Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 55
LAUGAVEGI, S: 511 1717 KRINGLUNNI, S: 568 9017
Dömur:
Assure dragtir 9.800
Nicegirl peysur 2.990
Laura Aime skyrtur
20% afsl.
Allar peusur 10% afsl.
Herrar:
4You jakkaföt 18.900
Parks skyrtur 2.900
4you peysur 2.990
Diesel gallabuxur 5.990
Úrval af herraskóm
Skór:
Trend stígvél 3.990
Done stígvél 4.990
Zinda hælaskór 5.990
Theorema hælaskór 4.990
Kápur
Jakkar
Frakkar
Úlpur
...mikið úrval!
Langur laugardagur opið til kl. 18.00
Nú getur þú gert góð kaup í kuldanum...
20% aflsáttur af öllum yfirhöfnum
föstudag og laugardag
evaLAUGAVEGI 91, (2. hæð) s. 562 0625
GERARD DAREL - DKNY - NICOLE FARHI - JOSEPH - PAUL ET JOE - TARA JARMON - CUSTO - BZR - SELLER - FRANSI
Langur laugardagur opið til kl. 18.00
15% aflsláttur af DKNY og Gerard Darel
Nýtt
Opnum í dag
Laugavegi 91
verðdæmi:
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
skák fór af stað með látum og skák-
áhugamenn fengu svo sannarlega
eitthvað fyrir sinn snúð í fyrstu um-
ferð mótsins. Anand og Morozevich
fengu að kynnast
því að Netmót
FIDE hafði ekki
verið neinn sýnd-
arleikur, en báðir
mættu þeir and-
stæðingum sem
höfðu unnið sér
réttindi til þátt-
töku í gegnum
Netmótið. Anand
tapaði fyrri skák-
inni gegn Frakkanum Olivier Touz-
ane, en tefldi hvasst og ákveðið í
þeirri síðari og sigraði örugglega. Í
atskákunum tveimur sem fylgdu í
kjölfarið náði Anand síðan að
tryggja sér sigur og áframhaldandi
þátttöku í heimsmeistaramótinu.
Morozevich, sem lenti í þeirri
óþægilegu stöðu að þurfa að sættast
á jafntefli gegn stigalausum skák-
manni, tók sig saman í andlitinu í
síðari kappskákinni gegn landa sín-
um Nugzar Zeliakov og sigraði.
Þannig náðu tveir stigahæstu kepp-
endur mótsins, heimsmeistarinn
sjálfur og fjórði stigahæsti skák-
maður heims, að komast áfram í
aðra umferð, en ekki fóru þeir sann-
færandi af stað í mótinu. Fimmti
stigahæsti skákmaður heims, hinn
21 árs gamli Ungverji Peter Leko,
lenti einnig í vanda með sinn and-
stæðing, suður-afrískan skákmann
að nafni Watu Kobese. Leko sigraði
í fyrri einvígisskákinni, en Kobese
svaraði fyrir sig í þeirri síðari og því
þurfti að grípa til atskáka til að fá
úrslit í einvíginu. Þar sigraði Leko
hins vegar örugglega 2-0. Þess má
geta, að Leko er með 2.739 alþjóðleg
skákstig, en Kobese er með 2.373
stig og ætti því að jafnaði að reynast
Leko auðveldur andstæðingur.
FIDE-heimsmeistarinn fyrrver-
andi, Alexander Khalifman (2.702),
náði ekki heldur að sigra óþekktan
andstæðing sinn fyrr en gripið var
til atskákanna, þannig að það gekk á
ýmsu á efstu borðum í fyrstu umferð
heimsmeistarakeppninnar. Að lok-
um náði þó stigahærri keppandinn
að komast áfram á 15 efstu borð-
unum.
Það var hins vegar Anatoly Karp-
ov (2.692), fyrrum heimsmeistari,
sem fékk það óyndislega hlutskipti á
16. borði að tapa fyrir mun stiga-
lægri andstæðingi og detta þar með
út úr keppninni strax í fyrstu um-
ferð. Það var kínverski stórmeist-
arinn Zhang Pengxiang, sem er með
innan við 2.500 skákstig, sem sigraði
Karpov. Þetta er mikið áfall fyrir
Karpov, sem hafði nýlega náð sínum
besta árangri á skákmóti um
margra ára skeið og hafði lýst því
yfir fyrir keppnina að hann ætlaði
sér ekkert minna en heimsmeistara-
titilinn.
Breski stórmeistarinn Nigel
Short féll einnig óvænt út úr keppn-
inni og sama má segja um gamla
baráttujaxlinn Viktor Korchnoi, sem
nú er kominn á áttræðisaldur en er
engu að síður í hópi 50 sterkustu
skákmanna heims.
Þrír af þeim átta skákmönnum
sem fengu keppnisrétt á Netskák-
móti FIDE komust áfram í aðra um-
ferð heimsmeistaramótsins. Það
voru Rússinn Sergei Shipov, Frakk-
inn Igor Nataf og svo danski stór-
meistarinn Peter Heine Nielsen.
Úrslit á efstu borðum urðu annars
sem hér segir:
1. W. Anand-O. Touzane 2½-1½
2. M. Adams-G. Sarthou 2-0
3. A. Morozevich-N. Zeliakov 1½-½
4. V. Ivanchuk-B. Shovunov 1½-½
5. P. Leko-W. Kobese 3-1
6. E. Bareev-M. Gluzman 2-0
7. B. Gelfand-A. Cabrera 1½-½
8. V. Topalov-F. Pierrot 2-0
9. A. Shirov-A. Rizouk 2-0
10. R. Kazimdz.ov-N. Vlassov 1½-½
11. I. Smirin-A. Simutowe 2-0
12. A. Khalifman-S. Ganguly 3-1
13. L. Van Wely-R. Felgaer 1½-½
14. K. Georgiev-F. El Taher 3-1
15. P. Svidler-A. Hoffman 1½-½
16. A. Karpov-P. Zhang 1-3
17. A. Dreev-K. Supatashvili 1½-½
18. J. Polgar-M. Al-Modiahki 2-0
19. R. Ponom.ov-Li Wenliang 1½-½
20. Ye Jiangchuan-A. Barsov 3-1
Ókeypis kennslutímar
fyrir stúlkur
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
býður upp á ókeypis kennslutíma
fyrir stúlkur á miðvikudögum kl.
17:30. Þessi kennsla er samstarfs-
verkefni Taflfélagsins Hellis og
Skákskóla Íslands. Kennslan fer
fram á Bergstaðastræti 55. Allar
ungar stúlkur sem hafa áhuga á
skákkennslu eru velkomnar.
Kennslan er ókeypis. Hægt er að
skrá sig í síma 848 0100. Guðfríður
Lilja er alþjóðlegur meistari kvenna
og margfaldur Íslandsmeistari
kvenna í skák.
Short og Karpov úr
leik eftir sögulega
byrjun á HM í skák
SKÁK
Kreml
27.11. 2001–26.1. 2002
HEIMSMEISTARAKEPPNI FIDE
Daði Örn Jónsson
Anatoly
Karpov
Bridsfélag
Siglufjarðar
Mánudaginn 19. nóvember lauk
Siglufjarðarmótinu í tvímenningi. Til
leiks mættu 20 pör. Spilaður var
„Barometer“, fimm umferðir á
kvöldi með 5 spilum milli para eða 19
umferðir. Fljótlega í upphafi mótsins
tóku þeir Sigurður Hafliðason og
Sigfús Steingrímsson afgerandi for-
ystu, sem þeir létu ekki af hendi.
Siglufjarðarmeistarar í tvímenn-
ingi 2001 urðu því þeir Sigurður Haf-
liðason og Sigfús Steingrímsson,
sem hlutu alls 202 stig.
Röð næstu para var þessi:
Hreinn Magnúss. - Friðfinnur Haukss. 169
Ari M. Aras. - Ari M. Þorkelss. 134
Anton Sigurbjörnss. - Bogi Sigurbjss. 113
Haraldur Árnas. - Hinrik Aðalsteinss. 91
Nú er hafin blönduð hraðsveita-
keppni. Sveitir eru þannig myndaðar
að par nr. 1 og 20 í Siglufjarðar-
mótinu mynda sveit, par nr. 2 og 19,
par nr. 3 og 18 og svo framvegis.
Þannig er þátttökufjöldi sveita 10 og
spilaður „Patton“.
Eftir fyrsta kvöldið af þremur er
staða efstu sveita þessi:
Sveit Guðrúnar J. Ólafsdóttur 69
Sveit Sigurðar Gunnarssonar 67
Sveit Önnu Láru Hertervig 53
Sveit Georgs Ragnarssonar 51
Þá er hafin baráttan um brons-
stigin en sá sem hlýtur flest brons-
stig yfir veturinn hlýtur nafnbótina
besti spilari félagsins, jafnframt því
að góð verðlaun eru í boði auk pen-
ingaverðlauna fari stigafjöldi yfir
645 í heildina.
Staða efstu spilara um bronsstigin
er nú þessi:
Sigfús Steingrímsson 148
Sigurður Hafliðason 148
Friðfinnur Hauksson 116
Hreinn Magnússon 116
Ólafur Jónsson 99
Anton Sigurbjörnsson 95
Bogi Sigurbjörnsson 95
Alls hafa 39 spilarar hlotið brons-
stig það sem af er starfsárinu.
Norðurlandsmót í brids
Helgina 3.–4. nóvember var haldið
Norðurlandsmót í sveitakeppni á
vegum félagsins. Af einhverjum
ókunnum orsökum var þátttaka í
mótinu mjög léleg. Aðeins mættu til
leiks sveitir frá Siglufirði og Akur-
eyri. Úrslit urðu þau að þrjú efstu
sætin komu í hlut siglfirsku sveit-
anna, en þær sveitir voru skipaðar
neðangreindum spilurum:
Sveit Guðlaugar Márusdóttur 91 stig
Spilarar: Jón Sigurbjörnsson, Björk Jóns-
dóttir, Jón Tryggvi Jökulsson, Ólafur Jóns-
son og Sigurður Gunnarsson.
Sveit Hreins Magnússonar 85 stig
Spilarar: Hreinn – Friðfinnur, Anton/Sigfús
– Bogi.
Sveit Stefáns Benediktssonar 78 stig
Spilarar: Stefán – Þorsteinn, Ari Már – Ari.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Tveimur kvöldum af fjórum er
lokið í Greifamótinu í sveitakeppni
hjá Bridsfélagi Akureyrar. Sveit
Reynis Helgasonar er enn á toppn-
um en sveit Sveins Pálssonar náði
hæstu skori síðasta spilakvöld og
minnkaði bilið.
Þannig er staða efstu sveita þegar
mótið er hálfnað:
Sv. Reynis 590
Sv. Sveins 551
Sv. Ragnhildar Haraldsdóttur 521
Sv. Gylfa Pálssonar 493
Sv. Sveins Stefánssonar 480
Spilað er í Hamri á þriðjudags- og
sunnudagskvöldum og eru allir vel-
komnir.
Þá hyggst Bridsfélag Akureyrar
halda skemmtikvöld á Greifanum
föstudagskvöldið 30. nóv. og eru spil-
arar hvattir til að láta sjá sig þar.
Bridsfélag Dalvíkur
og Ólafsfjarðar
Mánudaginn 26. nóv. lauk þriggja
kvölda sveitakeppni hjá félaginu og
styrkti Þormóður rammi – Sæberg
mótið.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Ingvar Jóhannsson, Jóhannes
Jónsson, Kristján Þorsteinsson,
Hákon Sigmundsson og Jón A. Jónsson 61
Tryggvi Guðmundsson, Grzegorz
Maniakowski, Jón Halldórsson og
Þorsteinn Ásgeirsson 55
Jón A. Helgason, Jón Kr. Arngrímsson,
Guðmundur Sigurbjörnsson og Magnús
G. Gunnarsson 30
Silfureinmenningur (TOPP 16) fé-
lagsins verður spilaður fimmtudags-
kvöldið 6. des. kl. 19.30.