Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 31
AGNAR Már Magnússon hefur
þegar skipað sér á bekk með fremstu
píanóleikurum íslenskrar djasssögu.
Hann var ungur kallaður heim frá
námi í Hollandi til
að leika hlutverk
goðsagnar ís-
lenska djasspían-
ósins, Jonna í
Hamborg, og lék
þá m.a. dúó með
nestor íslenskra
djasspíanista,
Árna Elfar. Eng-
inn íslenskur
djasspíanisti
stendur Agnari
framar nú um
stundir nema Ey-
þór Gunnarsson.
Kristján Magnús-
son hættur að
spila, Kjartan
Valdimarsson
leikur sjaldan
djass en Davíð
Þór Jónsson
bankar á dyrnar.
Selfossdívan Kristjana Stefáns-
dóttir er fyrsta íslenska atvinnudjass-
söngonan og verðugur fulltrúi í söng-
kvennakvintett íslenskrar djasssögu
ásamt Sigrúnu Jónsdóttur, Ellý Vil-
hjálms, Ellen Kristjánsdóttur og
Andreu Gylfadóttur. Hún og Agnar
sendu frá sér fyrsta flokks djassskíf-
ur fyrir jólin; Agnar 01 með banda-
rískri hrynsveit og Kristjana disk
sem bar hið einfalda nafn: Kristjana.
Agnar Már fór fyrir hljómsveitinni og
einn dúett áttu þau þar: Sweet Lor-
raine. Í Norræna húsinu urðu dúett-
arnir ellefu, en í tveimur verkanna,
Autumn leaves eftir Josep Kosma og
Journey to Iceland eftir Tómas R.
Einarsson, lék Helga Björg Ágústs-
dóttir með þeim á selló. Þau voru öll
samskipa við nám í Hollandi. Sellóið
bætti nýrri vídd við flutning Agnars
og Kristjönu og hljómaði dásamlega í
troðfullum sal Norræna hússins.
Tómas er eitt alfremsta djasstón-
skáld okkar og ekki dró hið undur-
samlega ljóð W.H. Audens úr áhrifa-
mætti Íslandsfararinnar.
Þetta voru ekki tónleikar söngkonu
með píanóundirleik heldur var fullt
jafnræði með þeim Agnari Má og
Kristjönu og hugmyndaríkur undir-
leikur hans og magnaðir sólóar lyftu
tónleikunum í hæðir. Vinstri höndin í
Lullaby of Birdland, eftir hinn vin-
sæla breska djasspíanista George
Shearing, eða þá í söngdansi Jeromes
Kerns, The Way You look Tonight,
var upp á klassískasta djassmáta og
með skvettu af Peterson í sóló. Aftur
á móti eiga þeir Agnar ekki margt
sameiginlegt. Hann er af skóla im-
pressjónimans, sem Bill Evans leiddi
til öndvegis í djassinum, eins og Ey-
þór Gunnarsson og þótt mönnum
detti þá Debussy oftar en ekki í hug
er jarðbundinn kraftur og sveifla þar
ekki síðri aflvaki eins og í leik Agnars
Más í Jody Grind Horaces Silvers.
Þótt söngdansar Georges Gershw-
ins, Someone To Watch Over Me, og
Richards Rodgers, It Never Entered
My Mind, yrðu dálítið flatir í túlkun
Kristjönu tókst henni að gæða tvær
klassískar ljóðaperlur nýju lífi. Fra-
sering Kristjönu í upphafi Misty Er-
rolls Garners var dásamleg, söngur
hennar í Lush life eftir Billy Stray-
horn makalaus; túlkun þeirra á því
snilldarverki var fágætlega glæsileg,
meira að segja brá fyrir stríðum
hljómum, sem undirstrikuðu aðeins
mýkt verksins.
Auðvitað skattaði Kristjana stund-
um af lífi og sveiflu og það er hægt að
gera með píanista á borð við Agnar
Má sér við hlið.
Megum við fá meira að heyra.
Stórkost-
legur ljóða-
djass
DJASS
Norræna húsið
Kristjana Stefánsdóttir söngur, Agnar
Már Magnússon píanó og Helga Björg
Ágústsdóttir selló. Sunnudaginn 3. febr-
úar.
AGNAR OG KRISTJANA
Vernharður Linnet
Kristjana
Stefánsdóttir
Agnar Már
Magnússon
„TOLLI er afbragðsgott ljóðskáld
og hefur gefið út tvær ljóðabækur
en hann er þó umfram allt þekktur
sem listmálari,“ segir í þýska
blaðinu Magdeburger Volksstimme
en nú er verið að sýna nokkur
verka Tolla í viðskiptaráðuneyti
Sachsen-fylkis í Magdeburg. „Hann
er sífellt að töfra fram á léreftið
landslag heimkynna sinna. Tolli
kemur litasamspili náttúru þessa
harðgerða útkjálka í norðri vel til
skila í alls kyns afbrigðum. Með
frjóum augum og opnu hjarta lista-
mannsins horfir hann á þetta ey-
land, sem við fyrstu sýn virðist svo
eyðilegt. Án velþóknunar og mik-
illar ástar á landinu væri ekki
mögulegt að mála slíkar myndir.“
Í Elbe Zeitung segir að af mynd-
um Tolla stafi innri ró en verkin séu
í senn kröftug og litsterk. Af mynd-
um Tolla skynji áhorfandinn bar-
áttu Íslendinga við eldfjöll, jökla,
hafið og hinn langa og dimma vet-
ur. Þesssi náttúra endurspegli eins
konar þjóðerniskennd sem beinist
einkum inn á við og hafi löngum
einkennt menningu og list Íslend-
inga.
Málverk frá út-
kjálka heimsins
Tolli (fyrir miðju) við opnun sýningarinnar í viðskiptaráðuneytinu í
Magdeburg á dögunum. Með honum eru Alfreð Gíslason handknatt-
leiksþjálfari og Manfred Maas, ráðherra í Sachsen-fylki.