Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 71

Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 71
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 71 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA S: 564-4120 BRILLIANT T Í M A N N A T Á K N H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Meðlagsgreiðendur! Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað        ●    ●    ●   ●    ●  !"#$ # ● #% &&  ● ' (# ) ' &*+*, LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7 HELDUR ÁFRAM Opið virka daga frá kl. 13-18 en 11-17 um helgar. Tökum bæði debet- og kreditkort. Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus. Sími 567 1210. HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR Glæsileg borðstofusett. Skápar og skenkar. Klukkur og kamínur og margt fleira spennandi. Ath. aðeins ekta gamlir hlutir í góðu ástandi. Sími 554 7770 www.ur.is Bæjarlind 1 Antik&úr Þrep til jóla! opið frá 10-18 / laugavegi 49 / sími 561 5813 38 KVEIKT verður á jólaljósunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 1. desember og heimili jólasveinsins gert opinbert. Á hverj- um degi fram að jólum frá og með 1. desember mun heimili jólasveinsins verða sýnilegt í einn klukkutíma á dag kl. 14-15. Þá geta gestir og gang- andi fylgst með jólasveininum og samskiptum hans við Grýlu. Jóla- sveinn dagsins heimsækir okkur alla daga klukkan 14.45 frá og með 12. desember og staldrar við í um 15 mín- útur. Jólasagan verður lesin alla daga í fjósinu kl. 10.40 frá og með 1. desem- ber. Hestateyming fyrir börnin verður 1., 2., 8. og 9. desember kl. 14-14.30, en frá og með 12. desember verður hestateyming alla daga fram að jólum kl. 14-14.30. 1. desember mun Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn taka í notkun nýtt upplýsingakerfi þar sem gestir geta notað GSM-símann sinn á nýstárleg- an hátt og fengið upplýsingar um dýr- in og annað sem fyrir augu ber beint í símann sinn, segir í fréttatilkynningu. Jóladagskrá Fjöl- skyldu- og hús- dýragarðsins KVENFÉLAG Kópavogs heldur sinn árlega jólabasar, sunnudag- inn 2. desember kl. 14 í húsnæði félagsins í Hamraborg 10, 2. hæð til hægri. Seldir verða ýmsir handunnir munir og heimabakaðar kökur. Að venju verða seldar rjómavöffl- ur og kaffi. Allur ágóði rennur til líknar- og menningarmála, segir í frétta- tilkynningu. Jólabasar Kven- félags Kópavogs KFUK heldur sinn árlega basar í húsi KFUM&K við Holtaveg 28 laugardaginn 1. desember kl. 14. Þar verða seldir ýmsir handunnir munir, t.d. til jólagjafa. Einnig verða seldar heimabakaðar smá- kökur, tertur og fleira. Kaffi og vöfflur með rjóma verða seldar á meðan basarinn er opinn, segir í fréttatilkynningu. Basar KFUK OPIÐ hús verður í Hússtjórnar- skólanum í Reykjavík laugardaginn 1. desember kl. 13.30-17. Sýning verður á handavinnu nemenda, útsaumur, fatasaumur, bútasaumur, prjón, vefnaður og fleira. Seldar verða heimalagaðar kök- ur, sulta og marmelaði. Kaffisala. Allir velkomnir, segir í fréttatilkynningu. Opið hús í Hús- stjórnarskólanum í Reykjavík DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur ávarp á sameiginlegum hádeg- isverðarfundi Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og Varðbergs laug- ardaginn 1. desember kl. 12 í Sunnu- sal á Hótel Sögu. Í kjölfar hryðjuverkanna í New York og Washington 11. september sl. gjörbreyttist ástand heimsmála, ekki aðeins á sviði öryggis- og utan- ríkismála, heldur settu þau efna- hagsumhverfi heimsbyggðarinnar á annan endann. Mikil óvissa hefur skapast meðal almennings um allan heim sem meðal annars birtist í því að um þriðjungs samdráttur hefur orðið í ferðaþjónustu í heiminum. Átökin í Afganistan hafa jafnframt grafið undan tiltrú manna á friði í heiminum og skapað óþarfa spennu í samskiptum þjóða. Davíð Oddsson forsætisráðherra mun fjalla um breytta heimsmynd í kjölfar hryðjuverkanna og áhrif þeirra á öryggis- og utanríkismál Ís- lands. Fundurinn er opinn öllu áhuga- fólki um öryggis- og utanríkismál Ís- lands og þróun alþjóðamála, segir í fréttatilkynningu. Fundur SVS og Varðbergs HRINGURINN heldur sitt árlega jólakaffi á Broadway sunnudaginn 2. desember kl. 13.30. Jólakaffið er einn liður í fjáröflun fyrir Barnaspítalann og á næsta ári verður tekinn í notkun nýr barna- spítali sem er sérsniðinn að þörfum barna og aðstandenda þeirra, en það hefur verið markmið félagsins um áratugaskeið. Boðið verður upp á kaffihlaðborð auk tónlistar og skemmtiatriða. Einnig er happdrætti og verða margir vinningar í boði, s.s. utan- landsferðir, matarköfur o.m.fl. sem hinir ýmsu velunnarar Hringsins hafa gefið. Allur ágóði rennur í Barnaspítala- sjóð Hringsins, segir í fréttatilkynn- ingu. Jólakaffi Hringsins FYRIRLESTUR verður á vegum Líffræðistofnunar föstudaginn 30. nóvember kl. 12.20 í stofu G-6 á Grensásvegi 12. Fjallað verður um mat á nátt- úru- og menningarminjum og for- gangsröðun virkjanakosta. Þóra Ellen Þórhallsdóttir kynnir að- ferðafræði faghóps 1 um náttúru- vernd og minjar innan ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Allir eru velkomnir. Fyrirlestur um náttúruvernd GRÝLUGLEÐI verður haldin á Skriðuklaustri laugardaginn 1. des- ember kl. 15 og sunnudaginn 2. des- ember kl. 14 og 16. Þar verður sagt frá og sungið um Grýlu og hyski hennar sem hefur löngum eldað grátt silfur við Fljótsdælinga og fleiri. Um er að ræða fjölskylduvæna dagskrá þar sem fram koma meðal annarra Skógartríóið, álfar, grunn- skólabörn af Héraði, og hver veit nema Grýla og Leppalúði komi við eins og í fyrra? Í tengslum við Grýlugleðina var efnt til teiknisamkeppni meðal barna í 1.–6. bekk grunnskóla á Austur- landi. Fjöldi mynda af Grýlu prýðir því veggi Gunnarshúss og verða af- hent verðlaun í samkeppninni á laug- ardeginum. Aðgangseyrir er 400 kr. Ókeypis fyrir 12 ára og yngri. Veitingastofan Klausturkaffi verður með jólaköku- hlaðborð að dagskrá lokinni. Grýlugleðin nýtur að þessu sinni styrks úr Menningarborgarsjóði og er unnin í samstarfi Gunnarsstofn- unar við Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Skógartríóið, segir í fréttatil- kynningu. Grýlugleði á Skriðuklaustri BARÐSTRENDINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík ætlar að endurvekja samkomur sínar annað kvöld, 1. desember, í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, með skemmtun sem hefst kl. 22. Þessar samkomur hafa að mestu legið niðri undanfarin ár, segir í frétt frá stjórn Barðstrendinga- félagsins. Barðstrendinga- félagið með skemmtun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.