Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 66

Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 66
UMRÆÐAN 66 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTI norræni landnámsmaðurinn, samkvæmt Ara fróða, var Ingólfur Arnarson og hann byggði í Reykjavík. Íslenskir fræðimenn hafa flestir fallist á að frásögn Ara sé rétt eða nægilega rétt til að Ingólfur beri titilinn fyrsti land- námsmaðurinn. Nú hafa komið í ljós forn- ar leifar af bæ sem hugsanlega og jafnvel líklega hefur verið bú- staður Ingólfs og konu hans, Hallveigar Fróðadóttur. Og í raun skiptir ekki öllu máli hvort Ingólfur þessi var nákvæmlega sá fyrsti sem settist hér að til ævidvalar. Bara það að nafn hans hefur í nærri 9 ald- ir verið órjúfanlega tengt upphafi landnáms norrænna manna á Ís- landi gerir vissar kröfur til okkar eftirkomenda þeirra hjóna. Frásögn Ara fróða og Landnámu um landnám Ingólfs og Hallveigar kemur vel heim við staðhætti og röklega hegðun fólks sem kemur að óbyggðu landi. Það hafði fyrst dvöl þar sem það kom að landinu. Kann- aði landið og settist svo að þar sem vænlegast var. Ingólfur bjó á tveim- ur ef ekki þremur stöðum áður en hann ákvað að setjast að í Reykja- vík. Þar voru landgæði mikil, auðug fiskimið, fiskur í ám og vötnum, selalátur, fuglalíf, gott beitiland og heitar laugar. Þjóðir eiga það sammerkt að vilja þekkja uppruna sinn alveg eins og einstaklingar. Það er því mikils virði fyrir ættbálk eða þjóð að geta rakið uppruna sinn til tiltekinna for- feðra og gildir um Íslendinga eins og aðra. Gyðingar kenna sig t.d. við Abraham, Ísak og Jakob. Þannig mætti rekja ýmis dæmi. Áþreifan- legir vitnisburðir um upphaf þjóða eru þó sjaldgæfir enda langt um lið- ið hjá flestum þjóðum. Við erum hins vegar með yngstu þjóðum og því þekkjum við sögu okkar og upp- runa mjög vel. Við höfum hins vegar ekki verið dugleg að gera fornminj- um frá fyrstu tíð okkar hátt undir höfði. Áratugum og reyndar öldum saman hafa Íslendingar reynt að sannreyna ritaðar og munnlegar heimildir um sögu sína og leita markverðra fornminja. Fjölmörg kuml hafa menn fundið auk þeirra sem hafa blásið upp. Menn hafa grafið í bæjarstæði víða um land. Þannig var grafinn upp skálinn á Sæbóli í Dýrafirði þar sem Gísli Súrsson gekk um garða, tætturnar á Bergþórshvoli þar sem vissulega virðist hafa brunnið fjós, einnig tóttir á Stöng í Þjórsárdal sem eru fyrirmyndir að fornaldarbæ. Á Þórsnesi er gamall blótsteinn tilbú- inn til notkunar og Suðurgötumegin við Þjóðminjasafnið stóð til skamms tíma blótsteinn frá Þyrli sem getið er í Harðar sögu, og mætti svo lengi telja. Lengi hafa menn talið sig vita að upphaf byggðar í Reykjavík væri við elstu götu bæjarins, Aðalstræti. Rústirnar í Aðalstræti sem grafnar voru upp í sumar eru óefað frá elstu byggð í Reykjavík. Hvað gera bændur þá? Byggja hótel ofan á þeim og hafa þær hugsanlega í kjallaranum til sýnis fyrir túrista? Það er vissulega snjallt að geta leitt hótelgestina að moldargröfinni og sagt: „Hér settist fyrsti Íslending- urinn að. Hér er upphafið að sögu Íslendinga.“ Og útlendingarnir falla í stafi yfir að sjá þennan upphafsreit í lífi þjóðar og kaupa ótal minjagripi og margir fá eflaust vinnu við þetta. En það hangir meira á spýtunni og er óháð hugsanlegum fjárhags- legum ávinningi. Það er nánast ein- stakt að þjóð geti bent á einhvern stað og sagt: „Hér var upphaf bú- setu í landinu.“ Sennilega er hvergi í veröldinni hægt að sýna blettinn þar sem fyrsti landnámsmaðurinn eða ættfaðirinn bjó. Þessi blettur hefur nú verið graf- inn upp hér í Reykjavík. Þessir fáu fermetrar eru einstakir í þjóðarsög- unni. Það er eins vel sannað og orðið getur að fyrsti landnámsmaður Ís- lands bjó á þessum stað, byggði hér bæ og er grafinn einhvers staðar hér nálægt. Þessir 2–300 fermetrar, eða hvað lóðin er stór, eru mikil- vægustu fermetrar á Íslandi, því hér er upphaf sögu þjóðarinnar. Hvað viljum við gera við þennan blett? Það getur svo sem verið góðra gjalda vert að byggja hótel í rúst- unum, en refta yfir moldarflekkinn og hafa t.d. einhverja glugga handa fólki að kíkja inn um. Annars vegar í kjallaranum verður svo væntanlega kyndiklefi og sorpgeymsla og hin- um megin neðanjarðarbílastæði. Glæsilegt nágrenni. En er þetta framtíðin sem á að bíða einhvers mikilvægasta staðar íslensku þjóð- arinnar? Nei, hér er einstakt tæki- færi í veraldarsögunni. Að benda á blettinn þar sem landnámið hófst. Segja: „Hér byrjaði það.“ Er ekki hægt að reisa hótel annars staðar? Má ekki breyta Morgunblaðshöll- inni í hótel? Þótt þessir 2–300 fer- metrar séu látnir í friði, jafnvel þótt þetta sé allt að hálfur hektari (= hálfur kýrfóðursvöllur að fornu mati) þá er það varla ofrausn þótt vel sé gert við þennan blett. Er ekki kominn tími til að gera vel við vík- ingaaldarminjar hér í höfuðstaðn- um? Öllum hugmyndum um hótel á fornminjareitnum í hjarta bæjarins á að varpa fyrir róða, þrátt fyrir til- lögur um rústir í „kjallara“. Þess í stað á að byggja veglega byggingu yfir bæ Ingólfs og Hallveigar, fyrstu landnámshjúanna. Byggingu sem Þjóðminjasafn og e.t.v. fleiri hafa umsjón með. Það má örugglega skapa þar áhugavert safn eins og dæmi eru um hjá stórhuga þjóðum. Safn sem skólar, almenningur og erlendir ferðamenn gætu haft gagn og gaman af. Hér á að vera miðdep- ill Reykjavíkur sem „allir“ þurfa einhvern tímann að sækja heim. Það er ráðleysi og skammsýni að reisa hótel á þessum skika. Grípum þetta einstæða tækifæri sem nú býðst. Lóð Ingólfs og Hallveigar Jón Torfason Jón er íslenskufræðingur. Eiríkur er sagnfræðingur. Báðir starfa á Þjóð- skjalasafni Íslands. Fornminjar Sennilega er hvergi í veröldinni, segja Jón Torfason og Eiríkur G. Guðmundsson, hægt að sýna blettinn þar sem fyrsti landnáms- maðurinn eða ættfað- irinn bjó. Eiríkur G. Guðmundsson FORMAÐUR Ör- yrkjabandalagsins beindi þeirri spurningu nú á dögunum til ráða- manna hvort þeir gætu gefið félagsmönnum í bandalaginu uppskrift að því hvernig lánast mætti að lifa mann- sæmandi lífi af þeim bótum sem við teljum okkur sæma að skammta úr hnefa til öryrkja. Það varð að vonum fátt um svör enda veit enginn til þess að mannsæmandi kjör séu útsöluvarningur nú þegar tekur að fjara undan góðær- inu, síst að þau séu föl á þann spott- prís sem öryrkjar kynnu að geta reitt fram. Forsætisráðherra og einnig ráð- herra fjármála töldu sig raunar við annað bundna en að svara þvílíkri hótfyndni því þeir voru einmitt báðir staddir á halelújasamkomu Flokks- ins, en í þeim félagsskap, eins og víð- ar, eru menn löngu hættir að líta svo á að milli launa, að ég nú ekki tali um bóta, annars vegar og mannsæmandi lífs hins vegar liggi gagnvegir ein- hverjir. Þetta bagalega sambandsleysi milli lífs og launa kann að stafa af því að æði margir hafa þá trú að laun séu aðeins einhvers konar hugtak sem ætlað sé skattinum og sé því að öðru leyti að mestu án tengsla við raun- veruleikann og í ótrúlega mörgum tilvikum mun einmitt svo vera. En eins og gefur að skilja er öryrkjum annan veg farið. Bæturnar eru sá skerfur sem þeim er ætlaður, ekki tímabundið heldur til lífstíðar, og er væntanlega ætlaður til mannsæm- andi tilveru. Spurningin sem þeir beindu til þeirra sem skömmtuðu bæturnar var því tæpast út í hött. Það er varla ósanngjörn krafa að þeir sem ákveða hvað maturinn megi kosta sýni gestunum matseðilinn. Samt sem áður barst ekkert svar við spurningunni því bæði fyrsti og annar kokkur voru að setja saman matseðil af allt öðru tagi eimitt þessa dagana. Og þar var nú ekki soðið upp á naglann einan fremur en í þjóðsögunni. Þar reyndist upp- skriftin að framtíð nýrri og betri í aðalat- riðum á þann veg að skatta á fyrirtæki skal nú lækka úr 30% í 18%, hins vegar skal hækka tryggingargjald, sem er flatur skattur, og leggst með sama þunga á jafnt smáa sem stóra. Ráðstafanir af þessu tagi munu því einkum bæta hag þeirra er best stóðu fyrir. Skatta á einstaklinga skal lækka lítillega en þar sem ekki er hreyft við persónu- afslætti en lækka á bæði hátekju- skatt og eignaskatt, er einnig þar einkum verið að auka ráðstöfunar- tekjur þeirra sem höfðu þær hæstar fyrir. Með þeirri aðferð að láta persónu- afslátt ekki fylgja launaþróun er ekki aðeins stöðugt verið að þyngja skattbyrði þeirra sem verst eru staddir heldur einnig að fara með skattheimtu niður eftir launastigan- um. Laun sem ekki voru skattskyld fyrir tveimur árum eru það í dag. Ef við berum þá nú saman, ná- granna okkar, Jón tónlistarkennara og Jón athafnamann, þá er einfalt að þekkja þá hvorn frá öðrum. Jón tón- listarkennari er sá sem sefur út á hverjum morgni og Skódinn hans ryðgar niður því hann er í verkfalli. Jón athafnamaður vekur hins veg- ar allt hverfið þegar tröllajeppinn hans boðar nýjan dag með nýjum tækifærum. Báðir þessir Jónar eru skattborgarar og ættu því að greiða til samfélagsins sambærilegan hlut. Fari nú svo sem flest vitiborið fólk óskar, að samningar takist við tón- listarkennara og laun þeirra hækki, mun tekjuskattur þeirra einnig hækka og þar sem persónuafsláttur fylgir ekki launaþróun mun skatt- byrði þeirra aukast hlutfallslega. Hins vegar er að því stefnt að tekju- skattur og eignarskattur Jóns at- hafnamanns lækki til muna. Þar sem Jóni tónlistarkennara er ætlað að lifa af launum sínum þarf hann að greiða af þeim launum 27,5% tekjuskatt og útsvar að auki, eftir þá greiðslu er nánast útséð um að hann geti veitt sér það sem kallað er mannsæmandi líf. Jón athafna- maður þiggur aftur á móti ekki laun í mörgum tilfellum, í mörgum tilfell- um leigir hann út fjármagn en ekki vinnuafl og því greiðir hann aðeins 10% af innkomunni hafi hann ekki haft rænu á að kaupa sér nægilega myndarlegt tap til þess að vera ekki ónáðaður af skattinum næstu ára- tugina. Nú má færa fyrir því ýmis rök að brýna nauðsyn beri til þess að búa fyrirtækjum hér á Íslandi hagstætt „skattalegt umhverfi“ svo hingað fýsi erlend stórfyrirtæki. Þótt þess- ar ráðstafanir hafi, eftir því sem for- sætisráðherra segir, haft þau áhrif að a.m.k. tvö fyrirtæki sem höfðu hótað því að flytja starfsemi sína úr landi hafa nú frestað þeim fyrirætl- unum þá eru önnur atriði, s.s. fjar- lægð frá mörkuðum, tungumál o.fl., sem valda því að jafnt harðsvíraðir gróðapungar sem ómerkilegar sjoppur eignast nú sem óðast tvífara jafnt í Lúxemborg sem Líma. Ég ætla svo sem ekki að draga í efa að þessi umsvif komi einhverjum fleirum en þeim einum til góða. En ef við höfum efni á því að greiða með óeðlilegu vöruverði fyrir fjárfestingar í erlendum verslunar- rekstri og ef við höfum efni á að skuldsetja útgerðina upp í masturs- toppa til að þeir sem þar á bæ vilja snúa sér að öðrum störfum geti verið í fjárfestingarleikjum upp á millj- arða í öðrum löndum höfum við þá efni á því að láta ósvarað spurningu Garðars Sverrissonar sem vitnað var til hér að framan? Svar óskast Sigríður Jóhannesdóttir Öryrkjar Það er varla ósanngjörn krafa, segir Sigríður Jóhannesdóttir, að þeir sem ákveða hvað mat- urinn megi kosta sýni gestunum matseðilinn. Höfundur er alþingismaður Sam- fylkingar í Reykjaneskjördæmi. ALLMÖRG undan- farin ár hafa fulltrúar Íslands á alþjóðafund- um og víðar sett á töl- ur, og flutt tillögur um nauðsyn þess að afnema ríkisstyrki í sjávarútvegi. Ekki hefir farið mikið fyrir þessum málflutningi á innlendum vettvangi, enda vita viðkomandi að landinn veit betur. Vinnubrögðin eru dæmigerð framsókn- armennska, þar sem staðreyndir eru látnar lönd og leið en yfir- drepsskapur hafður í fyrirrúmi og afmán má kallast. Þegar betur er að gáð er vafa- laust hvergi í víðri veröld sem sjávarútvegur býr við aðra eins ríkisframfærslu og á Íslandi. Er þar fyrst að nefna gjafakvótakerf- ið. Talið er að með því kerfi af- hendi stjórnvöld lénsherrum út- vegsins gefins andvirði milli 4 – fjögur – og 5 – fimm- hundruð milljarða króna. Nú gætu útgerð- arfyrirtæki að sjálfsögðu nýtt sér hina sameiginlegu auðlind sjávar- ins – hina verðmætustu í heimi – án þess að þeim væri af stjórnvöld- um gefið eignarhald á henni. Með þeim hætti væri þeim gert fært að reka fyrirtæki sín sjálfstætt og án gjafafjár ríkisstjórnarinnar. Kerfið gefur hinsvegar eigendum fyrir- tækjanna færi á að maka eigin krók ótæpilega á kostnað almenn- ings. Í skjóli þess gjafafjár ná þeir, sem mest fá í sinn hlut, fljótlega tangar- haldi á æ stærri hlut auðlindarinnar og örfá fyrirtæki verða innan skamms allsráðandi. Að vísu líta sægreif- ar ekki svo á að auð- lindin sé færð þeim að gjöf, heldur eigi þeir óskoraðan frumburð- arrétt til hennar sem Guðs útvaldir og Dav- íðs. Hvað skyldi skatta- afsláttur sjómanna- stéttarinnar heita á máli útsendara ríkis- valdsins um víða vegu, sem leggja að öðrum þjóðum að af- nema styrki til sjávarútvegs? Hvað skyldi það heita, þegar ríkisvaldið léttir milljarða sköttum af útgerð- inni, sem henni ber að greiða, ef það telzt ekki til styrkja? Kunnugir menn áætla að fram- lög ríkisins, og sá kostnaður sem hið opinbera ber af útgerðinni, nemi allt að 3 – þremur prósentum – af útgjöldum ríkisins, sem er þá meira en 6 – sex – milljarðar króna miðað við fjárlagafrumvarpið, sem nú liggur fyrir alþingi. Auðvitað sést sú tala varla með berum aug- um í samanburði við stórstyrkinn – auðlindina sjálfa. Það verður undinn bráður bugur að því að upplýsa þessar stað- reyndir á heimsvísu. Kann þá að sluma í sendimönnum utanríkis- ráðherrans íslenzka á næstu al- þjóðaráðstefnu um niðurfellingu styrkja til sjávarútvegs, sem hann þykist hafa forystu um. Það er ekki eitt heldur allt, sem snýr á haus í málflutningi og öðru framferði stjórnvalda í sjávarút- vegsmálum Íslands. Dapurlegt er það að verða að gjalti meðal þjóða vegna umsnún- ings staðreynda, sem raunar er ekkert annað en bláköld ósannindi eins og allur annar málflutningur lénsherranna og þjóna þeirra og þerna á valdastólum. Og nú fer á netinu eins og eldur í sinu út um öll heimsins ból kvik- myndin um gegndarlausa sóun Ís- lendinga á einni af dýrmætustu fæðutegundum sem um getur. Það þarf ekki að opna sendiráð fyrir milljarð til að koma þeirri vanvirðu á framfæri. Skipan mála í íslenzk- um sjávarútvegi fær ókeypis á fæt- urna. Við þessa og þvílíka afmán meg- um við Íslendingar nú um stundir búa. Afmán Sverrir Hermannsson Auðlindin Sægreifar líta ekki svo á að auðlindin sé færð þeim að gjöf, segir Sverrir Hermannsson, heldur eigi þeir óskor- aðan frumburðarrétt til hennar sem Guðs út- valdir og Davíðs. Höfundur er alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.