Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 72
DAGBÓK
72 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skandia kemur í dag,
Bluebird fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Opið hús
fimmtud. 6. des. Húsið
opnað kl. 19.30, fé-
lagsvist kl. 20, fólk vel-
komið að koma og spila
brids, kaffi á könnunni.
Allir aldurshópar vel-
komnir.
Árskógar 4. Bingó kl.
13.30, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 bókband, kl. 9–16
handavinna, kl. 13 spilað
í sal og glerlist. Litlu
jólin verða fimmtud. 6.
des., jólahlaðborð. Sr.
Kristín Pálsdóttir flytur
jólahugvekju, Björk
Jónsdóttir syngur við
undirleik Svönu Vík-
ingsdóttur. Tvær ungar
stúlkur leika á þver-
flautu, Bjarki Már El-
ísson, 11 ára, les jóla-
sögu. Fagnaðurinn hefst
kl. 18. Salurinn opnaður
kl. 17.30. Skráning í s.
568 5052 fyrir 5. des.
Allir velkomnir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og
í Kjós. Félagsstarfið,
Hlaðhömrum, er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstudög-
um kl. 13.30. Kóræfing-
ar hjá Vorboðum, kór
eldri borgara í Mos-
fellsbæ, á Hlaðhömrum
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
opin handavinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó verður spilað í
Gullsmára 13 föstudag-
inn 30. nóvember kl. 14.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13.
„Opið hús“, spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Föstudagur
30. nóv. Dansað í kjall-
aranum í Kirkjuhvoli kl.
11.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Leikfimi í Íþróttahúsinu
kl. 11.30, myndlist kl.
13, brids kl, 13.30. Dans-
leikur kl. 20.30 með
Caprítríói.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Sun-
nud.: Félagsvist kl.
13.30. Dansleikur kl. 20,
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Jólafagnaður í
Ásgarði, Glæsibæ,
miðvikud. 5. des. og
hefst kl. 20. Hugvekju
flytur sr. Pétur Þor-
steinsson, prestur
Óháða safnaðarins,
söngur undir stjórn Sig-
urbjargar Hólmgríms-
dóttur, ýmsir skemmti-
kraftar, kaffi og
meðlæti, dansað á eftir.
Skráning á skrifstofu
FEB. Miðar seldir við
innganginn. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 6. desem-
ber nk. Panta þarf tíma.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB kl. 10–
16, s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9.30 gönguhópur,
kl. 14. brids. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi. Aðventu-
skemmtun verður
sunnud. 2. des. kl. 14–
16. Fjórar nýjar bækur
kynntar, tónlist. Jóla-
hlaðborð/skemmtun
verður föstudagskvöldið
7. des. Tilkynna þarf
þátttöku. S. 568 3132.
Félagsstarfið, Furu-
gerði. Kl. 9 útskurður,
kl. 14 lesið upp úr völd-
um bókum, kaffiveit-
ingar.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, súpa og salatbar
í hádeginu í veitingabúð,
frá hádegi spilasalur op-
inn. Myndlistarsýning
Bryndísar Björnsdóttur
stendur yfir. Uppl. um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 rammavefnaður.
Ljósmyndasýning Seyð-
firðingafélagsins stend-
ur yfir í Gjábakka á
opnunartíma kl. 9–17 til
30. nóv. Laufa-
brauðsdagur verður í
Gjábakka laugard. 1.
des kl. 14. Ungir sem
aldnir eru hvattir til
þátttöku og beðnir að
taka með sér áhöld til
laufabrauðsgerðar. Á
sama tíma verður jóla-
markaður, jólalög verða
leikin á harmónikku og
heitt súkkulaði og
heimabakkelsi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Glerlistahópur kl. 10.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, bútasaum-
ur, kl. 11 spurt og spjall-
að.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi og postulín, kl.
12.30 postulín.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 10
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9.15
handavinna, kl. 13.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað við
lagaval Sigvalda, rjóma-
terta með kaffinu. Þjón-
ustumiðstöin fallega
skreytt, allir velkomnir.
Jólafagnaður verður
fimmtud. 6. des. Húsið
opnað kl. 17.30. Ragnar
Páll Einarsson leikur á
hljómborð. Jólahlað-
borð, kaffi og eft-
irréttur. Kór leikskólans
Núps syngur jólalög
undir stjórn Kristínar
Þórisdóttur. Kvartett
spilar kammertónlist.
Gyða Valtýsdóttir, Ing-
rid Karlsdóttir, Helga
Þóra Björgvinsdóttir og
Anna Hugadóttir. Dans-
sýning frá Dansskóla
Jóns Péturs og Köru.
Gospel systur í Reykja-
vík syngja undir stjórn
Margrétar J. Pálma-
dóttur. Undirleikari
Agnar Már Magnússon.
Fjöldasöngur. Hug-
vekja, séra Hjálmar
Jónsson dóm-
kirkjuprestur. Allir vel-
komnir, uppl. og skrán-
ing í s. 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði, kl.
9.30 bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.30 leirmótun, kl.
13.30 bingó. Aðventu- og
jólafagnaður verður 6.
des. Jólahlaðborð, ým-
islegt til skemmtunar.
Skráning í s. 561 0300.
Háteigskirkja, aldraðir.
Samvera í Setrinu kl.
13–15. Sauma- og
prjónaklúbbur, vöfflur
með kaffinu.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Vestfirðingafélagið Að-
alfundurinn verður
haldinn sunnud. 2. des.
kl. 14 í Kvennaskólanum
á Fríkirkjuvegi 9. Allir
Vestfirðingar og gestir
þeirra velkomnir.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði.
Jólafundurinn verður
haldinn í Skútunni,
Hólshrauni 3, sunnud. 2.
des. kl. 20.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma býður
til fræðslu- og orlofs
daga í Skálholti 3.–5.
desember. M.a. fjallað
um fjölmiðla og áhrif
þeirra á líf eldri borg-
ara. Skálholtsstaður
skoðaðaður frá sjón-
arhorni kirkjusögu og
síðustu 70 ár verða
skoðuð frá sögulegu
sjónarhorni. Skipulagð-
ar kvöldgöngur og
gönguferðir um um-
hverfi Skálholts. Skrán-
ing á skrifstofu Elli-
málaráðs, s. 557 1666, og
í Skálholtsskóla í s.
486 8870, netfang: rekt-
or@skalholt.is.
Barðstrendingafélagið í
Reykjavík heldur
skemmtun í Breiðfirð-
ingabúð við Faxafen
laugardaginn 1. des kl.
22.
Breiðholtsskóli. For-
eldra- og kennarafélag
verður með jólafönd-
urdag laugardaginn 1.
desember. frá kl. 12–15
Allir velkomnir.
Í dag er föstudagur 30. nóvember,
334. dagur ársins 2001.
Andrésmessa. Orð dagsins:
Sál mín er óttaslegin, en þú,
ó Drottinn – hversu lengi?
(Sálm. 6, 5.)
LÁRÉTT:
1 snjódyngja, 4 fjall, 7
krúsar, 8 kvíslin, 9 guð,
11 heimili, 13 bylur, 14
gyðja, 15 ekki margt, 17
borðar, 20 op, 22 slitna,
23 glerið, 24 ákveð, 25
kveðskapur.
LÓÐRÉTT:
1 brotlegur, 2 engan und-
anskilinn, 3 dæld, 4 ósoð-
inn, 5 náðhús, 6 hitt, 10
fiskinn, 12 óþrif, 13 liður,
15 láta af hendi, 16 skoll-
ar, 18 oft, 19 gyðju, 20
vegg, 21 tryggur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 kotungana, 8 fágað, 9 syfja, 10 aki, 11 túlar, 13
neita, 15 lítil, 18 hrósa, 21 aur, 22 skarn, 23 arinn, 24
strákling.
Lóðrétt: 2 orgel, 3 urðar, 4 gisin, 5 nefni, 6 eflt, 7 gata,
12 api, 14 err, 15 losa, 16 trant, 17 Langá, 18 hrafl, 19 ós-
inn, 20 agns.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VIÐMÆLANDI Víkverja, opin-ber starfsmaður sem ekki má
vamm sitt vita, fékk fyrir stuttu inn-
heimtubréf frá Tollstjóranum í
Reykjavík vegna ógreiddra opin-
berra gjalda. Honum brá við, enda
kannaðist hann ekki við að hafa feng-
ið tilkynningu um að hann skuldaði
opinber gjöld, hvað þá fengið
greiðsluseðil. Ákvað þessi viðskipta-
vinur Tollstjóra að hringja í embætt-
ið og athuga hverju þetta sætti.
Hann sendi Víkverja útskrift af sím-
talinu, sem hér fer á eftir.
x x x
FYRST er gefið samband fráskiptiborði eftir að erindið hef-
ur verið gefið upp. Opinberi starfs-
maðurinn kallar sig M og T stendur
fyrir starfssystur hans hjá Toll-
stjóraembættinu:
M: Ég heiti M og hef fengið eitt-
hvert bréf um gjaldfallna skuld op-
inberra gjalda.
T (kona á sextugsaldri á að gizka):
Já, þetta er örugglega vangoldin
staðgreiðsla af launatekjum.
M: Nei, það getur nú varla verið.
Ég held að það sé tekið strax af mér.
T: Nei, nei, þú fékkst bréf sent í
byrjun ágúst, hefur ekki greitt
skuldina og þess vegna fékkstu þetta
bréf núna.
M: Ha? Nei, ég kannast nú ekkert
við það. Ég er nú vanur að greiða
svona lagað strax.
T: Þú fékkst innheimtuseðil send-
an í byrjun ágúst og hefur ekki greitt
hann!
M: Ég vinn nú hjá ríkinu og venju-
lega er dregið af laununum ef maður
skuldar eitthvað, ef ég man rétt.
T: Nei, nei! Þú vinnur ekki hjá rík-
inu heldur hjá Ellingsen.
M: Nei, það getur ekki verið.
T: Ég er að segja þér það, þú vinn-
ur hjá Ellingsen!! (Þögn) Nei …
öh ... nei ... já ... þú ert þá hjá ríkinu.
M: Ja, mér hafði alltént ekki verið
tilkynnt um annað ... annars veit
maður aldrei á tímum einkavæðing-
ar.
T: Ríkisbókhaldi var send krafan
og þeir eiga að draga þetta af laun-
unum þínum.
M: Fékk ég þá aldrei neinn
greiðsluseðil sendan?
T: (Þögn) Nei, það virðist ekki
vera.
ER ÞARNA var komið sögu tjáðiviðskiptavinur Tollstjóraemb-
ættisins viðmælanda sínum að hon-
um hefði fundist hún dónaleg. Hann
kynni illa við að vera stimplaður van-
skilamaður, auk þess sem honum
þætti óþarfi að lenda í rökræðum við
hana um það hvort hann ynni hjá
Ellingsen eður ei. Þá kom í ljós að
tollfrúnni hafði líka fundizt viðmæl-
andinn dónalegur og síðan var skellt
á.
x x x
ÞESSI frásögn sýnir svo ekkiverður um villzt, að hið gamla
mottó sumra ríkisstofnana, „við-
skiptavinurinn hefur alltaf rangt fyr-
ir sér“, er enn í fullu gildi. Á seinni
árum hefur þó borið á nýstárlegum
hugmyndum um að þessar stofnanir
eigi að veita þeim þjónustu, sem
borga rekstrarkostnað þeirra, þ.e.
skattgreiðendunum. Það er aldrei að
vita nema sá hugsunarháttur sé
byrjaður að grípa um sig hjá Toll-
stjóraembættinu eins og víðar, en þá
ætti að útskýra hann fyrir starfsfólk-
inu.
Ungur nemur
gamall temur
ÉG æfi handbolta í 5.
flokki kvenna með liði í
Reykjavík og við vorum að
keppa á móti nú nýlega.
Það var ekki hægt að
hrópa húrra fyrir dómur-
unum. Ég er ekki bara að
tala um þetta mót, heldur
öll hin mótin sem við erum
búnar að fara á í ár, og í
fyrra. Flestir eru dómar-
arnir unglingar, bæði
stelpur og strákar, á aldr-
inum 15–19 ára, sem oftast
æfa með liðinu sem heldur
mótið. Sumir dómararnir
eru alveg ágætir en sumir
eru nú frekar hlutdrægir,
og dæma með sínu liði. Svo
kemur það oft fyrir að
dómararnir eru svokallaðir
stúkudómararar. Það þýðir
að þeir þora ekki annað en
að dæma algerlega með því
liði sem á foreldri uppi í
stúku – eða annar hvor
þjálfarinn segir.
Eins og þið lásuð hér of-
ar í greininni eru sumir
dómararnir 2–3 árum eldri
en við. Það finnst mér nú
kannski frekar of lítill ald-
ursmunur á dómurum og
keppendum. Það er í lagi
að hafa yngri dómara að
dæma en það verður þá að
hafa eldri og reyndari
dómara með. Ungur nem-
ur, gamall temur.
Síðan finnst mér mjög
óréttlátt að pabbar kepp-
enda fái að dæma leiki, en
það var gert á mótinu nú
síðast. Þó að við séum bara
í fimmta flokki kvenna þá
eigum við betra skilið en
þetta.
Og ég bið ykkur hjá HSÍ
að taka þetta til alvarlegr-
ar íhugunar, það myndi
koma öllum til góða.
Iðkandi í 5. flokki
kvenna.
Tapað/fundið
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA fannst á
göngustíg í Fossvogi. Upp-
lýsingar í síma 896 1518.
Vettlingur í óskilum
HVÍTUR og dökkblár
hægri handar vettlingur,
útprjónaður. Hann fannst í
leigubíl fyrir 3–4 vikum.
Upplýsingar í síma
554 1858 eða 864 1858.
Bíllyklar týndust
Í HÁDEGINU sl. mánu-
dag töpuðust bíllyklar
ásamt nokkrum húslykl-
um, þar af einum grænum,
í námunda við lögreglu-
stöðina á Hverfisgötu. Vin-
samlega hafið samband við
skiptiborð Reykjalundar í
síma 566 6200.
Dýrahald
Enn bólar ekkert
á Felix
BLESSAÐUR kötturinn
minn hann Felix er enn í
felum síðan 3. janúar sl.
Mér hefur hins vegar dott-
ið í hug að hann gæti verið
kostgangari hjá einhverj-
um hjartahlýjum dýravini.
Ég vil þess vegna biðja þá
sem af velvilja fóðra bless-
uð dýrin að athuga hvort
Felix hafi nokkuð bæst í
hópinn. Felix er tveggja
ára grábrúnbröndóttur á
litinn. Hann er eyrna-
merktur og var með græna
sjálflýsandi ómerkta hálsól
þegar hann fór að heiman.
Hann á heima á gistiheim-
ilinu Baldursbrá sem er á
horni Laufásvegar og
Baldursgötu. Vinsamlega
hafið samband við Ariane í
síma 861 1836 ef þið hafið
einhverjar upplýsingar um
ferðir hans.
Snúlli er týndur
SNÚLLI týndist fimmtu-
daginn 15. nóv. sl. í Eski-
hlíð. Snúlli er svartur og
hvítur á trýni, hálsi, bringu
og löppum. Hann er með
fjólubláa ól og merki, er
eyrnamerktur R1H 023.
Snúlli gæti hafa lokast inni.
Þeir sem gætu gefið uppl.
vinsamlega hafi samband í
síma 554 3310 eða 865 6405
eftir kl. 17 á daginn.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
AÐ UNDANFÖRNU hef-
ur mikið verið rætt um
fasteignamat og lækkun
skatta.
Hjá mér hækkaði mat
lóðar, en við það hækkar
væntanlega lóðarleigan.
Ég á ekki þessa lóð,
sem er í Reykjavík, en
borga af henni leigu,
sem má teljast eðlilegt.
Annað finnst mér óeðli-
legt, að borga af henni
fasteignaskatt og eigna-
skatt. Er það ekki einum
(tveimur) of mikið að
borga þrjá skatta af
einni lóð sem maður á
ekki? Í leiðbeiningum
með skattframtali segir
að leigulóðir séu færðar
til eignar. Er hægt að
eigna manni eitthvað
sem maður á ekki og
skattleggja það síðan?
Er þetta ekki lögleysa
og jafnvel mannréttinda-
brot?
Ég legg til að fast-
eignaskattur og eigna-
skattur af leigulóðum
verði afnuminn.
Ingibjörg og Davíð
ættu að geta sameinast
um það.
Ármann.
Er þetta ekki lögleysa?
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16