Morgunblaðið - 23.12.2001, Side 52

Morgunblaðið - 23.12.2001, Side 52
FÓLK Í FRÉTTUM 52 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞEYR er ein af helstu íslensku sveitum og efalaust ein besta sveitin sem pönkbylgjan gat af sér. Hún starfaði árin 1979 til 1983 og naut nánast óttablandinnar virðingar; þótti torræð bæði og dulúðug og höfðaði sterkt til þeirra sem vilja það „þungt“ og þá í fleiri en einni merkingu. Það hefur lengi verið rætt að brýn þörf væri á endurútgáfu á hljómdiski, líkt og gert hefur verið með Purrk Pillnikk, Utangarðs- menn, Fræbbblanna og fleiri önd- vegisbönd frá þessum tíma. Ástæða þess að ekkert hefur bólað á stafrænum Þeysurum hefur legið í því að segulbönd með frumupp- tökum hafa verið glötuð í fjölda ára. Þau komu blessunarlega í leit- irnar á dögunum og nú er kominn út diskur, þar sem safnað er sam- an bestu lögunum af plötunum Ið- ur til fóta (’81) og Mjötviður mær (’81). Efni af Útfrymi, The Fourth Reich, Lunaire o.fl. bíður því enn útgáfu. Haft var samband við Hilmar Örn Hilmarsson, sem var einn þeirra sem höfðu með þennan mik- ilvæga fornleifauppgröft að gera. Það var við hæfi að viðtalið færi fram í gegnum rafpóst enda hafa Þeysarar og þeirra menn löngum þótt ferðast um á fleiri plönum en í mannheimum: Hvernig kom þessi útgáfa til? „Það hefur reglulega verið talað um endurútgáfur á Þeys-efni í ein- hverri mynd, en eitthvað alltaf orðið til þess að tefja framkvæmd- ir. Þegar „masterarnir“ týndust var t.d. gerð tilraun til að yfirfæra efnið af hljómplötum sem virtist lofa góðu, en svo gufuðu hljóm- gæðin upp á einhvern dularfullan hátt. Þá gerðust þau undur og stórmerki að upprunalegu hljóð- blandanirnar komu fram og við héldum að nú væri eftirleikurinn auðveldur. En það var öðru nær. Segulböndin voru af kynslóð Am- pex-banda sem fóru í gegnum und- arleg efnahvörf eftir stutta geymslu og við vorum þarna með efni sem þurfti að meðhöndla á sérstakan hátt þannig að það væri hægt að afrita eitthvað. Sem betur fer er komin allvíðtæk þekking á slíkum björgunaraðgerðum og með liðveislu innlendra og erlendra sérfræðinga réðst Guðlaugur Óttar í að baka segulböndin með vís- indalegri nákvæmni og síðan var þetta allt yfirfært með bestu 24 bita stafrænu tækninni sem völ er á undir styrkri stjórn Sveins Kjartanssonar.“ Verður framhald á þessu? Meg- um við vænta fleiri platna? „Þetta verður fyrsti diskurinn af þremur. Næsti diskur inniheldur endurhljóðblandanir frá öllum ferli hljómsveitarinnar og þar munu birtast ýmsir óvæntir gullmolar. Þriðji diskurinn verður síðan sögu- legt yfirlit og inniheldur áður óút- gefið efni, þar á meðal hinar þjóð- sagnakenndu „Iceland“-upptökur sem poppfræðingar hafa beðið með mikilli óþreyju.“ Eftir hverju var farið þegar safnið var sett saman? „Þegar við steyptum saman plötunum tveimur tókum við ein- faldlega út það sem okkur fannst vera uppfyllingarlög á báðum plöt- unum. Sumt var þarna einfaldlega sem birting á hinum sérkennilega Þeysarahúmor (sem var oft ein- staklega seinmeðtekinn: fólk hló kannski mörgum árum seinna og vissi þá ekki út af hverju...), annað hafði einfaldlega ekki elst vel. Þetta er platan sem átti alltaf að verða.“ Hvað með arf Þeys? Hvernig hefur þetta elst? „Það eru enn starfandi aðdá- endaklúbbar á Ítalíu og í Japan. Norskir aðdáendur halda uppi net- síðum. Kannski hefur þetta þrifist útaf því hvað efnið er fáséð og guf- ar þannig upp við úgáfu disksins. En það góða er að efnið á disk- inum hefur elst ótrúlega vel og hljómar eins og það sé gert ekki á morgun heldur hinn.“ Loksins, loksins! Hljómsveitin Þeyr. Þeyr komnir á geisladisk arnart@mbl.is OZY er listamannsnafn hins fræunga tæknópilts, Örnólfs Thorlacius en hann hefur gefið út skífur undir ýms- um nöfnum, eins og Hugh Jazz, Early Groovers o.fl., eftir því hvernig tónlist hann fæst við í hvert sinn. Það virðist landlægt í tæknó- heiminum að tón- listarmenn eyði drjúgum tíma í að finna til ný nöfn í hvert sinn sem þeir breyta um stíl eða stefnu, svona eins og ef Siggi á skrif- stofunni myndi kalla sig Palla ef hann færi í byggingarvinnu, en með þessu er engin hætta á að „djúpt hús“ aðdá- andinn villist til að kaupa sér „ambi- ent“ skífu með sama tónlistarmann- inum – það myndi líklega setja sálarlífið alveg úr skorðum. En hvað um það, Ozy stendur fyrir naum- hyggjulegt teknó. Í fyrstu renna lögin nokkuð saman enda er hér um að ræða yfir 60 mín- útur af nokkurn veginn sama þind- arlausa trommu- og raftaktinum og yfir honum endurteknar lúppur af sparlega völdum rafhljóðum. Þegar diskurinn hefur hljómað nokkrum sinnum fara lögin hinsvegar að grein- ast að og fá sín blæbrigði og sérstöðu. Lögin eru vandlega og markvisst byggð upp, eins og Ozy hafi lagt upp með takmarkað en mjög vel valið raf- rænt hráefni í hvert sinn og leiki sér að því að raða inn töktum, taka út, bæta við og prófa allar samsetningar áður en tekið er til við næsta lag – með örlítið breyttu kryddi við hend- ina sem gefur annað bragð. Engu nýju hljóði er hleypt inn fyrr en hið fyrra er búið að snúast í nokkra hringi og fá að njóta sín og þögnin er líka notuð sem áhrifamikið „hljóð“ inn á milli. Hann er lítið í brak-, rispu- og suðskreytingum, heldur er áferðin svöl og kristalskýr. „Phase down“ leikur sér að mis- munandi hægum og hröðum takti, sem rennur saman og sundur, og mjúkir og dempaðir orgelhljómar hljóma yfir og gera lagið bara nokkuð „fönkí“ og dansvænt. Í „Fitzroy mews“ eru bergmálandi trommul- úppur látnar hringsnúast yfir takt- fastri keyrslunni og síðan er stundum slakað á spennunni með því að kippa burt grunntaktinum í nokkur andar- tök. „Womanizer“ er líka mjög skemmtilegt, lagskipt af hörðu og ein- beittu banki, ambient-hljómum, radd- muldri og svo í miðju kafi er haldið aftur af öllu saman og það heyrist þegar rennilás er rennt upp – eða nið- ur. Stigmögnunin og vaxandi stuð og bjölluhljómar í „Alltaf eins“ minna á gömlu Orbital. Annars er erfitt að draga fram einhver einstök lög, heild- arsvipurinn er mjög sterkur. Í athugasemd á plötuumslaginu segir Ozy að í dag sé mjög auðvelt fyr- ir fólk að „breytast í búðing“ í öllu fjölmiðlaáreitinu og hann hafi gert þessa plötu til að forðast slík örlög. Ef mönnum finnst þeir vera að koðna niður og grænmetisástand sé handan við hornið þá virkar þessi tónlist eins og góður ginsengskammtur og ég sé fyrir mér að menn yrðu alveg trylltir í líkamsræktinni ef þetta væri pump- andi í hátölurunum. Endurtekning- arnar og jöfn keyrslan breytast ekki í einhæfan veggfóðursbakgrunn vegna þess að nóg er af áhugaverðum og vel völdum frávikum sem halda manni vakandi og í viðbragðsstöðu. Tónlist Orku- veita Ozy Gray Area (51) Thule Musik Raftónlistarmaðurinn Örnólfur Thorlacius með sína fyrstu breiðskífu undir nafninu Ozy og hefur að geyma 10 lög. Útsetn- ingar og hljóðblöndun er í höndum Ozy. Steinunn Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.