Morgunblaðið - 23.12.2001, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 11
Mögnuð mynd með stórleikurunum Bruce Willis,
Cate Blanchett og Billy Bob Thornton
Sýnd kl. 12, 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 12, 2, 4 og 6.
Missið ekki af nýjasta
glæpaþriller Bruce Willis
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Sýningartímar gilda fyrir 26. og 27. desember
Sýnd kl. 8 og 10.15. B. i. 16.Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30. Sýnd í Lúxussal kl. 2, 6 og 10.
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni
Stórkostlegasta kvikmynd ársins í ótrúlegri leikstjórn Peters Jacksons með
stjörnuliði leikara í aðalhlutverkum! Magnaður hugarheimur Tolkiens var bók 20.
aldarinnar og verður nú kvikmynd 21. aldarinnar. Einstök upplifun!!
Lokað í dag, Þorláksmessu
Opið annan í jólum
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
Frumsýning
Ævintýrið lifnar við
Powersynin
g
kl. 11.30. .
Leyndarmálið er
LONGCILEXTENDER!
Sjálfstætt apótek með persónulega þjónustu er góður nágranni
Apótek Ólafsvíkur
Stykkishólms Apótek
Ísafjarðar Apótek
Apótek Blönduóss
Siglufjarðar Apótek
Dalvíkur Apótek
Apótek Austurlands
Apótek Vestmannaeyja
Apótek Keflavíkur
Árbæjar Apótek
Borgarapótek
Grafarvogs Apótek
Hringbrautar Apótek
Laugarnes Apótek
Nesapótek Seltjarnarnesi
Rima Apótek
40% lengri augnhár
Þú getur fengið löng og
falleg augnhár á
augabragði með
Longcilextender. Notað með
uppáhalds maskaranum
þínum eða með Longcilmatic
maskaranum frá Longcils
Boncza. Árangurinn er
hreint ótrúlegur.
Longcils Boncza
Paris
ÍSLENSKU krakka-
hljómsveitinni Kiðlingunum
hefur verið boðið að koma
fram á dönsku sjónvarps-
stöðinni TV2 á nýju ári.
Að sögn Ómars Ósk-
arssonar, sem semur stóran
hluta laga sveitarinnar, er
um að ræða boð um að
koma fram í barnaþættinum
vinsæla Bubber þar sem
venjan er að ein hljómsveit
taki lagið í hverjum þætti.
Umræddur þáttur verður á
dagskrá næsta vor og verð-
ur Kiðlingunum boðið utan til upp-
töku á tónlist sinni.
Kiðlingana skipa þau Hrefna Þór-
arinsdóttir, bræðurnir Ómar Örn og
Óskar Steinn Ómarssynir og Þór-
anna Þórarinsdóttir og voru að gefa
út sína fyrstu stóru plötu nú fyrir jól-
in sem ber sama nafn og sveitin.
Platan hefur að geyma tólf hressileg
lög.
Kiðlingunum boðið
í danska sjónvarpið
Kiðlingarnir
ÞAÐ VARÐ til tíðinda á árinuað útgáfa hljómsveitar neit-aði að gefa út nýja plötuhennar vegna þess að hún
væri of einkennileg og ekki til þess
fallin að hægt væri að selja hana í bíl-
förmum. Víst eru það ekki tíðindi í
sjálfu sér en menn sperrtu heldur en
ekki eyrun í ljósi þess að um var að
ræða Wilco, mikils metna sveit.
Wilco leiðir Jeff Tweedy, sem áður
var annar aðalmanna í Uncle Tupelo,
sveitar sem er meðal annars minnst
fyrir að hafa hrint úr vör nýjum tón-
listarstíl er dró um tíma nafn af
fyrstu plötu sveitarinnar, No De-
pression, bræðingi af sveitatónlist,
órafmögnuðum blús og síðpönki, og
er í hámæli um þessar mundir. Sveit-
in var tríó lengst af, skipað þeim
Tweedy, Jay Farrar og Mike Hei-
dorn, en aðrir liðsmenn komu og fóru.
Tweedy þótti að sér þrengt innan
sveitarinnar enda vildi Farrar ráða
ferðinni og andæfði þegar breyta átti
til og gera tilraunir. Á endanum
skildu þeir með fullum fjandskap, eft-
ir að hafa verið vinir að segja alla ævi,
Farrar stofnaði hljómsveitina Son
Volt en Tweedy Wilco.
Einskonar framhald
Önnur plata Wilco Being There
kom út 1996, seldist bráðvel og var of-
arlega á listum yfir bestu plötur árs-
ins víða um heim. Það ár kom einnig
út plata sem þeir Wilco-menn gerðu
með breska trúbadúrnum Billy
Bragg, Mermaid Avenue, sem á var
safn laga við texta eftir Woody
Guthrie. Á næstu Wilco-skífu, Sum-
mer Teeth, var að finna tilraunakennt
popp með myrkum textum. Henni
var vel tekið en minna varð úr fram-
haldi af Mermaid Avenue, Mermaid
Avenue, Vol. 2, sem kom út í fyrra.
Yankee Hotel Foxtrot
Snemma í ár hóf sveitin síðan að
vinna plötuna umdeildu sem ekki hef-
ur enn komið út, Yankee Hotel Foxt-
rot, en hún dregur nafn sitt af broti
úr talstöðvarkalli stúlku sem heyrist í
einu laginu. Upphaflega stóð til að
platan kæmi út í sumar, í júlí síðast-
liðnum, enda var búið að taka upp
tuttugu lög til að velja úr í apríl. Upp-
tökurnar, sem voru síðan hljóðbland-
aðar af hinum kunna noise-stjóra Jim
O’Rourke, gengu ekki þrautalaust
fyrir sig því einn liðsmanna, trymbill-
inn Ken Coomer, sem verið hafði í
sveitinni frá upphafi, var rekinn og
annar fenginn í hans stað, að því er
Tweedy segir vegna þess að Coomer
var of fastur í gamaldags takti til þess
að geta fylgt sveitinni á nýjar slóðir.
Ný stefna Wilco féll ekki í kramið
hjá stjórum Warner/Reprise, sem
gefið hafði sveitina út til þessa, og var
útgáfunni frestað fram í september á
meðan þess var freistað að fá sveitina
til að breyta plötunni. Á endanum
neituðu Reprise-menn að gefa plöt-
una út. Gekk svo langt að einn yf-
irmanna útgáfunnar lét þau orð falla
að kæmi platan út væri ferli Tweedys
sem tónlistarmanns, og Wilco þá líka,
lokið fyrir fullt og allt; platan væri svo
hræðileg. Á endanum slitu þeir því
samstarfi wið Reprise/Warner,
keyptu útgáfuréttinn að plötunni
sjálfir og fóru í tónleikaferð að kynna
hana. Fyrir skemmstu var það svo
ákveðið að platan nýja yrði gefin út af
Nonesuch, sem er reyndar angi af
Warner, merkilegt nokk. Hún kemur
út á næsta ári, eins og sveitin vildi að
hún yrði.
Varla er nema von að menn spyrji
sig hvernig platan sé og því er fljót-
svarað, hún er hreint fyrirtak eins og
þeir geta kynnt sér sem hafa reynslu
af að elta tónlist uppi á Netinu en
sveitin bauð fólki upp á að sækja hana
á vefsetri sínu um tíma og þar með
var hún komin út um allt. Tilrauna-
mennska þeirra félaga er skemmtileg
nýbreytni og Tweedy syngur frábær-
lega eins og alltaf en því hefur meðal
annars verið fleygt að hann gæti
fengið menn til að tárast þótt hann
væri að syngja símaskrána.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Beðið eftir Wilco
Það er oft ekki þrautalaust
að koma út plötum. Árni
Matthíasson segir frá vænt-
anlegri skífu Wilco sem á
sér sérstakan aðdraganda.