Morgunblaðið - 03.02.2002, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 B 11
ferðalög
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.845 vikan.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Allt nema bensín
og afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
smá-rútur og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting.
Bændagisting.
Fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
sími 456 3745.
fylkirag@snerpa.is
www.fylkir.is
Starfsmenntaráðs verður haldinn
fimmtudaginn 7. febrúar 2002, kl. 12-13:30,
á Kornhlöðuloftinu, Bankastræti 2,
Reykjavík (bak við Lækjarbrekku).
Stefnumótun Starfsmenntaráðs.
Áherslur Starfsmenntaráðs við úthlutanir
úr starfsmenntasjóði 2002.
Dagskrá:
Starfsmenntaráð starfar
samkvæmt lögum nr.
19/1992 um starfsmenntun í
atvinnulífinu. Það úthlutar
styrkjum til starfsmenntunar
og er stjórnvöldum til
ráðuneytis um stefnumótun
og aðgerðir á sviði
starfsmenntunar.
Opinn fundur
„VIÐ höfum haft mikið að gera og
hótelið er fullbókað næstu helgar.
Hérna er líka nægur snjór, enda
hafa fallið um 40-50 sentimetrar af
snjó í janúar. Núna eru allar 132
brautir skíðasvæðisins og 26 lyftur
opnar,“ segir Magnús Þórsson,
sem rekur fjallahótelið Gray Ghost
Inn í Vermont-ríki í Bandaríkj-
unum.
Magnús og Carina eiginkona
hans keyptu fjallahótelið um mitt
ár 2000. Þangað sækir skíðafólk að
vetrarlagi, enda er Mount Snow
skíðaparadís, að sögn Magnúsar. Á
sumrin kemur fólk til gönguferða,
nýtir auðar skíðabrautirnar í ferð-
ir á fjallahjólum og spreytir sig á
veiði í nálægum ám.
„Rekstur hótelsins hefur gengið
vel og nýtingin alltaf verið að
aukast,“ segir Magnús. „Við erum
vel í sveit sett. Skíðasvæðið blasir
við út um gluggann og rúta, sem
flytur skíðafólk að lyftunum,
stoppar fyrir utan hjá okkur.“
Gestir á nærhaldinu?
Magnús segir að nokkuð hafi
verið um að Íslendingar sæki Gray
Ghost Inn heim. Hann segist eitt
sinn hafa reiknað það út, að um
þriðjungi ódýrara væri fyrir Ís-
lendinga að koma til þeirra í viku-
skíðaferð en í sambærilega ferð til
ítölsku Alpanna. „Við erum í 2½
tíma akstursfjarlægð frá Boston
og um 4½ tíma fjarlægð frá New
York. Eini gallinn er sá, að vélar
Flugleiða lenda í þessum borgum
að kvöldlagi, þegar fólk er búið að
missa af rútunum hingað. Við höf-
um til dæmis gripið til þess ráðs
að vísa fólki á gistiþjónustu í Bost-
on, sem rekin er af Íslendingum.“
Skíðafólk þarf ekki að hafa með
sér neinn búnað til að skíða í Mo-
unt Snow. „Fólk getur nánast
komið á nærhaldinu, því hérna er
hægt að leigja allan búnað, jafnt
skíði sem snjóbretti og viðeigandi
klæðnað. Þeir sem vilja ekki
svigskíði eða snjóbretti geta leigt
sér gönguskíði, snjóþrúgur, vél-
sleða eða hestasleða, eftir því
hversu hratt þeir vilja fara yfir.
Og svo er að sjálfsögðu boðið upp
á skíðakennslu. Ég get nú samt
ekki lofað því að byrjendur nái að
fara niður bröttustu brekkuna
hérna. Á henni er 37 gráðu halli og
hún er brattasta skíðabrekkan á
austurströnd Bandaríkjanna.“
Silungar á sumrin
Við Mount Snow eru tveir
smábæir, Willington og West Dov-
er, en þar er Gray Ghost Inn.
Magnús segir að þótt bæirnir séu
litlir sé þar ógrynni veitingastaða.
Sjálfur sér hann um að elda morg-
unverð fyrir þá sem gista hin 26
herbergi Gray Ghost Inn. „Við
bjóðum upp á ríflegan morgunverð
að amerískum hætti, pönnukökur,
beikon, pylsur og fleira í þeim dúr.
Það er mjög gefandi að finna hvað
fólk kanna að meta þann persónu-
lega blæ sem er á rekstrinum.“
Magnús er mikill áhugamaður
um stangveiði og kennir sumar-
gestum sínum handtökin við flugu-
veiðina endurgjaldslaust. „Hérna
eru þrjár tegundir, bandarískur
ættingi bleikjunnar sem kallast
brook trout, urriði og silungur. Ég
hef aðallega fengist við að veiða
brook trout, sem er í straumvatni.
Fiskarnir eru smærri en heima,
svona um 1-2 pund, en hérna er
hægt að nota fínni flugu, því ekki
er rokinu fyrir að fara. Ég hef all-
ar græjur, þar á meðal mjúkar
flugustangir til kennslu sem ég
smíða sjálfur.“
Auk Magnúsar og Carinu telur
fjölskyldan í Gray Ghost Inn tvær
dætur, Nataliu, sem er þriggja
ára, og Emmu, sem er fimm mán-
aða. Emma kom í heiminn sama
dag og gestir fóru út af öllum 26
herbergjunum og þau fylltust að
nýju. „Til allrar hamingju var hún
komin í heiminn um hálffjögur að
nóttu, svo ég komst heim á hótel
til að útbúa morgunverðinn fyrir
alla gestina,“ segir Magnús Þórs-
son hóteleigandi í Vermont.
Fullt hús
skíðafólks
í Gray
Ghost Inn
Hótelið Gray Ghost Inn í Vermont.
Hjónin Carina og Magnús, ásamt
dætrunum Emmu og Nataliu.
Gray Ghost Inn
Route 100 North P.O. Box 938
West Dover, Vermont 05356
Sími (802) 464-2474
Fax (802) 464-5236
innkeeper@grayghostinn.com
Hvernig liðu áramótin í New
York?
„Við bjuggum á hótelinu Millenium
Broadway sem er á Times Square
torginu og heyrðum m.a. í Billy
Joel og Madonnu út um gluggann
þegar nýtt ár var að nálgast og
beðið var eftir að „speglakúlan“ væri látin falla hjá torginu. Það var einn-
ig verið að skipta um borgarstjóra á miðnætti og mikil stemmning. Talað
var um að nálægt 700.000 manns hefðu verið þarna á götum úti og það
var því gífurleg öryggisgæsla, þúsundir lögreglumanna og hermanna.“
Fóruð þið í skoðunarferðir?
„Já við kíktum til dæmis á Empire State bygginguna, frelsisstyttuna og
virtum fyrir okkur rústirnar þar sem tvíburaturnarnir stóðu áður ásamt
því að fara á vaxmyndasafn Madame Tussaud. Yngri syni mínum fannst
þó mest til Chrysler byggingarinnar koma.“ Eymundur hefur heimsótt
ýmsar stórborgir í Bandaríkjunum áður t.d. Washington, Boston, Or-
lando, Minneapolis og San Francisco en New York segir hann að hafi ver-
ið allt öðruvísi.
Hvað kom þér á óvart?
„Stærðin á borginni og sú gífurlega öryggisgæsla sem er allsstaðar. Til
að komast í skoðunarferð út á flóann var t.d. gerð vopnaleit.“
Eruð þið farin að velta fyrir ykkur sumarfríi?
„Við stefnum á Evrópu í sumar en hvert er enn óráðið. Venjan er að fara
að minnsta kosti til London en þar býr bróðir minn og þaðan förum við
eitthvað áfram. Það gerðum við t.d. sumarið 2000. Þá skipulögðum við
frábært frí á Sardiníu með aðstoð ferðaskrifstofunnar Citalia. Hótelið
sem við gistum þar á heitir Forte Village sem var einstaklega skemmti-
legt og ég sá að í einhverju tímaritinu var það valið eitt af þeim tíu bestu
í heimi. Á Sardiníu búa um tvær milljónir manna og við komumst ein-
ungis yfir að skoða lítinn hluta eyjarinnar.“
Eftirminnilegasta frí sem þú hefur farið í?
„Líklega stendur uppúr ferð til San Francisco. Borgin er ótrúlega sjarm-
erandi og líklega hef ég aldrei gengið eins mikið á ævinni. Það voru
margir staðir að skoða
Hefurðu rekist á skemmtilegt veitingahús á þessum ferðalögum?
„Á veitingastaðnum 1789 í Washington DC fékk ég besta mat sem ég hef
fengið á veitingahúsi, sverðfisk. Þá var líka gaman að koma á veitinga-
húsið Grotta Azurra í Vínarborg. Þeir sem heimsækja San Francisco
verða að smella sér á Irish Coffee á „Buena Vista“ em er staðsettur í Fis-
hermans Wharf hverfinu.“
Eyddi áramótun-
um í New York
Eymundur Sveinn Einarsson
eyddi áramótunum í New
York ásamt konunni sinni,
Ásgerði Óskarsdóttur, og
sonunum Búa og Einari sem
eru 10 og 14 ára.
Nánari upplýsingar um veitingahús í Washington er hægt að
nálgast á slóðinni: http://www.sallys-place.com/food/
dining_directory/north_america/washington.htm Veitinga-
húsið 1789 1226 36th Street NW - Georgetown Washington,
D.C. 20007 Sími: 00(202) 965-1789 Hótelið á Sardiníu heitir
Forte Village Resort, (I-09010) Santa Margherita di Pula, Cagl-
iari, Sardegna, Italy http://www.fortevillage.com
Hvaðan ertu að koma?