Morgunblaðið - 03.02.2002, Qupperneq 18
– „Þegar það var rafmagnslaust í síðustu viku var ég fastur í lyftu í þrjá tíma.“
– „Það er nú ekkert! Ég var fastur í rúllustiga í fjóra tíma!“
(Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir)
en ég hef reynt hvort
tveggja.“
Manstu einhvern góðan
barnabrandara?
„Já, ring ring.
Raggi: Halló, er Hralli
heima.
Lalli: Það á enginn Hralli
heima hér.
Raggi: Nú, mér heyrist
þetta vera Hralli, þetta er
Raggi hérna.
Lalli: Æ, ert þetta þú
Raggi, hættu að kalla mig
Hralla það fer í taugarnar
á mér, hvað ertu að spá?
Raggi: Ég var að spá hvort þú
vildir koma í heimsókn til mín að
horfa á Hrukku Hráka.“
Garnirnar raktar úr fyndnasta manni Íslands
Sá sem nú ber titilinn fyndnasti maður Ís-
lands heitir Úlfar Linnet og er gáfulegi
náunginn hérna með bláa hjálminn. Hann
er auðvitað mjög skemmtilegur og var
meira en lítið til í að spjalla við barnablað-
ið.
Bara þægur og kurteis
Hefur þú alltaf verið fyndinn?
„Nei, ég var ekki fyndið barn, ég var
svo vel upp alinn og þægur að ég bullaði
aldrei neitt, þuldi bara upp reglur um
kurteisi og framkomu í hvert skipti sem
ég opnaði munninn.“
Hvað var það fyrsta fyndna sem þú
gerðir eða sagðir?
„Hummmm... mér fannst það ekki
fyndið þá en ég fór að gráta þegar ég
komst að því að mér er það lífsins ómögu-
legt að blikka bara vinstra auganu og
halda því hægra opnu á meðan. Þá var ég
5 ára, núna er ég 21, og hefur lítið farið
fram.“
Hvernig varðstu fyndinn?
„Ég held að einn morguninn þegar ég
geispaði mikið hafi púki farið inn um
munninn og ofan í maga og búi þar. Þá
hætti ég að vera kurteis og fór að fíflast
og vera með læti, það þótti mér fyndið.“
Spýtukarl og legokarl!
Geturðu gefið krökkum ráð í sambandi
við uppistand?
„Já, mér finnst mest gaman að heyra
brandara sem eru frumsamdir, og þegar
maður er með uppistand er gott að segja
sögur sem maður hefur upplifað eða sam-
ið.“
Er gaman að vera brandarakarl?
„Já, það er mjög gaman, það er alla-
vega miklu skemmtilegra að vera brand-
arakarl heldur en spýtukarl eða legokarl,
„Ég get ekki blikkað með vinstra auga!“
Frumsamdir
brandarar bestir
Litið Guffa
Sumir páfagaukar geta sagt brandara. Það er fyndið. Í mörgum teiknimynd-
um, eins og Tomma og Jenna, eru dýr fyndin. Ef maður fer í fjölleikahús má
stundum sjá dýr gera ótrúlega fyndna hluti. En reyna dýr einhvern tímann
að vera fyndin? Er ekki kímnigáfa eitthvað sem tilheyrir bara manneskjunni?
Áþessum myndum er kínverski bambusbjörnin Yingying að sýna listir
sínar en hann kann að herma eftir mannfólkinu á marga vegu.
Er það ekki einmitt málið? Okkur þykir fyndið að sjá dýr herma eftir okkur.
Ef manneskja myndi gera það sama og Yingying, myndum við þá hlæja?
Varla…
Eru dýr fyndin?
Nú hafa dómararnir í brand-
arakeppninni legið dag og nótt
yfir innsendu bröndurunum.
Það var úr miklu að moða og
erfitt að komast að niðurstöðu,
enda greinilega mikið um góða brand-
arakarla og -kerlingar hér á landi. Dómnefndina skip-
uðu Þorgrímur Kári Snævarr, 8 ára, Gríma Björg
Thorarensen, 10 ára, og Árni Dagur Magnússon, 12
ára. Þeir tíu sem áttu bestu brandarana eru:
Alda Rún Ingþórsdóttir, 10 ára
Alexandra Garðarsdóttir, 11 ára
Björg Georgsdóttir, 11 ára
Gróa Ómarsdóttir, 11 ára
Heiðrún Kristinsdóttir, 11 ára
Íris Tanja Ívarsdóttir, 12 ára
Jóna Rán Pétursdóttir, 10 ára
Jóakim Pálsson, 10 ára
Jón Kristján Jónsson, 8 ára
Katrín og Ásta Magnúsdætur, 7 ára
Þeir vinningshafar sem komast munu mæta í
Ævintýraland í Kringlunni kl. 15 í dag og segja
brandarana sína uppi á sviði, auk þess að taka við
verðlaununum sínum. Skorað er á sem flesta grínara
að koma, en aðgangseyrir er 400 krónur fyrir fyrsta
klukkutímann. Allir sem koma mega fara upp á svið
og segja sinn brandara og láta reyna á hvort leynist
í þeim grínaragenið …
Gaman, gaman!
Uppistand í Ævintýralandi í dag
Leynist í þér
grínaragen?
Þessi leikur getur verið ótrúlega fyndinn. Þið þurfið
að taka maskínupappír og hengja fyrir dyrnar. Síðan
skerið þið litla rifu á pappírinn. Þið skiptist á að stinga
nefinu í gegnum rifuna og sá sem er ’ann á að giska á
hver á nefið. Það má strjúka smá og pota en ekki
meiða. Þegar sá sem er ’ann giskar rétt á nefeigand-
inn að giska næst.
Nef,
nef,
seg þú
mér …
Þessi kímnisaga (fínt orð fyrir
brandara) er í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar og sannar að Íslend-
ingar hafa löngum verið fyndið
fólk.
Einu sinni voru kóngur og
drottning í ríki sínu. Þau áttu sér
eina dóttur. Kóngur hafði lofað
hverjum þeim dóttur sinni, sem
segði sér það, sem hann tryði eigi.
Ekkjusonur einn tók sig til og
bauðst til að segja kóngi sögu:
„Ég var eitt sinn hjá móður
minni í eldhúsi. Hún þeytti ofan af
undanrennu svo kröftuglega að
þeytiáhaldið náði upp um eldhús-
strompinn og allt upp til himna.
Þá tók ég eldhússkörung móður
minnar og pjakkaði mig með hon-
um upp til himna.“
„Hvað var þar starfað?“ spyr
kóngur.
„Frelsarinn bar upp hey, sankti
Pétur flutti heim heyið á rauðkúf-
óttri meri, María bakaði brauð og
gaf mér eina brauðköku.
Síðan vildi ég heim, og þegar ég
kom á himnabarminn, settist ég
niður og leitaði mér lúsa, tók úr
þeim allar garnirnar, hnýtti þær
saman á festi, batt festarendann
við himnabarminn og rann niður
eftir festinni.
Þegar hún var á enda sá ég
naut vera að drekka við læk beint
fyrir neðan mig. Ég sleppti fest-
inni, en nautin höfðu séð mig og
litið upp, og lenti ég í kjafti lang-
stærsta nautsins. En þér áttuð öll
nautin, konungur.
Þegar ég var kominn ofan í
nautið var þar fagurt um að litast
og gekk ég herbergi úr herbergi
aftur í nautið. Síðast kom ég í
langskrautlegasta herbergið. Þar
sátu tólf við borð og voruð þér
innstur, herra minn.“
„Þar lýgur þú,“ sagði konungur,
„aldrei hef ég í nautsrassi verið.“
Og fékk þá strákur konungs-
dóttur.
Himnaförin
Hér koma nokkrar síður þar
sem sem hægt er að lesa
brandara á Netinu.
www.trassi.is/3/5.html
ms.is/magni
www.spirall.is/krakkar/brandarar.html
www.emmess.is/skemmtun/brandarar.htm
www.ma.is/nem/harpaelin/jokes.htm
frontpage.simnet.is/bsig/brandarar1.htm
www.ismennt.is/not/bjorgvk/gullmoli.htm
Nokkrir góðir
á Netinu
Einn góður …