Morgunblaðið - 09.04.2002, Síða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 21
Viltu verða meistari?
Námunni, Endurmenntun H.Í.
Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
Föstudaginn 12. apríl kl.12.15 –13.30
Kynningarfundur um MBA nám í Háskóla Íslands
Háskóli Íslands
Vi›skipta- og hagfræ›ideild
MBA námið í Háskóla Íslands er vandað og hagnýtt nám á meistarastigi sem hægt er að
stunda með vinnu.
Námið er ætlað einstaklingum sem þegar hafa lokið háskólanámi á einhverju sviði og vilja
bæta við sig fjögurra missera markvissu námi sem skapar fleiri tækifæri til starfsframa.
Að loknu MBA námi í Háskóla Íslands eru nemendur vel undir það búnir að taka að sér
krefjandi stjórnunarstörf og axla ábyrgð í rekstri framsækinna fyrirtækja og stofnana.
MBA námið skapar ný tækifæri og skilar þér þannig tvímælalaust ávinningi.
Komdu á fundinn og kynntu þér námið. Kennarar og nemendur svara fyrirspurnum.
Boðið verður upp á veitingar.
Næsti hópur byrjar í september 2002.
Umsóknarfrestur er til 2. maí nk.
www.mba.is
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
•
s
ia
.is
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
telur að íslensk fyrirtæki eigi að
geta treyst því að þær breytingar
sem orðið hafa á efnahagsstefnu
stjórnvalda í Hanoi séu varanlegar
og að nú sé rétti tíminn fyrir þau
að koma sér fyrir á markaðnum í
Víetnam og grípa tækifærin.
Fyrstu opinberri heimsókn for-
sætisráðherra Íslands til Víetnam
lauk síðastliðinn laugardag en hún
stóð yfir í fjóra daga.
Forsætisráðherra segist telja að
opinbera heimsóknin hafi verið
þýðingarmikil út frá viðskipta-
hagsmunum.
„Víetnamar virðast vera á
krossgötum. Þar er ríkari vilji en
áður til að setja viðskipti í önd-
vegi og þær aðferðir sem við höf-
um nefnt markaðslausnir virðast
vera að ná fótfestu, þrátt fyrir að
þarna sé kommúnistastjórn. Mér
fannst til dæmis ótrúlegt þegar
fulltrúi Ho Chi Minh-borgar ræddi
um hlutafélagavæðingu og síðar
einkavæðingu borgarfyrirtækja og
að stefnt væri að því að einka-
væða helming fyrirtækjanna fyrir
2005.“
Davíð segir ljóst að lögð sé mik-
il áhersla á viðskiptalífið. „Þeir
hafa áður talað um að auka við-
skipti við erlend fyrirtæki, veitt
um það munnleg vilyrði en nú
virðist sem þeir séu komin miklu
lengra og vilji gefa viðskiptalífinu
raunverulegt tækifæri.“ Í því sam-
bandi getur hann þess að Íslend-
ingar hafi verið að lækka tekju-
skatt fyrirtækja niður í 18% en í
Víetnam væri aðeins lagður 10%
skattur á ný fyrirtæki. „Ég gat
þess í kvöldverðinum með borg-
arstjóra Ho Chi Minh-borgar að
ekki hefði ég átt von á því í þessu
landi að þeir væru lengra komnir
en við á þessu sviði,“ segir for-
sætisráðherra.
Davíð telur að íslensk fyrirtæki
geri þróuninni í Víetnam mest
gagn með því að vera sem virk-
astir á markaðnum. „Ég tel að
markaðurinn muni springa út og
þá þurfa menn að vera búnir að
koma sér fyrir, eins og Marel er
að gera núna, og grípa tækifærin
þegar þau gefast. Tímasetning
skiptir miklu máli í viðskiptum,
eins og stjórnmálum. Ég held að
núna sé rétti tíminn til að tengja
sig við Víetnam.“
– Hver er tilfinning þín fyrir
stjórnmálaástandinu, telur þú að
breytingar séu í væntum?
„Ég átta mig ekki á því hver af-
staða fólks er til stjórnar komm-
únista. Þeir virðast fara heldur
mjúkum höndum um fólkið. Það
er athyglisvert að í Víetnam er
ekki sama persónudýrkun á for-
ingjum, til dæmis aðalritara
Kommúnistaflokks Víetnams, sem
öllu ræður, og var í austantjalds-
ríkjunum, nema að því leyti sem
snýr að minningu hins látna leið-
toga, Ho Chi Minh.
Þá fannst mér merkilegt hversu
óvíða maður sá áróðursplögg,
svipuð þeim sem áberandi voru í
kommúnistaríkjum. Og í Ho Chi
Minh-borg er áberandi lítið um
þetta.“
– Telur þú að breytingar í efna-
hagsmálum og aukin erlend við-
skipti muni einnig leiða til breyt-
inga í stjórnmálum?
„Það virðist vera áhætta sem
þessir ráðamenn eru tilbúnir að
taka. Sjálfsagt er verið að reyna
að fara leið Kínverja, að skilja á
milli pólitísks frjálsræðis og
frjálsra viðskipta. Við höfum
dæmi um slíkt úr sögunni. Þannig
leyfði stjórn Francos á Spáni fyr-
irtækjunum að starfa í markaðs-
hagkerfi en pólitísk réttindi fólks
voru hins vegar mjög naumt
skömmtuð,“ segir Davíð Oddsson.
Rétti tíminn
til að tengjast
Víetnam
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Forsætisráðherrahjónin, Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen, framan við heimili Ho Chi Minh í Hanoi, ásamt
Ólafi Davíðssyni ráðuneytisstjóra, Ólafi Egilssyni sendiherra, forstöðumanni safnsins, leiðsögumanni og sendi-
herra Víetnams á Norðurlöndum. Davíð segir að heimsóknin hafi verið þýðingarmikil út frá viðskiptahagsmunum.