Morgunblaðið - 23.12.2001, Síða 29

Morgunblaðið - 23.12.2001, Síða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 29 Sif gullsmíðaverkstæði VERIÐ VELKOMIN Laugavegi 20 B, v/ Klapparstíg, sími 551 4444 Ragnhildur Sif Reynisdóttir , gullsmiður SIGURÐ A. Magnússon hefur borið nokkuð af leið í endurminn- ingasögum sínum sem hófust með frábærri bók árið 1978, Undir kal- stjörnu, sem skrifuð var á fjórum mánuðum í Vestur-Berlín það ár eins og fram kemur í nýjustu bók Sig- urðar, Undir hnífsins egg. Í fyrstu bókinni, sem Sigurður kallar raunar „uppvaxtarsögu“ á titilblaði en ekki endurminningar, og fjórum næstu leyfir Sigurður sér að skálda inn í minnið þannig að úr verður fagur- fræðilegur texti en ekki persónuleg sagnfræði. Sigurður finnur sig enda knúinn til þess að taka fram í at- hugasemd við verkið að þótt það reki atvik sem gerðust í reyndinni geti það þó ekki talist sannsögulegt vegna þess að það endurveki og um- skapi löngu liðna atburði. Bókin fékk afbragðs dóma á sínum tíma og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Í bókunum sem fylgt hafa í kjölfar þessara fyrstu fimm bóka hefur Sigurður brugðið út af hinum bókmenntalega eða skáldlega frásagnarhætti. Í stað um- skapaðra minninga hafa tekið við heldur tilþrifalitlar endurminningar sem innihalda frásagnir af einkalífi og opinberu lífi höfundar þar sem oftlega er stuðst við endursagnir upp úr blöðum og ýmsum málskjölum eða bréfum. Þessar bækur eru oft krassandi lestur, enda Sigurður marglyndur maður og virkur og ötull þátttakandi í menningar- og stjórn- málalífi landsmanna undanfarna áratugi og algerlega ófeiminn við að opinbera sig og þær upplýsingar sem hann geymir um menn og mál- efni – en þessar bæk- ur skortir allan leik með tungumál og stíl, textinn er flatur og meir í ætt við blaða- mennsku en bók- menntir. Með Á hnífsins egg (sem hefur reyndar undirtitilinn Átaka- saga) tekur Sigurður þátt í kaldastríðsupp- gjörinu sem lesa má um í nokkrum öðrum bókum vertðíðarinn- ar. Sigurður nálgast viðfangsefnið þó með öðrum hætti en til dæmis sagnfræðing- urinn Valur Ingimundarson og ráð- herrann Björn Bjarnason, sem báðir hafa nýverið sent frá sér bækur þessa efnis. Sigurður lýsir þátttöku sinni í atburðum á borð við Þorláks- messuslaginn, mótmælafundi gegn stríðinu í Víetnam og herforingja- stjórninni í Grikklandi og tilraunir til að sameina rithöfunda í einu félagi. Sjónarhorn hans er persónulegt en einnig styðst hann við frásagnir blaða og ýmiss konar skjöl sem tengjast viðburðum (og yfirleitt höf- undi sjálfum). Hann hefur hins vegar ekki fjarlægð sagnfræðingsins né þá hugmyndafræðilegu áherslu sem finna má í bók ráðherrans. Athyglisverðast við þessar sögur úr kaldastríðinu er málfarið sem not- að var – kveðjurnar voru heldur kaldar. Ræður, persónuleg bréf og jafnvel blaðagreinar eru hlaðnar því- líkum fúkyrðaflaum að það verður hreinn skemmtilestur á köflum og vandi fyrir lesanda (aðeins) þrjátíu árum seinna að ímynda sér að full al- vara hafi legið að baki. Af frásögnum Sigurðar, til dæmis af viðleitni rit- höfunda til þess að sameinast, má hins vegar ráða að oft hefur persónu- leg óvild manna í millum ráðið meiru um sundr- ungina í stríði þessu en hugmyndafræðilegur eða pólitískur ágreining- ur. Á þetta bendir Sig- urður raunar sjálfur (bls. 109). Nokkur hluti bókar- innar fer í fremur þurr- ar frásagnir af ritstjóra- tíð Sigurðar á tímaritinu Samvinnunni sem af frá- sögninni má skilja að hafi verið einn helsti um- ræðuvettvangur lands- ins á sínum tíma. Þessar samantektir einkennast af löngum upptalningum sem jafnvel sagnfræðingar geta ekki leyft sér lengur í strangfræðilegum ritum – jafnvel þar eru gerðar kröfur til þess að lesandinn fái á tilfinn- inguna að hann sé að lesa lifandi frá- sögn. Skemmtilegastar eru hins veg- ar sögur höfundar af einkalífi sínu og ferðalögum. Þar færist oft líf í text- ann. Af öðrum persónum bókarinnar er fyrrverandi eiginkona Sigurðar, Svanhildur, dregin skýrustum drátt- um. Sigurður hefur kynnst fjölda þjóðþekktra manna og einnig rithöf- undum og listamönnum á ferðum sínum erlendis. Er þeim kynnum haldið til haga í bókinni en sjaldan tekst Sigurði að draga upp eftir- minnilega mynd af samferðamönn- um sínum, kannski vegna þess að hann hefur horfið frá sviðsetningum fyrri bóka sinna. Bókin hefur fyrst og fremst gildi sem persónuleg heimild um um- brotatíma í sögu þjóðarinnar. Hana skortir hins vegar tilfinnanlega snerpu og léttleika. Fátt er gert til þess að lokka lesandann áfram í text- anum. Hann hefði mátt vera heitari. Kaldar kaldastríðssögur BÓKMENNTIR Átakasaga Eftir Sigurð A. Magnússon. Mál og menn- ing, 2001. 264 bls. Á HNÍFSINS EGG Sigurður A. Magnússon Þröstur Helgason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.