Morgunblaðið - 03.02.2002, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 B 21
bíó
JEAN Reno er einn örfárra evrópskra
leikara sem njóta alþjóðlegrar
frægðar; hann er ekki alveg orðinn
stjarna en á beinni braut að því
marki. Nú hafa Kanar endurgert
hans stærsta smell í Frakklandi,
gríndellumyndina Les Visiteurs,
undir heitinu Just Visiting, og leikur
Reno sem fyrr aðalhlutverkið ásamt
Christian Clavier. Hún hefur ekki bein-
línis slegið í gegn vestra en styrkir
áreiðanlega stöðu leikarans í Holly-
wood engu að síður.
Juan Moreno heitir hann réttu nafni
enda af spænskum ættum, fæddur í
Casablanca í Marokkó fyrir 53 ár-
um. Foreldrar hans höfðu flúið Spán
undan einræðisstjórn Francos og
settust að í Norður-Afríku. Reno
minnist æskuáranna í Marokkó sem
sælutíma, þar sem hann í fimm vina
hópi naut lífsins á heitri ströndinni
og í kvikmyndhúsum við að dást að
amerískum leikurum á borð við John
wayne, William Holden, Marlon Brando og
James Stewart, og frönskum eins og
Jean Gabin og Louis Jouvet. Þegar sex
daga stríðið braust út hrökklaðist
fjölskyldan til Frakklands og gerð-
ist franskir ríkisborgarar. Tvítugur
að aldri var Reno kallaður til her-
þjónustu í Marseilles en þegar frétt-
ist að hann hafði sótt leiklistarskóla í
Casablanca var hann settur yfir
lista- og skemmtideild hersins og
tókst að sleppa við hermennskuna
að mestu. Að lokinni árslangri her-
þjónustu hélt Reno til Parísar og
gerðist leiklistarnemi, fékk lítið að
gera en kynntist fullt af konum, eins
og hann segir sjálfur. Á 8. áratugn-
um tókst honum þó að vinna til hnífs
og skeiðar í leikhúsum og sjónvarpi
og 1979 fékk hann hlutverk í mynd
Costa Gavras Clair de femme sem
vakti á honum nokkra athygli. Fleiri
hlutverk fylgdu, m.a. alls kyns töff-
arahlutverk, en það var ekki fyrr en
1981, þegar hann kynntist leikstjór-
anum Luc Besson, að ferill hans tók
fjörkipp. Hann fékk aðalhlutverkin í
fyrstu myndum Bessons, L’avant
dernier (1981) og Le dernier combat
(1983), sem hann lék í fyrir 500
franka. Myndin sló rækilega í gegn
og hreppti fjölda verðlauna. Reno
kom hingað til lands og kynnti hana
á Kvikmyndahátíðinni í Reykjavík,
rólegur maður að sjá en drjúgur í
skemmtanalífinu.
Næstu Besson-myndir, Subway
(1985), þar sem Reno lék auka-
hlutverk, og umfram allt Le grand
bleu (1988), þar sem hann lék kafara
og keppti við Jean-Marc Barr um ástir
Roseanna Arquette, juku mjög hróður
hans. Hann var orðinn stjarna í
heimalandinu, ef ekki víðar, yfirgaf
konu sína og tvö börn og lagðist í
kvennafar og ferðalög. Um það
tímaskeið lífsins hefur hann sagt að
hóglífið og kvennamálin hafi sem
næst gert út af við sig. En hann tók
mark á því þegar viðvörunarbjöllur
hringdu og 1991 hellti hann sér út í
nýtt verkefni með vini sínum Besson.
Það var La femme Nikita, þar sem
hann lék leigumorðingja og hann
þróaði það hlutverk enn frekar í
næstu mynd þeirra, smellinum Léon
(1994), sem vakti mikla athygli á
honum í Hollywood, enda myndin
gerð vestra og á ensku. Í Léon lék
Reno mannlegan, viðkvæman leigu-
morðingja sem gerist verndari 12
ára stúlku (Natalie Portman). Þrátt
fyrir blóðugar ofbeldissenur er
Léon í kjarnanum ástarsaga, en hún
þótti svo hrottaleg að 23 mínútur
voru klipptar burt fyrir bandarískan
markað.
Hollywood tók nú þessum stæði-
lega Frakka tveim höndum. Hann
lék í French Kiss (1995), á móti Tom
Cruise í Mission: Impossible (1996)
og reyndi fyrir sér í gamanleik í
Roseanna’s Grave (1997) án mikils
árangurs. Reno hentar óneitanlega
best í hasarmyndir og hann var með
því skásta í skrímslinu Godzilla
(1998); hafnaði hlutverki í mun
skárri mynd, The Matrix, til að geta
þegið það hlutverk. Hann var tölu-
vert heppnari þegar hann lék með
Robert DeNiro í spennumyndinni Ron-
in (1998) undir stjórn Johns Franken-
heimer.
Reno hélt jafnframt áfram að leika
í heimalandinu Frakklandi og býr
nú til skiptis í Los Angeles og París.
Hann hafði átt vinsælustu mynd
franskrar kvikmyndasögu, Les Vis-
iteurs, árið 1993, gamanmynd um
tímaflakk tveggja miðaldariddara til
núsins. Þetta var óttaleg della og
bauð upp á meiri hamagang en
raunverulegan húmor, en vinsældir
átti hún ómældar og framhalds-
mynd, engu skárri, var óumflýjanleg
(1998). Enn er reynt að kreista sítr-
ónuna með Just Visiting, sem nú er
frumsýnd hérlendis; þar lenda ridd-
ararnir í Chicago. Við sáum Reno í
fyrra í stemmningsríkri en götóttri
franskri spennumynd Les riviéres
poupres þar sem hann sýndi sínar
bestu hliðar sem ábúðarmikil rann-
sóknarlögga. Og senn hillir undir
endurgerð Rollerball, þar sem Reno
er í enn einu hasarhlutverkinu.
Franski
hasarhólkurinn
Hann er með þeim vörpulegri, hár og
þrekinn, og hefur gjarnan leikið hörkutól.
Lifað, gjarnan órakað andlitið er ekki
svipbrigðaríkt en í hálfluktum augum
Jeans Reno vottar fyrir sorg og við-
kvæmni, sem gerir persónusköpun hans
flóknari en hún virðist í fljótu bragði.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
segir um langt og farsælt
samstarf þeirra Luc Besson:
„Við erum eins og bræður;
við skiljum hvor annan á
augabragði og höfum sífellt
samráð um starfslegar
ákvarðanir.
Ekki svo að skilja að við
tökum alltaf mark hvor á
öðrum; samband okkar er
stundum erfitt.“
Jean
Reno
Borgarfræðasetur boðar til ráðstefnu
Allir velkomnir.
mánudaginn 4. febrúar 2002 kl. 13:15-16:30
í Hátíðarsal, aðalbyggingu Háskóla Íslands
Ríki, borg og sveitarfélög
Stjórnskipuleg tengsl og samskipti
Pallborðsumræða frummælenda
Fundarstjóri: Jón Sigurðsson, bankastjóri NIB,
stjórnarformaður Borgarfræðaseturs
Dagskrá:
Setning: Páll Skúlason, háskólarektor
1. Ávarp forsætisráðherra, Davíðs Oddsonar.
2. Ávarp borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Frummælendur:
3. Stefán Ólafsson, forstöðumaður Borgarfræðaseturs:
Inngangur: Breytt búseta og breytt alþjóðlegt umhverfi borga
4. Sigurður Líndal, prófessor:
Ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstæði sveitarfélaga
5. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor:
Staðbundin stjórnmál á Íslandi – verkaskipting og virkni.
6. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga:
Staða sveitarfélaganna og samskipti þeirra við ríkisvaldið.
7. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði:
Sambúð sveitarfélaga og ríkis: Sjónarhorn af landsbyggð.
8. Sigfús Jónsson, landafræðingur og ráðgjafi hjá Nýsi hf.:
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu - hvert stefnir?
DILBERT mbl.is