Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 65
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 65
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
Heilsunnar vegna
„Við meðhöndlun hálsvandamála er einn mikilvægasti
þátturinn að gefa réttan stuðning við hálssvæðið þegar
legið er í hvíldarstellingum, til að ná náttúrulegri stöðu
hryggjarsúlunnar. Hið erfiða í þessari meðhöndlun er
að ná þrýstingslétti á hálssvæðið og ná um leið fram
slökun í hinum margvíslegu svefnstellingum. TEMPUR
heilsukoddinn er eini koddinn að mínu viti sem uppfyllir
allar þessar kröfur.“
Röng höfuðlega er erfið fyrir
háls, herðar og bak og leiðir
til meiðsla og verkja.
Góður koddi veitir stuðning
og þægindi þannig að þú
getur sofnað án allrar
spennu.
James H. Wheeler, M.D.
Dr. Wheeler er stjórnar-
formaður félags bæklunar-
skurðlækna í USA, og aðili
að Amerísku Bæklunar-
læknaakademíunni
Jólagjöf
sem lætur þér og þínum líða betur
Yfir 32.000
sjúkraþjálfarar,
kírópraktorar
og læknar um
heim allan
mæla með
Tempur Pedic,
þ.á.m. á
Íslandi. VARISTeftirlíkingar!!!
I
i lí i
!!!
Nú geturðu léð augnhárunum dramatíska sveigju og
lyftingu sem er sjónhverfingu líkust. Grunnurinn að
hinum nýja Illusionist Maximum Curling Mascara er gel
sem byggir á náttúrulögmálum loftmótstöðunnar.
Þetta óvenjulega efni gerir lyftinguna endingarbetri og
sveigjanlegur trefjaburstinn, sem við höfum einkaleyfi
á, auðveldar nákvæma ásetningu. Einstaklega lipur
galdrastafurinn gefur fingurgómunum betra grip.
Illusionist - á undan sinni samtíð.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Clara Kringlunni, Debenhams snyrtivörudeild, Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Smáralind, Hagkaup Spönginni, Lyfja Lágmúla, Lyfja,
Laugavegi, Lyfja Smáratorgi, Lyfja Smáralind, Lyfja Garðatorgi, Lyfja
Setbergi, Lyf og Heilsa Austurstræti, Sara Bankastræti, Apótek Keflavíkur.
Hreinasta sjónhverfing
Estée Lauder kynnir
ILLUSIONIST Maximum Curling Mascara
Öðruvísi
aðventukransar
Sjón er sögu ríkari
Jól 2001
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
NÝLEGA var
kynnt í fjölmiðlum
ályktun miðstjórnar
Alþýðusambands Ís-
lands „um virkjana-
og stóriðjumál“ frá
fundi á Egilsstöðum
7. nóvember sl.
Í upphafi ályktun-
arinnar „lýsir mið-
stjórnin stuðningi sín-
um við áform um
byggingu álvers við
Reyðarfjörð og virkj-
unarframkvæmdir á
Austurlandi“.
Ekki skal dregið í
efa að það hafi verið
ætlun miðstjórnarinn-
ar að hafa ályktunina svo skýra að
allur þorri fólks gæti skilið meg-
inefni hennar.
Undirrituðum virðist þó sem það
hafi ekki tekist og ofangreind
stuðningsyfirlýsing sé, að því er
virkjunarframkvæmdirnar varðar,
í mikilli mótsögn við miðkafla
ályktunarinnar.
„Miðstjórn ASÍ telur, að við mat
á umhverfisáhrifum virkjana- og
stóriðjukosta sé mikilvægt að fara
að lögum og leikreglum sem gilda
um slíkt mat. Augljóst er að slíkir
kostir munu með einum eða öðrum
hætti hafa áhrif á náttúrufar,
mannlíf og efnahagslíf. Því er afar
mikilvægt að unnið sé með opnum,
faglegum og lýðræðislegum hætti
að mati á þessum þáttum, þar sem
leitast sé við að draga fram sem
heildstæðasta mynd
af áhrifunum. Aðeins
með þeim hætti er
hægt að leggja grunn
að sem víðtækastri
sátt um niðurstöð-
una“.
Hér er á mjög af-
dráttarlausan hátt
lýst stuðningi við þær
leikreglur og sjónar-
mið sem Skipulags-
stofnun ríkisins hafði
að leiðarljósi þegar
hún kvað upp úr-
skurði sína varðandi
báða þætti fyrirhug-
aðra framkvæmda á
Austurlandi, þ.e.
varðandi Kárahnjúkavirkjun, allt
að 750 MW, og 420 þúsund tonna
álver í Reyðarfirði.
Sem kunnugt er lagðist Skipu-
lagsstofnun eindregið gegn Kára-
hnjúkavirkjun í úrskurði sínum
hinn 1. ágúst sl., en féllst með viss-
um skilyrðum á byggingu álvers í
Reyðarfirði í úrskurði sínum 31.
ágúst sl.
Eins og áður sagði er ekki hægt
að skilja þann kafla ályktunar mið-
stjórnar ASÍ sem hér er vitnað til
öðruvísi en sem eindreginn stuðn-
ing við verklag Skipulagsstofnun-
ar, að því er varðar báða fram-
angreinda úrskurði. Því hefði verið
rökrétt að miðstjórnin hefði í
ályktun sinni fjallað ítarlega um
þann vanda sem nú er kominn upp
eftir að Kárahnjúkavirkjun, í
þeirri mynd sem hún var fyrirhug-
uð af hálfu framkvæmdaaðila, er
augljóslega óframkvæmanleg og
úr sögunni vegna gífurlegrar um-
hverfisröskunar. Vænta hefði mátt
ábendinga um það hvaða leiðir
miðstjórnin telur að víðtæk sátt
geti tekist um varðandi orkuöflun
fyrir álver í Reyðarfirði, sem mið-
stjórninni virðist mikið í mun að
rísi. Þetta gerir miðstjórnin hins-
vegar ekki heldur ber niðurlag
ályktunarinnar þann svip að und-
irbúningur framkvæmdanna
eystra sé þegar í höfn og aðeins
þurfi að huga að hugsanlegum
þenslu- og verðbólguáhrifum
þeirra.
Væri ekki ráð að miðstjórnin
skýrði nánar fyrir landsmönnum
hvað felst í miðkafla ályktunar-
innar?
Mótsagnakennd álykt-
un miðstjórnar ASÍ
Gunnar
Guttormsson
Hálendið
Niðurlag ályktunar-
innar ber þann svip,
segir Gunnar Gutt-
ormsson, að undirbún-
ingur framkvæmdanna
eystra sé þegar í höfn.
Höfundur er forstjóri
Einkaleyfisstofunnar.