Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VELKOMIN til Síberíu. Úti er
fimmtíu stiga gaddur og öskrandi
stormur. Inni á spítala sitja sjúkling-
ar sveipaðir teppum í kringum log-
andi kamínueld. Rafmagnið er farið
og eldurinn er eina uppspretta lýs-
ingar og hita á sjúkrahúsinu. Þremur
dögum síðar kemur þyrla og flytur
skjálfandi sjúklingana burt. Velkom-
in til Síberíu.
Dudinka er 32 þúsund manna bær
í Taymir-héraði í Síberíu, staðsettur
við Jenisei-ána rétt undir 70. breidd-
argráðu, eða talsvert norðar en
Grímsey. Samband bæjarbúa við
umheiminn er um höfnina, sem er
einungis opin ísbrjótum og um flug-
völlinn. Vellinum var lokað fyrir
stórum flugvélum skömmu fyrir ára-
mót vegna þess hversu ójafnar flug-
brautirnar eru orðnar.
Vellinum hefur ekki verið haldið
við í tvo áratugi. Samgöngur í Taym-
ir eru miklum takmörkum háðar
vegna geipilegra vegalengda og
óblíðra náttúruafla. Flutningar fara
meðal annars fram í risastórum þyrl-
um, sem eru niðurgreiddar af rúss-
neska ríkinu. Þar sem þyrlurnar
komast ekki fer fólk ýmist fótgang-
andi, á hundasleðum eða í snjóbílum.
Margir bæjarbúar starfa við stóru
koparverksmiðjuna í nágrannabæn-
um Norilsk. Strætisvagnar sem
ganga innanbæjar og til verksmiðj-
unnar gegna mikilvægu hlutverki.
Þegar frostið bítur komast menn
vart milli húsa nema með ökutæki.
Innfæddir íbúar Síberíu búa meðal
Rússneskir Volgu-bílar eru þungir og harðgerir eins og skriðdrekar og komast ótrúlega vel áfram við hinar erfiðu aðstæður sem ríkja í Dudinka. Kuldinn er oft gífurlegur og í febrúar fer frostið jafnvel niður í 50º C fro
Strætisvagnar flytja fólk til vinnu í hinni risastóru koparvinnsluMargir hafa ekki önnur farartæki en eigin fætur.
Síbería
70º norður
SJÁ SÍÐU 14