Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 79
Sýnd kl. 10. Vit 296
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. Vit 307
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
Hausverk.is
RadioX
Sýnd kl. 8. Vit 283
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
Nýr og glæsilegur salur
betra en nýtt
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 10.
Frumsýning
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Lúði lúðanna með sítt að aftan, í snjóþvegnum gallabuxum og finnst hann svalasti töffar-
inn...því miður er enginn sammála honum! Endalaust fyndin mynd frá framleiðendum Big
Daddy og Wedding Singer og snillingurinn David Spade (Just Shoot Me) er súper-lúðinn!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 5, 8 og 11. Vit 307
1/2
Kvikmyndir.com
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
www.lordoftherings.net
Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér
á kostum í frábærri hasarmynd
sem inniheldur stórkostlegar
tæknibrellur og mögnuðustu
bardagaatriði sem sést hafa.
Eltingaleikurinn við
hættulegasta glæpamann
alheimsins er hafinn
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2
HL Mbl
ÓHT Rás 2Myndin hefur hlotið lof
áhorfenda og gagnrýnenda
víða um heim. Myndin hlaut
hið virta Gullna Ljón á kvik-
myndahátíðinni
í Feneyjum nú í ár.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10. Ath textuð
KVIKMYNDIN Sólon Íslandus hefur hlotið
tvo framleiðslustyrki með stuttu millibili úr
þýskum kvikmyndasjóðum, í Norðurrín-
Vestfalen annars vegar og Bæjaralandi hins
vegar. Nemur hvor styrkur um sig 24,5 millj-
ónum króna. Þar að auki hefur verið gerður
dreifingarsamningur um kvikmyndasýningar
um gjörvallt Þýskaland og sjónvarpsrétturinn
hefur verið seldur til þýsku stöðvarinnar Vox.
Samanlagt nemur þýskt fjárframlag til mynd-
arinnar 85 milljónum króna í formi styrkja og
sölu á myndinni og fullyrða aðstandendur að
engin íslensk kvikmynd hafi fengið eins mikið
fé frá Þýskalandi.
Kvikmyndasjóðurinn í Bæjaralandi hefur
hingað til einbeitt sér að því að styrkja al-
þýskar myndir en meðal þeirra örfáu al-
þjóðlegu mynda sem hlotið hafa styrk úr
sjóðnum utan Sólons eru Sunshine eftir Istv-
an Szabos og væntanleg kvikmynd Romans
Polanskis The Pianist.
Sólon Íslandus byggist á samnefndri skáld-
sögu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi
sem „fjallar um líf og ástir málarans, spek-
ingsins, vindbelgsins og flakkarans Sölva
Helgasonar“ eins og segir í fréttatilkynningu.
Handritið er skrifað af Klaus Richter og
Margréti Rún Guðmundsdóttur en Margrét
Rún mun jafnframt leikstýra myndinni. Ingv-
ar E. Sigurðsson hefur verið ráðinn til að
fara með hlutverk Sölva en með önnur hlut-
verk fara Edda Arnljótsdóttir og Baltasar
Kormákur. Framleiðendur eru Friðrik Þór
Friðriksson/Íslenska Kvikmyndasamsteypan
ehf. og Robert Busch/Edgar Reitz Filmpro-
duktion GmbH í München.
Stefnt er að því að hefja gerð myndarinnar
næsta vor og munu tökur fara fram á Íslandi.
Margrét Rún Guðmundsdóttir Teikning af Sölva Helgasyni, söguhetju
myndarinnar Sólon Íslandus.
Þjóðverjar styrkja
Sólon Íslandus EVRÓPSKU kvikmyndaverðlaunin verða af-
hent annað kvöld í Berlín. Flestir muna að Ís-
lendingar voru nokkuð áberandi þar í fyrra,
en þá var Ingvar E. Sigurðarson valinn vin-
sælasti leikarinn fyrir Engla alheimsins, og
Björk fékk verðlaun sem besta leikkonan og
sú vinsælasta fyrir Myrkradansarann auk
þess sem Myrkradansarinn var kosin besta
myndin.
Enginn Íslendingur er tilnefndur til verð-
launa þetta árið, en Friðrik Þór Friðriksson
leikstjóri verður einn af fimm þekktum leik-
stjórum sem teknir eru fyrir á sérstakri heið-
ursdagskrá í kvöld, sem nefnist „First Cut“.
Með honum verða Lone Scherfig leikstjóri
Italiensk for Begyndere, István Szabo Sun-
shine, Ken Loach Bread and Roses, og Berl-
ínarbúinn Dieter Buchner sem einnig gerði
Erotic Tale, einsog Friðrik Þór og fleiri leik-
stjórar.
„Þetta er dagskrá sem Krzysztof heitinn
Kieslowski og Wim Wenders komu á fót í
kringum akademíuna,“ segir Friðrik Þór í
viðtali við Morgunblaðið. „Fimm leikstjórum
úr akademíunni er boðið að sýna sín fyrstu
verk og ræða þau.“
Friðrik þór mun sýna Eldsmiðinn, heim-
ildamynd sem hann gerði árið 1981, og munu
flestir sýna heimildar- eða stuttmyndir, nema
Scherfig sem sýnir fyrstu kvikmyndina sína
Kaj́s Fødselsdag.
Berlínarbúar og meðlimir akademíunnar
verða í meirihluta þeirra sem fá að njóta dag-
skrárinnar. Friðrik Þór mun ekki hljóta
neina viðurkenningu, hér er um kvikmynda-
legan menningaratburð að ræða.
Friðrik Þór
heiðraður
Friðrik Þór Friðriksson kynnir Eldsmið-
inn í Berlín í kvöld.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin