Morgunblaðið - 07.02.2002, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 47
Sófa
dagar
Sveit Ljósbrár
Baldursdóttur vann
parasveitakeppnina
Sveit Ljósbrár Baldursdóttur
sigraði í Íslandsmótinu í parasveita-
keppni sem fram fór í nýju húsnæði
Bridssambandsins í Síðumúlanum
um helgina. Í sveitinni spiluðu
Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías
Þorvaldsson, Þorlákur Jónsson,
Jacqui McGreal og Jón Baldursson.
Keppnin var annars mjög jöfn og
spennandi. 21 sveit spilaði og voru
spilaðar 7 umferðir með Monrad-fyr-
irkomulagi. Fyrir síðustu umferðina
var staðan svo tvísýn að 8 sveitir
gátu unnið mótið.
Lokastaða efstu sveita:
Ljósbrá Baldursdóttir 136
Kristjana Steingrímsdóttir 130
Halldóra Magnúsdóttir 124
ÍRIS 121
Hjördís Sigurjónsdóttir 120
Dröfn Guðmundsdóttir 118
Þetta mót var fyrsta keppnin sem
haldin er í nýstandsettu húsnæði
Bridssambandsins í Síðumúla 37.
Húsnæðið var keypt í haust af lækn-
um og fékk sambandið lyklavöldin
27. desember sl. Var þá hafist handa.
Allt var hreinsað út af hæðinni og
húsnæðið nánast gert fokhelt.
Arnfríður Sigurðardóttir arkitekt
hannaði húsnæðið upp á nýtt með
þarfir bridsspilara í huga. Þá kom
Baldur Jónsson byggingameistari að
verkinu auk margra annarra iðnað-
armanna sem margir tengjast
bridsíþróttinni.
Í byggingarnefnd voru Þorlákur
Jónsson, Sigtryggur Sigurðsson og
Stefanía Skarphéðinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bridssambandsins.
Forseti Bridssambands Íslands er
Guðmundur Ágústsson.
Þau sigruðu í Íslandsmótinu í parasveitakeppni sem fram fór um
helgina. Talið frá vinstri: Þorlákur Jónsson, Jacqui McGreal, Ljósbrá
Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Fjöldi gesta mætti í hóf sem haldið var í lok parasveitakeppninnar en Bridssamband Íslands hélt upp á dag-
inn í tilefni þess að flutt var í ný húsakynni í Síðumúla 37 á laugardag. Sambandið hefir nú fengið varanlegan
samastað á ný en húsnæðið í Þönglabakkanum var selt fyrir nokkrum mánuðum.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 31. janúar hófst
aðalsveitakeppni félagsins með þátt-
töku 14 sveita.Vegna gífurlegs
áhuga á EM í handbolta var ákveðið
að spila síðasta kvöldið fyrst þannig
að spilarar gætu horft á leik Íslands
og Þjóðverja. Allir spilarar röltu nið-
ur á Catalinu og fylgdust með leikn-
um, síðan var spilaður einn leikur í
sveitakeppninni.
Nokkrar sveitir eru efstar og jafn-
ar eftir einn leik en keppnin heldur
áfram fimmtudaginn 7. febrúar.
Spilað er í Þinghóli í Hamraborg-
inni og hefst spilamennska kl. 19.30.
Æfingakvöld
Æfingakvöld fyrir yngri spilara
verða haldin í Síðumúla 37, 3. hæð
alla fimmtudaga kl. 19.30. Umsjón-
armaður er Anton Haraldsson og
þátttökugjald er ekkert. Allir spilar-
ar yngri en 25 ára eru velkomnir.
Spilakvöld
Bridsskólans og BSÍ
Bridsskólinn og BSÍ bjóða nýlið-
um upp á létta spilamennsku á
fimmtudögum 20. Í kvöld, fimmtu-
daginn 7. febrúar, verður fyrsta
spilakvöldin. Spilaður verður tví-
menningur 12–16 spil eftir atvikum.
Þátttkökugjald fyrir manninn er 700
kr. Spilastaður er Síðumúli 37, 3.
hæð. Spilamennskan verður í um-
sjón Hjálmtýs R. Baldurssonar.