Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
NÝ gerð Toyota Corolla kom á
markað í byrjun árs. Bíllinn markar
tímamót í sögu Corolla því þetta er
níunda kynslóð bílsins og auk þess
er hann gjörbreyttur og meira mið-
aður við þarfir Evrópubúa en áður.
Sagt hefur verið frá hlaðbaks- og
langbaksgerð bílsins á þessum vett-
vangi en á dögunum var prófuð T-
Sport útfærsla bílsins. T-Sport er
aflmeiri útfærsla af bílum Toyota og
hefur þegar komið á markað Yaris
T-Sport. T-Sport er með meiri bún-
aði en hefðbundnar gerðir bílsins,
má þar m.a. nefna spólvörn, álfelgur
og fleira.
Blaðinu snúið við
Það er ekki annað hægt en að dást
að nýjum Corolla. Eldri gerðir bíls-
ins hafa selst eins og heitar lummur í
gegnum tíðina en samt ekki haft orð
á sér að vera með fallegustu eða
mest spennandi akstursbílum. Cor-
olla hefur hins vegar alltaf komið vel
út í gæðakönnunum og þótt áreið-
anlegur og bilanafrír. Nú hefur
Toyota snúið algerlega við blaðinu.
Bíllinn er hannaður í Frakklandi
fyrir Evrópubúa. Fyrir utan miklar
útlitsbreytingar er bíllinn jafnframt
orðinn mun rúmbetri og hæfir þar
með betur hávaxnari Evrópubúum.
Það fer vel um bílstjórann og hann
hefur nóg rými til að athafna sig.
Gírstöngin er fremur lítil og þægi-
lega staðsett. Laglegra yfirbragð er
yfir mælaborðinu og greinilega orðin
mikil framför í efnisvali. Ökumaður
hefur sömuleiðis gott útsýni þrátt
fyrir að fremsti gluggapósturinn sé
þykkur og breiður. Hægt er að stilla
hæð sætisins en ókostur er hins veg-
ar að ekki er aðdráttur í stýrinu.
Breiðari og hærri
Nýi bíllinn er svipaður á lengd og
fyrri gerð en hann er mun breiðari
og hærri sem finnst strax þegar sest
er inn í bílinn. Nóg pláss er í aft-
ursætum fyrir þrjá, jafnt fóta- og
höfuðrými. Á hinn bóginn er farang-
ursrýmið ekki stórt en auðvelt er að
stækka það með því að fella niður
sæti.
Corolla T-Sport er fimm dyra
hlaðbakur og hefur allt til að bera til
að vera hinn hentugasti fjölskyldu-
bíll en hann hefur upp á miklu meira
að bjóða. T-Sport merkingin felur í
sér að út úr 1,8 lítra vélinni er búið
að ná heilum 192 hestöflum. Þetta er
sama vél og menn þekkja úr Celica.
Þetta er svokölluð VVTL-i vél sem
felur í sér ventlastýrikerfi sem
breytir opnunartíma ventlanna og
ákvarðar jafnframt hversu mikið
þeir opnast. Kostirnir eru mikil af-
köst en lágmarkseyðsla. Í blönduð-
um akstri er eyðslan t.a.m. ekki
nema 8,3 lítrar, sem er vel sloppið
miðað við afköst vélar.
Stöðugur á miklum hraða
Þetta er aflmesta vél sem fram-
leidd hefur verið í Corolla og við
hana er tengdur sex gíra handskipt-
ur gírkassi. Bíllinn er lágt gíraður og
því afar sportlegur í akstri. Upptak-
ið er sagt 8,4 sekúndur, sem kannski
veldur sumum vonbrigðum, en með
því að aftengja spólvörnina er bíllinn
talsvert frískari en uppgefnar hröð-
unartölur segja til um. Engu að síð-
ur er millihröðunin eftirtektarverð-
ari og bíllinn er stöðugur og rásviss
á miklum hraða. Staðalbúnaður er
16 tommu álfelgur og 195/55 hjól-
barðar og hafði bíllinn tilhneigingu
að leita í hjólför á götum borgarinn-
ar.
T-Sport er dæmigerður GTI-bíll,
þ.e. aflmeiri og sportlegri útgáfa af
venjulegum götubíl, en ekki hrein-
ræktaður sportbíll. Bíllinn kostar
2.490.000 kr. og virðist fyllilega sam-
keppnisfær í verði miðað við búnað.
Staðalbúnaður er m.a. álfelgur,
ABS+EBD, fjórir loftpúðar, spól-
vörn, geislaspilari og sex gíra hand-
skiptur gírkassi. Helstu keppinaut-
arnir eru e.t.v. VW Golf 1,8 GTI, sem
kostar 2.450.000 kr. eða enn aflmeiri,
218 hestafla, fjórhjóladrifinn Subaru
Impreza WRX, sem kostar 3.080.000
kr.
Morgunblaðið/Þorkell
T-Sport er hinn dæmigerði GTI-bíll.
Corolla T-Sport – aflmikill og sparneytinn
REYNSLUAKSTUR
Corolla T-Sport
Allur frágangur er vandaður og efnisval gott. Laglegur afturendi og stórt púströr gera bílinn sportlegan.
Staðalbúnaður er 16 tommu álfelgur.
Vélin er með VVTL-i búnaði og skilar að hámarki 192 hestöflum.
gugu@mbl.is
Vél: 1.796 rsm., fjórir
strokkar, 16 ventla
VVTL-i.
Afl: 192 hestöfl við 7.800
sn./mín.
Tog: 180 Nm við 6.800
sn./mín.
Fjöðrun: McPherson að
framan, snúningsfjöðrun
að aftan.
Lengd: 4.180 mm.
Breidd: 1.710 mm.
Hæð: 1.475 mm.
Eigin þyngd: 1.255 kg.
Farangursrými: 289 lítrar.
Hemlar: Diskar að framan
(kældir) og aftan, ABS-
EBD.
Hjólbarðar: 195/55 VR,
16" álfelgur.
Hröðun: 8,4 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði: 225 km/
klst.
Eyðsla: 8,3 l í blönduðum
akstri.
Verð: 2.490.000 kr.
Umboð: P. Samúelsson hf.
Toyota Corolla
T-Sport