Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 75
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 75 Vesturgötu 2, sími 551 8900 Milljónamæringarnir í kvöld OUTLET 10 +++merki fyrir minna+++ Faxafeni 10, s. 533 1710 Opið mán.-fös. 12-18 laugardag 11-16 50-80% lægra verð GERÐU GÓÐ KA UP Morgan buxur -- 1.900 Diesel gallabuxur -- 2.900 Exxem skór -- 990 Shellys stígvél -- 4.900 Billi bi stígvél -- 4.900 Kjólar -- 2.900 Levis bolir -- 990 Peysur -- 1.900 CAT skór 2.900 Snjóbretta skór 3.900 á merkjavöru og t ískufatnaði Ný sending frá: Öll jakkaföt 9.900 Parks skyrtur 990 Marco bindi 990 Hudson skór 990 Fila úlpur 3.500 InWear kápur frá 6.900 Matinique úlpur 6.900 Nicegirl jakkar frá 4.900 Dæmi: SMASH ÚLPUR OUTLET 10 HARMONIKUBALL „........hæ dúddelí dúddelí dæ.“ Dansleikur í kvöld frá kl. 22.00 í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi. Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Gömlu og nýju dansarnir. Dansleikur fyrir alla. Meðgöngufatnaður fyrir mömmu og allt fyrir litla krílið. Þumalína, Pósthússtr. 13, sími 551 2136 Í SUMAR kom sterkt í ljós að drjúgt hlutfall íslenskra dægurtón- listaráhugamanna er rokkhundar með meiru. Um og yfir 12.000 manns flykktust þá á tvenna tónleika þýsku rokksveitar- innar Rammstein í Laugardalshöll og fullyrt var að aldrei hefðu gestir verið fleiri. Tónleikahaldarar afréðu að reyna að fá hina goðsagnakenndu sveit Ham til að hita upp fyrir Rammstein er ljóst var að þeir þýsku kæmu en sveitirnar þykja um margt leika áþekka tónlist. Þetta gekk eftir og ekki nóg með það, heldur ákvað Ham einnig að halda tvenna tónleika upp á sitt einsdæmi. Enda Ham engin upphitunarsveit eins og Hertoginn sjálfur, Sigurjón Kjartansson, orðaði það. Tónleikarnir fóru fram á Gauki á Stöng og var stemmningin með besta móti. Gamlir Hamistar í tonn- atali og einnig nýir aðdáendur; harðir mjög en halda mætti að þeir hafi vart verið fæddir er Ham var stofnuð, við enda níunda áratugar síðustu aldar. Já, það er sannarlega magnað hversu djúpt í hjartarætur rokkara hljómsveitin Ham náði og nær enn að skjóta sér. Þegar mér barst þessi tónleika- diskur í hendur spurði ég sjálfan mig hvort markaðurinn væri ekki fyrir löngu orðinn mettaður af efni frá Ham. Af neðanjarðarsveit að vera, sem eingöngu lét eftir sig eina breiðskífu, og það slaka (Buffalo Virgin), hafa komið út merkilega margar plötur með sveitinni. Þrjár hljómleikaplötur (þessi hér, upptaka frá lokatónleikunum sumarið ’94 og einnig er hægt að nálgast disk með upptökum frá skemmtistaðnum CBGB’s, sem staðsettur er í New York, frá 1993), tvær safnplötur og meira að segja myndband með tón- leikaupptökum. Þessi plata hefur þó nokkra sérstöðu, eins og ég mun sýna fram á hér á eftir. Ég ætla ekki að draga dul á það að endurkomutónleikar eins og þessir þykja mér vafasamt fyrir- bæri. Oftast er þetta vettvangur fyrir einhverja gamlingja til að end- urupplifa „gömlu góðu dagana“, þegar það var verið að búa til „al- mennilega músík“. Á hinn bóginn einhvers konar lifandi sagnfræði fyrir þá sem voru of ungir til að verða vitni að herlegheitunum frá fyrstu hendi. Og stundum, og það hlýtur manni að svíða, er þetta gert til að maka krókinn. Þessir, á stundum grátbroslegu, viðburðir urðu ekki reglubundnir fyrr en við upphaf tíunda áratug- arins og í dag finnst manni eins og flestar sveitir sem voru einhvern tíma í meðallagi vinsælar hafi snúið aftur, oftast með hrapallegum ár- angri. Hvernig á að taka á þessum hlut- um, svona faglega séð? Svona tón- leika þarf í raun að taka og skoða sem einangraða viðburði. Skítt með það sem ég var að segja hér á und- an. Það sem skiptir máli er: Rokkar þetta? Er þetta gott? Er þetta þess virði að leggja sig eftir? Í tilfelli Skerts flogs er svarið: Ó já. Fyrir það fyrsta rokkar platan ógurlega. Ham er með bestu tón- leikasveitum sem Frónið hefur alið af sér og krafturinn skilar sér hér svo um munar. Hljómur er afbragð og sveitinni er haldið þéttri og öruggri af snilldartrommuleik nafna míns Ómarssonar. Lagavalið hér er enn fremur ein- staklega vel heppnað. Að mestu er sneitt framhjá „flipplögunum“ (eins og „Austur“ og „2000“) og menn halda sig við dimmari lagasmíðar. Upphafleg áhrif Ham, sem voru frá gotneskum brjálæðissveitum eins og Swans og álíka, koma vel fram. T.d. er byrjað á upphafslagi fyrstu afurðar Ham, tólftommunnar Holds. Og „Trúboðasleikjarinn“ gefur sannarlega tóninn. Minna þekkt lög eins og „Lonesome Duke“, „Mi- sery“, „Death“ og „Bulldozer“ prýða plötuna í bland við ofurrokk- ara eins og „Animalia“ (hvílík snilld!), „Sanity“, „Musculus“ og að sjálfsögðu hið ódauðlega „Partý- bær“. Sem heildarpakki virkar þetta gríðarvel. Það er ekki dauðan punkt að finna og í harðkjarna-rokkpartíi er þessi skífa í raun ómissandi. Tónlistin, eða öllu heldur rokkið, sigraði með glæsibrag í þetta skipt- ið. Láttu það því eftir þér að bæta sjöundu Hamplötunni í safnið. Það er vel þess virði. Tónlist Trúboð trylla HAM Skert flog HITT/EDDA Skert flog, hljómleikadiskur hafnfirsku rokksveitarinnar Ham. Upptökur fóru fram á seinni endurkomutónleikum sveit- arinnar á Gauki á Stöng fimmtudaginn 14. júní, 2001. Upptaka var gerð af tæknideild RÚV; upptökumenn voru Hjörtur Svavarsson og Páll S. Guðmunds- son; hljóðblöndun sá Ívar Ragnarsson um og hljómjöfnun var í höndum Bjarna Braga Kjartanssonar. Meðlimir Ham voru Óttarr Proppé, Arnar Geir Ómarsson, S. Björn Blöndal, Sigurjón Kjartansson og Jóhann Jóhannsson. Þeim til aðstoðar voru Fraterculus Voces sem skipaðar voru þeim Gísla Magna, Hjálmari P. Pét- urssyni, Guðmundi H. Jónssyni og Guð- laugi Viktorssyni. Lög eftir Kjartansson og textar eftir Proppé. Þorgeirsson á hluta í laginu „Partýbær“ og Jóhannsson á hluta í textanum við „Musculus“. Lagið „Voulez-vous“ er eftir þá Ulvaeus og And- ersson. 43.38 mínútur. Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir „Ham! Ham! Ham! Ham!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.