Vísir - 05.06.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 05.06.1980, Blaðsíða 8
8 VÍSIR Fimmtudagur 5. júni 1980. Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastióri: DavlA Guðmundsson. Ritstjórar: óiafur Ragnarsson og Eliert B. Schram. Ritstjórnartuiltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammenarup, Fríða Astvaldsdóttlr, Halldór Reynlsson, lllugi Jökulsson, Jónlna Michaelsdóttir, Kristin Þorstelnsdóttir, Magdalena Schram, Páll Aðagnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sæmundur Guðvlnsson, Þórunn J. Hafstein. Blaðamaður á Akureyri: GIsii Sigur geirsson. Iþróttir: Gylfl Kristjánsson, Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson og Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86óll 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8 simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Askriftargjald er kr.SOOO á mánuði ínnanlands og verð i lausasölu 250 krónur ein- takið. Visirer prentaður I Blaðaprenti h.f. Slðumúla 14. Fulltrúar forsetaframbjó&endanna fjögurra kynna sér niöurstööur skoöanakönnunar VIsis á ritstjórnarskrifstofu bla&sins aö morgni þess dags, sem hún var birt almenningi. Þeir höföu áöur fengiö aö kynna sér grunngögn hennar og fylgjast meö vinnubrög&um viö framkvæmd könnunarinnar. unnið Oft hefur raunin orðið sú, þegar niðurstöður skoðanakann- ana hér á landi hafa verið birtar, að menn hafa verið ánægðir með niðurstöðurnar, ef þær hafa verið þeim hagstæðar, annars ekki. Nú ber nýrra við. Við birtingu niðurstaðna úr viðamikilli skoð- anakönnun Vísis um fylgi fram- bjóðenda við forsetakjör, hafa talsmenn allra frambjóðendanna haft á orði, að þeir dragi ekki niðurstöður könnunarinnar í efa, jafnvel þótt þær séu þeim mis- hagstæðar, einfaldlega vegna þess að könnunin haf i verið unnin „á vísindalega viðurkenndan hátt samkvæmt marktæku úr- taki", eins og einn talsmaðurinn orðaði það í frétt í Vísi í fyrra- dag. Viðamestu skoðanakannanir Vísis til þessa hafa einmitt verið unnar á sama hátt, en þetta er í fyrsta sinn, sem aðilum könnunarinnar er boðið að fylgj- ast með gerð hennar. Óskar Friðriksson, talsmaður stuðningsmanna Péturs Thor- steinssonar, sagðist ekki hafa getað betur séð en að vinnu- brögðin við Vísiskönnunina hafi verið til fyrirmyndar og könnun- in ekkert sambærileg við aðrar, sem farið hefðu fram um fylgi forsetaframbjóðenda. Þorvaldur Mawby, talsmaður stuðningsmanna Alberts Guð- mundssonar, sagðist telja, að eins visindalega og könnun Vísis hefði verið unnin, væri ekki spurning um að hún væri mark- tæk varðandi ástandið um þessar mundir. óskar Magnússon, starfs- maður á skrifstofu Guðlaugs Þorvaldssonar, sagði í Vísi í fyrradag, að framkvæmd könn- unar blaðsins væri til mikillar fyrirmyndar. Gunnar Gunnarsson, tals- maður stuðningsmanna Vigdísar Finnbogadóttur sagði í gær, að könnun Dagblaðsins hefði alls ekki verið sambærileg við könnun Vísis hvað vinnubrögð snertir. Gunnar sagði „vinnu- brögðin við Vísiskönnunina, eins og við kynntum okkur þau, voru til fyrirmyndar og þannig á að vinna kannanir af þessu tagi". Hér er um að ræða verkefni, sem ekki er sama hvernig staðið er að, og skiptir í því sambandi einna mestu, hvort sá grunnur, sem könnunin er byggð á, endurspegli örugglega í smækkaðri mynd, þann hóp, sem skoðanakönnuninni er beint að. I úrtakinu, sem notað var í könnun Vísis, voru 1055 manns af landinu öllu. Við vinnslu þess hjá Reikni- stofnun Háskóla íslands var það vísindalega valið með tilliti til þess að það gæfi spegilmynd af þjóðinni og hlutföll aldurs, kyns og búsetu væri hin sömu og í kjör- skrá Hagstofu (slands, sem byggt var á. Við gerð formála, sem spyrj- endur í könnuninni höfðu yfir áður en þeir spurðu þátttakendur svo og við hönnun fyrirspurna- formsins, var gætt fyllstu óhlut- drægni. Og til þess að eyða hugsanlegri tortryggni þeirra aðila, sem skoðanakönnunin snerti, var svo fulltrúum fram- bjóðendanna boðið að kynna sér gögnin, vinnubrögðin og niður- stöðurnar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er gert hér á landi, en verður væntanlega ekki í hið síðasta, enda nauðsynlegt að vinna slík viðkvæm verkefni fyrir opnum tjöldum. Það er að minnsta kosti skoðun ritstjórnar Vísis og verður forvitnilegt að sjá hvort aðrir framkvæmdaaðilar skoð- anakannana hér á landi séu sama sinnis. Torfærukeppnin vlð Hellu: EINN BAR AF ÖÐRUNI Torfærukeppni Flugbjörg- unarsveitarinnar á Hellu var haldin um síöustu helgi meö sama myndarbrag og undanfar- in ár. Keppni hófst kl. 14 á veðurblíöum laugardeginum viö Varmadalslæk austan viö Hellu. A þriöja þúsund áhorfendur voru mættir á svæöiö en 7 bflar hófu keppni, 6 Willys jeppar og einn Bronco. 8 brautir voru lagöar, hver með sinni þraut. Ekiö var upp brattar brekkur, þröng gil, dekkjagryfju, yfir hrúgu slma- staura og I krappar beygjur, svo eitthvaö sé nefnt. Drullupyttir eru vinsælar þrautir, auk aksturs viö misjöfn skilyröi i Varmadalslæknum, sem reyndar er straumharöari en margur heldur. Þegar þrautaleikurinn var hálfnaöur, haföi einn bllanna brotiö drifskaft og helltist þvi úr lestinni. Þá þegar hafði Gunn- laugur Bjarnason náö forskoti sem hann hélt meö glæsibrag út keppnina. t hálfleik haföi bill hans Willys ’74 komist yfir dekkja- gryfju sem var öörum jeppum ofviöa. Þá haföi hann bakkað upp háa sandbrekku og öllum á óvart, komist upp á topp — en slikt haföi mönnum þótt afar ósennilegt aö nokkur bill færi. „Mjög erfitt er aö halda bllum i beinni braut þegar bakkaö er viö jafn erfiö skilyröi og þarna voru” sagöi Óli Már Aronsson einn flugbjörgunarmanna á Hellu er blaöamaöur innti hann eftir keppninni. Slöasta þrautin var akstur niöur meö Varmadalslæk og supu tveir jeppar slíkar hveljur, aö þeir áttu erfitt meö gang- setningu. Sigurvegarar voru: 1.1660 stig af 1800. Gunnlaugur Bjarnason frá Múlakoti á Siöu i Skaftafells- sýslu á Z—907 sem er 8 cyl. Willys ’74. Hann hlaut kr. 300.000 I vinning auk bikars og gullpenings. „Ég hef átt jeppa slöan 1972 en tók fyrst þátt I móti á Heliu 1978. Þá varö ég frá aö hverfa meö brotiö framdrif” sagöi hinn nýbakaöi torfærumeistari Gunnlaugur Bjarnason. BIII Sighvats Hafsteinssonar, sem hafnaöi I 3. sæti^á leiö yfir staura i timabraut. Gunnlaugur leggur af staö I þraut — afturábak upp háa sand- brekku. nr. 2. 1430 stig. Sigurjón Eiriksson frá Lýt- ingsstööum i Holtahreppi, Rangárvallasýslu á Y—3366 sem er 6 cyl. Willys ’67 árgerö. 3. 1425 stig. Sighvatur Hafsteinsson, Þykkvabæ á 8 cyl. Willys árg. ’75 , G—13862. Þeir Sigurjón og Sighvatur hlutu einnig peningaverðlaun og verölaunapeninga. 3000 kr. kostaöi inn á keppni- svæöiö og allur ágóði rennur til starfs Flugbjörgunarsveitar- innar á Hellu. Aö sögn Óla Más Aronssonar er þetta helsta fjár- öflunarleiö félagsins — en þeir þurfa aö standa fullan straum af kostnaöi viö keppnina. „Viö njótum I engu sérstakra friö- inda t.d. viö auglýsingar á mót- um þessum i rikisfjölmiðlum þótt hér sé fyrst og fremst um að ræöa björgunarstarf i þágu almennings” sagði Ólafur Már aö lokum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.