Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 14
Glæsileg hljómtækjalína frá Alpine
Toyota Corolla
T-Sport
Aflmikil sport-
útfærsla af
níundu kynslóð
Corolla.
DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið hefur dregið
til baka hækkun á gjöldum fyrir að geyma núm-
eraplötur ökutækja. Ráðuneytið tilkynnti 150%
hækkun á þessum gjöldum 17. janúar sl. Eftir
stendur að skráningarnúmeraplötur á ökutæki
hækka um 50%. Númeraplatan kostaði fyrir
hækkun 1.875 kr., eða 3.750 kr. parið, en kostar
nú 2.815 kr. stykkið, eða 5.630 kr. parið. Stærsti
hluti sértekna fangelsanna í landinu eru tekjur
vegna skráningarnúmera.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir að númeraplötur á Íslandi séu þær dýr-
ustu í þessum heimshluta. Þær séu notaðar sem
skattstofn í þágu fangelsismála. „Út af fyrir sig
er það mjög umdeilanlegt að láta bifreiðaeig-
endur standa straum af rekstri fangelsanna í
landinu og á skjön við jafnræðisreglu. Einnig er
það furðuleg tilhögun að hækka gjaldið síðari
hluta janúarmánaðar á sama tíma og heyra má
yfirlýsingar frá ríkisstjórninni að stemma eigi
stigu við hækkun opinberra álagna.“
Morgunblaðið/Þorkell
TÖLVUTÆKNIN hefur nú rutt sér til rúms
með afgerandi hætti í Mercedes Benz Actros-
vörubílunum.
Tilgangurinn með víðtæku eftirlitskerfi, sem
vaktar vélrænan búnað bílsins, vökva og vessa,
er sá að vara ökumanninn við ef eitthvað fer úr-
skeiðis, búnaður er kominn að slitmörkum, eða
þarfnast hefðbundins eftirlits.
Tímanleg aðvörun kemur í veg fyrir að drátt-
ur á viðhaldi valdi frekara tjóni með tilheyrandi
kostnaði, rekstrarstöðvun og óþægindum. Einn
mikilvægur þáttur er sá að kerfið reiknar sjálft
út raunverulega þörf fyrir olíuskipti, og kemur í
veg fyrir að menn hendi smurolíu, þó að hrein-
leiki hennar og gæði séu enn vel innan marka.
Mælaborðsskjárinn þar sem kerfi bílsins birta
upplýsingar þessar, hefur hingað til eingöngu
getað tjáð sig á erlendum tungumálum, en nú
hefur Mercedes Benz kennt honum íslensku.
Allar Actros bifreiðar smíðaðar árið 2000
eða síðar geta lært íslensku.
Boðið verður upp á „íslenskukennsluna“ án
endurgjalds á verkstæði Ræsis hf. næst þegar
viðkomandi bifreið á erindi við verkstæðið
vegna þjónustueftirlits eða af öðrum ástæðum.
Íslenska fyrir
íslenska Benz-eigendur
Mælaborðið í Actros tjáir sig á íslensku.
Sala á Lexus fer
vel af stað
JAFNMIKIÐ hefur selst af Lexus bílum á
fyrstu fjórum vikum þessa árs og í janúar og
febrúar 2001 samanlagt. Níu bílar seldust fyrstu
fjórar vikur ársins. Lexus kom fyrst á markað
hérlendis á árinu 2000. Það ár seldust 76 bílar
en í fyrra seldust 79 bílar. Alls hafa því selst
164 Lexus bílar frá því hann kom á markað, þar
af 94 IS200, 57 RX300 jepplingar og sjö
GS300. Þá hafa þrír LS430 selst, einn IS300
og GS430 og einn sportbíll af gerðinni SC300
hefur selst.
Lada flutt í Dugguvog
FYRIR u.þ.b. einu ári var opnað nýtt Lada-
umboð á Íslandi. Í grein um ódýra bíla sl. sunnu-
dag láðist að geta þess að Lada er með þrjár
gerðir bíla á undir 1,1 milljón kr. Lada fólksbíllinn
kostar 940.000 kr., langbakurinn, þ.e. 111 Grand
Tour, kostar 990.000 kr. og Lada Sport, fjór-
hjóladrifinn jepplingur, kostar 1.090.000 kr.
Að sögn Sigurðar Ásgeirssonar hjá Lada-
umboðinu, seldust um 30 Lada bílar á síðasta
ári en umboðið er nú flutt í Dugguvog 10 í fram-
tíðarhúsnæði, að sögn Sigurðar.
Mazda Cosmo 21
MAZDA sýnir sérstæðan sportbíl á bílasýning-
unni í Tókíó sem nú er nýafstaðin. Bíllinn heitir
Cosmo 21. Þetta er tvennra dyra kúpubakur og
með sama útliti og hinn upprunalegi Mazda
Cosmo 110S sem kom á markað 1967. Sá bíll,
sem var með snúningshverfli, seldist ekki mikið í
Evrópu. Mazda hefur ekki upplýst hvort nýi bíll-
inn fari á markað í Evrópu. Cosmo 21 er með
sama afturhjóladrifna undirvagninum og MX-5
en undir vélarhlífinni er snúningshverfill af nýj-
ustu kynslóð, sem einnig verður í boði í RX-8 of-
ursportbílnum sem Mazda setur á markað síðar
á þessu ári. Vélin skilar 250 hestöflum og vænta
má að hinn léttbyggði Cosmo 21 kitli taugar
sportbílamanna þegar hann kemur á markað.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Mazda RX8 sportbíllinn kemur á markað í haust.
Númeraplötur
hækka um 50%