Vísir - 05.06.1980, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 5. júni 1980.
4
FROSTHELDAR
FL/SAR úti og inni
Fyrst nú eftir margra ára reynslu á íslenskri
veöráttu getum við mælt sérstaklega meö frost-
heldu flisunum frá Nýborg.
Flisarnar eru hannaðar til að standast ströngustu
gæðaprófanir á italíu, islandi, og í Þýskalandi.
Meðal notenda hér á landi er Póstur og sími, Hita-
veita Reykjavíkur auk ótaldra fyrirtækja og ein-
staklinga.
Nú er rétti tíminn til að leggja flísarnar, leggið leið-
ina í Nýborg og lítið á úrvalið.
áfoNýborgE
O Ármúla 23 Sími 86755
Útboð
Hitaveita Suðurnesja auglýsir eftir tilboðum í
uppsetningu varmaskiptarása 6, 7 og 8 í
varmaorkuveri i Svartsengi. Verkið skal unnið
á tímabilinu 15. júlí 1980-1. júní 1981.
Útboðsgögn verða afhent frá og með föstu-
deginum 6/6 á verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns, Laufásvegi 12, Reykjavík og skrif-
stofu H.S., Brekkustíg 36 Y-Njarðvik. Skila-
trygging er kr. 100.000.-
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 25/6 kl.
14.00 á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja,
Brekkustíg 36, Y-Njarðvík.
Blaðburðarfól
óskast:^
Só/heimar Lindargata
Sólheimar Lindargata
Goðheimar Klapparstigur
SUMARDVALAHEIMILI
SJÓMANNADA GS/NS
Hrauni, Grímsnesi,
verður starfrækt i 10 vikur, frá 6/6-14/8.
Vikudvöl kostar kr. 35.000,-
Upplýsingar í símum 38440 og 38465
Brottför er á fimmtudögum kl. 14.00.
I'
Ekki sama
svart ein-
ræöi 09
rautt alræði
Jean-Claude Duvalier meö konu-
efni sitt.
- Bandaríkjastjórn tekur við tugðúsundum kúbanskra
llðllamanna en snýr við bátafólki frá Haifi
Bandarískir blökku-
mannaleiðtogar eru reiðir
stjórnvöldum fyrir að á
meðan tugþúsundum kúb-
anskra flóttamanna er
veitt landvistarleyfi skuli
flóttafólki frá Haíti verða
snúið frá. Telja þeir síst
minni ástæðutilað hleypa
bátafólkinu frá Haiti inn í
landið, þar sem ástandið í
litla eyríkinu sé mjög bág-
borið. En þarna spilar al-
heimspólitíkin inn í og
virðast stjórnvöldum
þarna vestur frá líka betur
við svart einræði en rautt
alræði.
A ytra boröi viröist eitt mál al-
taka hugi Haiti-búa — brúökaup
aldarinnar. Jean-Claude Duvali-
er, „Baby-Doc”, forseti fyrir lifs-
tiö, ætlar aö ganga i hjónaband i
vikunni.
Blöö eru uppfull af fréttum af
undirbúningi brúökaupsins og
hamingjuóskum til hjónaefnanna
frá áhrifamestu mönnum lands-
ins. En brúökaupiö og umtaliö i
kringum þaö, er aöeins þunn hula
yfir fátæktina og eymdina i land-
inu.
„Haitibúi, sem vinnur viö
diskaþvott i Miami I Bandarikj-
unum, vinnur sér jafn mikiö inn á
einum klukkutlma og hann ynni
sér inn á heilum degi heima”,
sagöi hagfræöingur i Port-au-
Prince.
Spillt og duglaus stjórnvöld
hafa i gegnum árin gert lélegan
efnahag þjóbarinnar enn verri.
Frá þvi Franqois Duvalier (Papa
Doc) náöi völdum áriö 1957, hefur
ógnarstjórn rikt á Haiti. Pólitisk
kúgun hefur haldiö áfram frá þvl
Baby Doc tók viö eftir andlát föö-
ur sins fyrir niu árum, þá 19 ára
gamall, en hann hefur þó heldur
slakað á ógnarstjórninni.
Hann breytti til dæmis, þvert
ofan i ráö móöur sinnar, Simone
Duvalier, hinum illræmdu Tonton
Macoutes i eins konar þjóövarn-
arliö. Orvalsliö þetta þykir flest-
um frekar hlægilegt en ógnvekj-
andi — enda ýmsu vanir.
„Einu sinni i fyrra uröu þeir
allir fullir viö athöfn, sem haldin
var þeim til heiöurs, og þá slepptu
þeir sér gersamlega”, sagöi
sendiráösstarfsmaöur.
„En yfirleitt eru þeir sofandi
einhvers staöar og maður sér þá
sárasjaldan lumbra á fólki”.
En þó Duvalier hafi aöeins
slakaö á ógnarstjórninni, hefur
hann vart snert á vandamálum
þjóöarsinnar. Eftir nærri áratugs
stjórn, vita stjórnvöld ekki ná-
kvæma tölu ibúa landsins. Þeir
munu vera nálægt sex milljónum
á fjöllóttu landsvæöi, sem nær
varla aö vera f jóröungur af stærö
Islands. Þá eru ekki til nákvæmar
tölur um þjóöarframleiösluna,
jafnvel ekki um stærö hrisgrjóna-
uppskerunnar.
Skóglendib er hoggiö miskunnar-
laust I eldiviö og ræktarlönd blása
upp. Stjórnun úti á landsbyggð-
inni er nánast engin, þó fjórir
fimmtu hlutar ibúanna búi þar.
Barnadauöi er fimmtán prósent
(150 af hverjum þúsund ungbörn-
um deyja) og meöalaldur lands-
manna er um fimmtiu ár. Meðal-
árstekjur eru tæpar sextiu þús-
und krónur og meira en 80% ibúa
eru ólæsir.
Til aö reyna aö koma i veg fyrir
enn meiri fólksflótta frá Haiti,
hafa stjórnvöld reynt aö fá út-
lendinga til aö fjárfesta i landinu.
Nýlega voru stofnaöar um 200
verksmiöjur, og fengu um 40.000
eyjaskeggjar atvinnu I þeim. Aö
sögn hagfræðings i Port-au-
Prince voru áhrifin eins og upp-
spretta i eyðimörk.
Um fjórðungur milljónar bætist
á vinnumarkaöinn á ári hverju og
er atvinnuleysi um 50% i landinu.
Baráttan um þau fáu atvinnutil-
boö sem bjóöast er hörö og rudda-
leg.
Aö skera sykurreyr er ein erfiö-
asta yinnan, sem hægt er að
hugsa sér. En þegar beöiö var um
verkamenn frá Haiti til að skera
sykurreyr I Dóminikanska lýö-
veldinu uröu beinlinis uppþot og'
blóöug átök atvinnulausra verka-
manna um störfin.
Bandarikjastjórn hefur sem
sagt sent bátafólk frá Haiti aftur
til sins heima, þar sem framtiöin
er vægast sagt ótrygg. Þó ekki sé
það sannað, þá hafa Haitibúar,
búsettir i Bandarikjunum sagt, að
flóttafólk, sem komiö hefur aftur
til Haiti, hafi veriö sett i Dim-
anche fangelsiö, illræmdar
fangabúöir frá dögum Papa Doc,
en stjórnvöld i Port-au-Prince
halda þvi fram aö þeim hafi veriö
lokaö.
„I augum haitiskra stjórnvalda
er þaö nefnilega taliö vera bein
móögun viö Duvalier-fjölskyld-
una aö flytjast úr landi”, segir
fyrrverandi liösmaöur Tonton
Macoute.
„Þegar fólkiö kemur aftur frá
Bandarikjunum er þaö ekki alltaf
handtekiö þegar I staö. En fimm
eöa sex dögum slðar hverfur þaö
— enginn veit hvernig eöa hvert”.
Þaö er þvi ekki út I hött, aö
ætla, aö bátafólkiö frá Haiti hafi
jafn mikla þörf fyrir að vera veitt
landvistarleyfi og flóttafólkiö frá
Kúbu.
(Endursagt úr Newsweek)
Tarzan hrakar
stöðugt
Sagt er, aö Johnny Weissmull-
er, sem var hvaö vinsælastur i
hlutverki Tarsans, hraki nú stöö-
ugt andlega. Weissmuller, sem er
oröinn 76 ára, þjáist af ólæknandi
heilaskemmdum, og likja erlend
blöö honum viö kálhaus.
Hann sefur lengstum, en þegar
hann er vakandi gefur hann frá
sér öskur, hálfu hræöilegri en
hann varö frægur fyrir á hvita
tjaldinu.
Slaka á
vopnasöluiiöltum
Utanrfkismáianefnd öldunga-
deildar Bandarikjaþings skoraöi I
gær á Carter forseta aö slaka á
takmörkunum viö vopnasölu tii
ianda þriöja heimsins.
t ályktun þingnefndarinnar
segir, aö þriggja ára gömul
stefna Carters um takmörkun á
vopnasölu hafi ekki boriö tilætl-
aöan árangur, þar sem vopnasala
Sovétmanna og V-Evrópumanna
til þriöja heimsins hafi aukist i
réttu hlutfalli viö samdrátt
vopnasölu Bandarikjamanna.
Vopnasala Sovétmanna til
þriöja heimsins jókst úr 5,1 mill-
jaröi dollara á árunum 1974-’76 i
7.2 milljaröa dollara á árunum
’77-’79.
Drelflng tveggja
arabískra blaða á
hernumdu
svæðunum stöövuð
tsraelskir dómstólar hafa rétt-
lætt bann stjórnvalda á dreifingu
á dagblaöinu ElFajr, sem er gef-
iö út i austurhluta Jerúsalem, á
hernumdu svæöunum.
Hernaöaryfirvöld stöövuöu i
fyrri viku söluna á E1 Fajr og á
blaöinu Sha’ab, sem einnig er
gefiö út I Jerúsalem. Var ástæöan
sögö sú, aö i blööunum væri hvatt
til ofbeldisverka.
Ctgefendur E1 Fajr sögöu fyrir
rétti, aö blaöiö heföi reglulega
veriö ritskoöaö af hernaöaryfir-
völdum fyrir útkomu og engin aö-
vörun heföi veriö gefin.