Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 64

Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 64
UMRÆÐAN 64 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is fiú gætir unni› vöruúttekt fyrir 10.000 krónur! fiú safnar hjá okkur... Á VORMÁNUÐUM ákvað stjórn Íslandssíma hf. að sækja skyldi um skráningu hans á mark- að. Forstjóri fyrirtækisins ljómaði þegar hann tilkynnti að þetta nýja óskabarn þjóðarinnar yrði nú loks eitt af fyrirtækjum þeim sem skráð væru á Verðabréfaþing Ís- lands (VÍ). Frumkvöðullinn hafði skilað af sér, fyrirtækið hafði vaxið og ómæld hamingja fyllti loftið hreinum vorblæ. Umsókn um skráningu var send VÍ. Tóku þar sérfræðingar þess og stjórn, forstjórar og frændur, pabbar og bankastjórar, ákvörðun um að hliðra reglum eilítið til – þó ekki mikið – til þess að óskabarnið næði skráningu. Svo var skálað í fjölskylduboðum langt fram eftir nóttu. Kjánarnir og óskabarnið Spennan jókst. Útboðslýsing undirrituð af virtum banka í borginni var gefin út. Lýsingarnar á fyrirtækinu voru þannig að landsmenn héldu ekki vatni. Út- boðsgengið var ákveð- ið 8,75 til almennings og stofnfjárfesta. Sal- an hófst og eftir- spurnin var svo mikil að menn mundu ekki aðra eins tíma. Við- varanir nokkurra fjár- málafyrirtækja, sem mæltu ekki með kaup- um í fyrirtækinu, voru virtar að vettugi enda stjórnuðu þeim fyrir- tækjum kjánar og tengdust vafa- sömum öflum í samfélaginu. Við útboðslýsingu, yfirlýsingar – og við fyrirtækið sjálft – voru bundnar vonir. Vonir fjárfesta, almennings og starfs- manna. Vonir um arð og ávöxtun. Hundruð Íslendinga fjárfestu í bréfum fyrirtækisins fyrir hundruð millj- óna. Um miðjan júní var svo skálað um land allt þegar félagið var skráð á markað. Hinn 12. júlí – eða um einum mánuði eft- ir að félagið var skráð á markað – gaf fyr- irtækið frá sér af- komuviðvörun sem öllum er í fersku minni. Afkoma fyrirtækisins var langt undir áætl- unum útboðslýsingarinnar. Hið sama ættarmót VÍ og gefið hafði fyrirtækinu undanþágu til skrán- ingar var kallað saman til að álykta um að það sjálft hafði ekk- ert rangt gert. Málið fékk dágóða umfjöllun í fjölmiðlum og var svo til lykta leitt. Enn í dag bíða þeir, sem keyptu hlut í fyrirtækinu, eft- ir því að fá ávöxtun fjárfesting- arinnar. Nýjum forstjóra Íslands- síma er óskað góðs gengis við að rétta fyrirtækið úr kútnum. Fordæmið er gefið Fjármálaeftirlit ríkisins (FME) er eftirlitsstofnun sem er m.a. ætl- að það hlutverk að fylgjast með ýmsum fjármálastofnunum lands- ins, þ. á m. VÍ. Ýmsar spurningar hafa að undanförnu vaknað um starfsemi þess og tilgang. Var mál VÍ og Íslandssíma tekið fyrir hjá FME? Ef svo var ekki, hvaða for- sendur gaf FME sér til að fjalla ekki um það? Ef málið var tekið fyrir, með hvaða hætti var það gert? Eru einhver tengsl milli stjórnenda FME annars vegar og VÍ eða Íslandssíma hins vegar? Það væri vert fyrir áhugasama að kynna sér starfsemi fjármála- eftirlita nágrannalandanna. Þar er unnið af heilindum og kappi og málin krufin til mergjar. Mál af þessu tagi og hér hefur verið rakið er skýlaust tekið fyrir og kannað ofan í kjölinn. Öðrum víti til varn- aðar og þar hafa verið kveðnir upp harðir dómar sem ekki gefst tæki- færi til að rekja hér. Á Íslandi hefur hins vegar for- dæmið verið gefið. Hver sem er má á hvaða hátt sem er veita al- menningi rangar og villandi upp- lýsingar um kaup á hlutabréfum. Fjármálaeftirlit ríkisins verður ekki fyrir. Fjármálaeft- irlit ríkisins Hjálmar Blöndal Guðjónsson Fjármál Á Íslandi hefur hins vegar fordæmið verið gefið, segir Hjálmar Blöndal Guðjónsson. Hver sem er má á hvaða hátt sem er veita al- menningi rangar og vill- andi upplýsingar um kaup á hlutabréfum. Höfundur er nemi og blaðamaður. Ungbarnafatnaður Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og verðið. Allt fyrir mömmu. Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.