Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 25 YFIRLÝSING George W. Bush Bandaríkjaforseta um Miðaustur- lönd í síðustu viku leiddi í ljós djúpan ágreining innan Repúblikanaflokks- ins varðandi afstöðu Bandaríkja- stjórnar til deilnanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Annars vegar eru ráðandi öfl í utanríkisþjónustunni, sem vilja að Bush skakki leikinn án tafar, en hins vegar er farið að bera meira á íhaldsmönnum, hlynntum Ísraelum, er vara forsetann við því að skipta sér af tilraunum Ísraela til að verjast hryðjuverkastarfsemi. Vaxandi styrkur íhaldsvængs Repúblikanaflokksins hefur sett augljósari Ísrael-slagsíðu á flokkinn en hann hafði í forsetatíð föður Bush og valdið dramatískum breytingum í flokknum, en á árum áður var meðal íhaldssinnaðra repúblikana ólgandi andúð á gyðingum. Þróunin innan flokksins undanfarinn áratug hefur fært hann til hægri, og það hefur ekki aðeins haft áhrif á afstöðuna til innanríkismála heldur líka magnað rödd þeirra sem sjá utanríkismál fremur í siðferðilegu ljósi en efna- hagslegu eða út frá hagsmunagæslu. „Með lokum kalda stríðsins hvarf aðal óvinurinn sem íhaldsmenn not- uðu til að skerpa athyglina,“ sagði John J. Pitney, prófessor við Clare- mont McKenna-háskólann í Kali- forníu. „Nýi óvinurinn er hryðju- verkastarfsemi, og ef maður vill beita afli gegn hryðjuverkum leiðir það oft til stuðnings við Ísrael.“ Bush forseti er bæði afurð þeirra afla sem reistu þennan nýja Re- públikanaflokk og glöggt dæmi um það gildismat sem síast hefur inn í umræðuna um hvernig brugðist skuli við deilum Ísraela og Palest- ínumanna. Yfirlýsing hans í síðustu viku, um að Ísraelum bæri að draga herlið sitt tafarlaust frá heima- stjórnarvæðum Palestínumanna, var tilraun til að koma til móts við hefð- bundin viðhorf til utanríkisstefnu Bandaríkjamanna, og afstöðu bandamanna þeirra erlendis, en Bush tók líka tillit til íhaldsmann- anna sem áttu stóran þátt í því að hann var kjörinn forseti. Sumir þessara íhaldsmanna voru andsnúnir kröfu hans um brottflutn- ing ísraelska hersins. „Níutíu pró- sent af því sem hann sagði missti marks vegna kröfunnar um að Ísr- aelar dragi sig til baka,“ sagði Gary Bauer, baráttumaður kristinna íhaldssinna. „Ef allt sem hann sagði er satt, og ég tel svo vera, þá eru það rök fyrir því að Ísraelar geri allt sem þeir geta til að höggva að rótum manndrápsaflanna,“ sagði Bauer. En bandarískir embættismenn benda á alla ræðu forsetans sl. fimmtudag, fremur en bara orðanna sem forsetinn beindi til Ariels Shar- ons, forsætisráðherra Ísraels, og segja að fordæming forsetans á Yasser Arafat Palestínuleiðtoga taki af allan vafa um hvern forsetinn styðji. Ráðgjafi Bush viðurkenndi að menn hefðu haft af því nokkrar áhyggjur að yfirlýsingin yrði túlkuð þannig að forsetinn væri að snúa baki við Ísraelum. Breytingarnar innan Repúblik- anaflokksins eru til marks um aukin áhrif kristinna íhaldsmanna, sem margir hverjir byggja stuðning sinn við Ísrael á Biblíunni. Þessir kristnu íhaldsmenn, segir Bauer, „eru sann- færðir um að Bandaríkjamönnum beri skylda til að standa með Ísr- aelum“, og sækja þessa sannfæringu „í heilaga ritningu, þar sem guð- spjallamennirnir segja að Guð hafi lofað gyðingum þessu landi“. Í þeirri umræðu sem nú stendur hafa kristnu íhaldsmennirnir gengið í lið með ný-íhaldsmönnum, sem margir eru gyðingar, og krefjast þess af stjórnvöldum að þau bregðist við Miðausturlandadeilunni og Ara- fat á sama siðferðilega afdráttar- lausa mátann og þau brugðust við hryðjuverkastarfsemi og Osama bin Laden. Þessir íhaldsmenn sjá bein tengsl á milli stríðs Bush gegn hryðjuverkastarfsemi í heiminum og átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Þeir óttast að siðferðilegur tvískinn- ungur í afstöðunni til Miðaustur- landa grafi undan herferð stjórnar- innar gegn hryðjuverkamönnum. Að sögn háttsetts embættismanns í Hvíta húsinu telur Bush tengslin ekki svona augljós. Ákvörðun forset- ans um að gefa yfirlýsingar um málið og senda Colin Powell utanríkisráð- herra til Miðausturlanda „ber ekki að skoða í víðara samhengi“. Val Bush á utanríkismálaráðgjöfum end- urspeglar viðhorf íhaldssinnaðra stuðningsmanna hans, en meðal þessara ráðgjafa eru Donald Rums- feld varnarmálaráðherra og Paul Wolfowitz aðstoðarvarnarmálaráð- herra. Íhaldsmenn segja að Bush hafi gefið afdráttarlaust merki þegar hann hafi í upphafi forsetatíðar sinn- ar leitað eftir ráðgjöfum sem voru nær Ronald Reagan en Bush eldri. En eins og Marshall Wittmann, starfsmaður Hudson-stofnunarinn- ar, segir, hafa íhaldsmenn alltaf ótt- ast það undir niðri að „þessi Bush forseti taki upp á því að feta í fótspor föður síns“, og þess vegna hafi orð Bush í síðustu viku vakið grunsemd- ir. „Menn óttuðust að utanríkisráðu- neytið hefði haft betur en varnar- málaráðuneytið í þessum slag,“ sagði Wittmann, sem er bandamaður íhaldsmanna í þessu máli, „að minnsta kosti í augnablikinu“. Yfirlýsingar George W. Bush um Miðausturlönd eru til marks um innbyrðis ágreining í Repúblikanaflokknum Styrkur kristinna íhaldsmanna vex Reuters Bush á búgarði sínum í Crawford í Texas ræðir í síma við Ariel Sharon. Washington. The Washington Post. ’ Kristnir íhalds-menn eru sann- færðir um að Banda- ríkjamönnum beri skylda til að standa með Ísraelum ‘ RANNSÓKN vísindamanna við Karolinska-Institutet í Stokkhólmi hefur óvænt leitt í ljós að of mikil líkamsrækt kemur ekki áfengis- fíklum til góða, heldur gerir þvert á móti illt verra, að því er greint er frá í nýjasta hefti The Economist. Það er vel kunn staðreynd, að þeir sem iðka hlaup af miklum móð sýna oft einkenni fíknar. Þeir kom- ast í svokallaða „hlauparavímu“ af áreynslunni, en eftir því sem á líð- ur þurfa þeir sífellt að reyna meira á sig til að „fá skammtinn sinn“. Rannsóknir Stefans Brenes og samstarfsmanna hans á rottum leiddu í ljós, að þeir sem komast á bragðið með náttúrulega vímu eru líklegri til að leita eftir vímu af völdum utanaðkomandi efna á borð við áfengi. Rotturnar, sem komust upp á lag með að hlaupa marga kílómetra í hlaupahjólum, voru alveg jafn áfjáðar í áfengi, þegar hjólin höfðu verið tekin burtu en boðið var upp á etanól í staðinn. Þegar hjólin buð- ust aftur fór um helmingur rott- anna að hlaupa á ný. Þegar svo var boðið upp á áfengi aftur reyndust rotturnar, sem höfðu tekið upp íþróttir á ný, vera meiri byttur en þær sem höfðu ekki farið í hjólin aftur. Niðurstöður rannsóknanna birtast í væntanlegu hefti Behav- ioural Brain Research. Æfingafíkn eykur hættu á áfengisfíkn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.