Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 23
Sean Penn, I Am Sam
Will Smith, Ali
Besta leikkona í aðalhlutverki
Aðall In the Bedroom (nafnið er
dregið af hluta humargildru), öðru
fremur, er afburða leikur í öllum
hlutverkum, smáum sem stórum.
Sissy Spacek, sem var áberandi á sjö-
unda og áttunda áratugnum (aðal-
leikkonur Hollywood enda sitt
blómaskeið um leið og fyrsta hrukk-
an verður sýnileg), er ólýsanlega
kraftmikil í vandasömu hlutverki eig-
inkonu og móður sem er snobbuð,
langrækin og yfirmáta eigingjörn.
En fyrst og fremst óendanlega sorg-
bitin. Hún er stórfengleg og á öll
verðlaun skilið, ásamt jafn góðum
hlutverkum í framtíðinni. En þau
spretta ekki á trjánum, hvorki í
Hollywood né annarsstaðar. Önnur
magnþrungin túlkun kemur úr
óvæntri átt, hinni föngulegu Halle
Berry. Hingað til hefur hún fengið
hlutverk í samræmi við lostafagurt
útlitið, hér fær hún loks tækifæri til
að sanna að hún er engu síður góð
leikkona en fegurðardís. Leikur óað-
finnanlega erfitt hlutverk kærulausr-
ar, ungrar móður, sem verður fyrir
sárum harmi. Fær stuðning úr ólík-
legustu átt (Billy Bob Thornton), í
Monsteŕs Ball, hrífandi góðri mann-
lífsskoðun á óvenjulegum slóðum,
landfræði- en þó einkum þjóðfélags-
lega. Nicole Kidman er þriðja leik-
konan sem hæglega getur innbyrt
verðlaunin fyrir stórsýningu á ótrú-
lega víðfeðmum hæfileikum í Moulin
Rouge. Reyndar var hún engu síðri í
ofurhrollinum The Others, og var til-
nefnd til BAFTA verðlaunanna fyrir
frammistöðu sína í þeirri mögnuðu
klassík. Þá er ógetið Dame Judi
Dench, sem nú er tilnefnd til Óskars í
fjórða sinn á fimm árum, fyrir róm-
aða frammistöðu sína sem rithöfund-
urinn Iris Murdoch, í Iris, sem sýn-
ingar eru ekki hafnar á hérlendis. Þá
er ein eftir, hin bráðflinka gaman-
leikkona Renée Zellweger. Ég tel
ólíklegra að hún vinni til verðlauna
fyrir ágæta frammistöðu (og enskan
hennar er fín), í Bridget Jones Diary,
þeirri rúmlega meðalmynd, en að ég
fari í megrun, núna rétt fyrir páska!
Sissy Spacek, In the Bedroom
Halle Berry, Monster’s Ball
Nicole Kidman, Moulin Rouge
Judi Dench, Iris
Renee Zellweger, Bridget
Jones’s Diary
Besti karlleikari í aukahlutverki
Í mínum huga stendur einn leikari
örlítið uppúr hópi frábærra fimm-
menninganna. Sá er enginn annar en
breski stórleikarinn Ian McKellen,
hjartað í bestu mynd ársins, LOTR.
Gleymum heldur ekki hrikalegri per-
sónusköpun snillingsins Bens Kings-
ley, sem fékk fágætt tækifæri að
sýna litríka hæfileikana í hlutverki
gjörsamlega samviskulauss mann-
djöfuls í hinni fáséðu perlu, Sexy
Beast. Þriðji breski leikjöfurinn, Jim
Broadbent, kemur einnig við sögu í
ár. Ekki fyrir ógleymanlega túlkun
sína í Moulin Rouge, heldur leik sinn
í fyrrgreindri, ósýndri Iris. Sú mynd
hlýtur að vera mikið tilhlökkunar-
efni. Fjórði stórleikarinn er svo eng-
inn annar en Jon Voight, sem kemur
sannarlega á óvart, gjörbreyttur, í
hlutverki íþróttafréttamanns í Ali.
Við fáum að sjá glænýja hlið á þess-
um ástsæla leikara, sem á svo sann-
arlega allt gott skilið. Þá er husmélið
eftir, Ethan Hawke í hlutverki græn-
ingjans í Training Day. Í stuttu máli:
Ég skal svelta yfir páskana ef hann
vinnur.
Ian McKellen, TLTR
Ben Kingsley, Sexy Beast
Jon Voight, Ali
Jim Broadbent, Iris
Ethan Hawke, Training Day
Besta leikkona í aukahlutverki
Hin glæsilega og hæfileikaríka
Jennifer Connelly er tvímælalaust
besta leikkonuefni sem komið hefur
fram um árabil í Bandaríkjunum.
Sýndi það eftirminnilega í Requiem
for a Dream og Pollock. Hún er
hjartað sem slær í A Beautiful Mind.
Tvær ráðsettar, breskar stólpaleik-
konur, Helen Mirren og Maggie
Smith, koma við sögu í Gosford Park,
og gera góða mynd betri. Hvort-
tveggja örhlutverk, að vísu. In the
Bedroom er svo vel skrifuð og leik-
stýrð að jafnvel Marisa Tomei kemur
við hjartað. Þá er ungfrú Kate Winsl-
et eftir, í fyrrgreindri Iris, leikur
skáldkonuna á yngri árum. Og gerir
það vafalaust vel. Hér getur semsé
allt mögulegt gerst, þó ég hafi á til-
finningunni að Connelly merji sigur.
Jennifer Connelly, A Beautiful Mind
Helen Mirren, Gosford Park
Maggie Smith, Gosford Park
Marisa Tomei, In The Bedroom
Kate Winslet, Iris
Besta erlenda mynd ársins
Það er nokkuð ljóst að Amélie fær
Óskar í ár í þessum merkisflokki.
Hún hefur gengið betur en nokkur
frönsk mynd til þessa í Vesturheimi,
er eftir heimsfræga og snjalla kvik-
myndargerðarmenn og á allt mak-
legt skilið. Persónulega þykir mér
Einskismannsland mun athyglis-
verðri og Elling langskemmtilegust.
Já, þó norsk sé. Olíuauðurinn skyldi
þó ekki vera að bæta skopskyn þjóð-
arinnar? Hvað Lagaan og Syni brúð-
arinnar viðkemur, þá eru þær ennþá
óþekktar stærðir hérlendis. Líkt og
alltof margar myndir sem hlotið hafa
þessa mikilvægu tilnefningu í gegn-
um árin.
Amélie, Frakkland
No Man’s Land, Bosnía
Elling, Noregur
Lagaan, Indland
Son of the Bride, Argentina
Besta frumsamda handritið
Flestir geta verið sammála um að
handrit Christopers Nolans, um
mann sem misst hefur minnið og er
að reyna að komast til botns í morð-
máli, er það frumlegasta á árinu.
Nolan rekur þráðinn afurábak og
sleppur dæmalaust vel frá þeirri erf-
iðu og geggjuðu leið svo úr verður ein
besta mynd ársins og hefði að ósekju
mátt fá fjölda tilnefninga. Þeir Milo
Addica og Will Rokos eru aðrir lítt
kunnir pennar sem komu á óvart með
Monsteŕs Ball, ótrúlega þroskuðu
verki þar sem farið er á skjön við
hinn gamalkunna ameríska draum.
Réttlætinu er fullnægt ef annaðhvort
handritið vinnur í þessum flokki. Þá
skal það tekið fram að The Royal
Tenenbaums eftir Wes Anderson og
Owen Wilson hefur fengið afbragðs-
dóma en myndin er enn óþekkt stærð
hérlendis. Þeir félagar eiga a.m.k.
Rushmore, eitt firnagott verk eftir
sig á tjaldinu.
Memento, Christopher Nolan
Monster’s Ball, Milo Addica
og Will Rokos
Amélie, Guillaume Laurant
og Jean-Pierre Jeunet
Gosford Park, Julian Fellowes
The Royal Tenenbaums, Wes
Anderson og Owen Wilson
Besta handrit byggt á áður birtu efni
Rob Festinger og Todd Field, höf-
undar In the Bedroom, skapa sögu-
þráð, persónur og samtöl sem halda
manni föngnum út alla þessa löngu
og myrku nærskoðun á lífi þriggja
manna fjölskyldu í Maine, sem fram
til þessa hefur verið rósadans í
öruggu vernduðu umhverfi. Síðan
fellur sprengjan og afleiðingar henn-
ar koma alvarlegast fram í eftir-
hreytunum. Í samanburði við tilgerð-
ina sem plagar A Beautiful Mind, ber
hún einsog gull af eiri. LOTR verður
seint rómuð fyrir handritið, þó það
þjóni sínum tilgangi óaðfinnanlega.
Gæti þessvegna unnið, einkum ef
myndin tekur uppá því að sópa til sín
verðlaunum. Ghost World er óþekkt
stærð á þessu heimili en mun vera
nýkomin út á myndbandi hérlendis.
In the Bedroom, Rob Festinger
og Todd Field
A Beautiful Mind, Akiva Goldsman
LOTR, Peter Jackson,
Fran Walsh, og Philippa Boyens
Shrek, Ted Elliott, Terry Rossio,
Joe Stillman, og Roger S.H.
Schulman
Ghost World, Terry Zwigoff og
Daniel Clowes
Besta kvikmyndatökustjórn
Af öllum þeim fjölda frábærra fag-
manna sem starfa í Hollywood er
enginn hópur breiðari en kvikmynda-
tökumanna. Nánast undantekning ef
maður sér ekki vönduð vinnubrögð
frá þeirri ómissandi stétt. Í ár eru
fjórir snillingar tilnefndir sem ég
voga mér ekki að gera upp á milli að
öðru leyti en því að Roger Deakins er
að fást við hluti, nánast gleymda í
kvikmyndasögunni; svart/hvíta töku.
Lýsingin og eggskörp takan er á við
það besta þegar film noir lifði sitt
blómaskeið, um miðja síðustu öld.
Handverkið hans er stórfenglegt, því
hafnar hún á toppnum.
Roger Deakins, The Man Who
Wasn’t There
Donald M. McAlpine, Mo
ulin Rouge
Andrew Lesnie, LOTR
Slawomir Idziak, Black
Hawk Down
Bruno Delbonnel, Amélie
Besta búningahönnun
Nú eru þeir flokkar að baki sem
mesta athyglina vekja; í þeim sem á
eftir koma verður farið fljótt yfir
sögu
Moulin Rouge
LOTR
Harry Potter and the Sorcerer’s
Stone
Gosford Park
The Affair of the Necklace
Besta listræna stjórnun
(Hér gæti sópskenningin sannað sig,
sem oftar í flokkunum sem á eftir
koma)
LOTR
Moulin Rouge
Harry Potter and the Sorcerer’s
Stone
Gosford Park
Amélie
Besta tónlist
Howard Shore LOTR
John Williams, A.I.
James Horner, A Beautiful Mind
Randy Newman, Skrímsli HF
John Williams, Harry Potter
Besta frumsamda lag
If I Didn’t Have You, Monsters, Inc.
May It Be, LOTR
There You’ll Be, Pearl Harbor
Until, Kate & Leopold
Vanilla Sky, Vanilla Sky
Besta klipping
Black Hawk Down
Memento
LOTR
Moulin Rouge
A Beautiful Mind
Besta hljóðsetning
Black Hawk Down
LOTR
Moulin Rouge
Pearl Harbor
Amélie
REUTERS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 23
bíó
Jean Hersholt-verðlaunin
Arthur Hiller
Heiðursóskarsverðlaun
Sidney Poitier og
Robert Redford
Óskarsverðlaunaaf-
hendingin hefst kl. 17.00,
að staðartíma, í The Kodak
Theatre, Los Angeles.
Sem svo oft áður verð
ur hin vinsæla gamanleik
kona og skemmtikraftur
Whoopi Goldberg kynnir
kvöldsins.
Þrír þeldökkir leikarar
eru tilnefndir í ár; það er í
fyrsta skiptið frá upphafi.
Aukinheldur fær sá fjórði
heiðursóskar.
Bandaríska kvikmynda-
akademían er með rösk-
lega 5.000 meðlimi
með kosningarétt. Stærsti
hópurinn, 1.300, kemur úr
röðum leikara. Meðlimir í 9
kvikmyndagreinum til
nefna árangur í 16 flokkum.
Sérstakir kjörmannahópar
velja í öðrum 6. Besta
myndin er hinsvegar valin
af öllum atkvæðisbærum
mönnum.