Vísir - 05.06.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 05.06.1980, Blaðsíða 14
Fimmtudagur 5. júni 1980. ' 14 Knattspyrnuvöllurinn sem bréfritari talar um og er við hliöina á Laugardalslauginni. : vaöa fpróttafélögln yflr ! almennlngsvelli? PP hringdi: „I Laugardalnum er nú knatt- spyrnuvöllur sem mér hefur skilist að sé fyrir almenning. Hann er við hlið Laugadals- sundlaugarinnar og er senni- lega eini völlurinn i borginni, sem er opinn fyrir allan al- menning en ekki einokaöur af iþróttafélögunum. Þess vegna kom mér það spánskt fyrir sjónir að verða vitni af þvi að iþróttafélag hér i bænum kæmi þangaö til að halda æfingu og ryddi þeim, sem voru að leika sér þar, i burtu. Af þessu tilefni vil ég spyrja: er þessi völlur ekki fyrir almenning? Ef svo er, af hverju er ekkert eftirlit með þvi, að iþróttafélögin vaði ekki yfir þennan völl eins og alla aðra?” Visir bar þessa spurn- ingu undir Baldur Jónsson, vallarstjóra. „Þessu er fljótsvarað, völlur- inn er alls ekki fyrir almenning. Þetta er eini varavöllurinn sem við höfum i Reykjavik og við höfum leyft litlu félögunum, sem ekki eiga grasvelli að æfa á honum einstöku sinnum. Ef þetta ætti að vera almennings- völiur væri eins gott að keyra möl I hann strax, þvi hann myndi eyðileggjast á svip- stundu. Hitt er svo annað mál að það vantar sárlega grasvelli fyrir almenning i Reykjavik, en þetta er spurning um peninga og hingaö til hafa þeir ekki fengist i þetta verkefni. Siómannadagur og Lístahátlð Margir hafa orðið til að gagnrýna þá ráðstöfun að setja saman setningardag listahatlðar og sjómannadag- inn. Þannig sagði Björn Þor- finnsson, sem talaði fyrir hönd sjómanna I Nauthólsvik á sunnudaginn, að ráðstöfun þessi væri háif kaldhæðnisleg og Svarthöfði VIsis tekur enn dýpra i árinni með þvi að lýsa yfir aö þetta hafi verið við- komandi aðilum til hábor- innar skammar. Svarthöfði skellir skuldinni á menntamannakliku Alþýðu- bandalagsins og sakar hana um aö vera komna úr tengsl- um við almenning i landinu. Hér skal ekki lagður dómur á þátt Alþýöubandalagsins i máli þessu, sem óneitanlega er leiöindamál, hverju svo sem um er að kenna. sandkorn Sveinn Guð- jdnsson skrlfar. „Guðlaugur og Vigdis eru nú ein um hituna!”, segir Pálina Þorleifs- dóttir. ■ „Baráttan snvst um Guðtaug og Vigdlsi’ öpnibhér Pálina Þorleifsdóttir, Háteigs- vegi 15, skrifar: „Ég vil byrja á þvi að þakka VIsi fyrir skoöanakönnunina um forsetakosningarnar. Það er ánægjulegt hvaö linur hafa skýrst verulega I þeim málum. Guölaugur Þorvaldsson og Vig- dls Finnbogadóttir eru nú þvi sem næst ein um hituna þvi svo mikið bil er á milli þeirra tveggja og hinna frambjóðend- anna, Alberts og Péturs. Bar- áttan snýst þvl um það hvort þeirra verður forseti Islands. Mér er engin launung á stuðn- ingi minum viö Guðlaug Þor- valdsson. Guðlaugur er mikill drengskaparmaöur og með hon- um hef ég fylgst undanfarin ár, einkum I. sáttastörfum hans. Þar hefur hann gengiö fram fyr- ir skjöldu til þess aö sætta og reyna aö halda friöi á vinnu- markaönum. Þvl starfi, i vlöara samhengi, mun Guölaugur vafalaust halda áfram, ef hann veröur kjörinn forseti Islands. Þessi kosningabarátta hefur verið heiöarleg og drengileg hingað til. Viö skulum halda þvl áfram hvort sem við styöjum Guölaug eða Vigdisi, og standa slðan þétt aö baki hennar eða hans, hvort þeirra sem nær kjöri. | Nvjfe, J uniíR Mjólkurvörur orðnar súrar á siðustu stimpildögum? Enn um súrar mtótkiirafurOir Gyða Jóhannsdóttir hringdi: „Mig langar til að koma á framfæri kvörtun út af mjólkur- afurðum. Ég hef undanfariö keypt nokkrum sinnum skyr I verslunum og það er bara alltaf alveg gallsúrt. Einnig vil ég benda á þaö, að mjólkin og undanrennan, einkum þaö slðamefnda, er orðið þaö súrt á siöustu stimpildögunum, að það er ódrykkjarhæft. Mér þætti full ástæöa til, aö Mjólkursamsalan færi að fá ein- hverja samkeppni frekar en sjónvarpið, þvi viö notum svo mikiöaf mjólkurafurðum. Þetta er orðið það dýrt, að manni finn- st ansi hart að geta ekki verið öruggur um gæði vörunnar”. Að lokum vildi Gyða taka það fram, að hún heföi talaö við margar húsmæður, og væru all- ar sammála um, að þetta væri hlutur, sem allt of oft kæmi fyr- ir. Það er merkileg tilviljun, að allir talsmenn forsetafram- bjóðendanna lýsa sig ánægða með úrslit skoðanakönnunar VIsis sem fram fór um siðustu helgi. Vísir sjálfur getur þvl vel við unað, þvi það er alltaf ánægjulegt að gera fólki til hæfis. Fyrir Visi persónulega eru þó ánægjulegust ummæli þessara sömu talsmanna um framkvæmd könnunarinnar sem bera vinnubrögðunum fagurt vitni. 1 þeim efnum eru talsmennimir allir sammála um að framkvæmdin hafi ver- ið til fyrirmyndar, svo vitnað sé orðrétt i ummæli þeirra. tii fyrirmyndar Þorsti Hér er einn stuttur sem tek- inn var úr fréttabréfi um heil- brigðismál: Dag nokkurn var Agnar gamli á elliheimilinu með slæman hósta. .Var brugðið á það ráð að gefa honum romm. Daginn eftir var gangastúlkan spurð hvernig honum liði. „Honum iiður ágætlega,” svaraði hún, „en nú eru allir hinir karlarnir komnir með slæman hósta”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.