Morgunblaðið - 09.04.2002, Side 23

Morgunblaðið - 09.04.2002, Side 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 23 SlankUfit Dregur úr hungurtilfinningu og örvar meltinguna Pure Plan Detox Hjálpar líkamanum að hreinsa sig Heilsubót vikunnar Verð 1.498 Áður 1.998 Appelslim Áhrifarík leið til að brenna kaloríum án fyrirhafnar! Verð 890 Áður 1.177 Verð 1.190 Áður 1.490 Drekktu í þig fróðleik www.endurmenntun.is Dragtir - Kjólar - Blússur Vorlínan er komin Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið úrval AÐ minnsta kosti 12 manns létust og rúmlega 100 særðust þegar bílsprengja sprakk í borginni Villavicencio í Kólumbíu á sunnu- daginn, skömmu eftir að óþekktir vígamenn myrtu kaþólskan prest og kirkjugest í nærliggjandi héraði þegar hann var að veita sakra- menti. Enginn hefur lýst tilræðunum á hendur sér, en Luis Camilo Osorio ríkissaksóknari sagði að allt benti til þess að vinstrisinnaðir uppreisn- armenn í Byltingarher Kólumbíu (FARC) hefðu verið að verki. Andr- es Pastrana forseti kom til Villavic- encio og sagði m.a. að bílsprengja í Kólumbíu, líkt og í Miðausturlönd- um, væri hryðjuverk, og kallaði eft- ir stuðningi heimsbyggðarinnar. Pastrana hefur hvað eftir annað fal- ast eftir fjárhagsaðstoð frá Banda- ríkjamönnum til að berjast við skæruliðahreyfingar í Kólumbíu. Minni sprengja sprakk áður en bílsprengjan sprakk, og virtist þeirri fyrri ætlað að laða að fólk. Sjötíu manns voru fluttir á sjúkra- hús, margir alvarlega slasaðir. Bílsprengjan olli miklum skemmd- um á húsum í grenndinni. Presturinn og kirkjugesturinn voru myrtir í Huila-héraði, suður af Bogota síðdegis á laugardaginn. Ekki er vitað hverjir tilræðismenn- irnir voru eða hver var ástæðan fyrir tilræðinu. Erkibiskupinn í borginni Cali var myrtur af óþekkt- um vígamönnum um miðjan síðasta mánuð. Fjöldi presta og biskupa í landinu hafa fengið morðhótanir, að sögn lögreglu. Lík Perez fundið Borgarastríð hefur staðið í Kól- umbíu í nærri fjóra áratugi, og meðal nýjustu fórnarlamba þess var lögreglumaður, sem uppreisnar- menn höfðu haft í haldi, en sonur hans lést úr krabbameini í fyrra án þess að hafa fengið að sjá föður sinn, Jose Norberto Perez. Perez var tekinn í gíslingu í mars 2000, en mál hans og dauðvona son- ar hans, Andres Felipe, vakti heimsathygli og buðust yfir tvö þúsund manns víðs vegar í heim- inum til að verða gíslar uppreisnar- manna ef þeir vildu sleppa Perez svo að hann gæti fengið að hitta son sinn. Meðal þeirra sem skárust í leikinn var Jóhannes Páll páfi, sem krafðist þess að Perez yrði lát- inn laus. Líkamsleifar Perez og annars lögreglumanns, Victors Maruland- as, fundust sl. föstudag skammt frá bænum Granada, og virðist sem þeir hafi verið myrtir nokkrum dögum áður þar sem þeir hafi verið að reyna að flýja. AP Kólumbíumaður í íbúð sinni sem skemmdist þegar bílsprengja sprakk í borginni Villavicencio á sunnudag. Tólf fórust í sprengju- tilræði í Kólumbíu Bogota. AFP. ÞEGAR aðeins hálfur mánuður er til fyrri umferðar forsetakosning- anna í Frakklandi hefur Jacques Chirac forseti náð örlitlu forskoti á helsta keppinaut sinn, Lionel Josp- in forsætisráðherra. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í gær, fær Jospin 18,5% at- kvæða í fyrri umferðinni 21. apríl eða 1,5 prósentustigum minna en í síðustu könnun. Chirac bætir aftur á móti við sig tveimur og fær 22% atkvæða. Hvorum um sig er spáð 50% í síðari umferðinni en síðustu vikur hefur Jospin heldur haft vinn- inginn. Það þykir spilla fyrir Jospin hve forsetaframbjóðendurnir á vinstra kantinum, fyrir utan Jospin sjálfan, eru margir, sjö talsins, en sam- anlagður stuðningur við þá í fyrri umferðinni er 31%. Sex keppinaut- ar Chiracs á hægra vængnum fá hins vegar aðeins 23,% atkvæða í fyrri umferðinni ef marka má kann- anir. Jospin þykir ekki ná vel til fólks, vera allt of stífur og prófessors- legur, og er það nefnt sem dæmi, að hann virðist eiga erfitt með að segja „ég“. Í stað þess að segja „ég tel“ eða „ég vil“, segir hann gjarnan „frambjóðandinn telur“. Chirac á hins vegar ekki í neinum slíkum vandræðum. Lionel Jospin Jacques Chirac Jospin gefur eft- ir fyrir Chirac París. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.