Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 53

Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 53 ✝ Bragi Arasonfæddist á Súlu- völlum á Vatnsnesi 16. maí 1954. Hann lést á Landspítalan- um í Reykjavík 21. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Ari Guðmunds- son, f. á Valdalæk á Vatnsnesi 17. sept. 1921, og Sigríður Sigurbjörg Þórhalls- dóttir, f. í Tungu á Vatnsnesi 20. sept. 1926. Systkini Braga eru Þór, f. 21. okt. 1946, Eiríkur, f. 11. des. 1950, Baldur (tvíburabróðir), f. 16. maí 1954, Guðmundur, f. 17. okt. 1955, Ari, f. 9. apríl 1958, og Þórdís, f. 1. nóv. 1960. Bragi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans er Laufey Margrét Jó- hannesdóttir, f. 6. sept. 1957. Þau slitu samvistum. Bragi og Laufey eignuðust fjögur börn: Jóhannes Kára, f. 4. ágúst 1976, Arnar Karl, f. 17. des. 1977, d. 27. mars 1997, Svein Inga, f. 20. nóv. 1979, og Kolbrúnu, f. 8. maí 1984. Barnabarn Dagur Smári Kára- son, f. 16. júlí 1999. Seinni kona Braga er Sveina Guðbjörg Ragnarsdóttir, f. 15. júní 1957. Dóttir þeirra er Arna Rós, f. 13. okt. 1997. Bragi ólst upp á Hvammstanga til tíu ára aldurs en flutti þá, ásamt foreldrum og systkinum, að Efri-Svertings- stöðum í Miðfirði. Hann fór ungur að sinna ýmsum sveitastörfum fyrir bændur, eins og algengt var með unglinga á þeim tíma. Lengst af starfaði hann sem bílstjóri og síðustu árin hjá Kaupfélagi V- Húnvetninga. Útför Braga fer fram frá Hvammstangakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Baráttunni er lokið, var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar við fengum fréttirnar um að Bragi Arason væri látinn. Það eru margar tilfinningar sem bærast í manni við svona fréttir. Ef tala má um réttlæti og óréttlæti varðandi líf og dauða þá finnst manni það óréttlátt að maður eins og Bragi, í blóma lífsins, falli frá. Hann var búinn að fá sinn skammt af mótlæti í lífinu og ekki fannst manni meir á hann leggjandi. En ekki er farið í manngreinarálit þegar sjúkdómar eru annars vegar. Við kynntumst Braga á fyrstu ár- um okkar á Hvammstanga. Með ár- unum urðu samskiptin nánari og með okkur tókst ágætur vinskapur og um síðir fjölskyldubönd er hann fór að búa með Sveinu. Það sem við kunnum alltaf svo vel við í fari Braga var hvað hann var traust- vekjandi, áreiðanlegur og hjálpleg- ur. Hlutirnir voru aldrei neitt mál, ef á annað borð var hægt að redda þeim þá var þeim reddað. Bragi var baráttumaður og það sem hann tók sér fyrir hendur reyndi hann að klára af bestu samviskusemi. Bragi og Sveina komu oft í Ás- brekku og þá var glatt á hjalla. „Hvað segirðu Ólafur, besti vinur minn?“ Og Ólafur var alltaf besti vinur Braga. Hann dýrkaði Braga því hjá Braga voru hlutirnir ekkert mál. Svo eignuðust þau litla skottið hana Örnu Rós og það hefur ekki verið lognmollan í kringum hana. Það er oft fjör þegar þau frænd- systkinin hittast Ólafur og Arna Rós og þegar okkur fannst nóg um sagði Bragi: „Hvað, þau þurfa nú aðeins að fá að tala saman.“ Börnin hans voru honum mjög mikils virði og gátu þau alltaf treyst á hann. Missir þeirra er mikill. Sjúkdómurinn uppgötvaðist í vor og trúði Bragi því bjargfastlega að hann kæmist yfir þetta. Það sást best hvað hann var tilbúinn að berj- ast, að uppgjöf var ekki til í hans huga, og barðist hann fram á síð- asta dag fyrir lífi sínu. Sveina hefur staðið eins og klettur við hlið hans og sýnt ótrúlegt þrek. Minninguna um góðan dreng geymum við í hjörtum okkar. Hans verður minnst með hlýhug og sökn- uði. Við færum börnum hans, Sveinu, foreldum og systkinum innilegar samúðarkveðjur okkar. Haukur, Sigríður Anna og Ólafur. Elsku Bragi. Mikið er erfitt að kveðja þig. Nú loksins þegar lífið blasti við ykkur Sveinu og börnunum, þarft þú að kveðja. Lífið hefur nú ekki alltaf farið mjúkum höndum um þig. Ég kom stundum norður og vann með Hauki bróður, þá hittumst við, enda þið Haukur góðir vinir. Oftast spjölluðum við um áhugamálið okk- ar, börnin, enda bæði að baslast ein. Já, við vorum sammála um að þau gáfu lífinu gildi. Ég var svo ánægð þegar þið Sveina fóruð að vera sam- an og ég tala nú ekki um þegar fréttist að þið ættuð von á barni. Síðan kom Arna Rós, litli sólargeisl- inn ykkar. Það eru ekki nema fjögur ár síðan. Elsku Sveina, Kári, Sveinn, Kol- brún og Arna Rós, missir ykkar er mikill. Ég get ekkert sagt til að sefa ykkar miklu sorg en vil senda ykkur smá kærleiksvott með þessari vísu, sem mér var eitt sinn send. Rís sól speglar von í augum Syngur vori blóm Dansar ljós á bláum hyl. Rís dagur hrannast ský – sverta sólu Flýgur svanur – úr byggð Náttdögg fellur. Systir mín Legg af stað nóttin að baki dagurinn framundan mikilvægasti dagurinn – dagurinn í dag. Mundu, innra með þér er Ljós heimsins hið eina ljós, er varpar birtu á veginn. Legg því af stað og blóm næturinnar opnast en ekki til að deyja heldur til að gefa – óafvitandi af fegurð sinni, og í hjarta þínu átt þú bænina sem breytir voninni í blóm kærleikans. Systir mín, legg af stað því að í hjarta þínu áttu fjársjóð – dansandi ljós milli blárra fjalla. (sbg.) Hrönn Friðriksdóttir. Með nokkrum orðum langar okk- ur að minnast Braga, sem var ætíð hvers manns hugljúfi og var einn af þessum mönnum, er öllum vildu vel. Hjálpsamur var hann og ætíð stutt í húmorinn, með eindæmum laginn ökumaður og farsæll, kom bíl sínum og farmi í heilu lagi á áfangastað og margar urðu ferðirnar á milli Hvammstanga og Reykjavíkur. Bragi háði síðustu mánuði mikla baráttu við sjúkdóm sinn og verður nú að játa sig sigraðan, þrátt fyrir mikinn styrk og lífslöngun. Fjölskyldu og vinum Braga vott- um við okkar dýpstu samúð. Félagi okkar, Bragi Arason, er farinn í sína hinstu ferð. Kveðja, bílstjórar og starfsfólk Flytjanda. Kæri vinur. Við kveðjum þig um sinn með söknuði og trega og reynum að ylja okkur við ljúfar minningar sem eng- inn mun taka frá okkur. Elsku Bragi, þú barðist eins og hetja við illvígan sjúkdóm og vildum við trúa því að þú hefðir betur þótt raunin reyndist önnur en við vitum að son- ur þinn, hann Arnar Karl, hefur tekið á móti þér opnum örmum. Við skiljum oft ekki tilgang lífsins enda er okkur líklega ekki ætlað að skilja suma hluti en okkur fannst þú vera alveg búinn að fá þinn skammt af mótlæti í lífinu. Það fljúga gegnum huga manns svo ótal mörg minn- ingabrot þegar komið er að kveðju- stund. Fór ég margar ferðirnar með þér í flutningabílnum hér á milli og var þá margt spjallað, bæði í gamni og alvöru. Þú varst traustur vinur vina þinna og vildir allt fyrir þá gera og aldrei neitt mál. Þegar pabbi drukknaði í fyrrahaust varstu strax kominn til okkar til að hlúa að okkur og hugga. Er það tilviljunar- kennt eða hvað? Að ári eftir að pabbi fannst kveður þú þennan heim og við fylgjum þér síðasta spölinn á afmælisdaginn hans? Þetta veist þú núna en við fáum að vita síðar. Gaman var hjá okkur um árið þegar við fórum saman til Dublin, en þó varstu spenntur að komast heim aftur, því þú varst í tilhugalífi með henni Sveinu þinni. Við laum- uðumst út í búð til að finna handa henni gjöf sem þú vildir færa henni við heimkomuna, þú varst eins og unglingspeyi, ljómaðir og varst svo ástfanginn. Já, það er margt hægt að rifja upp og því munum við aldrei gleyma. Síðast þegar við hittumst áttum við góða stund saman þó veikur þú værir, við ræddum um margt; lífið, tilveruna og fleira. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar og hefur átt, þú hefur svo oft reynst okkur vel bæði í gleði og sorg. Elsku Sveina, þið Bragi hafið reynt svo mikið saman á ekki lengri tíma en nýtt tímann vel. Þú stóðst alltaf sem klettur við hlið hans, hvað sem á dundi, þú ert líka hetja. Elsku Kári, Sveinn Ingi og Kolbrún, þið svona ung hafið aldeilis þurft að kynnast sorg og söknuði og elsku litla Arna Rós, hvernig er hægt að skilja að pabbi geti ekki verið leng- ur hjá þér? Við biðjum góðan Guð að styðja ykkur og styrkja á þessum erfiða tíma og um ókomin ár, einnig foreldra hans, systkini og aðra að- standendur. Elsku Bragi, það er komið að kveðjustund að sinni, við hittumst þótt síðar verði. Elsku vinur, við gleymum þér aldrei. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þínir vinir Bjarki og Erna. BRAGI ARASON ✝ Georg SighvaturSigurðsson fædd- ist á Hofsósi 29. maí 1922. Foreldrar hans voru Sigurður Frið- rik Jónsson, f. 27. mars 1892 á Þor- geirsbakka á Höfð- aströnd, fórst í sjó- slysi með póstskipinu Þengli 7. feb. 1939, og Ingibjörg Ingi- mundardóttir frá Ólafsfirði, f. 8. nóv. 1901, d. 14. des. 1957. Systkini Georgs eru: Guðrún Margrét, f. 4. jan. 1925, d. 22. feb. 1927, Guðrún Margrét, f. 3. feb. 1928, maki Kjartan Friðriksson, f. 1927, bú- sett í Garðabæ. Jón, f. 26. júní 1930, maki Guðlaug Þórdís Guð- jónsdóttir, f. 1929, búsett í Reykja- vík. Jakob Sigvaldi, f. 3. jan 1935, maki Jónína Margrét Her- mannsdóttir, f. 1937 búsett í Innri Njarðvík, og Hulda Sigríður, f. 7. apríl 1939, maki Eysteinn Einars- son, f. 1931, búsett í Keflavík. Hinn 25. desember 1944 kvænt- ist Georg Ólöfu Egilsdóttur frá Ísafirði, f. 7. júlí 1926, d. 30. sept. 1989. Þau skildu í janúar 1967. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Ingi, f. 5. nóv. 1944, umsjónarmaður við Menntaskólann við Sund, maki Anna Sigríður Sigurðardóttir, f. 1946, bréfberi, búsett í Reykjavík. Synir þeirra: 1a) Sævar, f. 1973, sambýliskona Anna Margrét Jóns- dóttir, f. 1976 á Sölvabakka í A- Húnavatnssýslu. 1b) Sigurður Elv- ar, f. 1976, sonur 1ba) Axel Berg- mann, f. 1996. 2) Róshildur Agla, f. 12. maí 1946, sjúkraliði, starfar á Hrafnistu í Hafnarfirði, maki Ólaf- ur Finnbogason, f. 1937. Þau skildu í maí 1999. Börn þeirra 2a) Gerður, f. 1967, maki Jörgen Heið- ar Þormóðsson, f. 1966. Börn þeirra. 2aa) Ólafur Tröster, f. 1988, og 2ab) Gígja, f. 1993. 2b) Finnbogi, f. 1968, maki Harpa Karlsdóttir, f. 1965. Börn þeirra: 2ba) Sæunn Rós, f. 1990, 2bb) Guð- jón Ólafur, f. 1996, 2bc) Sara Rós, f. 1998. 2c) Ágústa Þorbjörg, f. 1973, dóttir: 2ca) Róshildur Agla, f. 1993. 2d) Georg Sigurbjörn, f. 1984. 3) Anna Þuríður, f. 24. sept. 1949, búsett í Reykjavík, maki Haraldur Stefáns- son, f. 1938. Þau skildu í sept. 1987. Börn þeirra: 3a) Guðrún Ólafía, f. 1969, börn hennar: 3aa) Elísa Sjöfn, f. 1989, 3ab) Ragnar Harald, f. 1990, og 3ac) Steinunn Lilyan, f. 1992. 3b) Ólöf Fjóla, f. 1970, dætur: 3ba) Þurí Ósk, f. 1989, 3bb) Lelíta Rós, f. 1995. 3c) Stef- án Már, f. 1979. 4) Jóna Margrét, f. 29. maí 1951, vinnur við heima- hjúkrun, maki Kristinn Magnús- son byggingaeftirlitsmaður, f. 1950, búsett í Mosfellsbæ. Börn þeirra: 4a) Gunnhildur, f. 1972 í Reykjavík, sambýlismaður Ólafur Geir Sverrisson, f. 18. des. 1968 á Fáskrúðsfirði. Dóttir: 4aa) Jóna María, f. 2000. 4b). Erla, f. 1980. Frá árinu 1977 hélt Georg heim- ili með Ólafíu Ólafsdóttur, f. 25 feb. 1927. Hennar börn eru: Svan- hvít Ásta Jósefsdóttir, maki: Ás- geir Ólafsson, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn, Björn Ingi Jós- efsson, maki Dóra Ásgeirdóttir, hann á þrjú börn úr fyrri sambúð, og Ólafur Jósefsson, maki Stein- unn Gísladóttir, þau eiga þrjú börn. Barn að aldri byrjaði Georg sjó- mennsku með föður sínum og stundaði hana lengst af, fyrst sem skipstjóri eða stýrimaður á minni fiskiskipum, þá lengst frá Akra- nesi þar sem hann var lengst af á skipum frá Heimaskaga hf. Þegar hann flutti til Reykjavíkur réðst hann á strandferðaskipið Esjuna sem timburmaður og var þar til 1965. Árið 1966 réð hann sig á Bakkafoss. Á árunum 1967 til 1973 keyrði hann hjá Sendibílastöðinni Þresti en þá hóf hann störf hjá bif- reiðastöðinni Steindóri þar sem hann var til ársins 1975. Þá skipti hann yfir á bifreiðastöðina Hreyfil og ók hann þar til starfsloka 1990 en þá slasaðist hann illa á öxlum og varð að hætta akstri. Útför Georgs fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við systkinin kynntumst Georg okkar fyrst á árinu 1977 þegar hann flutti inn á heimili móður okkar. Tók Georg okkur fljótlega eins og værum við hans eigin börn og reyndist okk- ur eins og besti faðir. Börn okkar og barnabörn leituðu mjög til afa og var algengt að börn og fullorðnir dveldu í góðu yfirlæti á heimilinu í Skipholti til lengri eða skemmri tíma. Á seinni hluta níunda áratugarins tók heilsa Georgs að bila, og fór máttur í öxlum og handleggjum fyrst. Varð hann þá að hætta leigu- akstri. Síðustu ár ævinnar varð heilsuleysi hans þess valdandi að hann gat ekki tekið eins mikinn þátt í daglegu lífi fjölskyldu sinnar og hann hefði helst óskað, en eftir sem áður tók hann þátt í fjölskylduboðum í Hveragerði, Garðabæ og á Akra- nesi eins og heilsan leyfði. Við verðum ætíð þakklát Georg fyrir umhyggju hans og alúð og mun- um minnast hans með söknuði. Vilj- um við þakka börnum Georgs, systk- inum hans og fjölskyldum þeirra fyrir samverustundir á liðnum árum. Ásta, Björn og Ólafur Jósefsbörn. Elsku afi okkar. Við munum ávallt sakna þín, allar samverustundir og minningar verða ávallt ofarlega í huga okkar. Við metum þetta mikils. Guð veri með þér, elsku afi. Í hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort stríð, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár. (M. Joch.) Gunnhildur og Erla. GEORG SIGURÐSSON ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minningar- greina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.