Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
KÁRI Stefánsson, forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar greindi frá því á
fréttamannafundi í Vísindaakademíu
New York í gær, að Íslensk erfða-
greining hefði fyrst fyrirtækja í vís-
indaheiminum lokið við gerð erfða-
korts yfir genamengi mannsins.
Nota má kortið til að rannsaka
breytanleika í erfðamengi mannsins.
Þessi niðurstaða er næsti áfanginn
við rannsóknir á erfðamenginu en
raðgreiningu á erfðamengi mannsins
lauk á síðasta ári. Sú niðurstaða
vakti heimsathygli og var talin
marka þáttaskil í heimi líffræði og
læknavísinda. Síðan þá hafa mörg
fyrirtæki unnið að gerð erfðakorts
eins og þess sem ÍE hefur nú lokið
við, fyrst allra fyrirtækja í vísinda-
heiminum.
Ævintýralega tímafrek vinna
„Þetta eru ekki niðurstöður af
sama mikilvægi eins og raðgreining
á erfðamengi mannsins en þetta eru
alveg geysilega mikilvægar og gagn-
legar niðurstöður engu að síður öll-
um þeim sem vilja vinna að erfða-
fræði,“ sagði Kári Stefánsson.
Búa þyrfti til einhvers konar mæli-
kvarða á breytileika erfðamengisins
til þess að hægt væri að nýta fyllilega
raðgreiningu erfðamengisins. Erfða-
kortið gerði slíkt kleift við vísinda-
rannsóknir. „Það sem við höfum gert
er að búa til erfðakort sem er með
um það bil sjö sinnum meiri upplýs-
ingar en eru til staðar núna. Það ligg-
ur ævintýralega tímafrek og dýr
vinna að baki en út úr þessu hafa
komið mjög spennandi niðurstöður,“
sagði Kári í samtali við Morgunblað-
ið eftir fréttamannafundinn.
Kortlögðu erfðavísi
sem tengist liðagigt
Reikna má með því að þessar nið-
urstöður verði birtar í vísindatíma-
riti innan skamms og verða þær þá
formlega staðfestar af vísindaheim-
inum. Kári segir að þá muni ÍE veita
öllum aðgang að þessum niðurstöð-
um á Netinu.
Skömmu áður en fréttamanna-
fundurinn hófst í gær birtu ÍE og
Roche Diagnostic tilkynningu um að
vísindamenn ÍE hefðu kortlagt
erfðavísi sem tengdist liðagigt. Dr.
Heino von Prondzynski, yfirmaður
Roche, og Kári Stefánsson sögðu á
fundinum að með þessu væri grunn-
urinn lagður að frekari rannsóknum
sem miðuðust að því að finna ný
greiningar- og meðferðarúrræði.
Samstarf ÍE og Roche Diagnostics
hófst sl. sumar og fær ÍE áfanga-
greiðslu fyrir þessa uppgötvun í
samræmi við samning sem ÍE gerði
árið 1998 við móðurfyrirtæki Roche,
Hoffman LaRoche. Ekki liggja fyrir
upplýsingar um það hver fjárhæðin
er.
Kortlagningin er talin vera stórt
skref í átt að þróun nýrra og betri
prófa til að greina liðagigt og þá sem
eiga á hættu að fá sjúkdóminn. Slík
próf eru talin skapa forsendur fyrir
þróun fyrirbyggjandi meðferðarúr-
ræða. Á fundinum sagði von Prondz-
ynski að hann yrði fyrir vonbrigðum
ef því yrði ekki lokið fyrir árin 2005–
2007.
„Ég held að þessar niðurstöður
séu mjög mikilvægar fyrir þróun
nýrra aðferða til að greina, með-
höndla og jafnvel koma í veg fyrir
liðagigt,“ sagði Kári í gær. „Við
þessa vinnu erum við svo heppin að
vera í samstarfi við aðila sem er stað-
ráðinn í að breyta uppgötvunum okk-
ar í afurðir til að bæta líf þeirra sem
þjást af liðagigt,“ var haft eftir Kára í
fréttatilkynningu sem send var til
fréttastofa um allan heim í gær.
ÍE lýkur gerð erfðakorts
fyrst allra fyrirtækja
Reuters
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, kynnti niðurstöður rannsókna vísindamanna fyrirtækisins í New York í gær.
Fyrstir til/42
New York. Morgunblaðið.
Bréf í de-
CODE
hækkuðu
VERÐ hlutabréfa í deCODE Gene-
tics, móðurfélagi Íslenskrar erfða-
greiningar, hækkaði um 22,98% í
gær og fór í 9,90 dollara við lokun
markaða í Bandaríkjunum.
Verð bréfanna, sem skráð eru á
bandaríska Nasdaq-hlutabréfa-
markaðinn, var í upphafi dags 8,05
dollarar og hækkaði um 1,85 dollara
yfir daginn. Viðskipti dagsins námu
alls tæpum 1,2 milljónum dollara eða
tæpum 130 milljónum íslenskra
króna. Alls eru rúmar 45 milljónir
hluta í deCODE og sé miðað við
lokagengi dagsins nemur verðmæti
félagsins nú um 48 milljörðum ís-
lenskra króna.
ERLENDUR ríkisborgari gerði
nýlega tilraun til peningaþvættis
hér á landi þegar hann ætlaði að
stofna reikning hjá Kaupþingi
með því að senda þangað ávísun í
pósti upp á tæp 110 þúsund
sterlingspund. Miðað við gengi
pundsins á þeim tíma var and-
virði ávísunarinnar á bilinu 15–
16 milljónir króna en væri í dag í
kringum 17 milljónir hefði til-
raunin heppnast hjá manninum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kaupþingi fannst árvökulum
starfsmanni fyrirtækisins ekki
allt vera með felldu og leitaði
hann eftir frekari gögnum frá
manninum. Þar sem hann var
ekki reiðubúinn að láta þau af
hendi, samkvæmt símbréfi sem
hann sendi Kaupþingi, var haft
samband við efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra sem ásamt
alþjóðadeild hafði samráð við er-
lenda starfsbræður sína vegna
málsins. Fljótlega kom í ljós að
ávísuninni hafði verið stolið.
Forræði rannsóknar
í Bretlandi
Að sögn Jóns H. Snorrasonar,
yfirmanns efnahagsbrotadeildar-
innar, er frekari rannsókn máls-
ins undir forræði lögregluyfir-
valda í Bretlandi. Vitað er að
maðurinn hafi reynt að koma illa
fengnu fé inn á bankareikninga
þar í landi og víðar í Evrópu. Jón
segir mál af svipuðum toga oft
hafa komið upp hér á landi sem
m.a. hafa teygt anga sína til Níg-
eríu.
Starfsmenn Kaupþings vinna í
tilvikum sem þessum eftir
ströngum reglum sem fyrirtækið
hefur sett og þeim er einnig vel
kunnugt um lög um peninga-
þvætti. Mál af svipuðum toga
hafa komið upp áður hjá fyr-
irtækinu en fjárhæð sem þessi
ekki sést fyrr.
17 milljóna ávísun
reyndist illa fengin
Erlendur ríkisborgari gerði tilraun til peninga-
þvættis með því að stofna reikning hjá Kaupþingi
ÍSLANDSBANKI opnaði skrifstofu í
London í gær. Er henni ætlað að efla
þá þjónustu sem veitt er stærri fyr-
irtækjum á Íslandi, einkum á sviði
fjármögnunar á alþjóðamarkaði og
við samruna og yfirtökur fyrirtækja.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
opnaði skrifstofuna formlega og
sagði hann við það tækifæri að hún
væri mikilvæg fyrir íslenskan fjár-
málamarkað og aukin sérfræðiþekk-
ing myndi færast til Íslands vegna
starfsemi skrifstofunnar og slíkt væri
ekki síður mikilvægt en fjárhagsleg-
ur hagnaður.
Að sögn Vals Valssonar, forstjóra
Íslandsbanka, er skrifstofan ótengd
starfsemi einkabankans Raphaels
sem er í eigu Íslandsbanka en sam-
starf þeirra sé ekki útilokað og það sé
vel mögulegt að þau geti skapað
hvort öðru tekjur í framtíðinni.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, segir að markmið skrif-
stofunnar sé m.a. að styrkja net
bankans í Bretlandi.
Íslandsbanki
Skrifstofa
opnuð í
London
Íslandsbanki/20
SAMÞYKKT hefur verið af stjórn
Aco-Tæknivals að veita forstjóra fé-
lagsins heimild til þess að kanna að-
skilnað verslunarsviðs félagsins frá
öðrum rekstri þess með stofnun nýs
félags. Til verslunarsviðs teljast
BT-verslanir, Office 1-verslanir,
Apple-búðin og Sony-setrið. Eins
hefur verið ákveðið að loka versl-
unum BT í Grafarvogi og Keflavík
en rekstur þeirra hefur ekki gengið
samkvæmt áætlunum. Ekki er ljóst
með hvaða hætti Office 1-verslunin
á Akureyri verður rekin en við-
ræður eiga sér nú stað við heima-
menn á Akureyri um rekstur henn-
ar.
Að sögn Magnúsar Norðdahl, for-
stjóra Aco-Tæknivals, hafa þó-
nokkrir aðilar sýnt áhuga á að
koma að rekstri verslunarsviðsins.
Hann segir að aðskilnaðurinn sé til-
tölulega einfaldur og hægt sé að
skilja verslunarreksturinn frá Aco-
Tæknivali að fullu fyrir áramót sé
áhugi fyrir hendi.
Endurfjármögnun lokið
Endurfjármögnun Aco-Tæknivals
er lokið og hefur eigið fé þess verið
aukið um 550 milljónir króna og
skammtímaskuldir lækkaðar um
800 milljónir. Líkt og fram hefur
komið var ákveðið að auka hlutafé
félagsins um 200 milljónir að nafn-
verði á genginu 2,85. Söluverðið er
því 570 milljónir króna. Búnaðar-
banki Íslands sölutryggði útboðið
og er nú stærsti hluthafinn í Aco-
Tæknivali með tæplega 50% hlut.
Stefnt að skipt-
ingu Aco-Tækni-
vals í tvennt
Tveimur/20
♦ ♦ ♦