Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 56
SÍÐAN íbúar Latabæjar létu fyrst á sér kræla árið 1995 hafa þeir átt vísan stað í hjarta margra barna. Þessi árangur verður að teljast góður því það er langt í frá hlaupið að því að skapa heilan heim sem nær að gæða barnshjörtun gleði og hamingju. Þetta hefur Magnúsi Scheving, þolfimikappa með meiru, tekizt með miklum ágætum og persónur eins og Solla stirða, Goggi mega og Maggi mjói sem heimaalningar víðast hvar. Á þessum sex árum hafa íbú- arnir glaðlyndu lent í ýmsum æv- intýrum; tekið þátt í ólympíuleik- um og slegizt við Glanna glæp m.a. Og nú eru það blessuð jólin sem knýja dyra. Fyrir mitt leyti hefur mér fund- izt takast prýðilega til hér. Helzti kosturinn er fjölbreytileikinn, lög eru brotin upp með leikþáttum og í enda disksins er boðið upp á ka- raokeveislu. Hljómur disksins er sprelllifandi og fjörugur og áðurnefnd leikin at- riði mjög séð viðbót, halda rennsl- inu góðu og spennandi. Hvað lögin varðar takast þessi gömlu góðu bezt, t.a.m. „Jólin koma“, „Óskin Tónlist Latibær í hátíðarskapi Íbúar Latabæjar o.fl. Jól í Latabæ Latibær Jól í Latabæ, hljómdiskur hvar íbúar Lata- bæjar syngja og leika ásamt gestum. Stjórn upptöku var í höndum Magnúsar Scheving og Mána Svavarssonar. 74,52 mínútur. Arnar Eggert Thoroddsen um gleðileg jól“ (sem Páll Rós- inkranz syngur af innblæstri og tilfinningu), að ég tali nú ekki um hina ómissandi jólalagasyrpu. Ný lög Mána Svavars eru hins vegar upp og ofan, eiga það til að vera svolítið stirð. Nýir gestir í Latabæ ná nærfellt að stela senunni. Sjálfur Laddi leikur jólasveininn og gerir það af stakri snilld eins og við mátti bú- ast. Ómar Ragnarsson á einnig frábært innslag. Hollur og góður boðskapur hef- ur verið ein helzta stefna Lata- bæjar í gegnum tíðina. Hér er snert á efnum eins og almennri til- tekt fyrir jólin og að sjálfsögðu líka á friðarboðskapnum sem jól- unum fylgir. Það mætti skipta diskinum upp í tvennt að þessu leytinu til. Fyrri hlutinn fjallar um ys og þys sem jafnan fylgir und- irbúningi jólanna en í seinni hlut- anum færist meiri friður og spekt yfir. Ég verð þó að viðurkenna að í fyrir hlutanum hefði mátt taka gagnrýnni afstöðu til þeirrar óþol- andi – og vaxandi – efnishyggju sem fylgir þessari hátíð ljóss og friðar. Í sumum textunum finnst mér jafnvel eins og það sé verið að styðja við glórulaus gjafakaup og annan ómyndarlegan æðibunu- gang. Diskurinn er ríkulega mynd- skreyttur og er það vel – þetta at- riði vill of oft gleymast í viðlíka út- gáfum. Á heildina litið er pakkinn hinn vænsti og vel til þess fallinn að gleðja og gamna yfir hátíðirnar. FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.