Morgunblaðið - 24.03.2002, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
CITROËN C5 er stór millistærðar-
bíll sem ætti að geta höfðað til
margra. Hann sker sig frá öðrum bíl-
um í útliti en ekki síst búnaði. Þar á
stærstan hlut að máli óvenjulegt
fjöðrunarkerfi bílsins, sem um
margt minnir á vökvafjöðrunarkerf-
ið í DS. Þetta er frábært fjöðrunar-
kerfi sem býður upp á marga still-
ingarmöguleika og þægindi í akstri.
Aksturseiginleikarnir eru nokkuð
öðruvísi en í helstu keppinautum,
sérstaklega Ford Mondeo. Fjöðrun-
in er mýkri og svörunin í stýri ekki
jafn næm; bíllinn virkar eins og
ennþá stærri bíll en hann venst fljótt
í notkun. Loks er að geta strax í upp-
hafi að bíllinn er sérlega vel búinn og
er rúmgóður jafnt í framsætum sem
aftursætum og státar af miklu far-
angursrými. Prófaður var fimm dyra
hlaðbakurinn með sjálfskiptingu og
2,0 lítra vél.
12 cm styttri
en Ford Mondeo
C5 var kynntur sem hugmyndabíll
á bílasýningunni í París 1998. End-
anleg útkoma er mjög í takt við þann
bíl. Bíllinn er með sterkan, heildræn-
an svip og minnir helst á stóra út-
færslu af Xantia og er greinilega
með sama genamengi og Picasso.
Framrúðan er stór og hallandi og
línan frá vélarhlíf að afturstuðara er
aflíðandi og mjúk. Aftursvipurinn er
eins og á stallbaki en í raun er bíllinn
hlaðbakur með þeim kostum sem
þeirri byggingargerð fylgir, þ.e.
stóru farangursrými sem hægt er að
stækka verulega með því að fella
fram aftursætisbök.
Prófunarbíllinn er sérlega glæsi-
legt eintak. Hann er með svokölluð-
um Elegance-pakka sem felur í sér
leðuráklæði, viðarútlit á innréttingu
og rafdrifin framsæti og að auki er
hann með rafknúinni sóllúgu.
Þetta er laglega hannaður bíll. Öll
form eru ávöl og teygð. Vegna ílöngu
formanna virkar bíllinn afar stór en í
raun er hann tólf sentimetrum
styttri en Ford Mondeo og fjórum
sentimetrum mjórri. En hann er
fjórum sentimetrum hærri og hefur
að því leytinu nokkuð af fjölnotabíls-
laginu falið í sér sem finnst líka þeg-
ar sest er inn í bílinn. Þar er hátt til
lofts og meira segja sætastaðan er
hærri en í keppinautunum.
Lúxushönnun að innan
Hönnunin að innan er meira í ætt
við lúxusbíla, sérstaklega þegar bíll-
inn er kominn með Elegance-pakk-
ann, en svolítið skortir á að efnisvalið
sé alls staðar fyrsta flokks. Þetta er
áberandi t.d. í hirslunum milli sæta
sem eru úr fremur veigalitlu plasti.
Það er í raun óskiljanlegt að Citroën
spari á þessum sviðum því að öðru
leyti er C5 hinn boðlegasti bíll og á
mjög samkeppnisfæru verði.
Vélin er 2ja lítra og skilar 136
hestöflum, en bíllinn er líka fáanleg-
ur með 3ja lítra V6 vél, 210 hestafla,
og 2ja lítra samrásardísilvél, 110
hestafla. 2ja lítra vélin er tengd við
skynvæddan fjögurra þrepa sjálf-
skiptan gírkassa sem býður jafn-
framt upp á snertiskiptingu. Það er
fín vinnsla í þessari vél og það eru
skemmtilegir taktar í henni í þjóð-
vegaakstri þar sem hún er fljót að
skynja inngjöf og skipta sér niður.
Með sportlegum akstri og inngjöf
skiptir hún ekki upp fyrr en alveg við
6.000 snúninga. Í borgarakstrinum
finnst hins vegar hik á henni sem erf-
itt er að henda reiður á og er þá jafn-
vel að flækjast á milli þrepa.
Mesta veghæð eins og í jeppa
Bíllinn er vel einangraður og ligg-
ur vel á vegi. Það er ekki síst bylting-
arkenndu fjöðrunarkerfinu að
þakka. Í reynsluakstrinum var ekinn
Nesjavallahringur og nálægt afl-
stöðinni eru ennþá snjóhryggir á
veginum, svo miklir að bíllinn tók
niðri. Það er ekki síst við slíkar að-
stæður sem fjöðrunarkerfið virkar.
Þetta er tölvustýrt vökvafjöðrunar-
kerfi og með einni takkasnertingu er
hægt að hækka bílinn um 4 cm.
Þannig er hægt að aka honum á allt
að 40 km hraða en sé farið hraðar
lækkar bíllinn sig aftur í eðlilega
veghæð sjálfvirkt. Í enn erfiðari að-
stæðum, t.a.m. miklum sköflum, er
hægt að hækka bílinn um 6,8 cm að
framan og 8,9 cm að aftan, og aka á
allt að 10 km hraða. Í þessari still-
ingu er veghæðin komin upp í 22,5
cm, eða svipað og í mörgum jeppum.
Sömuleiðis er hægt að lækka bílinn
um 5 cm að framan frá eðlilegri veg-
hæð sem er 15 cm, og 5,5 cm að aft-
an. Þetta kemur að góðum notum til
að auðvelda tengingu fellihýsis eða
annars búnaðar við dráttarkrókinn.
Ekki dregur úr ágæti þessa kerfis að
Citroën ábyrgist að það sé bilanafrítt
í allt að 200.000 km.
Bíllinn er að auki ríkulega búinn
og er þar ýmislegt að finna sem
keppinautarnir bjóða ekki upp á,
eins og t.a.m. regnskynjara í fram-
rúðum og rúðuvindum, þannig að
hliðargluggar lokast sjálfkrafa þeg-
ar rignir. Þá er C5 með velti- og að-
dráttarstýri, aksturstölvu, útihita-
mæli með ísingaraðvörun, hita-
temprandi rúður, fjóra öryggispúða,
ABS-hemlakerfi með hemlajöfnun
og neyðarhemlunarbúnaði, loftkæl-
ingu og 17 lítra kæli í hanskahólfi svo
fátt eitt sé nefnt. Verðið á þessum bíl
er 2.650.000 kr. með sjálfskipting-
unni en 2.500.000 með beinskiptingu.
Með Elegance-pakkanum, þ.e. leðri,
rafstýrðum framsætum og viðarút-
liti er verðið 2.974.000 kr. og bæti
menn við sóllúgunni er það komið
upp 3.067.000 kr. Til samanburðar
má nefna að VW Passat Turbo
Trendline kostar 2.790.000 kr. en er
ekki jafnvel búinn og C5, og Ford
Mondeo, sem er fremstur meðal
jafningja þegar kemur að aksturs-
eiginleikum, kostar í Trend-útfærslu
2.470.000 kr. sjálfskiptur og
2.620.000 kr. betur búinn í Ghia-út-
færslu.
Citroën C5 í flokki
með þeim fremstu
REYNSLUAKSTUR
Citroën C5
Guðjón Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn
Teygð form og stór framrúða en framendinn sver sig í ættina.
Með Elegance fylgir leðuráklæði og viðarútlit.
Eins og stallbakur en með rými eins
og hlaðbakur.
Plássgott skott sem rúmar 456 lítra. Í efstu veghæð, 22,5 cm.
Vél: 1.997 rúmsentimetr-
ar, fjórir strokkar, 16
ventlar, tveir yfirliggjandi
knastásar.
Afl: 136 hestöfl við 6.000
snúninga á mínútu.
Tog: 190 Nm við 4.100
snúninga á mínútu.
Gírkassi: Skynvædd, fjög-
urra þrepa sjálfskipting
með snertiskiptingu.
Fjöðrun: Tölvustýrð
vökvafjöðrun með þremur
stillingum.
Lengd: 4.618 mm.
Breidd: 1.770 mm.
Hæð: 1.476 mm.
Eigin þyngd:
U.þ.b. 1.318 kg.
Farangursrými:
456/1.310 lítrar.
Hemlar: Diskar að
framan og aftan, kældir
að framan.
Hröðun: 10,8 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km hraða.
Hámarkshraði:
208 km/klst.
Eyðsla: 8,7 lítrar
í blönduðum akstri.
Verð: 2.650.000 kr.
Umboð: Brimborg hf.
Citroën C5
Í venjulegri veghæð, 15 cm.
gugu@mbl.is