Morgunblaðið - 24.03.2002, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 21
bíó
REYNDAR er á mörkunum aðPearce teljist Ástrali. Hanner fæddur í Cambridgeshire
á Englandi árið 1967. Faðir hans
var flugmaður í hernum og þriggja
ára að aldri fluttist Pearce með fjöl-
skyldu sinni til Victoria í Ástralíu
þar sem faðirinn gerðist flugstjóri
á Nýja-Sjálandi. Hann fórst í flug-
slysi þegar Pearce var átta ára.
Móðirin, sem var kennari, ákvað
að búa áfram í Ástralíu ásamt Guy
og eldri systur hans Tracey.
Strax í æsku vissi Guy Pearce
hvað hann vildi leggja fyrir sig.
Hann hafði engan áhuga á stærð-
fræði og öðrum raungreinum en
þeim mun meiri á listasögu og tón-
mennt. Hann gekk til liðs við
áhugamannaleikfélag aðeins 11 ára
að aldri og kom m.a. fram í verk-
um á borð við Kóngurinn og ég,
Lísa í Undralandi og Galdrakarl-
inn í Oz. Þrátt fyrir þessa fram-
hleypni skorti hann sjálfsöryggi.
Til að vinna bug á því hóf hann lík-
amsrækt sem táningur og bar sig-
ur úr býtum í vaxtarræktarkeppni
unglinga. Eitthvað hefur sjálfs-
öryggið styrkst við allt þetta því
Pearce tók sig til og sendi bréf vítt
og breitt um sjónvarpsiðnaðinn í
Ástralíu og óskaði eftir því að
komast í leikprufu. Það bar þann
ávöxt að 17 ára að aldri fékk hann
hlutverk í sápuóperu, sem þá var
ný af nálinni og kallaðist Neigh-
bours eða Nágrannar. Í fjögur ár
lék hann Mike Young, vörpulegan
stúdent sem gerist kennari og varð
átrúnaðargoð stúlkna og táninga-
stjarna í Ástralíu fyrir vikið.
Fleiri hlutverk í sjónvarpi
styrktu stöðu Pearce og juku vin-
sældir hans og 1990 fékk hann sitt
fyrsta verkefni í bíómynd, heldur
tómlegu drama eftir ástralska leik-
stjórann Frank Howson, Hunting.
Um svipað leyti kom Heaven To-
night, drama úr rokkheiminum,
þar sem hæfileikar Pearce sem tón-
listarmanns fengu að njóta sín, en
hann hefur samið hundruð laga og
syngur og leikur á gítar, saxófón
og píanó.
Nokkrum smámyndum síðar lék
hann, sem fyrr segir, Errol Flynn í
sjónvarpsmyndinni My Forgotten
Man (1993). En það var í hinu sér-
stæða klæðskiptingadrama Prisc-
illa, Queen Of the Desert (1994),
sem athygli kvikmyndaheimsins
beindist fyrir alvöru að Pearce, ekki
síður en félögum hans í myndinni,
Terence Stamp og Hugo Weaving, en
þar lék hann Adam sem einnig
heitir Felicia. Þetta var býsna ýkt
og sterk túlkun í anda verksins og
Pearce hefur lýst því hversu gaman
hann hafði af hlutverkinu. „Myndin
var eins konar frelsun fyrir mig. Í
lífinu held ég að við komum fram í
samræmi við sjálfsmynd okkar.
Þannig að þegar sjálfsmyndin
breytist jafnafgerandi og í þessu
hlutverki losar það um nýja þætti í
manni.“
Leikur hans í Priscillu færði
honum svo enn meiri frægð þegar
hann hreppti eitt aðalhlutverk-
anna, ásamt öðrum áströlskum
leikara Russell Crowe, í þeim marg-
brotna og magnaða krimma LA
Confidential (1997) eftir Curtis Han-
son. Nóg var að gera í framhald-
inu, m.a. í umdeildri mannáts-
stúdíu Antonia Bird Ravenous (1999),
heldur mislukkuðu réttar-
farsdrama Williams Friedkin Rules Of
Engagement (2000) og þó umfram
allt einni frumlegustu og flóknustu
spennumynd allra tíma, Memento
(2000) eftir Christopher Nolan. Þar
var Pearce látlaus og pottþéttur í
hlutverki manns sem misst hefur
skammtímaminnið en reynir samt
að rannsaka morð eiginkonu sinn-
ar í sögu sem vindur sig afturábak.
Klassísku búningaverkin tvö,
sem Guy Pearce fer nú með aðal-
hlutverk í, Greifinn af Monte
Cristo og Tímavélin, eru bæði
byggð á þekktum skáldsögum, sú
fyrri eftir Alexandre Dumas, sú seinni
eftir H.G. Wells, sem hafa verið
kvikmyndaðar áður. Greifinn hefur
getið af sér a.m.k. fjórar kvik-
myndir og George Pal gerði Tíma-
vélinni ógleymanleg skil árið 1960
með öðrum Ástrala, Rod Taylor í að-
alhlutverki vísindamanns sem
ferðast 800 þúsund ár um tímann.
Pearce hefur sagt að aðdáun hans á
mynd Pals hafi ráðið úrslitum um
að hann tók að sér hlutverk
manns, sem leggst í tímaferðalag
með allt öðrum hætti en persóna
hans í Memento. „Ég fann barnið í
mér á ný,“ segir hann.
Gerð Tímavélarinnar var brös-
ótt. Leikstjórinn, Simon Wells, sem
er barnabarn höfundar sögunnar
og hefur áður fengist við teikni-
myndagerð en aldrei stýrt leikinni
bíómynd, fékk taugaáfall þegar
leið á tökur og hljóp leikstjórinn
Gore Verbinski í skarðið.
Næsta viðfangsefni Guys Pearce
færir hann bæði í tíma og rúmi
heim til Ástralíu á ný, þar sem
hann leikur í Blood and Guts, kol-
svartri kómedíu Scotts Roberts um
þrjá bræður og bankaræningja
sem ekki hætta að ásælast illa
fengið fé þótt þeir séu á bak við
lás og slá.
Tíminn flýgur
hjá góðum gæja
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
Reuters
Sumir segja að ástralski leikarinn Guy Pearce, með sinn skarpleita myndarleika og
hvassan augnsvip, minni einna mest á karlstjörnur gömlu Hollywood. Það má til sanns
vegar færa enda hefur hann leikið Errol Flynn ungan og nú, með fárra vikna millibili, fer
hann með aðalhlutverk í tveimur endurgerðum sígildra hetjusagna – Greifanum af
Monte Cristo og Tímavélinni – sem frumsýnd er hérlendis um helgina.
Guy Pearcekvæntist óvænt
æskuást sinni Kate Mestitz árið
1997. Gestir í brúðkaupinu töldu
sig vera að koma í húshitunarboð,
þar sem þau hjónin búa nú í Mel-
bourne í Ástralíu.
DANSKI leikstjórinn Bille August
sneri nýlega heim og gerði þar bíó-
mynd, sem fékk betri viðtökur en þær
alþjóðlegu myndir sem hann hefur ein-
beitt sér að seinni árin (Hús andanna,
Vesalingarnir). Þetta var Söngur
handa Martin (En sang for Martin).
August er hins vegar ekki hættur að
gera myndir á alþjóðamarkaði og er
nú að hefjast handa við fyrstu eig-
inlegu Hollywoodmynd sína. Það er
spennumynd í anda LA Confidential
og heitir Without Apparent Motive
eða Án sýnilegrar ástæðu.
August gerir trylli
í Hollywood
KATE Winslet og
Judi Dench fara
með hlutverk Ír-
isar í samnefndri
kvikmynd í leik-
stjórn Bretans
Richard Eyre,
sem sýnd verður
á næstunni.
Myndin er byggð á
ævi breska rithöf-
undarins Iris
Murdoch sem á
efri árum þjáðist af Alzheimer-
sjúkdómnum. Mynd þessi hefur nú
þegar fengið þrjár tilnefningar til Ósk-
arsverðlauna. Iris Murdoch naut
heimsfrægðar sem rithöfundur enda
þótti hún miklum gáfum gædd, en
færri vissu um sjálfa persónuna, sem
sótti jafnt til karla og kvenna í ást-
armálum. Eiginmaður hennar í 43 ár
var óframfærinn hæglætismaður að
nafni John Bayley, sem fylgdi henni í
blíðu og stríðu þar til yfir lauk. Murd-
och veiktist af sjúkdómi sínum árið
1995 sem dró hana svo til dauða fjór-
um árum síðar og var á þeim tíma-
punkti allt gleymt í huga hennar ef
undan er skilið nafn eiginmannsins.
Sár ástarsaga
Iris: Judi
Dench sem
Iris Murdoch.