Morgunblaðið - 03.02.2002, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
ÞESSA dagana eru ferðaskrifstof-
ur að leggja lokahönd á gerð sum-
arbæklinga. Þrátt fyrir fækkun
ferðaskrifstofa virðist framboð
ferða nokkuð fjölbreytt og þeir
forsvarsmenn ferðaskrifstofa sem
rætt var við segja að í sumum til-
fellum lækki verð frá í fyrra. Þeir
sem kjósa að liggja í sólinni í sum-
ar ættu án efa að geta fundið eitt-
hvað við hæfi en einnig er nokkur
áhersla lögð á sumarhúsahverfi í
Mið-Evrópu og Danmörku. Þá
geta þeir sem kjósa skipulagðar
ferðir til framandi landa einnig
kæst því boðið er upp á ýmsar
slíkar ferðir.
Fjölskylduvæn sumarhúsahverfi
Ferðaskrifstofan Terra Nova
hefur nú sameinast ferðaskrifstof-
unni Sól og efnt til samstarfs við
Bændaferðir og Norrænu ferða-
skrifstofuna. Þar er því hægt að
nálgast allar upplýsingar um
bændaferðir í sumar og ferðir sem
farnar eru með ferjunni Norrænu.
Frá og með síðla í mars og fram
í október verður Terra Nova-Sól
með ferðir til Portúgal þar sem
Anton Antonsson, framkvæmda-
stjóri Terra Nova-Sól, segir að í
boði verði gisting á glæsihótelinu
Paradiso de Albufeira sem Sól
kynnti til sögunnar í fyrra.
Í fyrra flaug flugfélagið Corsair
tvisvar í viku til landsins frá París
en nú er búið að bæta við þriðja
flugi á viku. Anton segir að flogið
verði þrisvar í viku til München og
Düsseldorf með þýska flugfélaginu
LTU og einu sinni í viku verður
flogið til Þýsklands frá Egilsstöð-
um. Að lokum býður Terra Nova-
Sól vikulegt flug til Barcelona frá
og með 28. maí næstkomandi. Auk
þess sem útveguð er hótelgisting í
Barcelona býðst farþegum að
leigja íbúðir í Salou á Costa Dor-
ada-ströndinni. Kýpurferðir verða
áfram í boði vikulega en flogið er
frá Amsterdam.
Anton segir að í sumar verði
lögð sérstök áhersla á að bjóða
sumarhús fyrir fjölskylduna víða
um Evrópu og hann segir að m.a.
hafi ferðaskrifstofan nú hafið leigu
sumarhúsa í Hejderbos og Kemp-
ervennen í Hollandi sem Sam-
vinnuferðir hafi verið með á sínum
snærum áður. Þá verður eflt sam-
starfið við TUI sem er stærsta
ferðaskrifstofa í heimi. Á hennar
vegum er t.d. hægt að leigja sum-
arhús í svokölluðum afþreyingar-
þorpum víða um Evrópu eins og í
Þýskalandi, Austurríki og við
Gardavatnið á Ítalíu. Anton bendir
á að ferðaskrifstofan búi yfir góð-
um samböndum í Frakklandi og í
boði verði leiga íbúða og sumar-
húsa, farnar verða sérferðir þang-
að og boðið upp á golf. Auk þess
verður sérstakt tilboð á flugi, bíl
og hótelgistingu. Þá fylgir með
kort yfir viku akstursleið og bent á
markverða staði til að skoða.
Austurlandaferðir aldrei vin-
sælli hjá Heimsklúbbi Ingólfs
Hjá Heimsklúbbi Ingólfs verður
lögð áhersla á ferðir til Austur-
landa og Suður-Afríku á komandi
mánuðum. Ingólfur Guðbrandsson,
eigandi skrifstofunnar, segist aldr-
ei nokkurn tímann hafa orðið var
við jafn mikinn áhuga á Austur-
landaferðum og nú. Sem dæmi
megi nefna að selst hafi upp í
þrjár ferðir til Austurlanda – Taí-
lands, Singapore, Malasíu og Bali
– sem farið er í núna í janúar og
febrúar, á skömmum tíma.
Framhald verður á ferðum til
Taílands í marsmánuði og um
páskana þar sem tvær ólíkar
ferðaáætlanir eru í boði með hæfi-
legri blöndu af menningu og afs-
löppun á fögrum ströndum.
„Það er fólk á öllum aldri sem
hefur áhuga á að ferðast um Aust-
urlönd og ferðirnar hjá mér
spanna allt frá frá 25 ára ung-
mennum til sextugra borgara. Og
ég skal segja þér að það er aldrei
minnst á kynslóðabil í þessum
ferðum,“ segir Ingólfur. Um
páskana býður Heimsklúbburinn
einnig upp á tvær ólíkar ferðir til
Suður-Afríku. Annars vegar er í
boði tíu daga safaríferð með dvöl í
strandborginni Durban og segir
Ingólfur hana vinsæla meðal fjöl-
skyldna þar sem börnin hafa gam-
an af því að skoða villtu dýrin.
„Hins vegar er um að ræða ferð
um hina margfrægu blómaleið þar
sem gefur að líta ómótstæðilegan
gróður og sum af mestu undrum
heimsins, eins og Cango dropa-
steinshellana.“ Ferðinni lýkur í
Höfðaborg og er borgin jafnt sem
umhverfi hennar skoðað.
Í maí hefjast útskriftarferðir há-
skólanema sem ætla til Malasíu,
Kína og Taílands og um mánaða-
mótin júní/júlí er fyrirhuguð Ítal-
íuferð með nýju sniði. „Ferðin er
sérstaklega tileinkuð kirkjulist,“
segir Ingólfur sem hefur í nógu að
snúast, enda er hann sjálfur far-
arstjóri í nokkrum ferðanna.
Bjóða Benidorm
í fyrsta sinn
Hjá Úrval-Útsýn er lögð áhersla
á sólarlandaferðir í vor og sumar
eins og undanfarin ár. Páll Þór Ár-
mann sölu og markaðsstjóri segir
að í vor taki Úrval-Útsýn inn nýj-
an áfanga stað í sólina, Benidorm.
„Við bjóðum til dæmis hótelið
La Colina á Albir sem Samvinnu-
ferðir- Landsýn voru áður með og
verðum einnig með Les Dunes
Suites sem Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur var með.“ Páll Þór
segir að ferðir til Marmaris í
Tyrklandi verði boðnar í apríl og
maí og síðan aftur í haust.
„Við ætlum að halda áfram að
bjóða ferðir til Tyrklands í apríl og
maí og síðan aftur í september og
október. Okkar farþegum líkaði
vel á Marmaris í fyrra og því telj-
um við að ástæða sé til að bjóða
þennan valmöguleika á ný.
Mallorca-ferðirnar okkar verða
með hefðbundnum hætti en við
bæt um við nýju hóteli í Palma
Nova sem Samvinnuferðir voru áð-
ur með, Po nent Mar. Portúgal
þekkja allir og verður það með
hefðbundnum hætti svo og ferðir
okkar til Krítar.“ Páll Þór segir að
aukin áhersla verði lögð á að bjóða
viðskiptavinum að leigja hús á
sumarhúsasvæðum bæði í Hollandi
og Danmörku. Í tengslum við það
verður boðið upp á flug og bíl eða
flug og sumarhús.
Í Danmörku eru það Lalandia
sumarhúsasvæðið og í Hollandi
Kempervennen sem Samvinnu-
ferðir voru áður með. Að lokum
nefnir hann að ýmsar sérferðir
verði á boðstólum í sumar, sérferð-
ir um Evrópu og Ítalíu og ferð um
Norður-Spán og spennandi ferð
um Rússland þar sem Moskva og
Pétursborg verða m.a. heimsóttar.
Með haustinu verði farið á fjar-
lægari slóðir, til Kína, Perú og
Taílands svo dæmi séu tekin.
Þrátt fyrir að Samvinnuferðir
séu ekki lengur á markaðnum seg-
ir Páll Þór að hjá Úrvali-Útsýn sé
frekar dregið úr ferðum í sumar
samanborið við fyrra. „Það var of-
framboð af ferðum í fyrra og í ár
förum við varlega í loftið. Við
leggjum áherslu á stóra og góða
gististaði og í sumum tilfellum
verður jafnvel um verðlækkun að
ræða.“
Beint flug til Veróna og Rímini
Heimsferðir eru að kynna Ítal-
íuferðir nú um helgina og Andri
Már Ingólfsson, forstjóri Heims-
ferða, segir að boðið verði vikulega
í sumar upp á beint flug til Verona
á frá 22.000 krónum. Flogið verður
til Veróna með Azzurra-flugfélag-
inu alla fimmtudaga frá 23. maí til
1. október. Í flugið verða notaðar
nýjar Boeing 737-700-vélar og ætíð
verður íslenskur áhafnar meðlimur
um borð.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
boðið er upp á beint flug frá Ís-
landi til Veróna en borgin sem er
heimsfræg fyrir hringleikahúsið
sitt hefur mikinn sjarma. Við mun-
um bjóða hótelgistingu í Veróna.
Andri segir að auk flugsins til
Veróna verði boðið upp á vikulegar
ferðir til Rímini á Ítalíu. Á Rímini
er boðið upp á hótel sem Sam-
vinnuferðir voru áður með eins og
á Astoria, Auriga og Riveru. Þar
verður boðið upp á íslenska far-
arstjórn svo og í Veróna. Andri
segir jákvætt að tekist hafi að
lækka fargjöldin til Rimini og nú
verði í boði ferðir þang að með
fimm nátta gistingu frá á um
39.900 krónur. Með því að bjóða
beint flug til Veróna segir Andri
að verið sé að fljúga með farþega í
hjarta Ítalíu og leiðir liggi í allar
átt ir. Hann bendir á að góðir
samningar hafi tekist við bílaleig-
una Hertz og fólki standi til boða
að panta hjá Heimsferðum gist-
ingu í borgum eins og Feneyjum,
Flórens, Róm og Písa og t.d. við
Gardavatnið.
Heimsferðir munu einnig vera
með vikulegt flug til Spánar í sum-
ar, til Costa del Sol og til Barce-
lona, Benidorm og nú einnig til
Mallorca. Flogið verður einnig
með Azzurra-flugfélaginu til Rím-
ini á Ítalíu og til Mallorca og
Barcelona og Costa del Sol en með
spánska flugfélaginu Iberworld til
Benidorm. Þangað verður flogið
með nýrri Airbus 320-vél.
Rómantískar borgarferðir
„Það má segja að áherslur okkar
liggi frekar austarlega í Evrópu
þetta árið,“ segir Áslaug Einars-
dóttir hjá upplýsingadeild Flug-
leiða. Þá er einnig mikil áhersla
lögð á rómantískar borgarferðir.
„Um páskana bryddum við upp á
þeirri nýjung að bjóða upp á sér-
ferð hinn 29. mars til St. Péturs-
borgar og verður farþegum boðið
upp á fjölbreyttar skoðunarferðir.
Á svipuðum tíma munum við, í
samstarfi við SAS, bjóða upp á
ferðir til Eystrarsaltslandanna
þ.ám. til borganna Tallinn, Riga og
Vilnius og verða þessir helgar-
pakkar fáanlegir á hagstæðum
kjörum.
Rómantíkin blómstrar eins og
alltaf á vorin í París, Laufey
Helgadóttir listfræðingur mun
fræða Íslendinga um leyndardóma
borgarinnar í sérstökum helgar-
ferðum sem verða kynntar betur í
vor- og sumarbæklingi Flugleiða.“
Áslaug segir að einnig standi til að
fara af stað með „rómantískar fót-
boltaferðir“ til Þýskalands. Fyrsta
ferðin verður farin til Stuttgart 2.
mars, þar sem heimamenn etja
kappi við Bayern München. Síðar
verður einnig farið til München.
Þetta eru helgarferðir og er tak-
markið að leggja áherslu á fleira
en fótboltaleiki þannig að allir geti
skemmt sér í sameiningu.
Farið verður á góða veitinga-
staði og notið matar bjór- og vín-
smökkunar, í Stuttgart er hægt að
fara í verslunarleiðangur í Boss-
verksmiðjuna og skoðunarferð á
Mercedes Benz-safnið en í báðum
borgum er skoðunarferð um borg-
ina innifalin.
Þess má geta í lokin, að þetta
árið leggja Flugleiðir mikla
áherslu á Netflug, þar sem farþeg-
ar bóka flugið sjálfir, og koma til
móts við þá farþega með hagstæð-
ari fargjöldum.
Aukið framboð á gististöðum
Plúsferðir ætla að auka framboð
á gistingu á Benidorm í sumar og
Laufey Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Plúsferða, segir að
þeir sem eigi sum arhús á þessum
slóðum geti einnig keypt flugsæti
á hagstæðu verði.
„Við erum núna að bjóða gist-
ingu á Halley og Levante Club
sem Samvinnuferðir voru áður
með. Þá er full ástæða til að draga
það fram að allar okkar ferðir eru
farnar í leiguflugi á vegum Flug-
leiða.“ Laufey segir að verið sé að
bæta við nýjum gististöðum á Mal-
lorca eins og Benhur. Það er íbú-
ðagisting og fáanlegar rúmar íbúð-
ir sem henta 6 manna fjölskyldum.
Laufey segir að á Krít séu nú öll
hótel Plúsferða komin með loft-
kælingu og sundlaug og sundlaug-
argarð. Á Portúgal er verið að
bjóða gistingu á þremur nýjum
hótelum, Dom Pancho, Alagoamar
og á lúxushótelinu Real Bella
Vista.
Laufey segir að eftirspurnin
aukist stöðugt eftir ferðum til
Mallorca og Benidorm. Hún segir
þó að nokkur áhersla sé lögð á sól-
arlandaferðir hjá Plúsferðum þá sé
áfram lagt í ferðir til Danmerkur.
„Danmörk er afar vinsæll fjöl-
skyldustaður með glæsilegum
skemmtigörðum um allt landið. Í
boði er bæði flug og bíll og einnig
hægt að leigja úrval sumarhúsa í
ýmsum verðflokkum. Bílaleigubíl-
ar eru sérlega hagstæðir í Dan-
mörku núna.“
Þegar hún er spurð hvort verð-
lagið verði svipað og í fyrra segir
hún það misjafnt og að í nokkrum
tilfellum sé um verðlækkun að
ræða.
Vor- og sumarferðir ferðaskrifstofanna
Sumarhús í
Evrópu, sólar-
strönd eða
framandi staðir
Beint flug til Veróna á Ítalíu, páskaferð til Suður-Afríku,
rómantískar borgarferðir, dvöl í sumarhúsahverfum víða
í Evrópu og úrval ferða til Spánar og Portúgals er meðal
þess sem ferðaskrifstofurnar bjóða upp á í sumar.
Morgunblaðið/Ómar
Nokkur áhersla er lögð á leigu sumarhúsa í Danmörku og eflaust leggja þá
margir leið sína í heimsókn til Kaupmannahafnar.
Morgunblaðið/Ómar
Þeir sem vilja fara á sólarströnd í
sumar hafa úr mörgu að velja.
Morgunblaðið/Ómar
Götulífið er fjölskrúðugt á Römblunni í Barcelona.
®Car Rental
Malarhöfða 2, 110 Reykjavík
og á Keflavíkurflugvelli
Sími 567 8300 • Fax 567 8302
Bíl í B-flokki í 7 daga:
Netfang: budget@budget.is
www.budget.is
Bílaleigubílar
um allan heim
á betra verði
Danmörk 23.200 kr.
Þýskaland 22.200 kr.
Krít, Grikkland 13.800 kr.
Portúgal 9.700 kr.
Í USA er verðið einnig sérlega gott