Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 60
UMRÆÐAN
60 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG hélt að fátt
kæmi mér nú orðið á
óvart í sambandi við
kvóta eða stefnu
stjórnvalda í fiskveiði-
stjórnun en mig rak í
rogastans þegar ég
heyrði í útvarpinu um
daginn að Hjálmar
Árnason vildi fara að
breyta einhverju í
sambandi við smábáta
og vertíðarbáta. Bíð-
um nú við – síðan hve-
nær hefur hann verið
að hugsa um okkur
smælingjana eða til-
heyrir hann kannski
einhverri annari ríkisstjórn með allt
aðra stefnu um stjórn fiskveiða?
Nei, ég held ekki. En það var líka
annar þingmaður sem tilheyrir
þessari ríkistjórn, og var og er
sjálfsagt ennþá þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, sem sagði í
umræðum í sjónvarpinu stuttu eftir
að lög voru sett á sjómannaverk-
fallið að annað hefði ekki verið
hægt því byggðum landsins hafi
verið farið að blæða! Hún greinilega
fylgist ekki mikið með hvað er að
gerast úti á landsbyggðinni. Mörg-
um byggðum er þegar blætt út en
aðrar eru á góðri leið með það, og
það skal sérstaklega þakka stefnu
stjórnvalda í fiskveiðistjórn. Þessi
ágæti þingmaður veit kannski ekki
að síðan framsal á kvóta var leyft
hefur fjöldi manna gengið út úr
stéttinni með svo milljörðum skiptir
og hefur ekki þurft að borga skatt
af því, en sem betur fer eru líka
menn sem hafa fjárfest aftur í þess-
ari atvinnugrein og skapað störf til
lands og sjávar.
Í einu byggðarlagi er að rísa al-
veg nýtt hverfi, það er í daglegu tali
nefnt ,,kvótahverfið“ og væri nú al-
veg tilhlýðilegt að það fólk sem
byggir það hverfi myndi nú skíra
einhverjar götur t.d ,,Dórastígur“
eða ,,Davíðsgata“ í virðingarskyni
við þá menn sem komu á og hafa
viðhaldið því kerfi sem skapaði
þessu fólki þau auðævi sem gera því
og ungum þess kost á að dansa í
kringum gullkálfinn. Allir þekkja þá
sögu og vita hvernig fór fyrir því
fólki.
Það er orðið skrýtið að fiskurinn í
sjónum er orðinn þannig að hann
erfist til barna þessara háu herra
sem fengu hann á silfurfati með
stjórnvaldsaðgerðum. (Hvernig er
með erfðaskatt af óveiddum
þorski?) Síðan er það orðin lenska
að sameina fyrirtæki út og suður, til
hvers? Hagræðing segja sumir, til
að viðhalda bruðlinu og sukkinu
segja aðrir. Ég held að það sé það
síðarnefnda. Fólki er lofað við sam-
einingu að allt verði óbreytt, en
hvað svo? Fólki er sagt upp og það
er fullt af fólki sem hefur unnið hjá
sama fyrirtækinu til fjölda ára og
þar sem ég þekki til var ekki einu
sinni sagt ,,skammastu
þín“. En þessir háu
herrar halda að það sé
bara nóg að henda í
fólk nokkrum hundr-
aðköllum og þá sé mál-
ið leyst en málið er
bara ekki svona ein-
falt.
Fólk er óánægt, sjó-
menn eru óánægðir en
stjórnendur fyrirtækja
virðast vera á kafi í
einhverju sukki. Það
eru reist musteri,
keyptir bílar, einbýlis-
húsin skjóta upp koll-
inum eins og gorkúlur,
ungarnir fá trillur og aka um á
flottum jeppum og það virðist sem
sumstaðar sé eitthvert allsherjar
sukk í gangi! Verkafólk horfir á og
skilur ekki af hverju það er ekki
hægt að borga því hærri laun og
sjómenn spyrja sjálfa sig af hverju
sé ekki hægt að fá hærra fiskverð?
Eins og fyrr segir þá er það þetta
fólk sem hefur skapað þann auð
sem þessir háu herrar eru að bruðla
með út og suður í dag. En gleymið
því ekki, háu herrar, hvar væruð
þið án verkafólks og sjómanna? En
eins og máltækið segir: ,,Sjaldan
launar kálfur ofeldi.“
Í lokin vil ég beina orðum mínum
til sjómanna: Eitt vopn eigið þið eft-
ir sem verður ekki frá ykkur tekið
eða sett lög á, það er atkvæðið ykk-
ar. Hafið í huga hverjir hafa traðk-
að á ykkur og komið fram við ykkur
eins og dónar. Ég trúi því ekki að
þegar maður heyrir um fylgi rík-
isstjórnarinnar að það séu sjómenn
eða þeirra fjölskyldur sem styðja
hana. Er það kannski með mann-
fólkið eins og sagt er um hundana
að því meira sem þeir eru barðir því
hlýðnari verði þeir? Ég trúi því ekki
að það eigi við um ykkar stétt. Ger-
ið hreint fyrir ykkar dyrum og ekki
gefast upp því nú er nóg komið og
við erum öll löngu búin að fá upp í
kok og hreinlega upp fyrir haus af
þessu öllu saman. Hingað og ekki
lengra!
Nóg komið
Kristín Þórðardóttir
Höfundur er verkakona og er gift
sjómanni.
Sjávarútvegsmál
Mörgum byggðum er
þegar blætt út en aðrar
eru á góðri leið með það,
segir Kristín
Þórðardóttir, sem telur
að þar beri að þakka
stefnu stjórnvalda
í fiskveiðistjórn.
KJARTAN Val-
garðsson spurði fyrir
skömmu í netgrein á
Strikinu hvað VG ætti
við með þeirri stefnu
flokksins á landsfundi
í október að áskilja
sér „rétt til að færa
einkavædda almanna-
þjónustu til opinberra
aðila á nýjan leik“.
Við hvaða fyrirtæki er
hér átt? spyr Kjartan,
og líka um það hvern-
ig VG hyggist nýta
þennan „rétt“ – með
hlutabréfakaupum á
verðbréfamarkaði eða
eignarnámslögum á þinginu?
Kjartan hefur enn ekki fengið
annað svar en frá formanni VG-
félagsins í Kópavogi, Einari Ólafs-
syni, sem segist svara bara fyrir
sjálfan sig: Hér sé í fyrsta lagi um
að ræða hvaða fyrirtæki sem vera
skal, þó tæplega til dæmis Þormóð
ramma eða Áburðarverksmiðjuna
„þótt mér persónulega finnist ekk-
ert athugavert við að opinberir að-
ilar reki slík fyrirtæki“. Í öðru lagi
verði þær leiðir kannaðar sem fær-
astar eru „þegar eða ef við stönd-
um frammi fyrir því“ segir Einar
en tekur fram að „ef um slíka
eignaupptöku yrði að ræða yrðu
einstaklingar ekki skildir eftir á
köldum klaka“. Sú er þó skoðun
Einars að „við þurfum ekki að
greiða „fullar bætur“ til auðmanna
sem hafa makað krókinn á braski í
kjölfar einkavæðingar almanna-
þjónustu“.
Allir vita að VG hefur skýra og
afdráttarlausa stefnu. En þetta er
ekki alveg skýrt svar frá formann-
inum í Kópavogi. Ályktunin sem
um ræðir var hinsvegar samþykkt
einróma á landsfundinum, og til að
geta rætt þessa athyglisverðu nýj-
ung í efnahags- og atvinnumálum
hljóta áhugamenn um stjórnmál að
eiga „rétt“ á að forystumenn VG
skýri betur stefnu flokksins:
Hvaða fyrirtæki er átt við? Og
hvernig hyggst VG standa að
„eignaupptökunni“?
Úr EFTA?
Enn réðust mikil forlög smárrar
þjóðar á landsfundi VG. Sem
kunnugt er hefur
flokkurinn lagst ein-
dregið gegn öllu tali
um Evrópusamband-
ið, en á fundinum var
bætt um betur og
samþykkt að landið
„standi utan efna-
hagsbandalaga og
ríkjasambanda“. Hér
virðist vera ætlunin
að taka EES-samn-
inginn úr sambandi
og ganga úr EFTA,
sem auðvitað er eða
var á sinn hátt efna-
hagsbandalag ef ekki
ríkjasamband. Þessi
túlkun verður enn áleitnari síðar í
ályktuninni: „Vegna EES-samn-
ingsins og annarra framtíðarsam-
skipta við Evrópusambandið verði
af Íslands hálfu leitast við að þróa
þau í átt til tvíhliða samninga um
viðskipti og samvinnu.“
Ennþá skýrara og afdráttarlaus-
ara mundi þetta þó verða ef for-
ystumenn VG svöruðu hér hinum
augljósu spurningum: Burt með
EES-samninginn? Og hvað um
ávinninga hans, félagslega, menn-
ingarlega og efnahagslega? Út úr
EFTA?
Gegn NATO
Fleiri einarðar stefnuályktanir
voru samþykktar á þessum lands-
fundi, meðal annars um öryggis-
og varnarmál. Rúmum mánuði eft-
ir atburðina 11. september og
rúmum áratug eftir fall kommún-
ismans í Austur-Evrópu sam-
þykktu landsfundarfulltrúar VG að
„árétta“ að „Ísland eigi að vera
herlaust land. Íslenskum stjórn-
völdum ber að ganga þegar til
samninga við Bandaríkin um
brottför setuliðsins á Miðnesheiði.
Jafnframt því á Ísland að ganga úr
Atlantshafsbandalaginu. Ísland úr
NATO, herinn burt.“
Nú hljómar þetta nokkuð skýrt
og afdráttarlaust enda kannski
ekki alveg sama nýnæmið og
ályktunin um eignaupptökuna eða
andstöðuna við EFTA. Hér hefur
heimurinn hinsvegar verið svo
ókurteis að breytast án tillits til
gömlu vígorðanna. NATO er þann-
ig orðið allt annað kompaní en fyr-
ir hálfri öld, og tæplega hernaðar-
bandalag lengur í skilningi 19. og
20. aldar, en nauðsyn alþjóðasam-
vinnu í varnarmálum viðurkennd
um allan okkar heimshluta: Ætlar
VG að segja landið úr NATO ef
það fær að ráða í ríkisstjórn?
Hvað ætlar VG að setja í staðinn í
öryggismálum Íslendinga?
Ellegar nokkuð á leið
Landsfundur VG markaði spor í
sögu flokksins. Okkur sem forðum
mynduðum Alþýðubandalagið
kemur ekki á óvart hvert þau spor
virðast stefna – því meginhluti
fulltrúa sýnist hafa komið úr þeim
hluta gamla ABR-félagsins í
Reykjavík sem lengi hélt tryggð
við sérkennilegustu þættina í arfi
Sósíalistaflokksins, og taldi sér
skylt að vera eindreginn andskoti
endurnýjunar og málefnalegrar
framþróunar í Alþýðubandalaginu.
Þá voru á fundinum mjög á kreiki
gamlir kunningjar úr Fylkingunni
og öðrum vinstri-vinstrisamtökum
sem ýmist voru með eða á móti
Allaballa heitnum en eru nú orðnir
innanstokksmunir í samtökum
Steingríms J. Sigfússonar.
Um svona stöðu hefur það verið
ort að mönnunum muni annað-
hvurt nokkuð á leið eða aftur á
bak. Svör forystumanna VG við
spurningunum að ofan geta einnig
gefið vísbendingu um stefnu
flokksins hvað þessa staðhæfingu
skáldsins varðar.
Eignaupptaka VG
og fleiri spurningar
Mörður Árnason
Stjórnmál
Til að geta rætt þessa
athyglisverðu nýjung,
segir Mörður Árnason,
hljóta áhugamenn
um stjórnmál að eiga
rétt á að forystumenn
VG skýri betur stefnu
flokksins.
Höfundur er varaþingmaður í
Reykjavík fyrir Samfylkinguna.
Á NÝAFSTÖÐNUM landsfundi
Samfylkingarinnar voru stigin
ábyrg skref í Evrópustefnunni og
róttækar tillögur sam-
þykktar í lýðræðis-
málum. Samfylkingin
ákvað að Evrópuút-
tektin, sem kom út á
dögunum í bókinni Ís-
land í Evrópu, færi til
kynningar í flokknum
og á næsta ári gengju
allir flokksmenn til
allsherjaratkvæðis um
hvort sækja eigi um
aðild að ESB eða
ekki.
Umbætur í
lýðræðismálum
Samfylkingin er
róttækur umbóta-
flokkur í lýðræðismál-
um. Flokkurinn boðar milliliða-
laust lýðræði þar sem landsmenn
kjósa beint um mörg af megin-
verkefnum samfélagsins, ekki síst
í skipulags- og umhverfismálum, á
sveitarstjórnarstiginu. Samfylk-
ingin gengur á undan með góðu
fordæmi og boðar nú beint lýðræði
innan flokks. Þannig munu flokks-
menn sjálfir ákveða niðurstöðuna í
Evrópumálum og kjósa formann
og varaformann
beinni kosningu. Sam-
þykkt var lagabreyt-
ingatillaga Óskars
Guðmundssonar
blaðamanns, þess efn-
is að hér eftir kysu
allir flokksmenn for-
ystuna í almennri
póstkosningu nokkr-
um vikum fyrir lands-
fund.
Jafn atkvæða-
réttur
Jafnaðarmenn hafa
lengi barist fyrir því
að landið yrði eitt
kjördæmi og að allir
landsmenn hefðu jafn-
an kosningarétt. Sú tillaga í
stjórnmálaályktun flokksins á
landsfundinum var samþykkt með
lófataki og hefur frumvarp þess
efnis nú verið lagt fram á Alþingi
af þingmönnum hans. Þá sam-
þykkti flokkurinn að bókhald
flokksins skyldi opnað og að
hæstaréttardómarar skyldu valdir
þannig að flokkspólitísk áhrif
hefðu þar sem allra minnst áhrif.
Sérstöðu Samfylkingarinnar í ís-
lenskum stjórnmálum má draga
saman í orðin auðlindir, Evrópa og
lýðræði. Þetta eru þeir málaflokk-
ar sem skapa Samfylkingunni al-
gjöra sérstöðu í íslenskum stjórn-
málum og eru um leið stærstu
verkefni stjórnmálanna á næstu
árum.
Ábyrg Evrópustefna og
róttækni í lýðræðismálum
Björgvin G.
Sigurðsson
Stjórnmál
Þannig munu flokks-
menn sjálfir ákveða nið-
urstöðuna í Evrópu-
málum, segir Björgvin
G. Sigurðsson, og kjósa
formann og varafor-
mann beinni kosningu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar.
MÁLARINN og sálmurinn hans um litinn
Kvikmynd eftir Erlend Sveinsson
**** Heillandi leiðsla
ÓHT/RÚV
*** Ómetanleg
SV/Mbl
*** heillandi listaverk
GH/kvikmyndir.com
**+ gefandi kvikmynd
og falleg HK/DV
Ný bíóupplifun - nýtt kvikmyndaform
Sýnd áfram um helgar í Háskólabíói
... listaverk í augum leikmanns,
allt í senn, einlæg, sterk, hlý og
sönn. Friðrik Pálsson, Mbl.
Munnleg ummæli:
Grípandi mynd
Kraftur og jákvæðni til lífsins
Ótrúlegt drama