Morgunblaðið - 23.12.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 23.12.2001, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FERÐINNI var heitið áHallveigarstíg. Við þágötu, skammt frá kirkjuaðventista, bjuggu mæðg-ur tvær, Þórunn og Ágústa. Hjá þeim var ungur sonur Ágústu. Hann hét Einar Angantýr, sonur Jóns Axels bróður míns. Kært var með okkur bræðrum á þeim árum. Jón Axel var tuttugu árum eldri en ég. Hann og Ágústa móðir Einars höfðu verið skips- félagar á Gullfossi. Jón Axel háseti, en hún skipsjómfrú. Ágústa ól sveinbarn í Kaupmannahöfn 26. maí 1920. Það var Einar Angantýr. Ég leit upp til bróður míns og hefði gjarnan kosið að líkjast honum í mörgu. Þó man ég að það snart mig með undarlegum hætti er hann sagði eitt sinn við mig: „Þú skalt gæta þess að eignast ekki óskilget- ið barn. Það er eins og að skrifa uppá tíuþúsund króna víxil, sem fellur á mann.“ Mig furðaði á þess- um ummælum og hefði helst kosið að þau væru ósögð. Við systkinin höfðum flust frá Eyrarbakka með móður okkar, sem var ekkja Péturs Guðmundssonar kennara og skólastjóra þar. Í októ- bermánuði 1923 settumst við að á Bráðræðisholti í Úlfaldanum, en svo hét sambygging þriggja húsa er risu gegnt Stóra-Skipholti við Grandaveg. Heiti húsanna helgað- ist af því að húsið í miðjunni var hærra en hin er stóðu sitt hvoru megin. Síðar var byggt yfir nyrsta húsið og hvarf þá Úlfaldaheitið. Á þessum bernskuárum á Bráð- ræðisholti beindist verslun fjöl- skyldunnar til margra minnis- stæðra kaupmanna. Mér er í mun að rifja upp hvar eplin voru keypt, þessi sem fylltu pokann, sem ég bar í fangi og voru ætluð ungum sveini á Hallveigarstíg. Ilmur þeirra er áleitinn og tekur fram allri angan, sem borist hefir að vit- um á langri ævi. Í hugann koma bræðurnir Júlíus og Ragnar Guðmundssynir sem versluðu í Baldri, en það var búð á horni Framnesvegar og Holtsgötu. Júlíus var afi Sigríðar Dúnu, al- þingiskonu og rithöfundar. Systur mínar Nellý og Steinunn unnu við afgreiðslustörf í útsölu Alþýðu- brauðgerðarinnar, sem var við hlið Baldurs. Lúga var milli mjólkur- búðarinnar og Baldurs. Ég má til með að taka hliðarspor frá jólaeplunum, sem ég hélt í fangi mínu, og minnast á togaramynd- irnar, sem voru í vindlingapökk- unum. Þórður vinur minn Guð- mundsson á Litla-Melstað á Bráðræðisholti var stórreykinga- maður. Hjá honum fékk ég fjölda ljósmynda af íslenskum togurum. Mér var sagt að ef ég sendi tiltek- inn fjölda ljósmynda úr sígarettu- pökkunum fengi ég senda eina stækkaða ljósmynd af einhverjum togaranna. Það yrði hin mesta stofuprýði, enda bræður mínir tog- aramenn. Ég fékk rómaða skrif- stofustúlku til þess að vélrita tób- aksfirmanu í Englandi bréf og mælast til þess að fá senda stækk- aða togaramynd. Nú leið nokkur tími og ég beið svars í ofvæni. Loks barst mér bréf. Það var ritað af umboðsmönnum breska tóbaks- firmans, Tóbaksverslun Íslands í Sambandshúsinu. Þar var mér tjáð að tilmæli mín væru byggð á mis- skilningi. Engar stækkaðar myndir stæðu til boða. En svo var þessum orðum bætt við svarið. „Þar sem vér sjáum að þér reykið mjög mikið leyfum vér oss að senda yður 10 pakka af vindlingum.“ Og svo var vinsamleg kveðja og þökk. Ég tók til fótanna með sígarettupakkana til Júlíusar í verslun hans. Hann seldi fyrir mig vindlingana. Ég keypti mér strigaskó með hrá- gúmmísólum fyrir andvirðið. Mér er nær að halda að þeir hafi fengist hjá Hvannbergsbræðrum í for- kunnarfagurri búð þeirra í Eim- skipafélagshúsinu, þar sem Þórður Guðmundsson KFUM-maður, mág- ur Ásbergs vinar míns Sigurðsson- ar var meðal afgreiðslumanna. Verslun Júlíusar var til húsa við brekku á Framnesvegi, sem hallaði að „Lautinni“, sem svo var kölluð. Það var hættusvæði. Þar voru „Lautarbísar“ tíðum á ferð og voru harðskeyttir strákar. En í grennd Baldurs bjuggu einnig ættgöfugar heiðurskonur, sem lifðu í heimi hljómlistar og talsímatækni. Ein þeirra var móðir Kristjáns og Þór- arins Kristjánssona. Kristján söng, Þórarinn lék á selló. Hann var faðir Leifs Þórarinssonar. Það spurðist um skemmtilegt tiltæki frú Krist- ínar móður þeirra bræðra, að hún gekk úr íbúð sinni við Holtsgötu, þvert yfir götuna, í hús sem var öndvert við Verslunina Baldur. Þaðan hringdi hún að panta vörur hjá Júlíusi. Hún lyfti símtólinu. Fylgdist með hreyfingu í búðinni út um stofugluggann. Þegar hún sá Júlíus lyfta símtólinu þá mælti hún fagnandi: „Ég sé yður, Júlíus.“ Þetta varð að máltæki hjá ýmsum er til þekktu. Bræður Júlíusar, Ragnar í Pund- inu og Kristinn, sem verslaði síðar á Laufásvegi nutu vinsælda, enda prúðir og góðviljaðir. Víkjum þá aftur að angan og ilmi jólaeplanna. Það brást ekki að með komu jólaskipa þá komu Delicious- eplin. Þegar Óli Maggadon hrópaði á hafnarbakkanum: „Nu kommer dronningen með juletræ i toppen,“ var það fyrirboði þess að senn bær- ist þessi óviðjafnanlegi ilmur með andblæ fjarlægra ávaxtalunda og fagurrauð eplin vafin fjólubláum skrautpappír og perlandi daggar- dropar á hýðinu. Og þegar maður beit í fyrsta eplið þá fyllti und- ursamlegt bragð munninn, ávaxta- safinn var slíkur unaður að því verður eigi með orðum lýst. Silli & Valdi, kaupsýslumennirnir athafna- sömu og víðkunnu, þeir kunnu að auglýsa ávextina. Enda högnuðust þeir svo vel á sölu þeirra að þeir eignuðust húseignir á svæði allt vestast úr Vesturbænum og alla leið inn í Álfheima. Hvar sem þeir voru staddir á þessari leið gátu þeir leitað athvarfs á eigin snyrt- ingu. Þeir komust aldrei í spreng. Jólaeplin sem ég bar í fangi mínu að færa Einari Angantý gætu einn- ig hafa verið úr búð góðvinar fjöl- skyldunnar. Hann hét Guðmundur Hafliðason. Var af Knudsenskyni, frændi Haralds Á. Sigurðssonar, sem var góðkunnur gamanleikari. Guðmundur verslaði á Vesturgöt- unni. Hann var gamansamur mað- ur, léttlyndur og vínhneigður. Söng og trallaði í búðinni og var stund- um sætkenndur. Þá söng hann: Jeg har været í London og jeg har været í Hull, og jeg har været í Liverpool og drukket mig så fuld, ud på livets vej har du lokket mig jeg vil aldrig gifte mig með dig. Einhverntíma kom góður Vest- urbæingur í búð Guðmundar. Hann var þá sætkenndur og söng við raust. Komumaður segir: Æ, Guð- mundur minn, ertu nú dottinn í það? „Elsku vinur, þetta er bara einn eða í mesta lagi tveir dagar. Næst þegar þú kemur verð ég blá- edrú.“ Tíu dögum seinna kemur kunninginn aftur í búð Guðmundar. Enn syngur Guðmundur, en að vísu ekki af jafn miklu fjöri. Það er eins og aðeins hafi dregið úr sönggleð- inni. Kunninginn spyr: Æ, ertu nú aftur dottinn í það, Guðmundur minn? „Nei, elsku vinur. Þetta er sama kendiríið,“ svarar Guðmund- ur og brosir vingjarnlega. En, ekki má gleyma áfanga- staðnum, Hallveigarstígnum þang- að sem eplapokinn á að fara. Jóla- snjórinn marrar undir ungum fótum, sem feta götuna varlega. Einar bjó í skjóli ömmu sinnar Þór- unnar og móður sinnar Ágústu. Þær mæðgur urðu fyrir þeirri miklu sorg að sonur Þórunnar og bróðir Ágústu, Ásgeir, ungur vask- ur sjómaður, fórst í ofviðri er fór hamförum á Halamiðum. (Þá fórust togararnir Marshall Robertson og Leifur heppni.) Þessi atburður markaði djúp spor í uppvaxtarár Einars Angan- týs. Hann strengdi þess ungur heit að vinna af fremsta megni að slysa- vörnum og málefnum sjómanna. Af fádæma þreki og árvekni vann hann að fjársöfnun til styrktar mál- efnum sjómanna. Gekkst fyrir ár- legum skemmtunum sem hann nefndi Sjómannadagskabarettinn og sameinaði alþýðlegar skemmt- anir og fjáröflun í þágu sjómanna. Einnig varð hann forgöngumaður að fegurðarsamkeppni kvenna og kvaddi til liðs við sig þjóðkunna menn í dómnefndir. Þá er ótalin þátttaka Einars Angantýs í íþrótt- um. Einar var lágvaxinn, en liprari flestum jafnöldrum. Þrekmikill og þolinn. Djarfur og drenglundaður. Sundlaugargestir í gömlu laugun- um minnast þess er Einar lék listir sínar þar. Gekk öruggum skrefum fram á brún háa brettisins, stóð á höndum á ystu brún og stakk sér í djúpu laugina. Greip sundtökin og synti í spretti að laugarbakkanum þar sem hann hóf sig rösklega upp og gekk til sætis við undrun og fögnuð viðstaddra. Einar Angantýr lauk prófi í Verzlunarskóla Íslands 1938. Hann varð gjaldkeri Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis og gegndi því starfi um áratuga skeið. Eiginkona hans var Herdís Henriksdóttir Wagle. Fríðleikskona af góðu fólki komin. Þau eignuðust mannvænleg börn. Hvað varð um ilm jólaeplanna? Ætli hann hafi ekki horfið þegar gróðahyggja aldarfarsins náði yf- irhendinni og hætt var að rækta og framleiða afurðir og varning með neyslu og hollustu fyrir augum, en unnið af alefli að því að auka arð og ágóða með því að hirða lítt um heil- brigði en lengja sölutíma og geymsluþol með hverskyns brögð- um og brellum. Sprauta eiturefnum til þess að auka geymsluþol. Ilmurinn lifir í minningu kyn- slóðar sem kveður á komandi árum. Hvað varð um ilm jólaeplanna? Biðröð við Austurbæjarbíó. Einar stóð fyrir skemmtunum Sjómannadagskabarettsins. Júlíus Guðmundsson kaupmaður. Verslunin Baldur við Holtsgötu (nýrri búðin). Verslunin Baldur við Framnesveg (eldri búðin). Þar var einnig útsala Alþýðubrauðgerðarinnar. Ein ljósasta minning Péturs Péturssonar frá jólum bernskuáranna er sendiferð, sem hann fór jafnan á jóla- föstu er leið nærri hátíðinni. Einar Angantýr Jónsson, gjaldkeri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, við skrifborð sitt. Höfundur er fyrrverandi þulur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.