Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 11
LYFJAFYRIRTÆKIÐ
Lyfja hefur þjálfað tvo
lyfjafræðinga í lyfjafræði-
legri umsjá og hyggst í
framhaldi af því bjóða upp
á slíka þjónustu í verslun
sinni í Smáralind. Að
þessu tilefni kom Dr.
Linda Strand, prófessor
við Minnnesota-háskóla í
Bandaríkjunum, hingað til
lands en hún er ein af
upphafsmönnum hugtaks-
ins lyfjafræðileg umsjá
(pharmaceutical care) og
hefur ásamt samstarfs-
fólki sínu staðið að
tveggja ára tilraun þar
sem 25.000 sjúk-
lingum í Bandaríkj-
unum var veitt slík
þjónusta.
Dr. Strand
kynnti lyfjafræði-
lega umsjá fyrir
Jóni Kristjánssyni
heilbrigðisráðherra
og fulltrúum sam-
taka og fjölmiðla á
Grand hóteli í laug-
ardag. Á fundinum
kom fram að lyfja-
fræðileg umsjá
miði að því að bæta
líðan og lífsgæði
sjúklinga með sam-
vinnu sjúklinga, lækna og lyfja-
fræðinga.
Í lyfjafræðilegri umsjá fær lyfja-
fræðingurinn aukið hlutverk þar
sem honum er ætlað að taka þátt í
að skilgreina markmið lyfjagjafa og
leita bestu leiða til að þeim mark-
miðum verði náð. Þetta gerir hann
m.a. með því að fara yfir allar lyfja-
tökur sjúklinga með það fyrir aug-
um að öðlast yfirsýn yfir virk efni
hvers lyfs, samverkanir þeirra,
gagn- og aukaverkanir.
Annar hver sjúklingur með
vandamál tengd lyfjaneyslu
Á fundinum kom fram að daglega
eru skráð ný lyf í heiminum auk
þess sem fjöldi fólks notar ýmis
grasa-, náttúru- og lausasölulyf
samhliða lyfseðilsskyldum lyfjum
og að því sé mikil þörf á slíkri þjón-
ustu. Þá sýni rannsóknir Dr Strand
og samstarfsfólks hennar að annar
hver sjúklingur eigi við vandamál
að stríða sem rekja megi til óná-
kvæmrar eða rangrar lyfjaneyslu
og að rekja megi eina af hverjum
tíu innlögnum á sjúkrahús til
rangrar lyfjanotkunar.
Lyfja mun bjóða upp á lyfja-
fræðilega umsjá frá 23. apríl en til
að byrja með verður þjónstan veitt
í samstarfi við sjúklinga og lækna
Astma- og ofnæmisfélagsins og
Samtaka lungnasjúklinga.
Ein af hverjum tíu innlögnum
vegna rangrar lyfjanotkunar
Linda Strand
V-DAGURINN var haldinn í Borg-
arleikhúsinu 14. febrúar síðastlið-
inn. Meðal þeirra sem lögðu hönd
á plóginn við undirbúning V-dags-
ins voru Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra og starfsfólk
ráðuneytisins. Þær Edda Jóns-
dóttir og Hlín Helga Guðlaugs-
dóttir úr V-dagssamtökunum af-
hentu ráðherra þakkarskjal á
skrifstofu hennar nú á dögunum.
Dómsmálaráðherra lýsti því yf-
ir að hún væri ánægð með fram-
takið í heild sinni, segir í frétta-
tilkynningu frá V-dagssamtök-
unum.
Morgunblaðið/Golli
Edda Jónsdóttir og Hlín Helga Guðlaugsdóttir úr V-dagssamtökunum
afhentu Sólveigu Pétursdóttur ráðherra þakkarskjal.
Þökkuðu dóms-
málaráðherra
UNDIRSKRIFTIR 110 Bolvíkinga
söfnuðust á fjórum klukkustundum á
undirskriftalista þar sem skorað er á
Davíð Oddsson forsætisráðherra að
sjá til þess að mótmæli berist frá Al-
þingi Íslands til Ísraelsstjórnar
vegna meðferðar þeirra á Palestínu-
mönnum. Listinn hefur verið sendur
forsætisráðherra.
„Við undirritaðir Bolvíkingar trú-
um að á virðulegu Alþingi Íslands
sitji ekki alþingismaður sem getur
afsakað meðferð Ísraelsstjórnar á
Palestínufólki. Biðjum við yður,
herra forsætisráðherra, að sjá til
þess að mótmæli berist til Ísr-
aelsstjórnar frá Alþingi Íslands,“
stendur á undirskriftalistanum sem
Valgerður Bára Guðmundsdóttir átti
frumkvæði að.
Hún segir að sér hafi blöskrað svo
meðferð Ísraelsmanna á Palestínu-
mönnum að henni hafi fundist hún
þurfa að gera eitthvað. „Bolungarvík
er lítið þorp og það hefur ekkert
þorp gert þetta,“ segir Valgerður
Bára sem skorar á íbúa annarra
þorpa að gera slíkt hið sama.
„Ég tel að um 20% af atkvæðis-
bæru fólki í Bolungarvík hafi skrifað
undir listann á fjórum klukkustund-
um. Ég bara var með listann úti í
búð, fór í vélsmiðjuna og Sparisjóð-
inn og stoppaði bíla og fólk á götum
úti. Fyrst ætlaði ég nú bara að hafa
50 undirskriftir en stoppaði í 110,“
segir Valgerður. Hún hefur þrisvar
sinnum komið á átakasvæðið og seg-
ir að ástandið hafi sífellt farið versn-
andi.
110 Bolvíkingar skora á forsætisráðherra
Alþingi mót-
mæli meðferð
Ísraela á Palest-
ínumönnum
PALESTÍNUVINIR á Íslandi efndu til þögullar mót-
mælastöðu fyrir utan stjórnarráðið í Reykjavík í
gærmorgun. Ætla þeir að efna til sams konar mót-
mæla alla daga í þessari viku.
Samtökin segja tilganginn að fá íslensk stjórnvöld
til að gera allt sem þau geta til að fyrirbyggja þjóð-
armorð í Palestínu, tryggja alþjóða vernd handa
Palestínumönnum og stuðla með öllum tiltækum
ráðum að því að Ísrael virði samþykktir Sameinuðu
þjóðanna.
Morgunblaðið/Kristinn
Ástandinu í Miðaust-
urlöndum mótmælt
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands, BSRB, Öryrkja-
bandalag Íslands og félagið Ísland-Palestína
standa fyrir útifundi á Austurvelli í dag, þriðju-
daginn 9. apríl, kl. 17.30.
Kjörorð fundarins eru: Stöðvum blóðbaðið – al-
þjóðlega vernd strax – frið í Palestínu, segir í
fréttatilkynningu. Meðal ræðumanna eru biskup
Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson og Grétar
Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
Útifundur
á Austurvelli
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, kallaði eftir því á
Alþingi í gær að Alþingi sendi frá sér
skilaboð til umheimsins vegna
ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs.
Minnti hann m.a. á að þingsályktun-
artillaga þingmanna Samfylkingar-
innar um sjálfstæði Palestínu væri til
meðferðar á þinginu en að hún hefði
enn ekki fengist afgreidd úr utanrík-
ismálanefnd þingsins. „Ég kem hing-
að,“ sagði hann í upphafi máls síns,
„til að undrast það að hið háa Alþingi
lætur sitt eftir liggja í þessum efnum.
Það ríkir ógnaröld í Palestínu,“ sagði
hann.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanríkis-
ráðherra, tók undir með Össuri um að
ástandið í Miðausturlöndum væri
mjög alvarlegt. „Við vitum það öll að
ef á að finna viðunandi lausn á þessu
máli þurfa margir að koma þar til;
Evrópusambandið, arabalöndin,
Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar
ekki síst,“ sagði hann. Ráðherra sagði
að sér væri kunnugt um að fyrir Al-
þingi lægi fyrrgreind tillaga Samfylk-
ingarinnar. „Það er í höndum utanrík-
ismálanefndar að afgreiða þau mál
sem þar liggja fyrir,“ sagði hann.
„Nú fer í hönd nefndarvika og ég
vænti þess að háttvirtir þingmenn
stefni að því að afgreiða þetta mál hið
fyrsta. Ég hef ekkert nema gott um
það að segja. Ég tel það mikilvægt að
fram komi ályktun hér á Alþingi í
þessu máli og að þingmenn reyni að
ná saman um texta hennar. Ályktanir
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
hljóta að vera aðalgrundvöllurinn fyr-
ir slíkri ályktun og ég veit ekki betur
en það sé á því fullur áhugi hjá öllum
stjórnmálaflokkum hér á Alþingi að
ná saman um slíka afgreiðslu.“
Alþingi
álykti um
ástandið í
Miðaust-
urlöndum
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist
3,1 stig á Richter, varð undir
Skeggja í Henglinum klukkan
22.36 á sunnudagskvöld og fannst
hann víða á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkrir skjálftar urðu á svæðinu
frá laugardagskvöldi fram til
sunnudagskvölds, en flestir mjög
litlir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni var engin virkni á
svæðinu laust fyrir miðnættið á
sunnudagskvöld og var ástandið
óbreytt í gærkvöld.
Jarðskjálfti
í Henglinum
LÖGREGLAN á Egilsstöðum leit-
ar að manni sem gerði tilraun til
vopnaðs ráns í Vídeó-flugunni á Eg-
ilsstöðum seint á laugardagskvöld.
Maðurinn var með plastgrímu
fyrir andlitinu og otaði hnífi að af-
greiðslumanni og krafðist þess að
fá peninga úr sjóðsvél. Afgreiðslu-
maðurinn neitaði og varnaði mann-
inum leið að kassanum. Að sögn
lögreglu kom til minniháttar stymp-
inga og lagði ræninginn við svo bú-
ið á flótta. Hann er talinn ungur að
árum.
Lagði á flótta
eftir mis-
heppnað rán
ÞINGMENN Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs hafa lagt fram á
Alþingi tillögu til þingsályktunar um
breiðbandsvæðingu landsins. Megin-
efni tillögunnar er að Alþingi álykti
að ljúka skuli uppbyggingu fjar-
skipta- og gagnaflutningsnets lands-
ins á næstu þremur árum þannig að
fyrirtæki, stofnanir og heimili hvar
sem er á landinu hafi aðgang að
bestu fáanlegu fjarskipta- og gagna-
flutningamöguleikum með breið-
bandinu eða annarri jafngildri
tækni.
„Landssímanum verði, einum sér
eða eftir atvikum í samstarfi við
aðra, falið að ráðast í nauðsynlegar
fjárfestingar og endurbætur á
grunnfjarskiptanetinu til að fyrr-
greint markmið náist fram. Lands-
síminn verði undanþeginn arð-
greiðslum til eigenda meðan á
átakinu stendur,“ segir í tillögunni.
Í greinargerð tillögunnar segir
m.a.: „Nú þegar ljóst er að ekki verð-
ur af sölu Landssímans í bráð er
brýnt að snúa sér að því að skapa
sátt um fyrirtækið og efla það á ný.
Mestu máli skiptir að Landssíminn
verði í stakk búinn til að sinna því
hlutverki sínu vel að tryggja lands-
mönnum aðgang að fyrsta flokks
fjarskipta- og gagnaflutningsmögu-
leikum. Gera þarf átak til að tryggja
að Ísland verði í fremstu röð á sviði
fjarskipta og gagnaflutninga og
landsmenn allir sitji við sama borð í
þeim efnum.“
Þingmenn VG
Lokið verði
við uppbygg-
ingu gagna-
flutningsnets
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦