Morgunblaðið - 23.12.2001, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.12.2001, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ALLIR kannast við söguna um nýju fötin keisarans sem er stór- kostleg kennslustund. Skraddarinn spann gullna þræði, óf, sneið og saumaði, og að lokum klæddi hann keisarann í fötin. Þau voru af gulli gerð, og svo fín að þau sáust ekki. Síðan skyldi nú sýna þessi dásam- legu föt. Hrifningin var auðvitað í samræmi við allt það gull sem í þau fóru, þangað til barnið segir „hann er ekki í neinu, hann er ekki í neinu“, segir litla barnið sem enginn getur blekkt. Nú eignuðumst við klæðskera, mikilsvirtan að sjálfsögðu. Hann spann, óf og saumaði, klæddi síðan hálendið gulli. Gullið sem hann fékk frá okkur skattborgurum, með aðstoð fjölmiðla í eign þjóð- arinnar, án leyfis okkar skattborg- aranna. Þetta var mikið verk, þótt íslenska hálendið sé ekki stórt. Hann þurfti hirðsveina og hirð og að sjálfsögðu heila þjóð og útlend- inga til að skoða þessa dásemd. Og litu síðan yfir það sem þeir höfðu gert, og sjá, það var harla gott. Nú var hægt að fá sér dans, dans á rósum. „Í dag er ég glaður, og í dag vil ég gefa, demanta, perlur og skínandi gull.“ Þessar perlur voru sungnar í eyru mér, rétt í þessu. Ekki vantaði rausnarskapinn, hvað var skraddarinn okkar að gefa? Hann var að gefa íslensku þjóðinni gjafir sem hann átti ekki. Hvað gerði skraddari keisarans við gull- ið? Hann stakk því í vasann. Hvað varð af gullinu okkar? Geta landar mínir giskað á það? Nei, orkan lætur ekki að sér hæða, þessi orka sem við eigum svo mikið af. Orkan er alltaf að minna á sig svo eftirminnilega, með skriðuföllum, vatnavöxtum, eldgosum og vindum. „Hörðum vindum sem þjóðin þarf á að halda,“ sagði skáldið Hannes Haf- stein. Það vildi ég að yrði ærlegt regn, eða þá stormur á Kaldadal, vindar sem barnshendi á kinn þess sem það elskar. Nú er komið á daginn að öll stóröfl eru að segja okkur að við eigum ekki að nýta orkuna, í staðinn á að nýta hálend- ið til útivistar, nánar tiltekið til ferðaþjónustu fyrir útlendinga. Það hefur aldrei komið fram, hvernig á að sýna þetta fallega há- lendi. Það birtist í Dagblaðinu fyr- ir ekki alllöngu grein, þar sem Eyjabakkarnir voru til umræðu, hann var ekki lengi að leysa vand- ann sá sem þar skrifaði. Það var bara að leggja gangstíg í kringum Eyjabakkana, hvernig átti að fara að því kom nú ekki fram, orðin ein. Loftkastali. Hann fauk út í veður og vind. Á þennan veg eru rökin, sem komið hafa fram í umræðum um Afl fyrir austan, og virkjunar- framkvæmdir í því sambandi. Nú er aðeins eitt eftir, það er lónið sem á að koma við Kára- hnjúka. Það er nú ekki stærra á heimskortinu en það, að það þyrfti stækkunargler til að sjá það. Ótrú- legt. Þessi lægð myndi ekki rúma þau tár sem falla í dag frá þeim litlu börnum sem eru að deyja úr hungri í heiminum í dag. Er þessi litli blettur of stór fórn ef við Ís- lendingar gætum bætt þar eitt- hvað um, með orkuveri sem fram- leiðir orku, orku sem við eigum nóg af og getum ekki án verið? Við getum talað um raskið sem er óhjákvæmilegt við gerð lónsins. Sannleikurnn er sá að þegar stífl- an hefur verið gerð sendir orkan okkur allsnarpan vind sem sléttar yfir allt, þá er allt komið í það horf sem hálendið vill hafa. Svo gæti nú farið að myndaðist gróður í kring- um lónið, í rakanum frá því. Kragi, samkvæmt nýjustu tísku til að gera gys að prjálinu sem er að kollríða þjóðfélaginu í dag. Há- lendið lætur ekki að sér hæða, „gat ei nema Guð og eldur, gert svo dýrlegt furðuverk“. SÖLVI ÓLASON, Uppsölum, Fáskrúðsfirði. Nýju fötin keisarans Frá Sölva Ólasyni: NÚ þegar Færeyingar og Græn- lendingar hafa í huga að segja skilið við yfirráð Dana, hvarflar að mér, undirrituðum, að þessi tvö lönd og Ísland, geri með sér landabandalag þessara norðvesturlanda. Það liggur í eðli sínu ljóst fyrir að um fráskilnað verði frá Dönum. Margt kemur til. Til dæmis ákvörðun Grænlendinga nú nýverið um að nota Keflavíkurflugvöll sem millilendingarflughöfn fyrir land þeirra og svo hitt, sem kemur einnig til greina, að það er hafnaraðstaða á Íslandi fyrir grænlensk skip vegna íss með ströndum fram á Grænlandi – og sem inn- og útflutningshafnir. Ég tel að við ættum strax að tengj- ast þessum löndum nánari böndum. Íslendingar hafa m.a. stundað fisk- veiðar við vesturströnd Afríku, svo sem í Namibíu í góðri samvinnu við heimamenn. Sjálfir hafa Færeyingar stundað úthafsveiðar á fjarlægum miðum öldum saman, á Íslandsmið- um, við Grænland og Nýfundnaland og nú að síðustu á miðum við Suður- Aríkuströnd. Með Atlantshafsflota okkar og þeirra Færeyinga, mynd- um við sameiginlega geta stundað fiskveiðar og fiskvinnslu enn víðar og verið í fararbroddi á þessu sviði í heiminum. Annað mál er svo, sem er aðalhug- mynd þessara skrifa, að þessar þjóð- ir stofni með sér landabandalag á víðtæku sviði atvinnulífs, fjármála og framfara. Íslendingar gætu haft með höndum sameiginleg utanríkismál þessara landa á alþjóðavettvangi. Svo er talið að gull finnist á Græn- landi og Ísland verður frumkvöðull í vetnisframleiðslu. Ekki yrði það síðra ef olía eða gas fyndist á Græn- landi og Íslandi eins og í Færeyjum. Þá verða þessi þrjú lönd stórauðug, er fram líða stundir. Þessi lönd myndu svo sameigin- lega öðlast sterka stöðu innan NATO. Þetta myndi verða fámennt en víðáttumikið „stórveldi“ að um- fangi í góðri samvinnu við vina- þjóðina Dani. PÁLL HANNESSON, Ægisíðu 86, Reykjavík. Ísland, Grænland og Færeyjar Frá Páli Hannessyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.