Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 58
UMRÆÐAN 58 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ fiú safnar frípunktum og getur líka unni› utanlandsfer›. Tveir aukavinningar dregnir út vikulega. Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is fiú safnar hjá okkur... VIÐSJÁR eru miklar í heiminum nú um stundir og hugur al- mennings bundinn við hryðjuverk og styrj- arldarátök. Endur- minningarnar eru enn ferskar um átökin á Balkanskaga og þar áð- ur við botn Persaflóans. Þrátt fyrir þetta er ekki rétt að horfa fram hjá því sem breyst hefur á sviði öryggismála heimsins og í umræðum um öryggismál síðast- liðin 10–15 ár. Með falli Berlínarmúrsins, upp- lausn Sovétríkjanna og því að Varsjárbandalagið var lagt nið- ur breyttust aðstæður í öryggismál- um í heiminum í grundvallaratriðum. Ógnarjafnvægi tveggja kjarnorku- stórvelda var skyndilega úr sögunni og eitt stóð eftir á sviðinu með algjöra yfirburði þar sem voru Bandaríkin. Athygli manna fór þá í vaxandi mæli að beinast að öðrum þáttum, sem ógnuðu frið og stöðugleik í heiminum, fremur en vopnuðum átökum her- velda einum saman. Öryggishugtakið tók smátt og smátt á sig nýja og breiðari mynd og viðhorf manna til þess hvað gæti ógnað öryggi og stefnt friði í hættu breyttust. Umræða af þessum toga hefur m.a. farið fram á vettvangi Norðurlanda- ráðs og fer þar vaxandi. Tillögur hafa verið fluttar sem ganga út á endur- skilgreiningu öryggishugtaksins og í umræðum um öryggismál er í vax- andi mæli horft til orsaka, leitað skýr- inga og að undirrót átaka innan ríkja og í millum. Nú síðast á þingi sínu í Kaupmannahöfn, dagana 29.–31. október, samþykkti Norðurlandaráð stefnumótandi áherslur fyrir Norður- lönd hvað varðar fyrirbyggjandi og borgaralegar aðferðir við lausn deilu- mála (konfliktförebyggande och civil krishantering). Þingið samþykkti samhljóða tillögur starfshóps sem settur var á fót í framhaldi af tillögu- flutningi flokkahóps vinstrisósíalista í ráðinu. Nú gætir þess í vaxandi máli að framganga Vesturlanda, jafnt ríkis- stjórna sem stórfyrirtækja og Al- þjóðastofnana, og áhrif svonefndrar hnattvæðingar eru komin í sviðsljósið þegar fjallað er um öryggismál. Áhersla á borgaralegar, og friðsam- legar og fyrirbyggjandi aðgerðir við lausn deilumála, hefur samhliða þessu farið vaxandi eins og áður sagði. Hugmyndir sem lagðar voru til grundvallar uppbyggingu stofnunar- innar um öryggi og samvinnu í Evr- ópu, ÖSE, voru og eru af þessum toga. Reynt er að leggja áherslu á borgaralegar, friðsamlegar og fyrir- byggjandi aðgerðir, grípa inn í deilu- mál áður en hlutirnir fara úr bönd- unum styrkja lýðræði og mannréttindi og vinna þannig gegn þeim aðstæðum sem reynslan sýnir að verða gróðrarstía ofstækis, ofbeld- ishugsunar og síðar vettvangur átaka sé ekkert að gert. Breytinga er þörf Reynslan sýnir ótvírætt að breyta þarf í grundvallaratriðum um hugs- unarhátt og vinnubrögð hvað varðar framtíðarskipan öryggismála í heim- inum. Í fyrsta lagi á að leggja áherslu á það sem að ofan var rætt, þ.e. friðsamlegar og fyrirbyggjandi að- gerðir. Áherslan er um leið færð frá hinni hern- aðarlegu hugsun, þ.e. að friðarins verði best gætt, eða hann tryggð- ur, með vopnum. Í öðru lagi þarf að koma á víðtækum, bind- andi alþjóðasamningi um vopnaviðskipti. Samningurinn þarf að fela í sér reglur um takamarkanir á vopna- viðskiptum, reglur um upplýsingar sem skylt sé að veita um vopnavið- skipti og um það hvernig alþjóðlegu eftirliti skuli háttað. Hvers kyns við- skipti með gereyðingarvopn og vopn sem eingöngu miðast við að drepa eða slasa fólk eins og klasasprengjur á að banna með öllu. Strangt, alþjóðlegt eftirlit á að vera með öllum vopna- viðskiptum og sérstaklega hert á því þegar í hlut eiga háþróuð og öflug vopn. Samhliða hinu alþjóðlega eftir- liti þurfa að vera til staðar heimildir til að stöðva tímabundið eða banna al- farið vopnaviðskipti inn á svæði þar sem ástæða er til að óttast að átök geti verið í aðsigi. Í þriðja lagi þarf að vinna að útrým- ingu gereyðingarvopna og víðtækri afvopnun, friðlýsingu svæða, friðar- fræðslu og friðaruppeldi, þar sem of- beldi er úthýst og hvers kyns ofbeld- isdýrkun er hafnað. Markmiðið um að engar erlendar herstöðvar skuli fyr- irfinnast á að vera lokatakmark slíkr- ar víðtækrar afvopnunaráætlunar. Það þýðir að í framtíðinni haldi engin þjóð úti herstyrk eða herstöðvum á annarra landi og aðeins alþjóðasveitir öryggisstofnana starfi óháð landa- mærum. Herstyrkur og viðbúnaður einstakra ríkja verði þá einungis til varnar innan eigin landamæra. Í fjóra lagi þurfa Sameinuðu þjóð- irnar sjálfar og eftir atvikum einnig svæðisbundnar öryggisstofnanir eins og ÖSE að hafa yfir að ráða sínum eigin öryggisgæslusveitum. Einnig fjármagn til að senda þær á vettvang. Það er óviðunandi ástand að þessar stofnanir þurfi að leita til einstakra ríkja um hermenn úr þeirra herjum og betla út sérstakan fjárstuðning í hverju einstöku tilviki. Grundvallar- atriði er að hver deild í slíkum sveit- um sé fjölþjóðleg; í henni sé blanda fólks af ólíku þjóðerni þannig að hvar sem slíkar sveitir séu á vettvangi eigi helstu þjóðir, menningarsvæði og trúarbrögð sína fulltrúa í hverri og einni sveit. Í fimmta lagi þarf að draga upp- hafleg markmið með stofnun Samein- uðu þjóðanna fram í dagsljósið og hefja uppbyggingarstarf á ný í anda frumkvöðlanna þannig að SÞ fái stað- ið undir nafni sem alheims-öryggis- gæslustofnun um leið og dregið verði úr áherslu á hernaðarbandalög og þau leyst upp. Einhverjir verða örugglega til að segja að þessi framtíðarsýn sé óraun- hæf, nánast útópísk, en því fer fjarri að svo þurfi að vera. Óhjákvæmilega mun taka tíma að vinna sig út úr og burt frá núverandi aðstæðum vígvæð- ingar og gereyðingarógnar. Sem framtíðarmarkmið er ofangreind framtíðarsýn sú eina sem virkilega heldur vakandi voninni um betri og friðvænlegri heim og samrýmist frið- arhugsjónum fyrr og síðar. Hinar geysifjölmennu og öflugu friðarhreyf- ingar níunda áratugar síðustu aldar knúðu fram samninga um víðtæka kjarnorkuafvopnun í sjálfum frost- hörkum kaldastríðsins. Engin skildi því vanmeta friðarvilja almennings og stuðning við friðarhugsjónina. Nýtt alþjóðlegt öryggis- gæslukerfi Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstri hreyf- ingarinnar græns framboðs og situr í utanríkismálanefnd Alþingis. Utanríkismál Engin skyldi vanmeta friðarvilja almennings, segir Steingrímur J. Sigfússon, og stuðning við friðarhugsjónina. SUNNUDAGINN 25. nóvember síðastlið- inn birtist á síðum þessa blaðs heilsíðu- grein þar sem undir- ritaður er hund- skammaður fyrir það sem Ingvar Gíslason fyrrverandi alþingis- maður og ráðherra kallar í fyrirsögn að „ófrægja Framsóknar- flokkinn“. Þar sem höfundur í upphafi greinar sinnar viður- kennir að hann kemur fram sem talsmaður annarra, og um leið sést að hann hefur ekki kynnt sé málið á annan hátt en af afspurn, hlýtur að slæðast inn ónákvæmni og lýrískt minnisleysi sem ég tel mig knúinn til að leið- rétta. Ég hirði ekki um að lýsa að- draganda þessa máls sem í upphafi var að mínu mati skondið, en hefur snúist upp í að verða fremur leið- inlegt og þreytandi. Ég svara aðeins þeim hluta þessarar greinar sem að mér snýr. Um ríkislaun til handa Páli Ísólfssyni Samhengið milli vinsælda Páls Ís- ólfssonar og starfa hans sem org- anista Dómkirkjunnar, skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík og tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins ann- arsvegar og launa hans hinsvegar er ekki sem sýnist. Páll var alla tíð á hálfum launum sem starfsmaður útvarpsins og einnig var organista- og skólastjórastarfið sem hlutastarf. Öll þessi störf voru afskaplega illa launuð. Þá var það oftar en ekki að Páll gaf eftir aukalaun sín fyrir að leika við jarðarfarir því hann þekkti alla í bænum og sagði stundum sem svo „Þetta fólk hefur af engu að taka“. Þá kenndi hann oftar en ekki efnilegum orgelnemendum án end- urgjalds. Einnig má benda á í þessu sambandi að þegar Páll gaf Jóni Leifs eft- ir stöðu sína við út- varpið á sínum tíma þá þáði Jón full laun. Í endurnýjuðum ráðn- ingarsamningi Páls eftir að hann tekur við starfinu að nýju er tekið fram að hann skuli þiggja hálf laun. Staðan var launuð að fullu að nýju eftir að Páll hætti. Annað ber að athuga í þessu máli. Engir líf- eyrissjóðir voru til handa organistum né starfsmönnum Tónlist- arfélagsins á þessum árum og því ekki von á neinum lífeyrisgreiðslum fyrir þau áratugastörf sem Páll hafði sinnt þessu sviði. Þessu til staðfestingar vil ég nefna að í fund- argerð organistafélagsins frá því 27. september árið 1957 stendur... „Ekki er fallist á tillöguna um að stofna lífeyrissjóð enda ber ekki að skoða organistastarfið sem aðal- starf“. Enda kom það í ljós að þegar Páll hætti störfum þáði hann ein- ungis eftirlaun fyrir þessa hálfu stöðu sína hjá Útvarpinu. Páll bjó í leiguhúsnæði allt til ársins 1947 en þá fyrst gat hann keypt litla íbúð, og þá með hjálp Ragnars í Smára og fleiri góðra manna. Það er því ekkert óeðlilegt né vanhugsað af fé- lögum Páls í Félagi íslenskra org- anista að beita sér fyrir því að Páll kæmist á ríkislaun sem dómorgan- isti eins og altítt var með kollega hans á Norðurlöndum á þeim tíma. Líða tók að starfslokum Páls á þess- um árum og séð var fyrir hvernig staða hans yrði í ellinni. Um þátt Jóns Ísleifssonar Ingvar Gíslason hengir sig fast í árið 1951 og að þessi ósk um að Páll kæmist á ríkislaun sé frá því ári. Þá vill hann endilega að Jón Ísleifsson hafi sagt frá þessari málaleitan af afspurn. Um þetta vil ég segja: Fyrsta launanefnd Félags ís- lenskra organista var kosin á aðal- fundi félagsins 1. nóvember árið 1952. Í þá nefnd voru kosnir Jón Ís- leifsson, Páll Halldórsson og Páll Kr. Pálsson. Jón Ísleifsson átti eftir að starfa í launanefnd félagsins nokkur næstu ár. Í fundargerð Fé- lags íslenskra organista dagsettri 20. desember 1964 þar sem fjallað er um launamálin stendur eftirfar- andi: „Jón Ísleifsson: Um ríkislaun Páls Ísólfssonar skal ég upplýsa að fyrir nokkrum árum er launanefnd (Jón Ísl.) talaði við Gunnar Thor- oddsen en Gunnar talaði við Ólaf Thors um þetta og samþykktu þeir báðir strax tillögu um ríkislaun handa dómorganistanum, en svo strandaði bara á Eysteini Jónssyni, sem þá var fjármálaráðherra og hótaði jafnvel stjórnarslitum ef fram gengi.“ Hér var Jón Ísleifsson ekki að bera fréttir af afspurn. Hann ræddi sjálfur við þessa menn og eru því heimildirnar frá fyrstu hendi. Um réttarsönginn Söngur í íslenskum réttum á haustin er eitt af menningarfyrir- bærum þjóðarinnar. Í mínum aug- um er þessi söngur eitt af merki- legri félagslegum fyrirbærum í sögu þjóðarinnar og ég veit ekki til að þessi ágæti siður sé stundaður með- al annarra þjóða. Þegar ég segi að afgreiðsla Eysteins (sem ég hef enga ástæðu til að rengja) sé „ekki í fyrsta sinn sem framsóknarmenn á þessum árum töldu réttarsönginn hið eina rétta í starfi tónlistar- mannsins“ á ég við að stefna flokks- ins hafi á þessum árum verið sú að tónlistarlífið ætti að vera rekið á fé- lagslegum grunni með starfi áhuga- manna. Það sem mér var efst í huga í því sambandi er grein sem birtist í Tímanum 12. apríl árið 1950 með yf- irskriftinni „Ríkisframfærsla symfó- níuhljómsveitarinnar“ en þar segir m.a.: „Þess er líka vert að minnast, að íslenzkt tónlistarlíf hefur blómg- ast vel á undanförnum áratugum eða á meðan það hefur verið borið upp af sjálfboðavinnu og fórnfúsum áhugamönnum. Það er ekki víst, að það yrði því til gæfu að kippa því af þeim grundvelli og færa það yfir á svið ríkisframfærslunnar“. Þetta er bara söguleg staðreynd og verður að skoðast út frá þeim tíma sem allt þetta gerðist sem ekki virðist mega rifja upp. Til eru mörg fleiri dæmi sem sýna þetta viðhorf. Niðurlag Ég hef aldrei efast um ágæti Ey- steins Jónssonar, hvorki sem per- sónu, stjórnmálamanns né áhuga hans á menningarmálum. Ég hef enga þörf fyrir að ófrægja Fram- sóknarflokkinn né neinn annan stjórnmálaflokk. En ég áskil mér fullan rétt á að minnast á viðhorf og störf bæði stjórnmálamanna og annarra í sögulegri umfjöllun um ís- lenskt tónlistarlíf í þáttum mínum hjá Ríkisútvarpinu meðan ég fæ að sinna því. Það er engum greiði gerður með því að afneita sögunni. Vona ég svo að þessu máli, sem búið er að veltast í útvarpsráði, og nú í tveimur dagblöðum í bráðum hálft ár, sé hér með lokið. Þeim sem stað- ið hafa að þessum fáránlega mála- tilbúnaði í kringum ca. 10 sekúndna innskot í útvarpsþætti hefur svo sannarlega tekist að vekja athygli á sér og sínum. Að ófrægja stjórnmála- flokk Bjarki Sveinbjörnsson Tónlist Ég, segir Bjarki Sveinbjörnsson, hef enga þörf fyrir að ófrægja Framsókn- arflokkinn. Höfundur er dagskrárgerðarmaður, tónlistardeild Ríkisútvarpsins. Velkomin í Hólagarð        
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.