Morgunblaðið - 09.04.2002, Side 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Frumsýning 12. apr kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 14. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
3. sýn lau 20. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Lau 13. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 21. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fö 19. apr kl 20 - AUKASÝNING
Fö 26. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
ATH: Síðustu sýningar
TÓNLEIKAR - DÚNDURFRÉTTIR
Pink Floyd - The Wall
Mi 17. apr kl 20 og kl 22:30
Fi 18. apr kl 22
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 11. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 13. apr kl 20 - LAUS SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Fö 12. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fi 18. apr kl 20 - UPPSELT
Fö 19. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 21. apr kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
CAPUT Tónleikar
Ferðalög: Shakespeare úr austri
Lau 13. apr kl. 15:15
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 12. apr kl 20 - UPPSELT
Lau 13. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 18. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
!
"#
$$!
!
%
!
&&$
$'((!
)
*
+,
*
-
'.!
/$0!
!
1
# 333! !
!
SPENNUHRYLLIR leikstjórans
Davids Finchers heldur en um sinn
Ameríku í heljargreipum. Myndin
neitar að bifast af toppnum, sem
verður að teljast dágott á þeim tím-
um þegar flestar ræmur virðast
skjótast með látum á toppinn og falla
þaðan jafnharðan aftur. Leikkonan
Jodie Foster má því una glöð við sitt
en hún hefur átt misjöfnu gengi að
fagna undanfarin ár; Anna and the
King, Nell og Contact – allt saman
myndir sem gerðu litlar sem engar
gloríur.
Aftan við Foster og félaga sest
enginn annar er félagi Morgan
Freeman með spennumyndina High
Crimes í farteskinu. Ísöldin er svo í
þriðja sæti og hefur þessari glúrnu
teikni- og gamanmynd vegnað von-
um framar.
Tvær aðrar myndir koma nýjar
inn á listann. Æringjamyndin Nat-
ional Lampoon’s Van Wilder kemst
aðeins í fimmta sætið, töluverð von-
brigði fyrir aðstandendur, í orðsins
fyllstu merkingu. Mynd af svipuðum
toga, Big Trouble, er líka í miklum
vandræðum með afkomu sína,
skrapar rétt svo áttunda sætið.
Enn er
óðagot
arnart@mbl.is
Engin miskunn! Jodie Foster
stendur í ströngu í Panic Room.
!" " !#$ %&
'()( +'), +-+)- .'), /)' 00)' 1/)+ .)/ .,)' +1')+
EINS og fram kom í sunnudags-
blaðinu hefur Megadeth, ein
áhrifamesta þungarokkssveit allra
tíma, lagt upp laupana eftir tutt-
uga ára starf. Ásamt Metallica,
Slayer og Anthrax lagði sveitin
grundvöllinn að harðari og hrað-
ari hljómi en áður hafði þekkst í
þungu rokki, viðhorf sem lifir
góðu lífi enn, þó mestanpart neð-
anjarðar nú.
Það var Dave Mustaine, for-
sprakki sveitarinnar, sem tók af
skarið og leysti sveitina upp í síð-
ustu viku.
Ástæðurnar eru raktar til
óhappa sem hent hafa Mustaine í
byrjun þessa árs. Í janúar hóf
hann að drekka á nýjan leik en
hafði verið edrú í tíu ár. Hann fór
í meðferð og slasaðist þar alvar-
lega á hendi, það alvarlega að
taug í vinstri handlegg er sem
stendur afar löskuð. Mustaine
segir að bati taki um ár og vonast
hann að sjálfsögðu til þess að geta
leikið á gítar á nýjan leik. En föð-
urhlutverkið knýr þó meira á.
„Pam (kona Mustaines) hefur
staðið eins og klettur við hlið mér
öll þessi rokk og ról ár,“ segir
hann. „Ég á langt í land með að
verða „gull“- eða „platínu“-pabbi
en ætla að leggja hart að mér til
að þokast í áttina að því.“
Mustaine hóf ferilinn sem gít-
arleikari í Metallica en var rekinn
í upphafi ársins 1983. Tveimur ár-
um síðar kom fyrsta plata Mega-
deth út, Killing Is My Business ...
And Business Is Good! og ári síð-
ar kom Peace Sells ... But Who’s
Buying? sem er af mörgum talin
þeirra besta verk. Ferill Mega-
deth einkenndist nokkuð af
mannabreytingum og útgáfur
voru í stopulla lagi. Á plötunni
Youthanasia frá 1994, drógu
Mustaine og félagar nokkuð úr
blindri keyrslunni og lögðu meiri
natni við andrúm og melódíur.
Þetta ferli náði hámarki með
hinni poppuðu Risk, sem féll illa í
kramið, jafnt hjá gagnrýnendum
sem aðdáendum.
Í fyrra vatt sveitin hins vegar
kvæði sínu í kross, og leitaði aftur
til rótanna á The World Needs a
Hero. Nýjasta afurð sveitarinnar
er svo tvöfalda tónleikaplatan
Rude Awakening sem út kom
fyrir stuttu.
Niður-
talningunni
lokið
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Megadeth
Megadeth: Í minningu
Frábærir
fótskemlar
Verð kr. 34.000
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15
Derhúfa
aðeins 800 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
BLAÐBERAKAPPHLAUP Morgunblaðsins er á fullu
líkt og venjulega. Kapphlaupið gengur út á að blaðber-
ar höfuðborgarsvæðisins keppast við að safna stigum.
Þeir fá ákveðin stig við upphaf og lok blaðburðarins og
ef þeir ljúka burði fyrir kl. 7 fá þeir aukastig. Þeir
stigahæstu lenda svo í eins konar lukkupotti sem dregið
er úr mánaðarlega. Gerður Soffía Einarsdóttir, einatt
kölluð Soffía, hreppti aðalvinninginn í mars-kapp-
hlaupinu og fékk hún GSM-síma frá Nokia að launum.
Einnig voru nöfn tuttugu blaðbera að auki dregin út
úr hópi blaðbera sem náðu bestum árangri í kapphlaup-
inu. Fá þeir gjafabréf á 12 tomma flatböku hjá Hróa
Hetti að launum.
„Ég á heima í neðra Breiðholti,“ segir Soffía, aðspurð
hvar hún beri út. „Og fer alla leið niður í Blesugróf. Ég
ber út fimmtíu blöð, allt í einbýlishús.“
Hún segist búin að vera í þessu í þrjú ár. Hana hafi
vantað eitthvað að gera og ekki spilli fyrir að fá laun
líka.
„Þetta er mín leikfimi. Og reglan er góð.“
Soffía segir útburðinn taka einn og hálfan tíma til
tvo. Hún fari af stað um leið og bíllinn komi með blöðin.
„Ég vakna alltaf klukkan hálfþrjú. Ég fer alltaf upp í
rúm kl. tíu á kvöldin, ég þori ekki annað,“ segir Soffía.
„En svo legg ég mig þegar ég kem heim. Eftir að ég er
búin að fá kaffisopann minn.“
Soffía segir að það sé gott að vita til þess að maður
„þurfi“ að vakna og gera eitthvað.
„Þegar maður er orðinn gamall, enginn kemur til
manns og maður fer aldrei til neins, þá líður manni
illa,“ segir hún. „Þannig að mér finnst gott að fara út á
morgnana með Moggann. Og á sumrin er þetta voða-
lega gott. Þá er eins og maður sé einn í heiminum. Bara
maður einn, fuglarnir, kisurnar og kannski einhverjir
hundar.“
Blaðberakapphlaupið heldur áfram í apríl.
Fuglar, kisur
og hundar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Örn áskriftarstjóri afhendir Soffíu vinninginn.
Blaðberakapphlaup Morgunblaðsins