Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 73
DAGBÓK
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík
SAMKVÆMISFATNAÐUR
FRÁLOGO
Eigum til gott úrval
af yndislegum bolum
úr ull/silki og
ull/bómull.
Margar stærðir
og gerðir.
Ítölsk gæði.
Frábærar jólagjafir.
Háholti 14, 270 Mosfellsbæ, sími 586 8050, fax 586 8051 - Netfang: mirella@isl.is
Kaupmenn athugið!
ehf - heildverslun
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. cxd5
exd5 4. d4 Rf6 5. Bg5 c6 6.
Dc2 Be7 7. e3 0-0 8. Bd3 h6
9. Bh4 He8 10. Rge2 Rbd7
11. 0-0 Re4 12. Bxe7 Dxe7
13. a3 Rdf6 14. Rxe4 dxe4
15. Bc4 Bg4 16. Rg3 Had8
17. b4 a6 18. h3 Be6 19.
Hac1 Bd5 20. Bxd5 Hxd5
21. Db3 Hg5 22.
Hc5 Rd5 23. Re2
De6 24. Kh1
Evrópukeppni
landsliða lauk
fyrir skömmu í
Leon á Spáni. Ís-
lenska kvennalið-
ið stóð sig með
prýði og virðast
hinir ungu með-
limir þess taka
stórstígum fram-
förum í skáklist-
inni. Í stöðunni
gekk þó Aldís
Rún Lárusdótt-
ur, hvítt, ekki
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
sem skyldi gegn Nieves
Garcia Vicente (2.239). 24.
...Hxg2! 25. Rf4 Eini leik-
urinn þar sem eftir 25. Kxg2
Rf4 + tapar hvítur drottn-
ingunni. 25. ...Rxf4 26.
Dxe6 Rxe6 27. Kxg2 Rxc5
28. bxc5 f5 29. Kg3 Kf7 30.
f3 exf3 31. Hxf3 Kf6 32. Kf2
g5 33. Ke2 f4 34. Kd3
Hxe3+ 35. Hxe3 fxe3 36.
Kxe3 Kf5 37. Kf3 h5 38. a4
a5 39. Ke3 g4 40. hxg4+
hxg4 og hvítur gafst upp.
Árnað heilla
LJÓÐABROT
ÍSLANDS MINNI
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð!
mögum þín muntu kær,
meðan lönd gyrðir sær
og gumar girnast mær,
gljár sól á hlíð.
– – –
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð!
ágætust auðnan þér
upp lyfti, biðjum vér,
meðan að uppi er
öll heimsins tíð.
Bjarni Thorarensen
85 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 30. nóv-
ember er 85 ára Gísli Gísla-
son, Hvassaleiti 56, Reykja-
vík. Eiginkona hans er
Ingibjörg Jónína Níelsdótt-
ir. Þau eyða deginum með
fjölskyldu sinni.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 30. nóv-
ember, er fimmtugur Hjör-
leifur H. Helgason, Jaðar-
sbraut 39, Akranesi.
Hjörleifur er að heiman í
dag.
ÞAÐ gleður hvert brids-
hjarta að taka upp á höndina
spil af þeim toga sem suður
státar af, en það varpar
dimmum skugga á þá gleði
þegar makker vekur á þrem-
ur laufum. Það er nánast
skemmdarverk.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 432
♥ G9
♦ 85
♣ÁKG1094
Vestur Austur
♠ 9 ♠ KDG10
♥ 10863 ♥ 752
♦ 10943 ♦ 762
♣D752 ♣863
Suður
♠ Á8765
♥ ÁKD4
♦ ÁKDG
♣--
Vestur Norður Austur Suður
– 3 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Dobl 6 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Hin yfirvegaða sögn suð-
urs er þrjú grönd, en sjálfs-
blekkingin lætur ekki að sér
hæða og óraunhæfir
slemmudraumar suðurs
réðu því að hann valdi þrjá
spaða og síðan sex spaða. En
þá kom hjáparsveitin í aust-
ur með dobl og suður gat
ekki annað en breytt í sex
grönd, sem einnig voru
dobluð.
Vestur kom út með spað-
aníu. Blindur stendur fyrir
sínu og sérstaklega er
hjartagosinn verðmætt spil.
En samt eru aðeins ellefu
slagir sjáanlegir. Eða hvað?
Ef suður hefur kjarkinn í
lagi gæti hann náð í tólf slagi
þannig: Hann tekur á spaða-
ás og fjóra tíguslagi. Spilar
því næst hjarta og svínar ní-
unni! Svo koma ÁK í laufi og
ÁK í hjarta fara heima.
Laufgosi fylgir fast á eftir og
í hann fer hjartadrottning.
Vestur fær á laufdrottningu,
en á ekki spaða til að verður
að spila blindum inn á hjarta-
gosa eða lauf. Tólf slagir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Laug-
arneskirkju af sr. Valgeiri
Ástráðssyni Dagný Ásgeirs-
dóttir og Geir Garðarsson.
Heimili þeirra er að Lund-
arbrekku 14, Kópavogi.
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. júní sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Tómasi Sveins-
syni Rannveig Björk Heim-
isdóttir og Benedikt Guðni
Gunnarsson. Heimili þeirra
er á Laugavegi 81, Reykja-
vík.
Ég held við ættum að
skoða önnur hús.
Fyrirgefðu. Snati er dá-
lítið æstur núna.
Smælki
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þið eruð vinnufús og vilja-
sterk og réttlætiskennd ykk-
ar er við brugðið. Þið eruð
því eftirsótt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reynið að sýna svolítið meiri
þolinmæði, því annars eigið
þið á hættu að allt fari úr
böndunum og þið hafið ekki
erindi sem erfiði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Takið engar fjárhagslegar
ákvarðanir að óathuguðu máli
heldur veltið hlutunum vand-
lega fyrir ykkur og lesið sér-
staklega smáa letrið sem
fylgir öllum samningum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Málið er að koma sér upp
réttri forgangsröð og það
verðið þið að gera líka ef þið á
annað borð viljið standa við
þau verklok sem þið sömduð
um í upphafi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Grípið strax í taumana áður
en smámálin hafa vaxið ykkur
yfir höfuð. Með réttum við-
brögðum getið þið komist hjá
erfiðleikum í tæka tíð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Oft er það svo að við miklum
hlutina fyrir okkur og útlitið
er ekki eins svart og ykkur
sýnist. Horfist í augu við veru-
leikann og hagið ykkur sam-
kvæmt því.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þið ættuð að taka fastar á
málum heima fyrir því ef þau
verða látin danka geta þau
reynst skeinuhætt síðar meir
og það er ástand sem allir eiga
að forðast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Látið ekki undir höfuð leggj-
ast að færa það til betri vegar
sem er á ykkar valdi. Meira er
ekki hægt að biðja ykkur um
og aðrir verða að sjá um aðra
hluti.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er góð regla að koma
þannig fram við aðra eins og
þið viljið að þeir komi fram við
ykkur. Þetta gildir um alla
hluti bæði heima og heiman.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Munið að gera ekki meiri
kröfur til annarra en þið gerið
til ykkar sjálfra. Brosið fram-
an í heiminn og þá mun heim-
urinn svara í sömu mynt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt allt sé ekki eins og best
verður á kosið er engin
ástæða til þess að setjast með
hendur í skauti. Brettið upp
ermarnar og breytið hlutun-
um ykkur í hag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þó erfitt sé að halda sínu striki
þegar vinir og vandamenn eru
á öðru máli skuluð þið bera
höfuðið hátt og sannfæra aðra
um ágæti málstaðsins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt togstreita komi upp á
milli heimilis og vinnustaðar
er ástæðulaust að láta hana
gerjast því það er svo auðvelt
að kippa þessu í liðinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.