, þó hún segðist hafa kosið, að vera ekki að gera sér neitt tíðrætt um hann. Ef allir þeir, sem eru með guðsorð á vörum, svo og allir aðrir lifðu lífi sínu af sömu trúmennsku og Arna væri heimurinn betri. Elsku Eyrún mín, Heiður, Einars fólk, Hrönn, Hörður, Arna Björk og ykkar fólk allt. Þökk fyrir, að ég fékk að njóta mömmu ykkar með ykkur. Ég votta ykkur öllum djúpa hluttekningu. Blessuð sé minning Arnheiðar Einarsdóttur. Þórey Guðmundsdóttir. Elsku Arnheiður. Þrátt fyrir ríku- legar minningar eru orð mín fátæk- leg. Veruleikinn verður víst ekki umflúinn og ég verð að venjast þeirri staðreynd að koma heim að auðu húsi. Síðastliðið eitt og hálft árið hefur verið mér mikilvægt, mikilvægt að því leyti að ég kynntist betur hug- ljúfum einstaklingi sem með mán- uðunum varð ein af mínum bestu vinkonum. Það eru forréttindi að geta státað sig af því að hafa átt þig að, svo sérstakan vin, svo sterka af hlýju og góðvild. Vinur sem geislaði líkt og geislar sólu á besta degi sum- ars og þeir eru vanfundnir þeir ein- staklingar sem ekki dáðu þig og til- báðu. Ég minnist sárt dýrmætu sam- verustundanna við eldhúsborðið þar sem við skiptumst á skoðunum um lífið og tilveruna og kynntumst lífs- viðhorfi hvor annarrar. Það voru þessar umræður sem styttu okkur stundir og gerðu okkur kleift að kynnast líkt og við gerðum. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát og eru minningarnar um þig dýr- mæt eign. Söknuðurinn er sár, en á milli tár- anna gleðst ég yfir því ferðalagi sem þú ert í þann mund að hefja með ást- vinum sem nú hafa tekið við þér. Ástvinum sem munu vernda þig og geyma í faðmi sér og ganga með þér um slóðir himinhvelfsins. Elsku Arnheiður, ég kveð þig með virðingu og þökk. Hvíldu í friði. Þín Bjarney. Við fráfall Arnheiðar Einarsdótt- ur 17. nóvember síðastliðinn koma upp í hugann minningar og minn- ingabrot frá kynnum okkar systra af þessari einstöku konu. Okkur langar að minnast Arnheiðar og Harðar, eiginmanns hennar, sem lést 28. mars á síðastliðnu ári, með nokkrum orðum. Hörður og Arnheiður eignuðust sex börn og fæddust yngstu börnin á Bugðulæknum og þar hófust kynni okkar. Byggðu foreldrar okkar og þau hjónin hús hlið við hlið. Allar þrjár eigum við góðar minningar frá heimili þeirra þar sem við áttum samleið með börnunum. Á þeim árum sem við vorum að alast upp var algengast að mæður ynnu ekki utan heimilis. Með sanni má segja að Arnheiður ynni ekki ut- an heimilis en inni á því setti vinna hennar sterkan og sérstæðan svip á daglegt líf fjölskyldunnar. Hún var listakona, forstofuher- bergið var helgað vinnu hennar, en þar málaði hún fögur listaverk í öll- um regnbogans litum. Við systurnar undruðumst að hún væri ekki jafn fræg og Kjarval. Við vinnu sína var Arnheiður íklædd hvítum sloppi, með málningu á fingrum og jafnvel á nefinu. Að líta inn í þetta herbergi var ævintýri líkast og þar vorum við börnin velkomin. Þar voru málverk á mismunandi stigum um alla veggi og lykt af olíulitum og terpentínu. Við snertum að sjálfsögðu ekki neitt og trufluðum ekki þegar Arnheiður var að kenna. Vinna hennar var að kenna öðrum að mála, en til hennar flykktust nemendur, flest konur. Arnheiður sagði þeim til af einstakri nærgætni við blöndun lita og hvar væri rétt að draga örlítið úr og hvar að bæta ofurlítið við. Og viti menn, þetta var einmitt það sem þurfti til að gera verkið gott. Þáttur Harðar við að undirbúa námskeiðin var mik- ill og var gaman að sjá hann draga á strigann alls kyns myndir. En það var margt fleira sem gerði Arnheiði einstaka og þegar horft er til baka sjáum við að hún bjó yfir mikilli ró. Á hennar stóra heimili, sex börn og nemendur að koma og fara, vorum við ávallt velkomnar. Í minningunni hafði Arnheiður alltaf tíma til að tala við okkur börnin. Henni tókst með sínum hógværa málflutningi að benda okkur á mik- ilvægi þess að nýta og þroska hæfi- leika okkar sem best. Sú yngsta okkar systranna átti skjól hjá Arnheiði eftir skóla, með hennar börnum, þegar móðir okkar hóf vinnu utan heimilis. Hörður var vélstjóri og vann í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Þar byrjaði hann á því að setja niður vélarnar þegar verksmiðjan var reist. Í beinu framhaldi fór hann að vinna í verksmiðjunni og vann þar allan sinn starfsaldur. Fyrir kom að í sumar- eða vetrarfríum færi Hörð- ur sem vélstjóri á millilandaskip. Arnheiður tók sig oftar en einu sinni upp og ferðaðist með manni sínum út um heim, þegar það að fara til út- landa hét að fara í siglingu. Hún hafði mestan áhuga á að fara í lengri ferðir, t.d. fór hún til Rússlands. Þetta var ekki algengt og verður minnisstæð spennan og tilhlökkunin þegar von var á þeim heim. Næmleiki Arnheiðar fyrir öllu lífi kom berlega í ljós þegar kom að trjáklippingum, en hún vildi að trén fengju að vaxa frjáls. Hrein unun var að heyra hana tala um börnin og barnabörnin hin síðari ár. Þar var aldrei á nokkurn hallað og hagur þeirra og hamingja var henni fyrir mestu. Síðastliðin tæp tvö ár var mikið lagt á Arnheiði. Í byrjun árs 2000 lést Einar sonur þeirra í bílslysi sem var mikið áfall fyrir alla fjölskyld- una. Skammt var stórra högga á milli því eins og áður hefur komið fram lést Hörður skömmu síðar. Við þessar erfiðu aðstæður hélt Arn- heiður ró sinni. Hún bjó áfram á Bugðulæknum og vann að list sinni, en hún gekk ekki heil til skógar. Arnheiður vonaðist til að fá meira þrek í hjartaaðgerð sem hún gekkst undir. Daginn áður en hún var lögð inn til aðgerðar sagði hún móður okkar hve heppin hún væri að svona margt væri hægt að gera fyrir til- stuðlan framfara í læknavísindum. Aðgerðin virtist ganga vel en Arn- heiður vaknaði ekki að henni lokinni. Minningin sem við geymum í huga okkar er af fíngerðri, sér- stæðri konu sem gaf lífinu lit og við munum ætíð minnast með hlýhug. Elskulegu systkini og fjölskyldur. Við, foreldrar okkar og fjölskyldur vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Sigrún, Guðrún og Bryndís. Okkur langar að kveðja með örfá- um orðum kæra vinkonu okkar. Þegar við fluttum á Bugðulæk 17 fyrir rúmum þremur árum fengum við hlýjar móttökur hjá Arnheiði. Alltaf vorum við velkomin upp í kaffi og spjall og sóttu börnin sérstaklega í að fá að kíkja upp í heimsókn, enda vandfundin hlýrri og indælli mann- eskja en hún. Þegar við kvöddumst í haust, áður en við héldum til námsdvalar í Eng- landi, vonuðumst við til að hitta Arn- heiði hressa og spræka að ári liðnu. Svo verður víst ekki. Það verður skrítið að flytja aftur heim á Bugðulæk og engin Arna uppi, ekki lengur hægt að skreppa upp í kaffi og kleinur og fá að kíkja í dótaskúffuna góðu. Fjölskyldu Arnheiðar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hennar er sárt saknað. Fjóla, Óli, Saga og Hugi, Oxford, Englandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.