Morgunblaðið - 23.12.2001, Qupperneq 39
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 39
Hann er sjötugur í
dag, hann einkavinur
minn, hann Benedikt
Örn Árnason, leikari og
leikstjóri, og finnst mér
tilhlýðilegt af mér að
segja um hann nokkur
orð af því tilefni.
Benedikt ólst upp
hér í Reykjavík og að
loknu stúdentsprófi
1951 hélt hann til leik-
listarnáms við Central
School of Speech and
Drama í London og
lauk þaðan prófi árið
1954. Frá þessum skóla
hafa útskrifast margir af þekktustu
leikurum og leikstjórum á enska
tungu og myndaði Benedikt vináttu-
bönd á þessu árum í London sem
hafa varað æ síðan.
Eftir að hann kom heim frá námi
réðst hann fyrst til Leikfélags
Reykjavíkur og lék þar nokkur hlut-
verk, en síðan kom hann til starfa við
Þjóðleikhúsið í fyrstu sem leikari en
fljótlega náði áhugi hans á leikstjórn
undirtökunum og starfaði hann eftir
það nær eingöngu sem aðalleikstjóri
Þjóðleikhússins og hefur hann leik-
stýrt þar 52 verkefnum auk þeirra
verkefna þar sem hann var aðstoð-
arleikstjóri. Enginn annar leikstjóri
hefur leikstýrt jafnmörgum verkefn-
um við Þjóðleikhúsið og Benedikt
Árnason og er verkefnalisti hans þar
sem leikstjóra svo glæsilegur að ekki
verður komist hjá því að birta hann
hér:
1957: Litli kofinn e. André Rousin
1960: Hjónaspil e. Thornton
Wilder
1960: Ást og stjórnmál e. Terence
Rattigan
1960: Nashyrningarnir e Eugene
Ionesco
1962: Húsvörðurinn e. Harold
Pinter
1962: Gestagangur e. Sigurð A.
Magnússon
1963: Hamlet e. William Shake-
speare
1963: Táningaást e. Ernst Bruun
Olsen
1964: Forsetaefnið e. Guðmund
Steinsson
1965: Sköllótta söngkonan e.
Eugene Ionesco
1965: Nöldur e. Gustav Wied
1965: Eftir syndafallið e. Arthur
Miller
1965: Endasprettur e. Peter
Ustinov
1966: Ferðin til skugganna grænu
e. Finn Methling
1966: Loftbólur e. Birgi Eng-
ilberts
1967: Eins og þér sáið e. Matthías
Johannessen
1967: Jón gamli, e. Matthías
Johannessen
1967: Hornakórallinn e. Odd
Björnsson
1967: Galdra-Loftur e. Jóhann
Sigurjónsson
1967: Þrettándakvöld e. William
Shakespeare
1968: Vér morðingjar e. Guðmund
Kamban
1968: Delerium Búbónis e. Jónas
og Jón Múla Árnasyni
1969: Fiðlarinn á þakinu e. Stein
og Bock
1969: Fjaðrafok e. Matthías
Johannessen
1970: Mörður Valgarðsson, e.
Jóhann Sigurjónsson
1970: Malkolm litli, e. David-
Halliwell
BENEDIKT
ÁRNASON
1971: Svartfugl e.
Gunnar Gunn-
arsson/Örnólf
Árnason
1972: Glókollur e.
Magnús Á. Árna-
son
1972: Ósigur e. Birgi
Engilberts
1972: Hversdags-
draumur e. Birgi
Engilberts
1973: Lausnargjaldið
e. Agnar Þórð-
arson
1977: Meistarinn e.
Odd Björnsson
1977: Fröken Margrét e. Roberto
Athayde
1978: Káta ekkjan e. Franz Lehár
1978: Heims um ból e. Harold Mu-
eller
1979: Gamaldags kómedía e.
Aleksei Arbuzov
1979: Leiguhjallur e. Tennessee
Williams
1980: Vert’ekki nakin á vappi e.
Georges Feydeau
1981: Líkaminn – annað ekki e.
James Saunders
1981: Hótel Paradís e. Georges
Feydeau
1982: Kisuleikur e. Istvan Örkény
1983: Cavalleria Rusticana e.
Mascagni
1983: Tyrkja-Gudda e. Jakob
Jónsson frá Hrauni
1984: Gæjar og píur e. Losser,
Burrows og Swerling
1985: Chicago e. Fosse, Ebb og
Kander
1985: Með vífið í lúkunum e. Ray
Cooney
1986: Helgispjöll e. Peter Nichols
1987: Hallæristenór e. Ken
Ludwig
1987: Vesalingarnir – Les Miser-
ables e. Boubilil og Schön-
berg
1989: Háskaleg kynni e. Christ-
opher Hampton
1989: Oliver e. Lionel Bart
1991: Söngvaseiður e. Rodgers og
Hammerstein
Á þessum lista eru eingöngu nefnd
þau verk sem hann leikstýrði í Þjóð-
leikhúsinu, auk þessa leikstýrði hann
mörgum verkum í sjónvarpi (m.a.
fyrsta leikritinu sem íslenska sjón-
varpið tók til sýninga sem var Jón
gamli eftir Matthías Johannessen),
ótal leikritum í útvarpi auk leikrita
sem hann setti upp fyrir aðra aðila
hérlendis og erlendis. Þá var hann
aðstoðarleikstjóri í nokkrum kvik-
myndum m.a. Rauðu skikkjunni og
79 af stöðinni, en það var fyrir hans
tilverknað og milligöngu að Edda-
film og ASA-film frá Danmörku
ákváðu að vinna þetta verkefni sem
markaði tímamót á sínum tíma í gerð
íslenskra kvikmynda.
Benedikt hefur leikið nokkur hlut-
verk í kvikmyndum og hefur leikur
hans í þeim vakið töluverða athygli,
má þar m.a. nefna „Okkar á milli“ og
„Myrkrahöfðingjann“.
Þegar Benedikt kom til landsins
kom hann með nýja strauma inn í
leiklistina í landinu.
Hann var með nýjar hugmyndir
og djarfar og þótti mörgum of langt
gengið þegar hann hvatti til þess og
hafði milligöngu um að Þjóðleikhúsið
tæki söngleik til sýninga. Úr varð að
hann hafði sitt fram og var hann að-
stoðarleikstjóri og raunar fram-
kvæmdastjóri líka við uppfærsluna á
„My Fair Lady“ árið 1962 sem sló í
gegn og má segja að með þeirri upp-
færslu hafi hafist nýtt skeið í ís-
lensku leikhúsi og söngleikir eru nú
og hafa um langt skeið verið með vin-
sælustu verkefnum sem leikhúsin
taka til sýninga, enda eru fá verkefni
í leikhúsi sem gera eins miklar kröf-
ur til listamannanna.
Kynni okkar Benedikts hófust
fljótlega eftir að hann kom til lands-
ins frá námi en segja má að vinskap
og vináttu okkar megi rekja til þess
tíma er ég kom heim að loknu námi í
Þýskalandi og lék í leikritinu Gesta-
gangur eftir Sigurð A. Magnússon
sem Benedikt leikstýrði í Þjóðleik-
húsinu. Eftir þetta lék ég í mörgum
verkefnum sem Benedikt leikstýrði
á sviði Þjóðleikhússins og sömuleiðis
í útvarpi og sjónvarpi. Það var æv-
inlega mjög gaman að vinna með
honum, gamansemi er honum svo
eiginleg og hann lagði mjög mikla
rækt við vinnu með leikaranum, að
leikarinn fengi notið sín og sýnt hvað
hann gæti. Enda hafa margir af okk-
ar allra bestu og ástsælustu leikur-
um unnið sína stærstu leiksigra und-
ir hans stjórn og margir eru þeir
leikarar sem hafa stigið sín fyrstu
skref í leiklistinni undir hans leik-
stjórn.
Benedikt hefur aldrei verið
hræddur við nýjungar og að reyna
nýjar leiðir eða gefa ungum leikur-
um tækifæri. Benedikt bar fyrstur
fram þá hugmynd að Þjóðleikhúsið
keypti fullkomið hljóðkerfi til þess
að hljóðsetja mætti með því söng-
leiki meðal annars og að allir aðal-
leikarar gætu verið með hljóðnema,
en þetta var þá einnig á byrjunar-
stigi hvarvetna í leikhúsheiminum.
Alls staðar þar sem söngleikir voru
fluttir var vandamál að jafna styrk-
inn milli leikara og hljómsveitar og
oft heyrðist ekki söngurinn vegna
þessa vandamáls, en hljóðkerfin
leystu þetta. Úr varð eftir töluverða
baráttu fyrir fjármagni að leikhúsið
keypti þennan búnað og býr leikhús-
ið að þessu enn þann dag í dag.
Margt fleira mætti nefna sem Bene-
dikt beitti sér fyrir innan leikhúss-
ins, en ég læt þetta duga. Ég tel að
forusta Benedikts í flutningi söng-
leikja setji ennþá og eigi um langt
skeið eftir að setja mark sitt á flutn-
ing söngleikja hér og enn eru leik-
húsin að ráða leikstjóra til starfa
sem Benedikt fékk til liðs við sig sem
dansstjóra fyrir nær tveimur áraug-
um. Það er því byggt á þeim grunni
sem Benedikt lagði og er það vel.
Ég hefði viljað eyða þessum línum
raunar frekar í að tíunda vináttu
okkar Benedikts og persónuleg sam-
skipti og allan þann stuðning og ein-
drægni og hversu ráðhollur hann
hefur verið mér í gegnum tíðina. En
mér finnst bæði viðeigandi og nauð-
synlegt að koma því á framfæri á
þessum tímamótum í lífi hans hversu
mikinn og stórbrotinn listamann hér
er um að ræða og að við öll eigum
honum svo margar og frábærar
ánægjustundir að þakka og leiklistin
í landinu mun njóta góðs af verkum
hans um langa framtíð.
Benedikt er fjórkvæntur og hefur
skilið jafnoft en eiginkonur hans
voru þær Erna Geirdal, Vala Krist-
jánsson, Jill Brook og Agnes Löve.
Benedikt hefur nú hafið sambúð við
fyrstu eiginkonu sína aftur, en hún
er búsett í Mexíkó svo segja má að
þau Benedikt búi nú bæði hér og þar.
Benedikt eignaðist tvo syni með
Völu, þá Einar Örn og Árna, og eru
barnabörnin orðin sex.
Ég vil ljúka þessum orðum mínum
með því að óska þess að við vinir
hans og aðdáendur megum njóta
hans um langa framtíð um leið og ég
óska honum, fjölskyldu hans og vin-
um til hamingju með daginn.
Gísli Alfreðsson.
Starfsfólk Kjöreignar
óskar viðskipta- og landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári,
þökkum viðskiptin.
Starfsfólk fasteignasölunnar
Foldar
óskar ykkur gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Óskum viðskiptavinum
okkar nær og fjær og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Magnús, Eysteinn,
Jón Þór og Sigurður