Morgunblaðið - 09.04.2002, Side 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 17
verður haldinn þriðjudaginn, 23. apríl 2002
og rétthafar eru hvattir til þess að mæta.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sjóðsins
á árinu 2001
2. Tryggingafræðileg úttekt
3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
4. Ársreikningur fyrir árið 2001
5. Kosning stjórnarmanna og varamanna þeirra
6. Kosning endurskoðanda
7. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
8. Önnur mál
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
hafa verið sendar öllum sjóðfélögum og rétt-
höfum. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar
á skrifstofu Kaupþings að Ármúla 13.
Stjórn Lífeyrissjóðsins Einingar
Ármúli 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
Ársfundur
Lífeyrissjóðsins Einingar
kl. 17.15, í þingsal A á Hótel Sögu. Sjóðfélagar
MIKIÐ var um dýrðir í félags-
heimilinu Ljósvetningabúð þegar
leikfélagið Búkolla frumsýndi
barnaleikritið Bangsímon þar sem
áhorfendur voru úr öllum aldurs-
hópum. Yngsta kynslóðin skemmti
sér greinilega mjög vel enda
Bangsímon í uppáhaldi hjá mörg-
um.
Leikritið Bangsímon eftir Peter
Snickars er unnið upp úr sögu-
bókunum „Winnie the Pooh“ og
„Pooh’s Corner“ eftir enska smá-
sagnahöfundinn Alan Alexander
Milne (1882-1956), en hann var
m.a. þekktur fyrir að semja ljóð
og erindi fyrir börn, en þýðendur
þessa verks eru Sigrún Karlsdótt-
ir og Hanna Lára Gunnarsdóttir.
Í Bangsímonleikritinu eru mörg
skemmtileg atvik sem gerast í
ímynduðum heimi Jakobs og
tuskudýranna hans sem hann hef-
ur mikið dálæti á. Sagan gerist í
100 ekru skógi þar sem Jakob,
Bangsímon og allir hinir fara í
rannsóknarleiðangur til að finna
Norðurpólinn.
Með hlutverk Bangsímons fer
Bjarni Guðmundsson en Linda
Björk Guðrúnardóttir fer með
hlutverk Jakobs. Berglind Dagný
Steinadóttir leikur Kaninku og
Hulda Ragnheiður Árnadóttir
leikur Grísling, en hún er jafn-
framt búningameistari. Þá fer
Marteinn Gunnarsson með hlut-
verk Tígra en Jóhannes Haralds-
son leikur Eyrnaslapa og pabba.
Hönnun sviðsmyndar var í
höndum Gunnhildar Ingólfsdóttur
sem jafnframt var yfirsmiður og
hefur hinn mikli skógur á sviðinu
sem tekur á sig margar myndir
við mismunandi lýsingu vakið at-
hygli áhorfenda.
Leikstjórinn, Oddur Bjarni Þor-
kelsson, sem stundum áður hefur
lagt Búkollu lið, gerði nokkra
söngtexta við verkið ásamt Bjarna
Guðmundssyni sem þeir syngja á
sviðinu. Þar má heyra m.a.:
Baular nú bumban mín
biður hún um mat
bragða vill hún berin fín
og borða á sig gat.
Um hunangið hugsa ég vil
og heyra lítið lag.
Baular nú bumban mín
þú bita færð í dag.
B.G.
Aumingja Tígri slík endemis raun
ekkert hann borðar og stækkar ekki
baun.
Vill ekki hunang og þistiĺekki heldur
hindberjum í skálina hrækti skelfdur.
Og allt það góða sem bragðlauka gleður
gerir hann reiðan og ekkert hann seð-
ur.
O.B.Þ.
Leikfélagið Búkolla hefur nú
starfað í tíu ár og er þetta í ní-
unda sinn sem leikverk er sett á
fjalirnar. Formaður félagsins er
María Kristjánsdóttir.
Leikfélagið
Búkolla sýnir
barnaleikrit
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Berglind Dagný Steinadóttir og Bjarni Guðmundsson.
Laxamýri
ÁTTA kindur fundust við eyðibýlið
Eyvindarstaði í Vopnafirði á dög-
unum. Þar reyndust komnar tvær
tvílembdar dilkær frá Breiðumörk í
Hlíð og gimbur ásamt tvævetrum
hrúti frá Skjaldþingsstöðum í
Vopnafirði.
Hrúturinn frá Skjaldþingsstöðum
hefur gengið úti nú næstum tvo vet-
ur, hann gekk úti í fyrravetur og
sást í göngum í haust en náðist ekki
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, var
illur viðskiptis og réðist að þeim
sem höfðu afskipti af honum á síð-
asta hausti. Varðist hann með því að
renna sér á þá sem nálguðust hann
og reyndi að stanga bæði menn og
hesta svo menn urðu við svo búið frá
að hverfa.
Það voru Steindór Sveinsson frá
Vopnafirði og Viggó Eiríksson í
Fögruhlíð sem fundu kindurnar rétt
við veginn yfir Hellisheiði við eyði-
býlið Eyvindarstaði í Böðvarsdal.
Að sögn Viggós höfðu þessar
kindur sést í vetur inn af Böðvarsdal
á Gljúfurárdal og Eyvindarstaðaaf-
rétt. Kindurnar voru vel á sig komn-
ar og eru nú komnar til síns heima
og ein gimbrin á Breiðumörk er bor-
in. Viggó sagði þessar kindur hafa
farið á milli smalasvæða í haust og
þess vegna orðið eftir.
Átta kindur
finnast í
Vopnafirði
Norður-Hérað
FJÖRUTÍU og tveggja manna
lúðrasveit frá Växjö í Svíþjóð hélt
tónleika í félagsheimilinu Fellsborg á
Skagaströnd nýlega. Á tónleikunum
spilaði einnig lúðrasveit tónlistar-
skóla Austur-Húnavatnssýslu. Auk
þess að spila sitt í hvoru lagi spiluðu
sveitirnar einnig saman tvö lög og
voru þá um 60 blásarar á sviðinu í
einu.
Växjö er vinabær Skagastrandar í
Svíþjóð og voru tónleikar Växjö skol-
ornas musikkår hluti af heimsókn
Svíanna til Íslands og Skagastrand-
ar. Alls voru gestirnir um 50 talsins
og gistu þeir í heimahúsum þann
tíma sem þeir dvöldu hér. Lúðra-
sveitina skipa ungmenni á aldrinum
14 til 20 ára og höfðu þau safnað sér
fyrir ferðinni til Íslands með spila-
mennsku við ýmis tækifæri í heima-
borg sinni.
Auk tónleikanna komu ungling-
arnir í heimsókn í Höfðaskóla og
kynntu þar nemendum skólans
heimaborg sína. Að því loknu spiluðu
þeir nokkur lög í íþróttahúsinu við
miklar vinsældir krakkanna. Þess
má geta til gamans að íbúar í Växjö
eru um 75 þúsund talsins en á Skaga-
strönd búa um það bil 630 manns.
Sænsk
vinabæjar-
heimsókn
Skagaströnd
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Sænska lúðrasveitin spilaði einkum kvikmyndatónlist á tónleikunum.
NÝLEGA var gerð afstöðukönnun
meðal íbúa Kirkjubólshrepps í
Strandasýslu um sameiningu við
nærliggjandi hreppa, þ.e. Hólmavík-
urhrepp eða Broddaneshrepp.
Til að skýra afstöðu íbúa Kirkju-
bólshrepps voru lagðar fyrir tvær
spurningar. Annars vegar um það
hvoru sveitarfélaginu þeir kysu að
sameinast og hins vegar hvort menn
teldu þetta góðan, viðunandi eða
slæman kost.
Af þrjátíu og þremur sem höfðu
tillögurétt völdu nítján sameiningu
við Hólmavík en átta við Broddanes-
hrepp. Svörun var tæplega 85% en
fjöldi íbúa í Kirkjubólshreppi er
fjörutíu og níu og því undir viðmið-
unarmörkum sem eru fimmtíu og
hafa verið það undanfarin þrjú ár.
Sem svar við seinni spurningu voru
afgerandi fleiri sem töldu Hólmavík
góðan eða viðunandi kost. Í nefnd
sem félagsmálaráðuneytið skipaði
eru tveir úr Kirkjubólshreppi, þeir
Matthías Lýðsson, oddviti, Húsavík,
og Guðjón Sigurgeirsson, Heydalsá,
og aðrir tveir frá Hólmavík.
„Nefndin fylgir málinu eftir og
gerir tillögu til félagsmálaráðu-
neytisins sem mun í framhaldinu
senda niðurstöður og kveða upp úr-
skurð um hvenær og hvernig að sam-
einingu verði staðið.“ sagði Matthías.
Sameining við Hólmavík?
Hólmavík
Könnun meðal íbúa Kirkjubólshrepps í Strandasýslu