Morgunblaðið - 09.04.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 09.04.2002, Síða 1
81. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 9. APRÍL 2002 ÍSRAELSK stjórnvöld tilkynntu seint í gærkvöldi að þau hefðu ákveðið að draga herlið sitt frá borgunum Qalqiliya og Tulkarem á Vesturbakk- anum. Fyrr um daginn hafði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagt að markmiðum hernaðaraðgerð- anna á svæðum Palestínumanna hefði enn ekki verið náð og því væri ekki tímabært að kalla herinn heim. Talið er að með ákvörðun sinni í gærkvöld séu Ísraelar að bregðast við ítrekuðum tilmælum ráðamanna í Bandaríkjunum að þeir hætti tafar- laust hernaðaraðgerðum sínum á heimastjórnarsvæðum Palestínu- manna. Bæði George W. Bush Bandaríkjaforseti og Colin Powell ut- anríkisráðherra höfðu fyrr um daginn lagt áherslu á að Ísraelar yrðu undir- eins að láta af sókn sinni, sem staðið hefur í ellefu daga. Powell sagði í gærkvöldi að ákvörð- unin væri skref í rétta átt en þó ekki fullnægjandi – draga þyrfti herinn að fullu frá heimastjórnarsvæðunum. Ekki hefur verið um mikla mót- spyrnu að ræða af hálfu Palestínu- manna í Qalqiliya og Tulkarem. Harð- ir bardagar geisuðu hins vegar sem fyrr í Nablus og Jenín í gær. Þá skutu Hezbollah-skæruliðar í Líbanon flug- skeytum yfir landamæri landsins að Ísrael og svöruðu Ísraelar með því að senda herþotur inn í Suður-Líbanon. Sharon sagði í gærmorgun að Ísr- aelar myndu ekki hætta aðgerðum sínum fyrr en þeir væru búnir að upp- ræta starfsemi palestínskra hryðju- verkamanna. Hann sakaði Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, enn á ný um að hafa svikið loforð sín um að ráða niðurlögum hryðjuverka- manna en lýsti sig reiðubúinn til að hitta að máli „hófsama“ arabíska þjóðarleiðtoga til að ræða frið í lönd- unum fyrir botni Miðjarðarhafs. „Ræða Ariels Sharons jafngildir stríðsyfirlýsingu,“ sagði Nabil Sha- ath, ráðherra í heimastjórn Palestínu- manna. Hann spáði allsherjar árás Ísraela á Gazasvæðinu ef Bandaríkja- menn ekki stöðvuðu Sharon. Powell gagnrýndur við komuna til Marokkó Powell mátti sætta sig við að verða skotspónn óánægðra í arabaheimin- um þegar hann kom til Marókkó í gær. Mohammed konungur kom þá á framfæri gagnrýni vegna þess að Powell skyldi ekki halda beinustu leið til átakasvæðanna, í stað þess að leggja lykkju á leið sína til að ræða fyrst við ýmsa pólitíska ráðamenn. Er Powell ekki væntanlegur til Ísr- aels fyrr en á föstudag en fyrst ræðir hann við Mohammed og Abdullah, krónprins Sádí-Arabíu, í Marokkó. Hann heldur síðan til Egyptalands til viðræðna við Hosni Mubarak forseta og þaðan til Spánar, þar sem hann mun hitta fulltrúa ESB, Sameinuðu þjóðanna og rússneskra stjórnvalda. Síðast hefur Powell viðkomu í Jórd- aníu, áður en hann fer til Ísraels. Hefur þetta mikla ferðalag gefið ýmsum í arabaheiminum tilefni til að velta því fyrir sér hvort Bandaríkja- menn vilji gefa Ísraelum nokkra daga til að ná markmiðum sínum á svæðum Palestínumanna, þrátt fyrir yfirlýs- ingar þeirra um að hætta beri hern- aðaraðgerðunum nú þegar. Sharon segir markmiðum enn ekki náð Ísraelar kalla her sinn frá tveimur borgum á Vesturbakkanum Reuters Hópur Palestínumanna, sem haldið hafði uppi andspyrnu gegn Ísr- aelum í bænum Nablus, gefur sig fram við ísraelska hermenn í gær. Jerúsalem, Agadir í Marokkó. AFP.  Styrkur/25 ÞVÍ er spáð að árið 2050 muni hlutfall þeirra sem eru 60 ára og eldri mælast hærra en fimmtungur af heildarfjölda mannkyns. Þýðir þetta að um miðja öldina verða þeir sem eru 60 ára og eldri fleiri en þeir sem eru undir fimmtán ára aldri. Þetta er meðal þess sem kom fram í gær á setningarathöfn ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um öldrun, sem fram fer í þess- ari viku í Madríd á Spáni. Sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, í ávarpi sínu að árið 2050 myndi fjöldi aldraðra hafa rok- ið upp í tvo milljarða en í dag eru um 600 milljónir manna 60 ára eða eldri. Sagði hann engan vafa á að breytt aldurssamsetn- ing mannkyns myndi reynast þróunarlöndum þung í skauti. Þetta er önnur ráðstefna SÞ um öldrun, en sú fyrri var hald- in í Austurríki árið 1982. Von- ast er til að í Madríd takist að ljúka gerð aðgerðaáætlunar um það hvernig bregðast megi við breyttri aldurssamsetningu mannkyns. Öldruðum fjölgar til muna Madríd. AFP. VERÐ á fati af hráolíu hækkaði um einn dollara á mörkuðum í gær eftir að Írakar tilkynntu að þeir hygðust stöðva útflutning á olíu í þrjátíu daga í því skyni að auka þrýsting á stjórn- völd í Ísrael um að draga herlið sitt frá svæðum Palestínumanna. Hugs- anlegt er talið að aðgerðir Íraka valdi því að olíuverð hækki um allt að fimm dollara fatið ef ekkert hinna ríkjanna, sem framleiða olíu, eykur umsvif sín til að tryggja nægt framboð. Þegar viðskipti hófust með hráolíu á mörkuðum í London í gær rauk verð á olíufatinu upp í 27,43 dollara en hafði verið 25,99 dollarar við lokun á föstudag. Er leið á daginn gekk hluti hækkunarinnar til baka en var samt 27,02 dollarar í lok dags. Í New York fór verð á olíufatinu í 26,55 dollara en hafði verið 26,21 dollari. Talið er að olíuútflutningur Íraka nemi um 1,5 milljónum fata á dag. Sagði Philip Oxley, sérfræðingur hjá ABN Amro, að þetta væri ekki ýkja mikið og að önnur olíuframleiðsluríki gætu skjótt og auðveldlega mætt tímabundnum skorti á framboði. Slá- ist önnur olíuframleiðsluríki – t.d. Ír- anir eða Líbýumenn – í lið með Írök- um myndi það hins vegar hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Arabaríkin sameinuðust um það árið 1973 að draga úr framboði á olíu á erlendum mörkuðum og hafði það í för með sér gífurlega hækkun á olíu- verði og alþjóðlega efnahagskreppu. Írakar stöðva útflutning á hráolíu Eins doll- ara verð- hækkun á olíufatinu London, Washington. AFP. ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, til- kynnti í gær að hann hefði fargað „umtalsverðu“ magni vopna sinna. Nefnd alþjóðlegra eftirlitsmanna, sem lýtur forystu Kanadamannsins John de Chastelain, staðfesti að af- vopnun hefði átt sér stað og greindi frá því að um hefði verið að ræða byssur, sprengiefni og skotfæri. Tilkynning IRA þykir styrkja frið- arferlið á Norður-Írlandi og kemur hún í aðdraganda þingkosninga á Ír- landi. Er talið líklegt að ákvörðun IRA nú sé til þess ætluð að styrkja stöðu Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA, í kosningabaráttunni. David Trimble, leiðtogi sam- bandssinna og forsætisráðherra í heimastjórn N-Íra, lýsti ánægju sinni og hvatti öfgahópa sambandssinna nú til að fara að fordæmi IRA. Írski lýð- veldisher- inn fargar vopnum Belfast. AFP. FRANSKT hárgreiðslufólk fór í kröfugöngu um götur Parísar í gær en það vill sveigjanlegri vinnutíma og minni skattheimtu. Til að leggja áherslu á mál sitt hafði fólkið meðferðis vel greidd gínuhöfuð. AP Vilja sveigjanlegri vinnutíma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.