Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 13
ÚTSÖLUMARKAÐUR
verður opnaður í dag kl. 12.00
á Suðurlandsbraut 10
ALLAR dagmæður í Mosfellsbæ
uppfylla þau skilyrði sem starfsemi
þeirra eru sett. Þetta er niðurstaða
úttektar leikskólafulltrúa bæjarins á
starfsemi dagmæðranna.
Starfandi dagmæður í Mosfellsbæ
eru 12 talsins og hafa þær starfað
mislengi, allt frá einu ári til 25 ára.
Samtals eru þær með 56 börn í gæslu
og flest á aldrinum átta mánaða til
tveggja eða þriggja ára. Í fréttatil-
kynningu frá bænum segir að úttekt-
in hafi verið gerð í kjölfar könnunar
sem félagsmálaráðuneytið lét gera í
desember á fjölda barna hjá hverri
dagmóður. Í úttekt bæjarins var
starfsemin m.a. skoðuð m.t.t. fjölda
barna hjá þeim og hvort þær upp-
fylltu þau skilyrði sem starfseminni
eru sett samkvæmt reglugerð.
Niðurstaða skoðunarinnar var að
dagmæður í Mosfellsbæ uppfylla öll
skilyrði reglugerðarinnar og fjölda
barna samkvæmt leyfi. „Í stöku til-
fella er eitt barn umfram í stuttan
tíma (1-2 vikur) þegar eitt barn er að
hætta og annað að byrja eða milli
klukkan 12 og 14 þegar eitt barn er
nýkomið og annað rétt ófarið, enda
sofa börnin flest á þessum tíma.
Dagmæður eru beðnar um að láta
foreldra ávallt vita af þessu,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Þá voru brunavarnir sérstaklega
skoðaðar í febrúar sl. af Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins en að sögn
Gunnhildar Sæmundsdóttur leik-
skólafulltrúa hafa þau atriði, sem þá
voru gerðar athugasemdir við, verið
lagfærð.
Tólf dagmæður starf-
andi í sveitarfélaginu
Uppfylla
öll skilyrði
Mosfellsbær
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
alltaf á föstudögum
alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR