Morgunblaðið - 23.12.2001, Page 4

Morgunblaðið - 23.12.2001, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Opið til 23.00 www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 16 21 2 1 2/ 20 01 Jólasveinn dagsins kemur kl. 17.00 ÞEIR sem rýna í brekkuna neðan við veginn hjá Garðaholti sjá þar kannski lágreistan bæ með þremur burstum. Þessi litli bær á lítið sam- eiginlegt með steyptum híbýlum nú- tímans og eiginlega er eins og hann tilheyri allt öðrum og löngu liðnum tíma. Þó er ekki lengra en 16 ár síð- an að þar bjó öldruð kona með ketti sínum. Það var árið 1934 að Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir fluttist í bæ- inn Krók á Garðaholti ásamt fjórum ungum börnum sínum og tengda- móður. Eiginmaður Þorbjargar, Vil- mundur Gíslason, hafði þá nýverið veikst og lá á Landspítalanum. Með flutningnum sá hún möguleika á að geta séð börnum sínum farborða með fiskvinnslu inni í Hafnarfirði. „Mamma sagði alltaf að enginn skyldi búa í þessum bæ eftir að hún væri dáin,“ segir Elín Vilmundar- dóttir, ein af systkinunum fjórum sem fluttust í bæinn þetta ár, en nú hefur bæjarfélagið Garðabær end- urgert bæinn með öllum innan- stokksmunum sem í honum voru. Elstu systkinin, Ragnheiður og Gísli, eru látin en Elín hefur ásamt systur sinni Vilborgu haft umsjón með upp- röðun húsmunanna við endurgerð- ina. Þær útskýra fyrir blaðamanni að eftir andlát móður þeirra, sem bjó í bænum allt til ársins 1985, hafi kom- ið upp sú hugmynd að gefa Garðabæ bæinn gegn því að hann héldi hon- um við. Það tók svo ein þrettán ár áður en hafist var handa við að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. „Við vorum sjö heimilisföst hérna, fjórir krakkar, foreldrar og föð- uramma sem svaf hérna,“ segir Elín og klappar á beddann sem hún situr á en Vilborg systir hennar heldur frásögninni áfram. „Hún var með einn krakka upp í arminn sem kall- að var, og svo var einum krakka kannski stungið til fóta.“ Í ljós kemur að þar með er ekki allt upp talið. „Það var mikill gesta- gangur hérna því við vorum fædd í Biskupstungunum. Þar voru stórar ættir og mikið skyldfólk sem kom oft til að gista og heimsækja ætt- ingja hér í Garðabæ. Og ef það var ekki hægt að stafla meira í rúmin þá var búin til flatsæng á gólfinu,“ seg- ir Elín og maður veltir fyrir sér hvernig sjö manns hafi getað lagst til svefns í húsinu, hvað þá fleiri. Góðir gestir voru oft á ferli þó stundum kæmu þeir óvænt. „Ég man eftir því einhverju sinni þegar presturinn kom að vísitera, hann séra Garðar Þorsteinsson heitinn. Hvort við höfðum komið inn blautar man ég ekki en að minnsta kosti var ég ekki klædd heldur sat uppi í rúmi á klukku og sumarbrók og mér fannst svolítið leiðinlegt að vera ekki í fötum og almennilega klædd þegar sjálfur presturinn kom,“ segir Elín og brosir við. Kötturinn vitlaus í jólakökuna Jólahald í húsinu ber á góma og þar er ekki komið að tómum kof- unum hjá þeim systrum. „Ég man afskaplega sterkt eftir fyrstu jól- unum hérna,“ segir Elín. „Það var þegar við fengum jóla- tréð frá Guðbjörgu ömmusystur okkar. Þannig var að á aðfanga- dagskvöld var voðalega mikið mjálmað hérna fyrir utan og þegar við opnuðum hurðina kemur inn bröndóttur köttur, læða, sem var svo hrikalega svöng að Gísli bróðir fór að gefa henni af jólakökunni sinni. Og hún var alveg vitlaus í jóla- köku. Síðan var farið að spyrjast fyrir um hver ætti þennan kött en hún komst aldrei til skila. Hún var kölluð Gamla kisa og við áttum hana í mörg ár.“ Vilborg segir aðra siði hafa verið viðtekna í þá daga en nú tíðkast. „Það þótti ekki við hæfi að spila á spil á jólunum og við máttum ekki spila á aðfangadag og jóladag,“ seg- ir hún. „Og svo var það maturinn,“ segir Elín. „Það var grjónagrautur með rúsínum og það var sett út á hann sykurvatn með kjörnum.“ „Og mikill kanill og mikið gott,“ segir Vilborg á þann hátt að maður efast ekki um að þetta hafi verið hinn gómsætasti jólamatur. „Svo hefur náttúrulega verið hangikjöt.“ Á jólunum gerði heimilisfólkið sitt til að lýsa upp skammdegið, meðal annars með kertum á jólatrénu. Þær systur segja það hafa komið fyrir oftar en einu sinni að kviknað hafi í trénu út frá lifandi ljósunum. „Það var eiginlega á hverjum jólum enda var þetta hálfgert brjálæði að vera með kerti. Amma vakti yfir þessu og var voðalega fljót að grípa um log- ann þegar hann teygði sig í tréð. Ég man einu sinni eftir því að hún setti teppi yfir og hljóp með það út í skafl.“ Kýrnar þorðu ekki að leggjast Mat skorti ekki á heimilinu enda voru tvær kýr í kotinu sem fram- leiddu meira en heimilisfólk þurfti á að halda. „Það var farið að selja mjólk strax og við fluttum hingað,“ segir Elín og snýr sér að systur sinni. „Manstu eftir því þegar mamma keypti nýju blikkfötuna og mjólkurbrúsann – allt skyldi vera svo hreint til að fá mjólkina í fyrsta flokk. Fjósið var svo flott og end- urbyggt svo vel að kýrnar þorðu ekki að leggjast – þær voru bara vanar gömlu torffjósi.“ Eins var mikið um nýmeti frá sjónum þar sem pabbi þeirra systra reri og veiddi þorsk eftir að hann komst til heilsu. Vilborg og Elín segja það algert ævintýri að hafa séð bernskuheimili sitt rísa upp fyrir augunum á sér. „Maður hugsaði bara um að hjálpa til og drífa þetta í það ástand sem það var,“ segir Vilborg og heldur áfram. „Þetta var mjög gaman en örstöku sinnum komu viðkvæmar tilfinningar upp en þá gölsuðumst við bara eitthvað eins og við erum vanar.“ Elín segir ekki eftirsjá að gamla tímanum þrátt fyrir ánægjulegan uppvöxt. „Ég er óskaplega þakklát fyrir að hafa alist upp á þessu svæði því mannlífið var svo sérstaklega gott. Ef einn var glaður voru allir glaðir og ef einhver átti bágt voru allir tilbúnir að hjálpa. Munirnir hér inni eru margir hverjir gjafir því það var tískan, eftir að fólk fór að sjá einhverja aura eftir stríðið, að safna saman í gjafir t.d. ef einhver átti stórafmæli. Þannig að það var næstum því ekkert keypt. Og það var ekki ósjaldan að það væri eins og hjá Jóni úr Vör að það lægi fiskur á bæjarhellunni þegar maður kom á fætur á morgnana.“ Alþýðubærinn Krókur opnaður eftir gagngerar endurbætur Morgunblaðið/Árni Sæberg Það var árviss viðburður að kviknaði í jólatrénu sem systurnar, Elín og Vilborg Vilmundardætur standa hér við. Amma þeirra var þá jafnan snögg að kveða eldinn í kútinn og hljóp einu sinni með það út í skafl. Fiskur á bæjarhellunni AÐ sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur, formanns skipu- lagsnefndar Garðabæjar, er horft til þess að í Króki verði lifandi safn sem nota mætti til kennslu. Þá komi til greina að nýta hluta hússins sem litla fræðimannaíbúð. Hún segir að eftir að Garðabær hafi tekið við höfð- inglegri gjöf fjölskyldunnar frá Króki hafi töluverð vinna farið í að endurgera húsið. „Það var ekki í brúk- legu ástandi eins og það var en ég er þeirrar skoðunar að okkur beri ákveðin skylda við fortíðina að koma þess- ari sögu frá upphafi síðustu aldar til komandi kynslóða. Þetta er svolítil sögutorfa hérna, þ.e.a.s. Garðaholt, Garðakirkja og svo þetta venjulega heimili sem sýnir búshætti eins og þeir voru í upphafi síðustu aldar. Þarna fáum við tækifæri til að sjá hvernig fólk bjó, lifði og starfaði.“ Það var arkitektinn Jon Nordsteien sem stjórnaði endurgerð bæjarins en Einar Hjartarson húsasmíða- meistari vann verkið. „Við erum búin að setja í þetta nokkra fjármuni, líklega um 12 milljónir, og það var byrjað á því að gera húsið upp,“ segir Laufey. Hún segir það þó aðeins fyrsta hlutann. „Við eigum eftir að taka útihúsin í gegn og síðan er allur frágangur á lóðinni í kring um húsið eftir.“ Ekki hefur verið ákveðið hvernig opnun safnsins verður háttað en þeir sem hafa áhuga á að skoða húsið geta leitað til fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. Lifandi safn og fræðimannaíbúð Morgunblaðið/Árni Sæberg EITT tilboð, 49,99 dollarar eða um 5.000 krónur, barst í málverk eftir Jó- hannes Frímannsson á bandaríska uppboðsvefnum ebay.com en uppboð- inu lauk í fyrrinótt að íslenskum tíma. Fyrir mánuði var búið að bjóða 9.100 dollara eða um 970 þúsund að þávirði í sama málverk á sama stað en þá var það eignað Jóhannesi S. Kjarval. Málverkið var aftur til sölu á vefn- um frá 15. desember sl. en daginn eft- ir kom fyrsta og eina tilboðið. Í lýs- ingu var sagt að verkið væri eftir Jóhannes Fridmonsson, sem hefði verið afkastamikill málari á Íslandi þar sem málarinn Kjarval væri mjög frægur. Um miðjan nóvember var umrætt málverk á uppboði og það sagt vera eftir Kjarval. Fyrsta boð var 9,99 doll- arar en 13 tilboð höfðu borist þegar eigandi þess tók það úr sölu eftir að hafa fallist á staðhæfingar íslenskra sérfræðinga þess efnis að verkið væri eftir Jóhannes Frímannsson. Hæsta boð var þá 9.100 Bandaríkjadalir og var það undir ónefndri lágmarksupp- hæð eigenda en við það tækifæri sagði Ólafur Ingi Jónsson, forvörður í Morkinskinnu, að verkið væri ekki meira virði en 15.000 til 20.000 kr., eft- ir því hve ramminn væri verðmætur. Málverkið á uppboðinu eftir Jóhannes Frímannsson. Hæsta boð 5.000 krónur YFIR 20 kg af fræi var safnað af úr- valstrjám í birkikynbótaverkefni Skógræktar ríkisins haustið 2001. Eftir prófun á spírun fræsins kom í ljós að í þessum 20 kg eru 14 millj- ónir spírandi fræja sem duga til að framleiða 5–6 milljónir birkiplantna. Mun um metuppskeru að ræða. Íslenskt birki er mest gróðursetta trjátegund á landinu og voru um 1,4 milljónir birkiplantna gróðursettar árið 2000. Miðað við það dugar fræið sem safnað var í haust til fjögurra ára. Mestum hluta fræsins var safn- að í gróðurhúsi á Hallormsstað þar sem valin tré úr Bæjarstaðaskógi eru ræktuð í stórum pottum, en það fræ hentar til skógrækar á láglendi um land allt. Þá var safnað í öðrum eins fræ- garði í gróðurhúsi á Vöglum í Fnjóskadal af völdum birkitrjám úr Vaglaskógi, Mývatnssveit og Fögru- hlíð í Skagafirði. Metuppskera á birkifræi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.